Bloggfærslur mánaðarins, desember 2011
31.12.2011 | 23:24
Magnað áramótaskaup.
Ég fylltist bjartsýni þegar skaupinu lauk með fríðum hópi ungs fólks, þau eru framtíðin og bjarga því sem bjargað verður.
GLEÐILEGT ÁR 2012
|
Fjölmenni á áramótabrennum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.12.2011 | 13:43
Á meðan sumur kjósa að stinga höfðinu í sandinn þá ætla ég að ........
............... horfast í augu við raunveruleikann og gera mitt besta til að nýja árið verði einhverjum gott. Best að vera ekki með neina leiðindafærslu hér, svona á síðasta degi ársins, en eitt er víst að þessi ríkisstjórn mun líða undir lok og önnur taka við, hvað sem tautar og raular.
Ég óska ykkur öllum gleðilegs árs og gæfu og dugnaðar til að takast á við það sem bíður okkar.
Þakka ánægjuleg samskipti á árinu og skemmtileg komment og blogg 
Gata bernsku minnar.
|
Mun örugglega styrkja stjórnina |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.12.2011 | 12:24
Alveg rétt, þessi maður er með völd og fjármagn.
"Margur verður af aurunum api."
Mér finnst þetta passa vel sem skýring á framferði SJS síðustu árin, hann hefur brugðist flestum en sjálfsagt hugsjónum sjálfs síns mest af öllu. Leitt að sjá þokkalega vel gefinn mann týna sjálfum sér og markmiðum sínum í faðmi mammons.
Held ég hafi ekki fleiri orð um þetta en vonandi dregur hann sig fljótlega í hlé okkar vegna.

Hér hanga þau SJS og JS upp í tré og virðast saklaus, en annað kom í ljós þegar þau tóku við á Alþingi og rústuðu millistéttinni á Íslandi, nú erum við rjúkandi rústir.
GUÐ BLESSI ???
|
„Ekki sami maður“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.12.2011 | 11:23
Hin gullna setning " Það þýðir þó ekki að taka bara töfluna því fólk þarf að borða hollan mat og hreyfa sig mikið svo að hún virki sem best. "
Það er nefnilega málið, engin megrunartafla virkar nema þú hreyfir þig og borðir rétt, pillurnar eru því í raun gulrót því þær virka ekki nema þú takir þig sjálf á, og raunveruleg megrun virkar ALDREI nema með breyttu mataræði og hreyfingu, kannski ætti ég að segja " með því að borða minna" því það er auðvitað líka stór þáttur í þessu öllu, að borða ekki eins og þú sért að fá þína síðustu máltíð. Hóf er best í öllu og hinn gullni meðalvegur alltaf færastur, þetta kenndi hann pabbi minn mér þegar ég var lítil og ekki brást honum með það frekar en annað. Hann kenndi mér líka að " annaðhvort gerir maður hluti vel eða gerir þá alls ekki" vona að ég geti kennt sem flestum þá kúnst á nýju ári, veit um þó nokkra sem hefðu gott af því að læra þá reglu. Hafið það gott og borðið bara snjó á milli mála, það er nóg til af honum.

|
Megrunartöflur Jennifer Aniston |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2011 | 12:32
Spáin mín !!!
Er sú, að ýmislegt af þessu muni rætast og annað ekki. Þetta er frekar víðtæk spá eins og alltaf enda eðli slíkra spáa að vera ekki of nákvæmar. Allt sem ég les um hér er nokkuð augljóst að geti gerst, en þó með einhverjum "variasjónum" Það sem ég vona er að Íslendingum gangi almennt betur fjárhagslega og að það verði ekki mannskæðar náttúruhamfarir. Alltaf finnst mér verst að horfa upp á mannlega harmleiki. Ég ætla að leggja mitt af mörkum til að fólki líði betur, t.d. mínum nánustu, því ekki get ég ráðskast með hagi annarra, þó svo ég ráðskist í rauninni ekki með hagi minna, þá er ég allavega til staðar og get verið sterk. Öðru fólki er hægt að sýna hlýju og bros og reyna þannig að gefa frá sér gleði og gæsku. Það er þó á hreinu að snjórinn mun bráðna og það kemur vor á ný og sólin mun ylja okkur næsta sumar, annað verður svo bara að koma í ljós. Þakka ykkur innilega samskiptin hér í bloggheimum þetta árið og ég bið öllum þess besta á nýju ári.

|
Hamfarir og hurðaskellir á næsta ári |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
28.12.2011 | 14:05
Hún er vel að því komin.
Af 10 efstu bókum er ég búin að lesa 6 bækur, þeð er þær sem sitja í 1-4 sæti og svo númer 7 og 10.
Minn listi er svona:
1. Brakið.
2. Málverkið
3. Hjarta mannsins
4. Einvígið
5. Gamlinginn
6. Feigð.
En auðvitað hefur hver maður sinn smekk. Mér finnst ómaklega vegið að Yrsu í dómi Braga, finnst hann full orðljótur í hennar garð. En eins og ég segi þá hefur hver sinn smekk.
En svo ég sé sjálfri mér samkvæm þá verð ég að segja enn og aftur að spennubókin Klækir er sú allra besta sem ég las fyrir þessi jól. Hún er með þetta allt.
|
Brakið í 1. sæti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
28.12.2011 | 12:27
Bara tvær spurningar frá mér.
Hversu mörgum bílum er stolið á viku ? er eitthvað mjög sérstakt við þennan bíl?
Eitt enn, ekki setja af stað söfnun.

|
Dekkjunum stolið af Ómari |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.12.2011 | 10:19
Hálf milljón x 63 = 31.500.000
Er ekki upplagt að skella þessari upphæð til fjölskylduhjálparinnar og mæðrastyrksnefndar. Sé ekki að vel haldnir þingmenn hafi nokkuð við þetta að gera, eiga allt til alls og hljóta að geta séð af þessu til þeirra sem virkilega þurfa á því að halda. Nei, bara svona smá tillaga frá mér í anda jólanna, því sælla er að gefa en þiggja.

|
Eiga inni um hálfa milljón hver |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.12.2011 | 17:01
Óskum öllum landsmönnum til sjávar og sveita..........
Gleðilegrar hátíðar með von um að allir geti notið einhvers góðs, þó ekki sé nema samvista við annað fólk. Megi svo nýja árið færa okkur öllum gleði og hamingju og "dassi" af öðru sem er óhjákvæmilegt. GUÐ blessi Ísland.
|
Halda jól á Íslandi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.12.2011 | 10:52
Jólakort David versus jólakort Hermanns.
Mér varð á í messunni, en hér er rétta kortið
Datt þetta svona í hug þegar ég sá myndina, ekki ólíkar myndir og báðir miklir íþróttamenn.
David Becham og synir
Hermann tengdasonur og synir
Báðar myndirnar yndislegar stoltir feður með syni sína.
|
Jólakort Beckham lak á netið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn