Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2012

Selfoss calling "four points"

Ekki get ég sagt að mér hafi þótt þetta notalegt, en hann var gjör óllíkur þeim stóra 2009.  Þessi var frekar mjúkur og ekkert heyrðist í skápum. Sófinn dinglaði töluvert, þetta var eins og að fara ofaní holu á vel fjöðruðum bíl.  Vona bara svo innilega að það komi ekki fleiri, ekki mitt uppáhalds.  Eigið góðan dag.
 
Skoðið vel myndina sem fylgir fréttinni, þarna liggur Kristur í Vífilfelli, sé aldrei fjallið sem slíkt, heldur alltaf Krist í ýmsum búningi.
 
dsc03412  

mbl.is Jarðskjálfti upp á 4,6 stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er alveg borðleggjandi !

Einmitt svona starfar núverandi ríkisstjórn. Leggur himinháa skatta á það sem er að koma sér vel fyrir þjóðarbúið og rústar þannig greininni.  Hreint dásamlegt að fylgjast með Jóhönnu, Steingrími og co og sjá hversu heimskulegar ákvarðanir þau taka á mörgum sviðum. Ég er bara ekki að skilja þetta. Er ekki hægt að tala við þau með "tveim hrútshornum"?  Ja, nú dámar mér.
 
  taurus-ani_p3o56am7

mbl.is Hækkun gerir hótel órekstrarhæf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér finnst þetta snilld.

Sé alveg fyrir mér að ég taki strætó norður á Akureyri, heimsæki vini og vandamenn í tvo, þrjá daga og taki svo vagninn heim á ný, ódýrt og þægilegt. Verð bara að hrósa Strætó sérstaklega, fyrir þetta framtak, verum svo dugleg að nota þessa þjónustu, niðurstaðan verður í plús fyrir alla.Smile
 
images  
 
straetoferd  

mbl.is Ferð í Staðarskála kostar tíu miða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

If you are lost in the world, come to Iceland, we will help you find yourselve. Björgunarsveitirnar.

Þetta er dásamleg frétt þegar upp er staðið, þó svo að ég viðurkenni, að það fór hálfgerður aulahrollur um mig við fyrsta lestur.  Velti því fyrir mér hvort ekki sé talið í rúturnar, því erfitt getur verið fyrir bílstjóra að þekkja alla í útliti.  En þetta er líka gott dæmi um það, hvernig konum tekst að breyta útliti sínu á "no time".  Inn á wc í smá stund og "púff" út stígur glæsikvendi sem enginn þekkir. Semsagt, ef þér finnst þú týndur "lost" í veröldinni, þá kemur þú bara til Íslands og meira að segja björgunarsveitirnar okkar frábæru, munu hjálpa þér að finna sjálfa þig.  Milljóna auglýsing fyrir okkur um allan heim og engu kostað til. SNILLD.
 
  lost-kvk-t-shirt

mbl.is „Sjálfsleitin“ vekur heimsathygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkast það ekki undir snilld, hvernig stjórnmálamenn svara spurningum?

Hef lítið nennt að gera í dag nema lesa fréttir og liggja í leti. Hef verið að ergja mig yfir pólitík, sem er meinhollt. Skil ekkert í mér að nenna þessu, en svona er þetta stundum.  Var að lesa þessa frétt sem ég tengi hér við og hjó alveg sérstaklega eftir tilsvörum Katrínar, það er hrein snilld hvernig hægt er að svara spurningum, og niðurstaðan er ekkert svar. " Þau eru sammála um að einmitt núna þurfi að fara vandlega yfir stöðu málsins", var ekki fundurinn einmitt haldinn til þess?  gátum við þá ekki ætlast til að raunhæf og skynsamleg svör, ja allavega svör, lægju fyrir um áhuga VG á aðild að ESB.  Þetta eru engin svör.  Hef oft velt því fyrir mér, hvort það séu haldin sérstök námskeið fyrir verðandi stjórnmálamenn, þar sem þeim er kennt að fara í kringum hlutina og svara aldrei neinu hreint út. Þeir virðast aldrei geta sagt satt og rétt frá, hvað þá svarað eins og aðrir með jái eða nei-i, það þarf alltaf að sveigja allt og beygja svo eftir stendur eiginlega bull og vitleysa.   Það má segja um þá flesta sem sitja að þeir séu ekki lygnir en þeir segja sjaldan satt og rétt frá. Annars ætla ég bara ekkert að ergja mig meira yfir þessu, ég gæti örugglega ekki gert betur, og ekki vildi ég vinna þetta starf, ætti kannski bara að vera þakklát fyrir að einhver nennir þessu stappi, held ég þyrfti að fá ansi vel greitt fyrir til að vilja vera á þingi. Stundum er bara gott að geta verið heima með derring upp í sófa og látið sig dreyma um eitthvað allt annað en er í gangi í stjórnmálum landsins.  Eigið góða helgi. 
 
4-4-12_012  

mbl.is Áfram samstarf vinstrimanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"VÖRN VELFERÐAR STÆRSTI SIGURINN !" afsakið meðan ég æli.

Á minni 56 ára löngu ævi , þá man ég ekki þá tíð að eins hafi verið þrengt að í velferðarkerfi landsmanna (leiðréttið mig ef þarf) gamla fólkið líður, fátækt er meiri, eignir sem fólk átti hugsanlega 40% í fyrir 3 árum eru komnar í mínus og fólk á mínum aldri sem sá fram á að hafa það gott eftir fimmtugt, orðin ein heima, börnin farin að sjá um sig sjálf, erum ekkert í betri sporum, fyrir láglaunafólk og öryrkja er þetta bara hreinlega ekki hægt.  Jóhanna og hennar fólk ásamt og með öllum öðrum sem koma að sjórnmálum landsins hafa ekki þurft að færa neinar fórnir.  Fórnirnar hafa verið færðar af fólkinu sem alltaf hefur haft minnst  og það fólk mun halda áfram að færa fórnirnar.  Með þessu er ég þó ekki að fullyrða að hægri stjórn hefði verið nokkuð betri, þetta er ekki blogg um vinstri/hægi heldur framkomu við okkur, þjóðina sem þarf að fá að njóta árangurs erfiðis síns. Haldið bara áfram að klappa hvert öðru og dettið svo ærlega í það í kvöld, á okkar kostnað.

mbl.is Vörn velferðar stærsti sigurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í dag (24.8.): 44 Sl. sólarhring: 89 Sl. viku: 904 Frá upphafi: 1347474

Set þetta hér að gamni mínu þar sem ég hef gaman af tölum. 
Hvað eru margir fjarkar í því.?
7
 

Ein sem þorir.

Loksins einhver sem segir NEI, auðvitað á þetta að vera löngu liðin tíð, busanir eru gamaldags og hallærislegar.  Fyrir ótal, ótal mörgum árum síðan, 1972, innritaðist ég í Verzlunarskóla Íslands og mér er það minnisstætt að í stað busanna, sem áttu sér stað í Menntaskólum borgarinnar, var okkur nýnemum, boðið á sal í kaffi og kökur. Þvílíkur léttir fyrir mig og aðra að þurfa ekki að fara í gegnum einhverja hræðilega busun.  Þetta er í raun ekkert annað en niðurlæging, sum okkar sáu það þá en það tók aðra lengri tíma að þroskast og átta sig á hversu niðurlægjandi þetta er.  Ég er ánægð með Olgu og vona svo sannarlega að fleiri skólastjórar ÞORI að segja NEI og banni svona framkomu við nemendur í skólum landsins. 
 

mbl.is Bannað að busa á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki komið út í tóma vitleysu ?

Ég er alveg steinhætt að trúa öllum þessum ásökunum um kynþáttaníð. Mér finnst þetta ver orðið algjörlega innihaldslaus og léleg afsökun fyrir ýmsu.  Ég hef verið ásökuð um kynþáttafordóma afþví ég hafði skoðun á svörtum manni þó svo að skoðun mín tengdist því alls ekki hvernig hann væri á litinn.  Undir hvað á að flokka þá sem reka feita og ljóta íþróttamenn útaf velli, hvað hata þeir?  Held það verði að fara jafn varlega í þessu eins og nauðgunar málum og ásökunum um kynferðislega áreitni. Því miður er svo auðvelt að misnota þessar ákærur á þann hátt að þær hætti að virka þegar þær raunverulega eru fyrir hendi,  Ég hreinlega neita að trúa því að menn sem eru dómarar í keppnisleik, séu svo illa af guði gerðir að þeir reki fólk útaf fyrir að vera dökkt á litinn og ég segi nú bara að þeir leikmenn sem hugsanlega níðast á mótherjum sínum vegna litarháttar þeirra eiga bara ekkert erindi í íþróttina, þeir eiga hreinlega að gera eitthvað annað.  En ég er náttl. óttarlega skrítin. 

mbl.is Leikmaður sakaður um kynþáttaníð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er svona álíka íþróttamannslegt og bjórdrykkja á kappleikjum.

Ég ætla nú bara að leyfa mér að vera gagnrýnin.  Finnst hallærislegt þegar íþróttaunnendur "nenna" ekki að labba smá spöl á leik og leggja þar með löglega, nei, heldur þarf að leggja upp á túni og stytta þannig mögulegan gönguspöl að velli.  Þetta finnst mér álíka hallærislegt og að þurfa að drekka bjór á kappleikjum. Það er bara staðreynd að allt of stór hópur Íslendinga kann ekki að fara með áfengi og það þýðir sko ekkert að mótmæla mér, ég er orðin það fullorðin að ég veit alveg hvað ég er að segja.  Sjáið þið t.d. fyrir ykkur að hægt væri að selja bjór í bíó eins og gert var í bíóhúsum í Hollandi fyrir 25-30 árum síðan?  þar sást ekki vín á nokkrum manni og enginn var með læti, samt voru margir að drekka. Hér væri allt komið í bál á brand fyrir hlé.  Tala nú ekki um tónleika, þar sem ég get reyndar skilið að einhverjir vilji fá sér í tánna, enn að "detta í'ða" á slíkum viðburðum er mér með öllu óskiljanlegt, þó mér hafi nú þótt gott að fá mér bjór og léttvín, þá hef ég aldrei snert slíkt á tónleikum, þá fara hlutirnir að fara fyrir ofan garð og neðan og daginn eftir getur maður bara sagt, það var rosalega gaman, þó án þess að muna svo voða vel af hverju. Þeir tónleikar sem ég hef séð á Íslandi er alltaf á mörkunum við að leysast upp í sveitaballastemmingu og hundleiðinlegt hvað fólk rápar fram og til baka, öðrum til ama, bæði til að pissa og drekka meira. Ég held við ættum frekar að draga úr drykkju á opinberum viðburðum, nógur er nú tíminn samt til slíkrar iðju.  Farið varlega inn í helgina og hagið ykkur vel. 
 
abrn201l  

mbl.is Latir íþróttaáhugamenn sektaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband