Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011

8.janúar er góður dagur til að fara í langt bloggfrí.

Nú hef ég ákveðið að kveðja bloggheima í bili. Ég er orðin leið á mínu eigin bloggi og get varla ímyndað mér hvað aðrir geta þá sagt.  Hér er fátt eitt vitrænt og ekki hef ég heldur gaman að vafri á annarra síðum að ráði svo ég tel best að allir fái hvíld.  Þakka fyrir mig í bili, sé til hvað mér tekst að vera í bindindi lengi en ég vona að ég verði bara duglegri að hitta fólk og spjalla við það heldur en að vera með derring hér á síðunni minni.  Hafið það gott mín kæru og njótið lífsins, við eigum bara þetta eina líf svo vitað sé.

 


Ég stefni að því að vera svona hress allt árið !!!!


.................................... :):)...........................


Svo heimskuleg á svipinn á stundum að mér líst ekkert á !!!

Bara það eitt að sjá svipinn á þessu fólki fær mann til að dæma fyrirfram allt það sem þau setja fram. Dagur einn og sér er nógu slæmur en við hlið Jóhönnu spyr maður sig "hver kaus þetta fólk"  alveg með ólíkindum að þau séu við völd hér á landi. Ég er ekki að segja að þau séu "heimsk" en þau vita bara ekkert hvað þau eru að gera í dag, þau ætti að koma sér til annarra starfa.


mbl.is Sóknaráætlun í skjóli niðurskurðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búið að laga tenginguna !

Allavega þá er ég að blogga við rétta frétt.  Kannski það sé verið að smala köttum? Get nú ekki ímyndað mér að þetta verði friðsamlegt, það er svo bullandi ágreiningur á milli manna.  Held þeir ættu allir sem einn að sameinast um að standa við fyrri loforð um að vera ekki í aðildarviðræðum vegna ESB, evran er á hraðri leið út úr bönkum svo þetta er allt tómt mál að tala um.  Rífið SJS úr gúmmískónum og setjið hann á íþróttaskó með mannbroddum svo hann komist úr sporunum í rétta átt, ég vil sjá að þessi maður verði samkvæmur sjálfum sér og geri eitthvað að því sem hann talaði svo fjálglega um á meðan hann var í stjórnarandstöðu, mér leiðist þessi gúmmí Steingrímur.


Er verið að rugla í bloggurum.??

Jólatréshirðingar frétt þegar farið er lengra í fréttinni??


mbl.is Vinstri grænir setjast á fund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er bara aldrei neitt orðið að marka þennan mann.

Ég vil fá hann aftur í stjórnarandstöðu eða ennþá betra, burt af þingi. Rosalega er ég orðin leið á þessum kjaftavaðli í honum vinstri/hægri, hann bullar og steypir og svo skellir hann fram allskyns frösum sem hann heldur að okkur þyki nógu leiðinlegir til að halda að þeir hafi einhverja merkingu. Steingrímur er alveg að ná því að toppa hrútleiðinlegustu þingmenn hingað til með bullinu í sér.  Svo er hann svo hrikalega, ja hvað segir maður til að vera ekki dóni,  "ónákvæmur í frásögnum" að það er bara agalegt.   Grey kallinn hann þarf að komast á elliheimili þingmanna sem fyrst og reyndar margir aðrir líka ef því er að skipta og svo þarf að skipta um kallinn í brúnni hjá D og B  koma svo á nýju ári krakkar.


mbl.is Bara spurning um verklag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppan greinilega alveg að fara með fólkið, eða hvað???

Vonandi eru þetta bara teikn um að margir séu farnir að hafa það miklu betra, fyrst kortanotkun er orðin meiri, því ekki kemst maður upp með að borga EKKI af kortum sínum.  Það er þá jákvætt.

Reyndar finnst mér að það hafi lítið breyst neyslumunstur margra í kringum mig.  Fólk gerir það sem það er og var vant að gera og er bara hamingjusamt. 

Ég vona svo sannarlega að þetta nýbyrjaða ár verði okkur farsælt og fengsælt og að sem flestir hafi það mjög gott.

GLEÐILEGT NÝTT ÁR 2011

 


mbl.is Kortavelta eykst milli ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband