Bloggfærslur mánaðarins, september 2011

Hafi ég einhverntíman óttast eitthvað af því sem ókomið er..........

................ þá var allur sá ótti tekinn frá mér í kvöld þegar ég horfði á viðtalið við Jónas, þvílíkur dásemdar drengur. Mér finnst ég ríkari eftir að hafa hlustað á hann og velt fyrir mér því sem hann sagði.  Maðurinn hefur ekki einungis glatt mann í gegnum árin með sínum frábæru þáttum, heldur hefur hann nú í einni svipan gert allt svo auðvelt og létt, allavega fyrir mér, með sínu æðrulausa tali um lífið og dauðann.  Ég horfi nú enn bjartari augum til framtíðar, alveg sama hvað lífið mun bjóða uppá, ég er róleg. Takk fyrir mig aldni snillingur.

 


mbl.is Vill fá að sjá líkræðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við leynda sjóði á hafsbotni?

Mikið rosalega væri það gaman fyrir íslenska þjóð ef það fyndust olíulindir á hafsbotni á svæði sem við eigum.  Ég er svosem ekkert að biðja um það fyrir mig, en framtíðinni mætti vera bjartari fyrir unga fólkið og barnabörnin okkar.  Vona svo sannarlega að menn fari að leita að olíu á markvissan hátt og að það finnist eitthvað, er nokkuð að því að biðja Norðmenn um hjálp?


mbl.is 24 þúsund milljarða olíufundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sorglega við þetta viðtal var að allir hinir formennirnir hefðu sagt nákvæmlega það sama....

... ef þeir væru í hennar stöðu.  Þetta eru engin svör og segja ekkert og gera ekkert fyrir okkur, fólkið. Að kalla það afskriftir og monta sig af því að hafa lækkað hluta lána úr stökkbreyttu formi sínu nær því sem þau í raun áttu að vera er þvílík heimska að ég á ekki orð. Hvernig getur viti borin manneskja haldið slíku fram?  ég vil ekki segja að Jóhanna sé heims, því þá væri hún ekki þar sem hún er í dag, heimskan er kannski alltaf fólgin í fólkinu sem kýs, hvað er til ráða, spyr sú sem ekki veit og er búin að fá svo miklu, miklu meira en nóg.

 


mbl.is Kvótafrumvarpið gallað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VIÐ STÖNDUM ÖLL MEÐ YKKUR !!!!

HUGLÆGT ALLAVEGA EF VIÐ KOMUMST EKKI Á STAÐINN


mbl.is Lögreglan mótmælir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mál til komið að Demi eldist tignarlega, láti ekki þennan "peyja" trufla það.

Skil ekki konur sem hafa smekk fyrir svona miklu yngri karlmenn, mér finnst þetta í besta falli sóðalegt, og hef reyndar alveg sömu skoðun á eldri mönnum og smá skvísum, það er eitthvað óeðlilegt við þetta, mér finnst þetta virðingarleysi við sjálfan sig. Í stað þess að lifa á eigin aldursskeiði er viðkomandi að eltast við horfinn æskudraum, sem var jú góður, en það er líka alveg dásamlegt að eldast. Svo er líka nauðsynlegt að eldast með manneskju sem hefur upplifað svipaða tíma og þekkir söguna með þér. Er ekki Bruce enn á lausu, það voru svo flott saman.


mbl.is Ashton Kutcher svaf hjá annarri á Hard Rock-hótelinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki góður kostur af þig í ríkisstjórn SJS !!

Hef  verið að kynna mér úrræði ríkisstjórnarinnar fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum fyrir skjólstæðing minn, mér ofbýður það bull sem þar er inni, hvernig á fólk hjá bönkum og Íblsj. að vinna eftir þessari vitleysu, það er ekkert verið að hjálpa neinum, þetta er allt yfirklór og vitleysa, við erum á hraðri leið til mikillar fátæktar hér á landi, ef ég væri ung þá færi ég.  Það er ekki gott fyrir sálina að grúska í þessum fjármálum, en maður getur ekki stungið hausnum í sandinn.  Guð blessi Ísland.

 


mbl.is Ekki gott að setja umsókn á ís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má þá ekki segja að "kynlífshöllin" sé brunnin ? Hot stuff man !!!

Til stóð að halda þarna risa sýningu sem tengist kynlífi og nú er það allt rústir einar. Auðvitað er þetta slæmt að svona staður skuli brenna til grunna, en fyrst svo fór er lítið hægt að gera nema brosa út í annað og þakka fyrir að enginn fórst. Funheitt kynlíf er það sem manni dettur helst í hug við lestur þessarar fréttar og kannski er það einmitt það eina sem maður á eftir sér til gamans og gleði, það er blessað kynlífið. 


mbl.is KB-hallen verður ekki bjargað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá þeim !!!

Sé að lögreglan á Selfossi er með mótvægis aðgerðir, við verðum að standa með lögreglunni um land allt því þeir hafa staðið sína plikt og hafa neyðst til að verja þingmenn, starfs síns vegna þó svo margir þeirra hafi örugglega viljað vera í hópnum sem horfði til Alþingishússins, ekki að snúa baki í.  Við hin verðum svo að muna að vera ekki með óþarfa fíflagang og læti, þurfum eiginlega að hafa sjálfskipaða "löggæslumenn" sem hafa vit fyrir þeim sem ætla yfir strikið við mótmælin á laugardaginn. Veðurspáin er reyndar ekki alveg nógu góð, það verður rigning en munið pollagallana.


mbl.is Lögreglumenn ráða ráðum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru menn að reyna að sverta lögregluna ??

Mér finnst þetta svolítið svoleiðis.  Sem betur fer held ég að flestir sjái nú í gegnum þessa frétt og átti sig á því að þarna er eitthvað bogið.  Ég veitti líka athygli frétt, sem birtist á dv.is þar er talað um að lögreglumenn hafi yfir 500.þús. á mánuði, er nokkuð verið að athuga hvað liggur á bakvið þá tölu? nei held ekki.  Það geta allir hækkað í launum við að vinna mikið og við megum ekki falla í þá gryfju að telja yfirvinnu til fastra launa. Svona nú, enga vitleysu, við stöndum með lögreglunni.

 


mbl.is Lögreglan brýtur lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sé mig í anda birtast á Íslandi eftir 100 ár...............

....................... eftir að hafa verið fryst í tímahylki.  Það verður enginn eftir sem ber nöfnin Jón og Gunna, allt verður orðið með nýjum blæ og þau nöfn sem okkur finnast arfa asnaleg í dag, verða orðin norm og eðlileg. Þetta kallast þróun, hvað sem okkur finnst um það, þessum sem erum að eldast.  Ég er svo glöð yfir því að vera orðin 55 ára og að hafa fæðst á því herrans ári 1956, það þýðir að ég upplifði "tímana tvenna" eins og sagt er, en slapp þó við að fæðast í torfbæ.  Engin veit sína ævina, það er víst og rétt, en að njóta stundarinn er eitthvað sem ég geri, krefst einskis, er þakklát fyrir fortíðina og vona það besta fyrir land og þjóð.  Við erum mörg óttalegar frekjur sem viljum fá allt upp í hendurnar, en þannig gengur þetta ekki fyrir sig, lífið er barátta, nema hjá nokkrum útvöldum, en ég er viss um að þeim líður fjandakornið ekkert betur en meðaljónum.

Svo er spurning hvaðan þessi romsa kom, ég ætlaði að blogga um mannanöfn, en hugurinn fer oft með mig um víðan völl. Eigið góðan dag.

 

image008


mbl.is Má heita Nývarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband