Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2011
31.7.2011 | 11:36
Verzlunarmannahelgin veður yfir okkur á blautum skónum.....
............. og víða er blautt og kalt. Ég er mikið glöð að vera bara heima í mínu hlýja húsi og góða rúmi, horfi á rigninguna út um gluggann og gríp í prjóna. Held að fólk ætti að skella sér heim í dag ef það mögulega getur, hlýja börnunum sínum, setja þau í bað og hrein föt og hita handa þeim kakó, taka í spil og spjalla. Ansi held ég að mörg börn séu þreytt eftir þvæling helgarinnar með foreldrum sínum. Sumum finnst nefnilega nauðsynlegt að vera á flakki þessa helgi, hvernig sem viðrar. En með aldrinum vitkast flestir en þá eru líka börnin orðin stór. Eins og útilegur geta verið skemmtilegar þá geta þær hreinlega orðið að martröð þegar allt og allir eru orðnir rennandi blautir og maturinn jafnvel rakur, hundurinn lyktar eins og ræsi og skapið hjá mömmu og pabba týndist ofaní bjórdós í nótt. Æ, ljótt af mér að lýsa þessu svona, en ég er samt hrædd um að víða sé þetta einmitt málið.
Svona hugsa ég nú en ég vona bara að allir komist heim í heilu lagi og að minningar helgarinn verði góðar.
TIL HAMINGJU MEÐ MORGUNDAGINN VERZLUNARMENN.
|
Líkamsárás á Flúðum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.7.2011 | 12:04
Góðar fréttir.
Samt set ég smá spurningu við þetta, er þá meira brugg á ferðinni eða hvað? vínið er skruggu dýrt og ég þakka fyrir að vera ekki lengur að eyða pening í slíkt. Kannski unga fólkið sé frekar að kaupa dóp eða hvað veit ég? vona samt bara að helgin komi vel út í heild sinni og að allir komi heilir heim á ný. Mér finnst þessari helgi alltaf best varið heima við, ætla að gera slíkt hið sama í ár, að undanskildum nokkrum heimsóknum til kærra vina og vandamanna. Farið varlega kæru vinir.
|
Stefnir í minni sölu á áfengi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
27.7.2011 | 12:47
Fyrir og eftir myndir af Ásdísi Sig.
Ég skellti mér í átak með sjálfa mig sem var reyndar rólegt því heilsan hefur verið slæm, byrjaði í mars 2009 og var orðin fín í maí 2010 þetta er útkoman. Borða allt sem mig langar í en minna og hreyfi mig helst á hverjum degi, hef sagt frá þessu áður hér en þar sem þetta átak er í fréttum núna langar mig að monta mig af eigin dugnaði án allrar hjálpar, það er ýmislegt hægt ef viljinn er fyrir hendi.
FYRIR
EFTIR
|
Fyrir og eftir myndir af Ágústu Ósk |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
26.7.2011 | 14:25
RIGNING




mér finnst rigningin góð og ætla að sleppa því að hafa skoðun á Ögmundi í dag.
|
Engar stórtækar aðgerðir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
25.7.2011 | 14:44
Manni verður illt í hjartanu að horfa á þennan mann, þvílík grimmd.
Hann virðist hreinlega ánægður með unnið verk, þetta er skelfing. Engin leið að skilja þetta. Vitið þið hvort það er einhversstaðar hægt að finna á netinu upplýsingar um það unga fólk sem fórst þarna?
Við verðum að vona að það sé ekki til álíka brjálæðingur á Íslandi.
Hugur minn er hjá Norðmönnum vinum okkar og frændum, það er ekkert sem maður getur gert.
|
Átta vikna gæsluvarðhald |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.7.2011 | 10:23
Hjarta mitt blæðir af sorg fyrir frændur okkar Norðmenn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.7.2011 | 16:23
KARL JOHAN hefur glatað sakleysi sínu !!
Mér finnast þetta hræðilegar fréttir. Karl Johan hefur alltaf verið í huga mínum, friðsæl og yndisleg sveitagata, einhvernvegin varð aldrei stórborgarbragur á henni, heldur eitthvað saklaust og fallegt í mínum augum. Nú hafa líklega einhverjir vondir menn ákveðið að sprengja allt upp og nú stendur mér ekki á sama. Ef hægt er að gera þetta í Oslo, hvaða borg verður þá næst? Ég vona það besta fyrir Oslóarbúa og aðra sem gætu lent í svona hræðilegum hremmingum, hugur minn er hjá þeim núna.
|
500 metra frá sprengingunni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
22.7.2011 | 11:08
Afhverju var ég sofandi ??
Steinsofandi inn í draumaheimi missti ég af þessum mikla bruna. Mér hefur reyndar fundist þetta vera óttalega ljótar byggingar núna síðustu árin og tel það næstum því gott að þetta er horfið af yfirborði jarðar og verður hreinsað til, kannski að það verði þá hægt að byggja upp huggulegan stað sem dregur að útlendinga jafnt sem Íslendinga. Eden á stað í hjörtum margra, þarna kíkti maður sunnudagsrúntinn í den og gaf börnunum ís og fleira. En staðurinn var orðinn illa farinn. Vonandi er þetta vel tryggt þannig að þeir sem gætu tapað á þessum bruna fá sitt bætt.

|
Eldurinn öskraði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
21.7.2011 | 23:05
" vonandi skemmtið þið ykkur vel"
... í boði Greifanna góður frá Húsavík.
Blíðan verður þarna líka svo þetta ætti að verða fullkomið. Góða skemmtun.
|
Fjölmenni á Sail Húsavík |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.7.2011 | 11:34
Afhverju bý ég ekki annarsstaðar á landinu???
Hef stundum verið að spá í það með sjálfri mér afhverju ég sækist í að búa nálægt gos og skjálftasvæðum !! Fædd og uppalin á Húsavík, flutti svo á höfuðborgarsvæðið og til að kóróna svo allt er ég komin á Selfoss og búin að vera hér í 11 ár. Ég sem er í rauninni skíthrædd við skjálfta þó svo að ég beri mig vel og enn hræddari við gos og geðvond yfir ösku, planta mér hér eins nálægt eldfjöllum eins og mér frekast er unnt. Ekki í lagi með kellu
Fór svo að pæla, hvert ég gæti flutt til að forðast þetta allt og komst þá að þeirri niðurstöðu að maður flýr ekki forlögin ef þau eru einhver, eina leiðin er víst alltaf að taka bara einn dag í einu og vera ánægður með sig sjálfan. Held ég reyni það á meðan ég fylgist vel með öllum hreyfingum og vona það besta fyrir land og þjóð.
Njótið blíðunnar hvar sem þið eruð á landinu kæru vinir.

|
Um 1.050 jarðskjálftar í júní |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |










dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn