Bloggfærslur mánaðarins, maí 2012

Einmitt, frekar ógeðslegt.

En svona er Ísland í dag.  Verðum víst að sætta okkur við þetta eitthvað áfram, vildi óska að það væri samt ekki svo, þetta er frekar mikið ógeð og pirrandi, en ef ekkert væri erfiðara í lífinu en aska af og til þá væri allt auðvelt.  
Nýtum dagana til góðra verka og verum vinir.
 
  friends animation card greetings graphics gif

mbl.is Sambland ösku- og sandfoks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér sýnist nú að fleira hafi gleymst en undirfötin.

Ég er mikil talsmanneskja heilbrigði og hollustu og tel að því nær kjörþyngd sem fólk sé almennt séð, þá sé heilsan betri, dæmi það eingöngu út frá sjálfri mér þar sem ég hef bæði þjáðst af því að vera of feit og of horuð.  Myndin sem við sjáum með þessari frétt er einfaldlega hræðileg, það er "ekkert" fallegt við þennan fótlegg, heldur bara sorglegt að sjá að það sé búið að rugla svo upp í kollinum á fólki að það telji að svona horleggur sé fullur af munaði og fegurð.  Hvað er til ráða?  stórt er spurt, auðvitað verður hver og einn að gera það upp við sig hvernig hann vill vera og þeir sem eru of/van eitthvað ættu að leita sér hjálpar, en að telja ungum stúlkum trú um að þetta sé "sexy" eða fallegt er skelfilegt, fræðsla, fræðsla og meiri fræðsla um það hvað er hollt og gott er alltaf best.  
 
 
 
Hvarflar að nokkrum manni að halda því fram að þetta sé fallegt? 

mbl.is Gleymdust undirfötin heima?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djjjjjjjjjjjjjjjjjjj er maður búinn að heyra þennan brandara oft !!

Skammast þetta fólk sín ekkert þegar það opnar munninn?  endalaust bull sem út úr þeim veltur. Hvenær stóð til að aðstoða heimilin?  var ekki alltaf meiningin að vernda bankana og fjármálakerfið?  eins gott að nóg sé til í sjóðum til að borga þingmönnum laun og eftirlaun og bitlinga og allt það kjaftæði.  Það verður aldrei neitt gert fyrir skuldsett heimili.  Þeir vilja skera úr snörunni þá sem tóku gjaldeyrislán, þá sem eru með lánsveð, þá sem skuldsettu sig miklu, miklu meira en þeir höfðu nokkurn tíman efni á að borga, en við sem áttum einhverjar milljónir í eignum okkar og misstum allt í verðbólguna, við eigum bara að éta það sem úti frýs og halda kjafti, við fáum aldrei millurnar okkar til baka, ævistarfið farið í súginn og svo verður okkur skammtað með teskeið þegar við verðum gömul, fjandans til með allt þetta helfv.....  lið sem þykist vera að gera eitthvað fyrir okkur, alvega sama hvort það siglir til vinstri eða hægri, ykkur gæti ekki verið meira sama um venjulegt, heiðarlegt fólk sem aldrei er til vandræða.  Ef það væri hægt að skella hurðum í bloggi þá myndi ég gera það.
 
slamming_door_CoolClips_hous0578  
 
 
 
FARIN 

mbl.is Aðstoða verður skuldsett heimili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar..........

Ég er nú samt ein af þeim sem vil sjá að farið hefur verið um landið okkar.  Ekki það að ég mæli með spóli og spæningi um allar jarðir, en slóðar á hálendinu eru bara til að sýna að hér hefur búið fólk. Við megum ekki missa okkur svo að hvergi megi fara um.  Mér finnst ekkert endilega ljótt að sjá hjólför í gegnum gróið land, mér finnst það frekar sýna að þeir sem fóru þarna um fór allir sömu leið og þannig reyndu þeir að vernda landið við ágangi, en það eru öfgar sitt á hvað og oft erfitt að finna milliveginn. Ég vil að við ferðumst um landið með varúð en látum samt sjást að hér býr fólk sem keyrir um landið sitt en passar sig þó.  Bara mín skoðun inn í helgina. 
 
atv_dirtbike  

mbl.is Óvíst um opnun hálendisleiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú segir það Árni !!! Þú og þínir meðreiðarsveinar viljið heldur ekkert gera !!

Ég ætla svosem ekkert að hrósa né lasta lífeyrissjóðina, til þess er ég ekki nógu vel að mér í þeirra fjármálum, en ég ætla að spyrja einnar spurningar:  Afhverju á að hjálpa fólki með lánsveð, sem greinilega hafði ekki efni á því að kaupa íbúðir og/eða hús sem það keypti á sínum tíma og situr núna uppi með allt í klessu?????  ef þú þarft lánsveð þá ertu að kaupa of dýrt, er það ekki augljóst?  þá verða þeir sem lána veðin alltaf að vera tilbúnir að borga lánin fyrir viðkomandi.  Ég tók lán á eigin forsendum, af mér var stolið 10 milljónum gegnum verðbæturnar, ég á ekki rétt á neinni tilslökun þar sem ég á bíl sem mér var gefinn, hvers á ég að gjalda?????
 
EIN ferlega fúl, pisst og reið akkúrat núna.
 
 
angry-face  
 

mbl.is Vilji ekkert leggja á sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert smá ánægð með þetta.

Til lukku Arsenal, þið eruð sko flottir. Nú hef ég haldið með þessu liði í 42 ár og aldrei svikið lit, byrjaði einmitt að hafa áhuga á fótbolta þegar við Arnar Björns (íþróttafréttaritari) vorum samskóla á Húsavík í denn, þá var nú oft rætt um fótbolta og margir héldu með Liverpool og MU, man ekki eftir mörgum sem stóðu með Arsenal, minnir meira að segja að ég hafi valið þá afþví enginn talaði vel um þá, minnir að Arnar hafi verið Leedsari og sé enn.  Allavega innilega til hamingju, þið eruð flottir.

 

Arsenal-FC-pictures-wallpaper-2012  


mbl.is Ósigrandi lið Arsenal valið það besta í úrvalsdeildinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aska í loftinu á Selfossi.

Ég brá mér út, þótt hvasst sé og hvað haldið þið? er ekki aska í loftinu hér, maður verður allur eins og loðinn að vera úti, ulla bjakk, ekki hélt ég að þetta yrði svona lengi á sveimi hér um sveitir, en hún ferðast greinilega fram og til baka eftir veðri og vindum.  Vona að það fari að lægja á landinu öllu, það er komið nóg í bili.  
 
IMG_3063  

mbl.is Áfram hvasst á Suðausturlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Held að hún frænka mín litla sé bara ánægð með þetta.

Frænka mín sem er orðin 12 ára fór í sína fyrstu flugferð á föstudaginn, þegar hún flaug ásamt stórum hóp barna á fimleikamót á Egilsstöðum, mikill spenningur lá í loftinu og allt gekk vel. Í gær fékk hún gull og í dag silfur, vel gert. Svo er ófært heim, ekki annað hægt að segja en að fyrsta ferðin hennar sé ævintýri líkust. Innilega til hamingju Aníta Guðrún og vinkonur.
 
48745_1743293914_1639927716_n  

mbl.is „Það eru allir strand“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítinn ber ég kærleik til Jóhönnu og Steingríms og þeirra starfa.....

........... en skildi það virkilega vera svo að framboð Þóru sé undan rifjum Samfylk. runnið gagngert til að auka völd vinstri aflanna í landinu og að halda okkur þannig í klóm fátæktar um ókomin ár?  reyndar er varla hægt að segja að landsmenn séu almennt í klóm fátæktar, allt fer þetta eftir því við hvað er miðað, en allt of margir hafa of lítið milli handanna, ekki sé ég að ný ríkissstjórn mundi bæta þar um betur í neinum hvelli.  Ólafur benti á að Þóra vilji ekki gefa upp afstöðu sína til ESB, er það virkilega svo? vill hún ekki deila þeim upplýsingum með þjóðinni?  mér finnst að við mættum fá að vita það.  Hvort sem við erum Evrópusinnar eða ekki þá vil ég fá að vita hennar svar við þessu. Það styttist í að ég geri upp hug minn, en mér finnst ljóst að ef ég kýs þá verði ég að velja um að kjósa Ólaf eða Þóru, ekki eyða atkvæði mínu á þá sem enga von eiga. 
 
flower
 

mbl.is Segir Jóhönnu í herferð gegn sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandfundnir svona góðir starfsmenn eins og Dísa mágkona í dag.

Hún á svo sannarlega hól skilið, búin að dansa í kringum gamla fólkið og gefa því að borða í öll þessi ár. Með bros á vör og hlýleg orð handa hverjum og einum, ég veit að það eru margir sem elska hana fyrir allt það sem hún hefur gert í gegnum tíðina, til að létta fólki dvölina á Hrafnistu. Innilega til hamingju elsku Dísa mín. Þú ert frábær.
mbl.is 45 ár á sama vinnustaðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband