Bloggfærslur mánaðarins, júní 2011

Hvernig nennið þið að lesa bloggið hennar?

Þar sem ég lá í leti minni upp í rúmi eldsnemma í morgun þá fór ég að hugsa um bloggið.  Alveg finnst mér magnað hversu margir í rauninni nenna að lesa bloggið hennar.   Það er ekki hægt að segja að innihaldið sé alltaf vitrænt enda er manneskjan þekkt fyrir að rjúka beint í hlutina og ef hún er við tölvu þá dritar hún niður skoðunum sínum eins og þær koma beint frá heilanum, stundum alveg óhugsað.  Þá kemur það sem ég er svo hissa á, margir lesa textann og sumir hreinlega nenna að koma með góðar athugasemdir og leiðrétta bullið.  Fyrir það er ég afskaplega þakklát því þessi bloggari er einmitt ein af þeim sem getur alltaf hlustað á útskýringar og hefur aldrei vílað við að skipta um skoðun ef hún sér að hennar er vitlaus.  Takk kærlega fyrir að nenna að lesa bloggið mitt.  Já, þetta er ég sem ég er að skrifa um, enda ekki dómari yfir öðrum.  Ég er mjög ánægð með það þegar fólk nennir að benda mér á hluti sem hafa farið framhjá mér í æðibunuganginum.  

Annars er ég góð að vanda, hér skín sól og vindurinn hefur hægt all verulega á sér, hægt að opna glugga á þrem húshliðum í einu, svo spáir rigningu á morgun því sólin ætlar norður, ekki veitir af að hlýja kalda jörðina þar, ég er sátt við smá bleytu.  

Vil nota tækifærið og óska flugmönnum og öðrum sem voru að semja til hamingju með samningana, já og ökkur öllum til hamingju með lífið.  Njótum vel , það ætla ég að gera.

 

  gro_urhusafer_8.jpg  


20 ár síðan ég hélt þessu fram.

Þurfti enga könnun til að mínu mati, reyndar var ég ekki aðallega að spá í kaloríurnar heldur hinn óþverran sem fylgdi sykurlausu gosi.  Mér finnst alveg fádæma hlægilegt þegar ég sé fólk kaupa fullt af nammi og svo "diet" kók, hvern er verið að plata?  auðvitað bara sjálfan sig, snillingarnir sem framleiða gosið vita vel að "diet" er ekkert betra, en þeir vita að ef orðið "diet" er með þá er hægt að plata nánast 3/4 neytenda til að kaupa gosið áfram.  Best er auðvitað að drekka ekkert gos þá þarf engar áhyggjur að hafa.  Ég hef í gegnum tíðina smakkað á því diet gosi sem mér hefur boðist og aldrei getað drukkuð það vegna ógeðslegs bragðs, og svo hætti ég í gosinu líka, því mér leiðist gosið sem slíkt.  Hættið nú að plata ykkur fitubollurassarnir mínir.LoL
 
  diet_coke_football_bottle.jpg

mbl.is Sykurskertir drykkir fitandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erum við alltaf að gera vitleysur??

Get nú alveg viðurkennt að ég er ekki fær um dæma svona eða skilja það, en mér finnst alltaf vera að koma upp mál þar sem yfirvöld og bankar eru að gera vitleysur, eru þeir svona illa menntaðir eða er þetta fljótfærnir og glannaskapur?  spyr nú sú sem ekki veit, en finnst margt skrýtið í kýrhausnum.
 
images_1094428.jpg  

mbl.is Ólögmæt ríkisaðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einmitt, er þetta ekki ástæðan fyrir ástandinu??

Atvinnu öryggi þessara mann er eitt stórt 0.
 
Væri ekki ráð fyrir Flugleiðir að laga til hjá sér og breyta þessu svo þetta ástand komi ekki alltaf upp.  Spyr enn, hver er sökudólgurinn í þessu öllu.
?
 
shame-on-you1.jpg  

mbl.is 59 flugmönnum sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við vissum að þetta væri á döfinni...............

......................... og ljóst að við komumst ekki hjá þessum viðræðum.  En að láta sér detta í hug að taka upp evru og allt sem fylgir þessari aðild er ekki að mínu skapi.  Er enn á þeirri skoðun og það þarf eitthvað meira til að hún breytist.  Ætla að reyna að fylgjast með og sjá hvað kemur út úr þessu, hvernig ætli verði með upplýsingastreymið? hvernig er að treysta því sem sagt er í fréttum?  sjáum til.
 
euros.jpg  

mbl.is Aðildarviðræður hafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru hinir raunverulegu sökudólgar??

Ég ætla nú að gerast svo djörft að taka upp hanskann fyrir flugmenn.  Mér finnst fáránlegt að það þurfi að koma til þess, jafnvel ár eftir ár, að samningar við flugmenn fari í þennan hnút.  Auðvitað á að semja um þetta í tíma og svona ástand á aldrei að skapast á okkar litlu eyju norður í ballarhafi.  Flugmenn eru nefnilega, ólíkt þeim sem stjórna landi og þjóð, að taka fulla ábyrgð á gjörðum sínum og standa og falla með starfi sínu, fremstir í flokki þeirra sem á þá treysta og bregðast ekki farþegum sínum, en ríkisvaldið og stjórnendur landsins eru hins vegar sérfræðingar í því að klúðra og bregðast okkur.  Flugmenn eiga að fá góð laun fyrir að fljúga landa á milli með okkur sem það viljum, við eigum að finna fyrir 100% öryggi í þeirra höndum og þeir eiga ekki að þurfa að standa í svona argaþrasi. Semjið STRAX við þá og ekkert rugl hér. Tek það fram að ég á engra hagsmuna að gæta, en þetta er mín skoðun á málinu.  
Ef einhver velkist í vafa um hvort mér þyki þetta bara eiga við um flugmenn þá er það alls ekki svo, þeirra mál eru bara efst á baugi núna.
 
animated_gif_planes_006.gif  
 

mbl.is Ekki rætt saman í flugdeilunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski olíufélögin reddi því sem reddað verður.!!!

Þ.e.a.s. sumarfríi landsmanna.  Ekki trúi ég að margir fari í sólarlandaferðir, þó veit maður aldrei því neyzlumunstur landans er ótrúlegt þrátt fyrir að það kreppi að.  Atlantsolía má samt hætta að monta sig af því að selja ekki blöð, bækur ofl. heldur aðeins ódýrt benzín, það munar nú ekki svo miklu, ef við værum að tala um 15 kr. ódýrara en hjá öðrum þá mættu þeir monta sig.  
 
toon463.jpg  

mbl.is Eldsneytisverð lækkar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reimið á ykkur skóna og labbið.!!!

Er bara orðin leið á þessum kalli og í hvert sinn sem ég heyri í honum í fréttum núorðið finnst mér hann tala niður til okkar. 
 
skallagrimur.jpg  

mbl.is Álögur á eldsneyti lækka ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarna ætla ég að mæta á morgun í mínu sparidressi.

Ekki spurning.  Það á að vera sól og hvað er þá sniðugra en að skella sér með strætó í Hveragerði, hvort sem er úr borginni eða héðan frá Selfossi. Dressa mig í mitt fínasta tek myndavél og nesti og rigga svo af stað, lofa ykkur fallegum myndum hér annaðkvöld, endilega drífa sig svo, þið sem getið.
 
gro_urhusafer_8.jpg  

mbl.is Hátíðin Blóm í bæ hafin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég sá þetta í brúðkaupinu.

Hef nú stundum verið nösk á svona og þóttist sjá að þau voru farin að gefa hvort öðru hýrt auga á svölunum í brúðkaupi systkina sinna..  Minnug þess þegar ég var að falla fyrir Bjarna mínum, hvernig allt var þá,þóttist ég sjá einhvern neista, ekki ætla ég þó að spá um að þetta endist ef úr verður, það er annað mál, en rómantíkin er til staðar og hún er yndisleg. Það er gott að elska, ekki spurning og yndislegt að verða ástfangin, verð alltaf  ánægðari og ánægðari með mitt hjónaband, núna eftir 18 ár með Bjarna mínum, lífið er bara gott.  
 
15 ár  
 
Brúðkaupsmyndin af okkur, við áttum 16 ára brúðkaupsafmæli núna 17.júní. 

mbl.is Pippa og Harry í ástarhugleiðingum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband