Bloggfærslur mánaðarins, október 2011

Ég ætla að prenta þessa frétt út og geyma.!!

Fylgjast svo vel með hvernig gengur. Gaman að sjá að þeir álykta að heilbrigðisþjónustan sé fyrir löngu komin að þolmörkum, þetta vita allir og finna á eigin skinni, engum blöðum um það að fletta og starfsfólk í heilbrigðisgeiranum vinnur kraftaverk alla daga ársins.  Ályktun um að okkur sé best borgið utan ESB er ekki nýtt af nálinni, en að það þurfi að álykta um það innan VG núna eftir að þeir eru búnir í samstarfi við S að reyna að komast þar inn síðan þeir tóku við stjórn og Atli búin að segja frá því að um þetta var samið í stjórnarsáttmálanum, segir mér bara eitt að SJS hefði selt ömmu sína til að komast í stólinn og svo í feit eftir laun.  Burt með ykkur öll og því miður er landið fullt af misvitru fólki sem vill það sama og vei okkur ef við kjósum tóma kjána yfir okkur í næstu kosningum, þá er þjóðinni ekki viðbjargandi, það er ekki alltaf betra að skipta um bara til að skipta, stundum þarf að hugsa hlutina upp á nýtt, ég tel að það sé löngu komið að því. 

 


mbl.is Orðalag vegna Nató mildað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér léttir.

Hef verið að horfa á þessar myndir í fréttum af aumingja dýrunum í ánauð gaddavírs og mér finnst þetta alveg hræðilegt, hef ekki skilið að það þyki ekki sjálfsagður hlutur að leysa svona mál strax, en nú hefur gott fólk gripið til sinna ráða og leysa málin.  Þökk sé þeim.

 


mbl.is Hreinsa hættulegan gaddavír
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krónan verður áfram og týndar rjúpnaskyttur fundnar.

Allt virðist semsagt bara nokkuð eðlilegt á landinu okkar litla og með það í huga fer ég að sofa og vona svo sannarlega að næstu mánuðir verði tíðindalitlir.  Snjór og hálka má koma og rok og rigning, en ekki eldgos og jarðskjálftar.  Annars legg ég þetta bara í hendur alvaldsins og þakka fyrir hvern dag sem líður og ég get gengið til náða með bros á vör og gleði í hjarta.

Mér finnst gott að vera til.


mbl.is Rjúpnaskyttur í vandræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lof sé hæstarétti.

Ég var búin að gleyma því að þessi dómur ætti eftir að falla, þangað til ég las pistil eftir Marinó í dag. Mikið rosalega er ég fegin að þetta er komið á hreint.  Kannski að við getum horft örlítið keik fram á veginn.  Þetta er búinn að vera langur og erfiður mánuður og langt síðan ég var búin með peninginn minn, en þetta hefst alltaf einhvernvegin, gott hvað mér þykir slátur og hafragrautur góður matur. Kom mér á óvart að það skuli ekki vera fleiri í vanskilum með íbúðalánasjóð, mér finnst fólk standa sig vel.  Svo var frétt um að fólk gengi illa að láta enda ná saman, það eru nú engin tíðindi, þekki fáa sem eiga ekki erfitt með það.  Nú bíð ég spennt eftir nýja framboðinu hjá Guðmundi og félögum, kannski að við séum að sjá eitthvað nýtt og spennandi, kemur í ljós.

Eigið góða helgi og verið góð við hvert annað.

 


mbl.is Neyðarlögin gilda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi hundur okkar er laglega að sanna sig.

Það held ég að sumum sumarbústaða eigendum þyki hann samt full aðgangsharður, enginn friður til neins neins staðar.  En svona er þetta, blessaður hundurinn hefði sjálfsagt nóg að gera alla daga ef hann fengi að hlaupa frjáls hér um uppsveitirnar. 


mbl.is Hleypt út til að létta á sér og fann kannabis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sver mig frá því að hafa verið sturluð.

En get tekið undir það að hér réðu ríkjum sturlaðir og siðblindir menn sem drógu okkur á asnaeyrum.  Ef það væri nú bara hægt að fá það fólk til að skilja hvað það gerði af sér.  Svo verður aldrei, menn munu afsaka sjálfa sig í bak og fyrir og lygin heldur áfram.  Bankamenn og stjórnmálamenn hafa lítið lært og ætla sér að halda áfram að beygja almúgann ofaní skítinn og fleyta sjálfir rjómann ofan af öllu.  Guði sé lof fyrir að ég er venjulega manneskja sem aldrei reis hátt og hef því ekki úr háum söðli að falla. 

Á stundum langar mig að segja að ég hati þá sem fóru hér um og rændu okkur en hatrið er vond tilfinning, þannig að ég hef tamið mér að ýta þessari hugsun frá og horfa bara til þess sem næst mér stendur, fjölskyldunnar, og láta hverjum degi nægja sínar þjáningar.

Gangið á ykkar vegum, ég hef minn GUÐ sem hjálpar mér í erfiðu sporunum, hann er örugglega ekki sami guð og ykkar, en mikið rosalega er gott að vera aldrei einn.


mbl.is Sameiginleg sturlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar sem allar fréttir eru með eindæmum leiðinlegar ætla ég....................

.................... að venda mínu kvæði í kross og auglýsa hér bók sem var að koma út.  Bókin heitir KLÆKIR og er eftir Sigurjón Pálsson, Húsvíking með meiru.  Þarna held ég að sé komin mikil spennusaga.  Ég hef verið svo heppin að fá að lesa smá glefsur frá höfundi á fésbókinni og var alltaf að reyna að geta mér til úr hvaða bók þetta væri en svo eru þetta bara nýsmíði, þvílíkt spennandi.

Sigurjón minn, ég óska þér góðs gengis og mun að sjálfsögðu leggja inn mína ritdóma þegar ég hef komist yfir bókina og lesið hana.

klækir


Skellið þá helfv.... vélunum í botn og siglið norður og niður !!

Verst að það tekur ekki mikið betra við.  Kannski maður verði þó að fara að trúa því að hér komi fram nýtt/ný stjórnmálaöfl, sem vilja vinna fyrir fólkið, en af fenginni reynslu er ég hrædd um að fyrr frjósi í helfvíti áður en íslensk þjóð losnar undan oki fjárglæframanna.

 


mbl.is Samfylkingin fær í flestan sjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert hafa þeir illt af sér gert að eigin mati.

Það sem er að er þess vegna öðrum að kenna.  Ég hef verið mjög reið undanfarið yfir því hvernig farið hefur verið með okkur landsmenn.  Finnst t.d. nokkrum það vera ásættanlegt að hjón á besta aldri 5+ sem hafa alla tíð verið samviskusöm og dugleg og voru búin að eignast 50% í húsnæði sínu um aldamót, sitji núna uppi í íbúðum sínum eignalaus? getur nokkur ríkisstjórn státað sig af framförum á meðan fólkinu er nauðgað undir borði?  ég er sorgmædd og missi algjörlega trúna á mannfólkinu þegar ég hlusta á siðblinda og veruleika firrta stjórnendur lands okkar. Stundum er maður kominn að því að skammast sín fyrir að vera Íslendingur, en þá horfi ég til gömlu gildanna og gef skít í ráðamenn og er stolt af ætt minni og fólki.  Eigið góðan dag.


mbl.is Sparnaðartillögur gagnrýndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er flokkurinn sem drullaði sem mest yfir Sjálfstæðisflokkinn.............

................. þegar Davíð var sjálfkjörinn hér um árið, sökuðu flokkinn um að vera eins og rússneskur kommúnistaflokkur, þar sem undirgefni við foringjann jaðraði við guðdómlega dýrkun. 

Annars ætla ég að láta það kyrrt liggja að blogga um þing S, mér varð hreinlega óglatt þegar ég hlustaði á kelluna í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi, tel það meiriháttar óhollt að hlusta of mikið.

Að sama skapi hef ég ákveðið að taka ekki þátt í landsþingi D eins og ég hef gert tvisvar áður, ég á ekki samleið með þeim lengur á svo margan hátt.

Héðan í frá ætla ég að skara eld að eigin köku og breytast í sjálfselskupúka sem hugsar bara um sig og sína.

Kannski ég verði beðin um að koma í framboð hjá einhverjum góðum samtökum.


mbl.is Jóhanna sjálfkjörin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband