Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2011

Mikið sungið á Selfossi í dag.

Verst að veðrið er ekki nógu gott.  Var svo heppin að fá eina frænku úr hópnum í smáheimsókn. Reyndar allt of stutt því þær fá ekki langar pásur hér. Komst reyndar að því að aðbúnaður við þær er misgóður, ekki sama hvar gist er, trúlega er svæðið okkar ekki með nógu mörg gistirúm til að anna svona hóp. Segi bara góða skemmtun kæru konur og góða ferð heim.
 
singing-ladies1.jpg  

mbl.is 600 konur syngja saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við getum ekki farið í verkföll núna, bara alls ekki !!

Það er bara ekki inn í myndinni að fara í verkföll núna.  Ríkisstjórnin verður bara hreinlega að koma með það mótspil sem þarf til að hlutirnir gangi upp. Það sér hver heilvita maður að verkföll setja allt í hægang og kemur út sem tap fyrir okkur öll þegar upp verður staðið.  Látið þetta nú ganga upp strákar, ég heiti á ykkur.
 
strike_or_no_strike.jpg  

mbl.is Lokatilraun í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til lukku með það dúllan mín...........

................. svo er bara að vona að við og afkomendur okkar hafi vit til þess að umgangast þig af virðingu um ókomna framtíð, takk fyrir árin mín 55 sem þú hefur dandalast um geiminn með mig sem farþega.  
 
earth.gif  

mbl.is 6988 ára afmæli jarðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk er fífl.

Því miður sannast það enn og aftur að fólk er fífl.  Hverjum heilvita manni dytti annars í hug að stela blómum úr beði annars manns???  Skila blómunum strax eða myndbandið á Youtube. Ekki spurning.
_dsc1815.jpg  

mbl.is Á lúxusjeppa með stolin blóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning hvort þeir taka meira mark á Vilhjálmi heldur en mér.

Þetta er nákvæmlega það sem ég bloggaði um fyrir stuttu, lækka bensínverð svo almenningur geti ferðast um landið, það eykur alla veltu allsstaðar og kemur hjólunum enn frekar af stað.  Reynið nú einu sinni að hlusta á fólkið í landinu þið þarna "bjánakjánar" í ríkisstjórn.

Annars legg ég það til að það verði kosið STRAX. 

scan0001  

Gleðikonan hlýtur að vera farin að þreytast. 


mbl.is Ríkið lækki bensínskatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velkomnir litlu vinir.

Það er alltaf jafn yndislegt að heyra sönginn ykkar hvert vor.  Þið hafið nú glatt mig í meira en 50 ár og alltaf er gleðin jafn einlæg og hrein þegar fyrstu fuglarnir fara að syngja úti í vorinu. Gleðilegt sumar kæru vinir í bloggheimum og gleðilega páska, vona að sumarið verði ykkur gott.

Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr sem fer, 

 

með fjaðrabliki háa vegaleysu 
í sumardal að kveða kvæðin þín,

 

 

Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber 
engil með húfu og rauðan skúf, í peysu. 
Þröstur minn góður, það er stúlkan mín.
 
 
loa_280306_jpg_800x1200_q95.jpg  

 


mbl.is Farfuglar streyma til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli Jóni og félögum hans þyki ekki berin orðin súr??

Það er ábyggilega ekki eins auðvelt og gaman að stjórna Reykjavíkurborg eins og menn hafa kannski haldið áður en í stólana var sest.  Þetta er stórt batterý sem menn eru með í höndunum og það þarf gáfur, verkvit og vilja til að vel gangi, leyfi mér að efast um  stjórnmálamenn, bæði vinstri og hægri hafi  takmarkað vit til að gera þetta vel, þó svo að ásetningur sé til staðar í upphafi ferðar, oftar en ekki held ég að þetta standi og falli með því fólki sem er fastráðið og vinnur þarna ár eftir ár, þarf ekki að endurskoða þessi pólitík?  var það ekki líka vilji Besta flokksins að skipt yrði um aðferðir?? er hann kannski komin jafn langt frá markmiðum sínum og hinir flokkarnir sem fyrir voru? við skulum varast að fá slíkan flokk á landsvísu.
 
thumb_600.jpg  

mbl.is Margir á áheyrendapöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru nú ekki einhverjir, einhversstaðar sem............

................. ættu með réttu að skammast sín ofaní gólf og lengra fyrir þann hræðsluáróður sem hefur verið tengdur Icesave síðustu ár???  ég tel það alveg dagljóst, að SJS og JS og þeirra fólk ásamt og með mörgum fleirum sem hafa stundað þann hryllingsáróður að hér færi allt til andskotans ef ekki yrði samið, ætti nú að sjá sóma sinn í því að SKAMMAST sín ærlega, taka pjönkur sínar og yfirgefið svæðið.

  slave


mbl.is Leggja ekki stein í götu okkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eitthvað óhreint í pokahorninu ?

Ég hef bloggað um þetta mál áður og  tíundað áhyggjur mínar yfir því að fólkið sem þarna býr sé sett í óþarfa yfirvofandi hættu um að missa heimili sín.  Ég hef enn áhyggjur en skil ekki alveg fréttirnar, Sólheimar segja eitt og Árborg annað, hvað er málið? eigum við ekki rétt á því að fá að vita það alveg hreint út. Sérstaklega finnst mér að ef það er engin hætta á að fólkið á Sólheimum þurfi að flytja á brott, þá sé það alveg kristaltært en ekkert verið að róta í þeim hluta.
 
Hentar einhverjum að hafa þetta í óvissu? ég bara spyr? og vil svör.
 
583_solheimar-over-view.jpg  

mbl.is Sólheimum boðin óskert framlög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innilegar hamingjuóskir í tilefni dagsins...........

.................... elsku Björgvin.  Þær eru óteljandi stundirnar sem þú hefur glatt mig og mína með tónlist í gegnum árin.  Öll börnin mín áttu lag með þér sem sitt fyrsta uppáhaldslag og oft setti ég plötu á fóninn og tók dans með þeim í stofunni til að létta lund og kæta okkur.  Tónlist hefur alltaf verið stór hluti af lífi mínu og ég hef hlustað á allt sem frá þér hefur komið síðan ég eignaðist litlu rauðu/grænu plötuna frá þér, sem ég á reyndar ennþá. Lagið "Í draumalandi" kom oft við sögu og ekki síður, "Þó líði ár og öld".  Takk fyrir mig og megirðu áfram vera jafn hress og glaður.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband