Bloggfærslur mánaðarins, júní 2012

Stemmir við mína eigin verðkönnun sem ég gerði í ný liðinni viku hér á Selfossi.

Við höfum auðvitað ekki allar þær verslanir sem eru á höfuðborgarsvæðinu, en hér er Nettó, Krónan, Bónus og Samkaup held ég það heiti.  Ég fór þá leiðina, að versla fyrst í Nettó og fór svo með þann strimil og verslaði í Krónunni, það var bara hræðilegt, Nettó er engan vegin að gera sig hér í bæ. Allt var dýrara og fyrir mína matarkörfu munar bara allt of miklu, fer ekki þangað aftur. Held að Selfyssingar hafi verið fljótir að átta sig á þessu því að þarna er aldrei neitt að gera þó svo Nettó reyni að vera með grill og uppákomur um helgar, held þeir ættu bara að játa sig sigraða strax.  Nú var komið að Bónus, þeirri búð sem ég hef verslað mest í, ég riggaði austur eftir á bílnum, því Bónus er ekki lengur í göngufæri, það er mínus.  Svo verslaði ég mína venjulegu heimiliskörfu og  nokkrum dögum síðar fór ég með þann strimil í Krónuna og bar saman og viti menn, Krónan var einni krónu yfir í flestu, nema einum kexpakka sem var sex krónum dýrari hjá krónunni heldur en Bónus, aðeins 3 vöruflokkar í Krónunni voru ódýrari og þá 2-3 krónum.  Þetta á auðvitað bara við um mína privat matarkörfu, en semsagt þá kemur þessi frétt og niðurstaða hennar mér ekki á óvart.  Samkaup er svo verslun sem erfitt er að bera saman við, þar er allt annar opnunartími og verð þar því mun hærra, það versla ég bara í hallæri.  Svo má geta þess að lokum að Krónan er í göngufæri fyrir mig og þá sparast bensín.  
 
Góðar stundir 

mbl.is Hækkun hjá öllum nema Krónunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málið er leyst, Óli verður 4 ár í viðbót. !!

Þetta er eins og að fá að vita kyn barns fyrir fæðingu, öll spenna horfinn úr þessu. Reyndar hefur þetta ekkert verið spennandi kosninga barátta.  Of mikið af undirbeltis höggum úr ýmsum áttum eins og við var að búast, því miður.  Ég kaus í gær og hef því skilað mínu.  Vonandi verðum við sem þjóð, örlítið þroskaðri eftir 4 ár þegar við loksins veljum nýjan forseta.  Verið góð við hvert annað, haldið friðinn og sýnið af ykkur kærleik og ást, lífið er of stutt til að vera að rífast eða þrasa.  Góða helgi.
 
 
 
!  VIVA ESPANIA  ! 
 
 
x_s2qWisBz0  

mbl.is Afgerandi forysta Ólafs Ragnars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við þessu er bara eitt ráð !!

Skrilljón  broskalla
 
large-smiley-faces  
 
 
 
 
OG SENDA ÞÁ Í PÓSTI TIL LA.

mbl.is Allar í banastuði nema ein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við Gróa gætum ekki verið meira sammála Brynjari.!!

Enda skömmumst við okkur fyrir hvernig fólk hefur látið.  Það eru samt ekki nýmæli að sakleysi þurfi að sanna,úti í samfélaginu,  margur hefur verið lygum borinn gegnum tíðina og því meir sem hann hefur reynt að sverja af sér sakir, því harðari hafa "sleggjudómarar" verið í því að sakfella viðkomandi.  Þetta er einn versti ljóður í fari fólks.  Við höfum ýmis dæmi núna og ber kannski helst að nefna Svavar mann Þóru frambjóðanda, hann er borinn sökum út og suður og kemur það mál bara alls ekki forsetakosningunum við, að mínu mati.  Ég vil því bara enn og aftur höfða til betri manns, bloggara, tístara, feisara og annarra beturvitrunga að gæta orða sinn og haga sér eins og viti borin manneskja, ekki eins og skríll. 
 
 

mbl.is Nýmæli að sakleysi þurfi að sanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í hjónabandi er þá nauðsynlegt að ástin og lostinn beinist að sömu manneskjunni.

Alltaf gaman af svona rannsóknum og niðurstöðum og mér finnst þessi niðurstaða mjög svo í samræmi við mína eigin reynslu í lífinu.  Tel að maður hafi fundið sinn rétta maka þegar þessir tveir þættir, ást og losti,beinast alfarið að sömu manneskjunni.  En lífið er sjaldan einfalt, margir þurfa að berjast við það allt sitt líf að ná ekki að sameina þessa þætti, það er nú einmitt það sem veldur öllum þessum vandamálum og uppákomum sem við mannfólkið lendum í.  Þrátt fyrir rannsóknir og annað held ég að vandinn með framhjáhöld og skilnaði verði aldrei leystur. Mannskepnan flækir þessi mál fram og til baka, hefur gert í þúsundir ára og mun gera svo lengi sem líf finnst hér á jörðu.  Reynum þessvegna að njóta hvers dags, vera góð og reyna að vera skynsöm, bera virðingu fyrir næsta manni og sýna traust og heiðarleika.  Úff ég er bara farin að hljóma eins og frambjóðandi..... og talandi um það langar mig einmitt að koma á framfæri þeirri hugsun minni síðustu daga, hversu ódýr orðin  virðing - traust - heiðarleiki eru orðin og hvað þau hrífa mig ekki lengur í munni þeirra sem mest hafa notað sér þau undanfarin ár.
 
7202422-beautiful-naked-couple-in-passion-love-over-black-background  

mbl.is Munur á ást og losta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður þáttur í heildina. Væri ekki betra ef við fengjum að kjósa fyrst með hjartanu og svo heilanum?

Í mínum huga eru þær sigurvegarar kvöldsins, Andrea og Herdís.  Þóra er farin að ofspila all svakalega og mér fannst hún undirstrika þá skoðun sem hefur verið að mótast í huga mínum, að hún er að vinna fyrir ákveðinn þjóðfélagshóp,  fólkið sem hefur það bara alveg ágætt og kvíðir ekki árunum sem ókomin eru, hún er líka ung og skilur ekki þá sem eldri eru.  Þóra notar mikið orðin auðmýkt, virðing og samstaða, en mér finnst ekki neitt á bakvið þau. Reyndar ofnota þau flest þessi orð og það er þeim ekki til framdráttar í mínum huga.  Hannes er lágætur á margan hátt en ekki sá forseti sem við þurfum núna.  Ari Trausti veldur mér vonbrigðum því meira sem ég heyri í honum, því minna finnst mér varið í hann og það segir mér að ég verði fljótt óánægð með hann sem forseta. Ólafur er svipaður því sem hann hefur verið í 16 ár og einmitt þessvegna ættum við að fá nýjan forseta, það er ekkert sem hann þarf að gera sem góður og vel valinn nýr forseti gæti ekki gert. Eftir sit ég þá með það að þurfa að gera upp hug minn, gef mér þrjá daga í það en allavega Ari Trausti er dottin af stallinum hjá mér.

mbl.is Andrea myndi leggja fram frumvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef Gróa á Leiti væri á lífi mundi hún skammast sín fyrir Íslendinga.

Það er allavega mín skoðun.  Kannski er ekki rétt hjá mér að tengja við þessa frétt, hefði alveg eins getað tengt við mál Önnu Kristínar ofl.ofl.  Allavega þá er svo komið að við, besservissarar landsins ættum að fara að horfa í eigin barm.  Hér situr fólk í löngum bunum við tölvur sínar og gubbar út úr sér hroða og skömmum út í allt og alla, algjörlega án þess að hugsa, ja þó ekki væri nema sólarhring fram í tímann, hvað þá nokkra mánuði aftur í tímann til að leita að öðrum málum sem hafa verið rugl og bull, blásin upp í bloggi, DV eða öðrum fréttamiðlum sem fólk er að lesa.  Vald puttanna er orðið allt of mikið og því miður þá hleypur stór hluti lesenda eftir skoðunum manna og skiptir án efa jafn oft um skoðun eins og greinafjöldinn sem það les.  Stóri gallinn á okkur mörgum er sá að telja að allt sem sett er á prent sé stóri sannleikur.  Við virðumst mörg hafa tapað þeim eiginleika að líta í eigin barm, skoða söguna, vega og meta og nýta okkur þá skynsemi sem okkur var gefin í vöggugjöf, eða ræktuð af góðum foreldrum.  Ekki ætla ég nú að stimpla mig sem "heilaga kú" í þessum málum, hef einu sinni hlaupið rækilega á mig í bloggheimum en fékk það í andlitið og lærði af því.  Tökum okkur nú öll á verum skynsöm og allavega sjálfum okkur til sóma, þykjumst ekki vita það sem við höfum ekki hugmynd um, hættum dylgjum og dónaskap og reynum að bera þá sömu virðingu fyrir öðrum sem við viljum að aðrir sýni okkur.  Gilz málið er sorglegt, allra aðila vegna og ég hef frá fyrstu stundu verið sannfærð um að þarna var ekki allt sem sýndist, þessvegna sagði ég ekkert, hafði semsagt vit á því að þegja þar til niðurstaða fékkst.  Ótrúlega margt ljótt hefur verið sagt um þennan unga mann og þó svo að hann sé opinber persóna að eigin vali þá þýðir það ekki í mínum huga að hann sé þar með búinn að gefa aftöku leyfi á sjálfan sig.  Maður líttu þér nær.  Margar konur sem gefa sig út fyrir að vera "feministar" hafa farið offari í þessu máli og því miður alls ekki til hjálpar fórnarlömbum nauðgana, heldur þvert á móti í mínum huga, hatrið sem þær sýna eyðileggur fyrir ungum konum sem lenda í þeirri skelfilegu lífsreynslu að vera misnotaðar.  Ég veit svosem að orð mín hafa lítil áhrif á almenning, hatrið, grimmdin og offorsið virðist vera komið til að vera og ég persónulega skammast mín fyrir það fólk sem lætur svona, en er ekki allavega byrjun ef ein kona ákveður að hafa sig hæga í bloggheimum og passa hvað hún skrifar, kannski fylgja fleiri í kjölfarið.  Við Gilz og kærustu hans og ungu konuna sem kærði þau, vil ég bara segja, gangi ykkur vel að byggja líf ykkar upp á ný, finnið sannleikann í hjörtum ykkar og þá mun allt fara vel. Eitt enn, mér hefur alltaf fundist Gilz skemmtilegur og þegar hann hefur verið að skjóta á feminista og konur þá hef ég alltaf séð í gegnum hann.

mbl.is Mannorðið beðið alvarlegan skaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ert þú að gera hér? ertu ekki framsóknarmaður?

Þekki mann sem mætti á fund hjá Þóru í dag og var spurður þessarar spurningar. Öðrum fundarmönnum fannst honum greinilega ofaukið þar sem hann styddi framsókn en ekki samfylkinguna.  Er þetta virkilega svona rækilega niðurskipt?  ég hef ekki viljað trúa því en hallast núna að því að svo sé.  

Ég ætla að kjósa Ara Trausta, maður á að kjósa þann sem manni líst best á, ekki satt.?

 

Góðar stundir! 

 

munnyweek31  


mbl.is Ólafur Ragnar heldur forystunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú fékk ég gæsahúð af tómri gleði !!

Minn kæri vinur og sveitungi, Sigurjón Pálsson, hlaut blóðdropann fyrir bókina Klæki.  Ég var svo heppin að fá hana í hendurnar strax eftir að hún rann úr prentsmiðju og las hana upp til agna og varð yfir mig heilluð.  Er búin að hrósa þessari bók út og suður og mana fólk til að lesa hana.  Ég er mikill lestrarhestur og hef lesið ógrynni af spennusögum og gat með engu móti skilið, hversvegna enginn vildi gefa hana út.  Bókin er snilld, algjörlega tær snilld og bíð ég spennt eftir næstu bókum frá Sigurjóni.  Til hamingju kallinn minn, hlakka til að hitta þig á Mærudögum. 

 

 

SKORA Á ALLA SEM HAFA GAMAN AF GÓÐUM SPENNUSÖGUM AÐ LESA ÞESSA BÓK. 

 

 


mbl.is Enginn vildi gefa bókina út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Völundur.

......og til hamingju Húsvíkingar með piltinn.  Ekki amalegt fyrir bæinn að vera með þennan unga mann á fullu að kokka, ásamt og með öllum þeim sem fyrir eru.  Er farin að trúa því að það sé uppsveifla á næsta leiti í bæ og sveit.  Mínir heimamenn eiga alveg skilið uppgang því mikið hefur verið skorið niður á síðasta áratug, veit ekki hvernig þetta væri ef við hefðum ekki haft hvalaskoðunar bátana. Mikið hefur verið gert fyrir ferðamenn og eitt veit ég að Húsvíkingar gefast aldrei upp.

mbl.is Völundur Snær vinnur gullverðlaun í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband