Með sól í hjarta ætla ég að ganga inn í sumarið með mínu fólki og þakka fyrir veturinn hér í bloggheimum, held að ég hafi rosalega gott að algjöru fríi.  Japl, jaml og fuður síðustu mánaða hefur tekið sinn toll af sálarlífi mínu og ég er komin með nóg af þjóðlífinu.  Ætla að einbeita mér að fólkinu mínu og láta hverjum degi nægja sínar þjáningar.  Vonandi eigið þið öll gott sumar og njótið lífsins, munum að vera tillitssöm og þolinmóð og leggjum af skæting og illsku, gagnkvæm virðing er málið.
GLEÐILEGT SUMAR
p.s. svona í framhjáhlaupi þá tók ég eftir því að ég er í 16. sæti á blogglistanum, það er Eurovision talan okkar, vonandi förum við ekki neðar en það í maí.
Hefur fólk ekki almennt heyrt talaðu um ástina?  ást og kærleik sem nær út yfir allt og allt?  ást sem gerir þig blinda/n fyrir útliti og jafnvel innræti, ef viðkomandi er barnið þitt. ?  þvílík spurning og þvílík hetja að orga hreinlega ekki á viðkomandi spyril.  Eins og það sé ekki nógu erfitt að ferðast í gegnum lífið í hennar líkama, þó svo að "short minded" fréttafólk kom ekki með svona fáránlega, heimskulega spurningu.  Sem betur fer er það minni hluti fólks sem hugsar svona og fagnar hverju lífi án tillits til sköpunarlags og eða andlegrar
heilsu. Marga hef ég hitt á lífsleiðinni, sem kljást við fötlun og ekkert af því fólki hefur valdið mér vonbrigðum, hins vegar hafa margir "heilbrigðir" bæði sært mig og valdið mér vonbrigðum.  Hugsum áður en við tölum og umgöngumst alla af sömu virðingu, það er mín tillaga inn í sumarið.
Ekki haga okkur svona.
Í gær ákvað ég að kynna mér þessa vegagerð, eins vel og ég gat gegnum netið. Skoðaði teikningar af fyrirhuguðu vegarstæði ofl.  Að því loknu og eftir að hafa rætt þetta við eiginmanninn, komumst við að þeirri niðurstöðu að okkur fyndist þetta allt of mikil og róttæk framkvæmd fyrir þetta svæði.  Hversvegna þarf að gera svona flókið vegakerfi þarna?  er ekki bara málið að gera beinan og breiðari veg, sem liggur ekki alveg upp við byggðina sem er þarna?  kannski hefði átt að hafa byggðina örlítið fjær í upphafi og þá hefði verið hægt að breikka gamla veginn?  en nú spyr sú sem ekki veit nóg, kannski, en ég vil vernda náttúruna að því marki að ekki sé farið út í óþarfa rask og slaufugerðir.  Mín niðurstaða er allavega sú að það þurfi að skoða þetta betur og hugsa sig vel um.
Einn mesti hálfvita og glannaskapur sem til er, er að keyra drukkinn og/eða undir áhrifum vímuefna.  Hvað skildu vera margir "asnar" í viðbót sem ætla að prófa þetta?  því miður held ég að á hverjum degi, séu tugir í annarlegu ástandi þegar þeir eru að aka.  Nýlegt dæmi:  ég var að koma austur á Selfoss a síðasta þriðjudagskvöld, var fyrir aftan jeppa með hestakerru og hross í, bíllinn ók óvenju rólega og þar sem við vorum á leið niður kambana, keyrði ég bara a eftir honum, en reyndi ekki framúrakstur, reyndar var viðkomandi líka örlítið rollandi til og frá, en ég hélt kannski að það væri kerrunni að kenna. Þegar niður á sléttlendið kom, fór ég framúr og þar sem ég var farþegi, hafði ég góðan tíma til að virða bílstjórann fyrir mér, hún var ein á ferð og greinilega mjög upptekin, bæði í símanum og eins að sinna einhverju sem var í sætinu við hlið hennar því hún leit stanslaust til hliðar og niður og svo örsnöggt upp til að taka stefnuna, mér drullubrá og dauðlangaði að stoppa og skamma viðkomandi, en þar sem maður veit aldrei hvaða skít maður fær yfir sig þá gaf kallinn minn í, upp að hámarkshraða og hún varð eftir,  hvað er fólk að gera annað en að keyra þegar það er að keyra???  spyr sú sem ekki veit.
Hvað getum við, almenningur, gert til að berjast á móti þessari græðgi ?  ég persónulega geri allt sem ég get gert frítt, en það fækkar alltaf þeim kostum.  Ég tek aldrei pening út úr hraðbanka nema það kosti ekkert, tek út peninga í mínum eigin banka og nota til að greiða með í verslunum svo ég fái ekki posa gjald ofl. ofl.  þetta eru hræðilegar tölur og við borgum.