Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011

JÓLAGJÖFIN Í ÁR !!

Það held ég nú.  Jólagjöfin komin og nú vænkast hagur Strympu.  Útborgunardagur á morgun og ég held bara að ég byrji að baka.  Jibbí kæ jei. 

 


mbl.is Bankar koma til bjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÆÆÆ

Leiðinlegt að heyra. Ég komst loksins til Eyja í ágúst á þessu ári í fyrsta sinn á ævinni LoL ekkert smá gaman. Allavega þá rambaði ég inn á þetta kaffihús og var alveg yfir mig hrifin, þjónustan, starfsfólkið, staðurinn og andrúmsloftið, allt var alveg einstaklega ljúft. Vona svo sannarlega að þeim takist að opna sem fyrst og að þeir séu tryggðir.  Gangi ykkur vel.

 


mbl.is Tjón Eymundsson 40 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu. Goes without saying eins og einhver sagði.

Ögmundur verður að styðja við Jón vin sinn, ekki virðast aðrir í VG gera það af heilum hug.  Hvernig í andsk...... getur SJS verið svona margfaldur í roðinu??  gerir allt til að þóknast JS, hvað hefur hún gert fyrir hann sem gerir hann svona bundinn henni?? spyr sá sem ekki veit. En þetta er allt voða skrítið, held að þingmenn S séu allir að fara yfirum.  Over and out.

 

 

Hver kyssti hvern hvenær???

 

 


mbl.is „Ég styð Jón Bjarnason“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnað hvað svona fyrirsögn getur létt lund mína. !!

Ég fyllist bjartsýni og von og leyfi mér að trúa því að þetta lagist smátt og smátt.  Veturinn hefur verið erfiður hjá okkur, en við höfum þó allavega fast þak yfir höfuðið og mat á borðum.  Heilsan hjá öðrum stráknum mínum hefur valdið mér mestum áhyggjum, en kannski rætist úr þessu öllu á endanum, maður verðu víst bara að vona og bíða og sjá til.  Ætla að reyna að halda mér í þeim gírnum næstu daga. 

 


mbl.is „Ísland sigrar að lokum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

....og þá er hægt að fyrirgefa Ömma og Jóni og.................

..... sama stjórnin heldur áfram að verma stólana

 

 

 

ahhhh vona að þeir brenni sig ekki á óæðri endanum.

 

KOLEFNASKATT Á ÞAÐ Tounge


mbl.is Hætt við hækkun kolefnisgjalds
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér er nú alveg sama um hans gagnrýni, en að öðru hef ég meiri áhyggjur.

Hef verið að velta upp með sjálfri mér þeirri hlið þessa máls, að EF einhver allt annar en Ögmundur t.d. Sigmundur Ernir hefði verið ráðherra, þá hefði þetta leyfi runnið í gegn.  Þá spyr ég, eru engin lög í þessu landi sem byggjandi er á í svona málum.???  Ögmundur færði rök fyrir því að skv. lögum hefði hann ekki getað veitt leyfið, en Sigmundur ofl. hafa reynt að færa rök fyrir því að skv. lögum sé þetta algjörlega leyfilegt.  Þá segi ég enn og aftur, eru ekki til nein lög um landakaup erlendra aðila?  það finnst mér skelfilegt ef svo er ekki. Það hræðir mig meira en allt annað.  Huang má búa þar sem hann vill mín vegna og kaupa það sem hann vill, en ég er viss um að frændur okkar Norðmenn, selja honum ekki svo mikið sem frímerkja stóran blett í Noregi, og ég er líka efins um Finna og Svía.  Mér finnst ekki spurning eftir að þetta mál er nú afgreitt að hugað verði með alvöru að því hvernig þessum málum er háttað og ég vil að komið verði algjörlga í veg fyrir að útlendingar geti KEYPT upp landið okkar, afnot eru allt annað mál.


mbl.is Huang gagnrýnir Vesturlönd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snar brjáluð ákvörðun !! 25.11.11.

Þá kem ég aftur að því sem ég tala um í færslunni hér á undan. Er stjórnin þá að springa?? þarna hafa S menn haldbæra afsökun fyrir því að rjúfa stjórnarsambandið, tala nú ekki um ef haldið verður áfram með auknar álögur á orkufrekan iðnað, þetta hlýtur allt að vera að springa í loft upp.  Kannski eiga afkomendur okkar eftir að muna þennan dag í sögu Íslands, daginn sem Ögmundur neitaði Kínverjum um að kaupa okkur.  25.11.11. hvernig kemur það út tölulega? hvað segja talnaspekingar.? 


mbl.is Brjáluð ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölskyldan hefur það af.

En maður getur þó skilið að svona tilboð hefur kitlað.  Vonandi býðst Þingeyingum eitthvað gott til að viðhalda atvinnu í sveitunum.  Hvað veit ég ekki, en verður maður ekki alltaf að vona það best.?

 

 


mbl.is Landeigendur harma niðurstöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur sjálfum sér samkvæmur, Stjórnin fallin??

Ég vona svo innilega að stjórnin falli á þessum gjörning Ögmundar svo eitthvað gott komi út úr þessu.  Mikið held ég að margir í minni gömlu sveit blót kallinum núna og öllu hans hyski.  Hvað er næst?

 


mbl.is Beiðni Huangs synjað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir mér er þetta einungis staðfesting á því að við ráðum engu.

Náttúran fer sínum fram, hvort sem er í litlu jökullóni á Íslandi, eða  bráðnun jöklanna á pólunum.  Við erum bara lítið sandkorn eða kannski bara ögn úr sandkorni og varla það, þegar kemur að stærðum heimsins og geimsins.  Er ekki bara best að njóta þess sem við getum meðan við dveljum hér, fara vel með náttúruna eins og okkur sjálf og hafa svolítið gaman af þessu, allavega ætla ég að reyna það í dag og næstu daga, skammdegið er aðeins að pikka í mig, veit ekki af hverju, en sigra það eins og alltaf.  Eigið góða helgi og reynið að gera eitthvað gott fyrir ykkur og aðra.

 


mbl.is Jökulsárlón stækkar ört
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband