Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2011

Bara eins og hjá mér, en ekki eins subbulegt !! Uppskriftin komin inn í færsluna.

Tók mig til í gær og keypti nokkur kíló af tómötum, skar þá í spað og skellti í pott og nú er ég að gera tómatamarmelaði,  ummmm   æðislega gott. Mamma gerði alltaf svona í denn og svo komst ég yfir þessa uppskrift fyrir nokkrum árum og fór að sjóða og viti menn, þetta bragðast eins og hjá gömlu. Himneskt að borða ofaná allt kex og osta. Má bjóða ykkur smakk ???

 

scan0001

Ef þið tví klikkið á myndina þá stækkar hún.


mbl.is Tómataslagur á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AUÐVITAÐ, eðlileg afleiðing af því hvernig fjármagnstekjur eru notaðar til...........

................... að skerða bætur eldri borgara þegar kemur að lífeyrinum frá Tryggingastofnun.

Get tekið dæmi sem sýnir svo vel hvernig hlutunum er misskipt.

Tveir gamlir karlar fara á svipuðum tíma inn á elliheimili.  Annar hafði aldrei hugsað mikið um að spara aurinn, eyddu nú því sem upp í hendurnar kom og hugsaði ekki til efri ára. Missti húsið og flutti á mölina, misst heilsuna og fór á elliheimili.  Hann þarf ekkert að borga því hann á ekkert nema bæturnar, þær eru reyndar teknar af honum en hann fær vasapening.

Hinn gamli maðurinn hafði alltaf hugsað um framtíðina og elliárin, vildi eiga ríflega fyrir jarðarförinni sinni og vildi líka geta gaukað pening af afleggjurum sínum og hátíðis og tyllidögum.  Hann átti á bilinu 1- 2 milljónir í banka og þarf því að borga 150.000 á mánuði fyrir vistina og á þá eftir smá af lífeyrissjóðsgreiðslu sem hann fær eftir maka sinn, samsvarar vasapening hins gamlingjans.

Finnst okkur þetta hægt?  ekki mér.  Það er engin hvatning í gangi þarna til að eiga eða eignast pening né heldur til að spara og geyma, allir eru eins á endasprettinum.

 

HVET ALLT GAMALT FÓLK TIL AÐ TAKA ÚT ALLT SEM ÞAÐ Á OG FELA ÞAÐ FYRIR SKATTMANN.

 


mbl.is Eldri borgarar taka út peninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En ekki?? með ykkar óstjórn er ykkur að takast að koma fullt af fólki á götuna...

.... þannig að ekki veitir af að auka félagsleg úrræði.  HÁLFVITAR. Devil  Venjulegt fólk sem átti um 40% í húsnæði sínu fyrir 4 árum er nú orðið eignalaust vegna verðtrygginga á venjulegum íbúðalánasjóðslánum  svo ekki er annað séð en að það fjölgi gríðarlega í þeim hópi sem þarf aðstoð til að geta komið yfir sig þaki, án þess að eiga á hættu að verða rekið á götuna ef leigusala hentar. Ég hef nú ekki séð í gegnum árin að það sé á nokkurn hátt betra fyrir fólk að vera í slíku kerfi, það brýtur niður dugnað og sjálfsvirðingu margra að þurfa að vera í slíkum hópum, sjálfstæðið er betra, þar sem þú getur farið og keypt þá eign sem þér hugnast á þínum forsendum, en því miður svona er komið fyrir okkur, það verða brátt engar aðrar leiðir færar. 

GUÐ FORÐI OKKUR FRÁ JÓHÖNNU OG STEINGRÍMI OG ÞEIRRA ÁHANGENDUM Í FRAMTÍÐINNI.

 


mbl.is Vilja aðgerðir í húsnæðismálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Mun leita allra ráða til að stöðva þennan óskapnað"

Tilbúin setning af minni hálfu, en átti allt eins von á henni frá Svandísi. VG vill ekkert og það má ekkert, alls ekki neitt gott sem hugsanlega einn maður á, það er svo fjandsamlegt ef fáir geta hugsanlega haft það betra, þessir fáir sem ég er þá að tala um er fólkið í sveitum á norð-austurlandi, alls ekki fáir í mínum huga en hugsanlega hennar og fleiri sem eru bara ekkert með á nótunum að mínu mati.  Hvernig væri að skipta um ríkisstjórn og það STRAX.

 

 


mbl.is Stór plön þarf að skoða vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúlega er þetta ein af skyldum okkar í alþjóðasamfélaginu, EN..

... mér finnst þetta býsna stór útgjaldaliður fyrir litla þjóð.  Er ekki hægt að fara að þessu máli á annan hátt ? er ekki hagkvæmt peningalega að hafa meiri hraða á þessum málum og að fólk verði annaðhvort sent úr landi eða fá landvistarleyfi? það getur ekki verið gott, hvorki fyrir ríkið né blessað fólkið sem hingað leitar, að vera í lausu lofti svona lengi.  Ég legg til, þó svo ég viti að enginn tekur mark á mér, að það verður sett nægilegt fjármagn í þennan flokk þannig að hann verði skilvirkari og það komi þá vonandi í veg fyrir svona hæga afgreiðslu í framtíðinni.

 


mbl.is Útlendingastofnun fær aukið fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við heppin hér á landi..............

..................... með kuldann. Getum farið út að labba í mestu frostunum í vetur og fengið smá yngingu í kaupbæti.  Reyndar hefur maður oft fundið hve stinn og lífleg húðin er í andlitinu eftir góðan göngutúr í kulda, en ekki vildi ég nú fara út á sundfötum til að fá kælingu yfir allan kroppinn. Held líka að mörgum mundi bregða við þá sjón  LoL  en, við skuldum nýta okkur kuldann til góðs.

 


mbl.is Fryst lifandi til að viðhalda fegurðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hef áður drifið mig í búðina þegar bæklingurinn kemur út............

.......................................og ætlað aldeilis að góma eitthvað sem mér líst vel á, þá hefur yfirleitt verið miði sem stendur á "er í pöntun"  það varð til þess að ég hætti að nenna að versla í Ikea, nú geri ég mér engar væntingar það sjaldan að  ég fer þangað ef mig vantar eitthvað, sé bara til hvort ég finn eitthvað sem er til og sem ég get notað, ergi mig þá ekki yfir því sem ekki fæst.  Auðvitað er fullt til af vörum þarna en það er ansi mikið af dóti sem mann vantar bara ekkert, tilbúin þörf, eins og ég segi stundum og þegar ég var yngri freistaðist ég oft til að kaupa eitthvað sem ég þurfti ekki, gott að verða svona skynsöm með aldrinum.

 


mbl.is 300 kíló af Ikea-bæklingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vildi gjarnan fá örlítið betri útskýringu á þessu !!

Hvernig getur hann þjónað okkur?  eru verið að meina að hann geti þjónað öllu landinu í einu frá einum stað? eða er þetta bara flutningsgeta bílsins yfir takmarkað svæði? spyr nú sú sem ekki veit og er kannski ekki allra gáfuðust þegar kemur að þessari tegund af tækni. Þarf ekki að leggja ljósleiðara?  þarf ekki allar tengingar sem við erum með nú þegar?  eða hvað er málið? endilega kommentið ef einhver nennir að útskýra þetta fyrir mér  !!!


mbl.is Getur annað 300.000 notendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég held svei mér þá að þeir kunni betur að meta okkur en við sjálf.

Erum við ekki bara frábær svona þegar á allt er litið?? ég held það bara, finnst stundum að við tölum okkur sjálf of mikið niður, allavega sum okkar, svo eru líka til þeir sem tala of mikið upp, meðalvegurinn er víst bestur eins og í öllu og þá er ég ekki að tala um meðalmennsku, það er annað að mínu mati.  Ég fylltist af bjartsýni þegar ég horfði á ungan dreng í viðtali í Landanum áðan, hann sagði svo satt þegar hann sagði að "það þýddi ekkert að ljúga" og var þá að vísa til þingmanna og fleiri frammámanna.  Við eigum svo mikið af yndislegu ungu fólki sem á eftir að bjarga landinu okkar upp úr þeim öldudal sem við siglum nú í og við, hin eldri, verðum að fylla þau bjartsýni og blása vindi í seglin hjá þeim svo þeim fallist ekki hendur við þau miklu verkefni sem við blasa, mestar áhyggjur hef ég núna af heilbrigðisþjónustunni okkar.  Ætla að leyfa mér að vera bjartsýn og geng til sængur með það í huga.  Eigið góða vinnuviku og verið góð, sérstaklega við ykkur sjálf og þá sem næst standa.


mbl.is Einstakt í samskiptum þjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náttúran sá alveg sjálf um ljósasýninguna í gærkvöldi.

Þessa mynd tók ég úr stofuglugganum hjá mér þegar sólin var að setjast í gærkvöldi, alltaf er það nú náttúran sem skreytir hvað fallegast.  Bíð eftir fallegu sólarlagi í kvöld.

Copy of P8200216


mbl.is Friðarsúlan tendruð í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband