Bloggfærslur mánaðarins, september 2010

Veruleikafirrtir vitleysingar verja gjörðir sínar.

Pólitíkin á Íslandi er ömurleg. Svo lengi hafa þessir háu herrar logið að sjálfum sér, samverkamönnum sínum og þjóðinni að þeir eru orðnir samdauna lyginni og vita ekki lengur hvernig á að segja satt.  Ég tel einsýnt að sannleikurinn mun ekki vera það leiðarljós sem þarf inn í þingsali til að þingmenn vinni fyrir okkur fólkið í landinu.  Ef það var þörf á búsáhaldabyltingu eftir hrunið þá er hún nauðsyn núna.  Þeir ljúga hver um annan þverann og það er sorglegt að sjá hvernig þeir hafa náð að heilaþvo sjálfa sig og þá sem næst sitja og flokksmenn sína og allir eru farnir að trúa lyginni.  Tek fram að þetta beinist gegn öllum flokkum ekki neinum einum, þó svo mér finnist að VG hafi verið alverstir síðustu ár, þeir hafa valdið mér mestum vonbrigðum, sérstaklega Steingrímur.

Alþingi


mbl.is „Gátum ekki setið undir þessu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snillingur fallinn frá, takk fyrir mig.


Flottur Geir !!

Þetta leikrit sem leikið var á Alþingi í dag og hefur verið til æfinga hjá alþingismönnum síðustu vikur og mánuði, floppar fullkomlega og verður aldrei endursýnt.  Léleg leikstjórn, leiðinlegir leikarar og ljót sviðsmynd. Áhorfendur ganga sárir út og ætla aldrei aftur í leikhús fáránleikans.  Pólitísk rassgöt létu til sín taka í dag og hráskinnsleikinn og loddaraskapurinn var meiri en nokkurntíman áður.  Ég skammast mín fyrir að teljast til sama hóps og þetta fólk, semsagt Íslendingur. Ég vona að ég jafni mig fljótlega en þarna er verið að eyða tíma, orku og fé sem átti að eyða í að hjálpa fólkinu í landinu.

Þið eruð síðasta sort af fólki í mínum huga í dag, þið sem kusuð að ákæra ráðherra, skömmin er ykkar.  Ég þvæ hendur mínar.

 


mbl.is Þungbær og erfið niðurstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er orðin svo leið á stjórnmálum að ég er komin í pásu með bloggið.

berin hjá gerðu (3)


mbl.is Þungbær skylda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sniðugir þingmenn fundu leið til að hækka launin sín og þurfa núna ekkert............

.......................... að vinna í málum heimilanna og skuldara.  Nú grafa þeir allt á bakvið þessa skýrslu og gera ekkert af viti. Halda áfram að karpa og kíta og haga sér eins og illa uppaldir krakkaskítar.  Það skiptir mig engu máli hvort þeir eyða löngum tíma eða ekki í að yfirheyra þessa fjóra þingmenn sem til hafa verið nefndir í sambandi við landsdóm, lögfræðingar hafa gefið það álit að það skili engu og sé jafnvel ólöglegt.  Á meðan situr landinn í súpunni og fær enga lausn sinna mála. Tökum okkur saman um að láta þingmenn "EKKI" komast upp með að fresta aðgerðum með því að vera með svona sýndaraðgerðir sem hjálpa fólki ekkert.  Hef helling meira að segja um þetta en hef ekki tíma núna, kem með meira röfl seinna.

p.s. "hækka launin sín" þá meina ég að margir komust í aukavinnu við að ræða þessi mál sem þýðir meira kaup fyrir þá og dýrari rekstur á ríkissjóði fyrir okkur hin.


mbl.is Yrðu yfirheyrðir og gætu kallað til vitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minning um mann !

Þann 14.september er til grafar borinn í Húsavíkurkirkjugarði elskulegur föðurbróðir minn Haukur Haraldsson.  Hann var fæddur 17.sept. 1928 og var yngstur fjögurra bræðra á Bjargi á Húsavík. Foreldrar hans voru Ásdís Baldvinsdóttir og Haraldur Jóhannesson, þau voru bæði ættuð úr Reykjahverfi.  Elstur var Jóhannes 1922 (látinn) þá Baldvin 1924 (látinn) Sigurður,1926, býr á Hrafnistu í Hafnarfirði og Haukur 1928, þeir eignuðust "litla" systir árið 1932, Kristínu sem býr á Akureyri.

Það sjá ekki allir Morgunblaðið svo ég ætla að birta hér minningargrein sem ég skrifaði. Ég hefði alveg getað skrifað heila bók því minningarnar hrönnuðust yfir mig þessa daga sem frændi lá á spítalanum á Aey, en ég reyndi að koma þessu saman með þeim orðafjölda sem leyfilegur er í minningargreinum. Hann lifði með stæl og var alltaf á hraðferð, yndislegur maður sem öllum líkaði vel við og var vel liðinn og vinsæll. Dauðastríð hans var sem betur fer stutt, hann var fluttur á sjúkrahús 23.ágúst og lést þar 4.sept.

 

Minningarorð.

  Kær föðurbróðir minn Haukur er látinn. Mér finnst erfitt að trúa þessu þó svo að hann hafi ekki verið frískur síðustu árin og verið býsna nærri Gullna hliðinu á stundum, þá stóð hann alltaf upp aftur með bros á vör og sagði að það væri ekkert að sér.  Það var alltaf svo gaman að heimsækja Hauk og Huldu á heimili þeirra á Reykjaheiðarvegi og þangað lögðu margir leið sína, mér fannst svo gaman að vera hjá þeim og sótti mikið til þeirra. Hulda frænka kona Hauks lést langt um aldur fram aðeins 59 ára.Annar kafli hófst í lífi frænda þegar hann kynntist Siggu sinni og eftir nokkur ár á Húsvík þá fluttu þau til Akureyrar.  Þar eignaðist frændi heila fjölskyldu til viðbótar við okkur heima og ég veit að hann var þeim öllum jafn kær.  Við heimsóttum  Siggu og Hauk nokkuð oft í bústaðinn og svo á Akureyri, allt yndislegar stundir og ómetanlegar í minningunni.   Efst í huga mínum verða þó alltaf árin heima á Húsavík og það líf sem við áttum þar öll saman. Ég held að við , barnabörn ömmu og afa á Bjargi séum sammála um það að Haukur var “besti” frændi okkar allra og ég veit að börn okkar systra elskuðu hann út af lífinu, hann var einfaldlega skemmtilegasti frændinn. Það þarf ekkert að útskýra það betur, þið skiljið mig öll sem til þekkið.Í lok júlí vorum við hjónin fyrir norðan og frændi á flakki með Siggu sinni út á Grenivík á húsbílnum, við ákváðum að renna þangað til að hitta þau, fannst það hálf ónýt ferð norður ef við sæjum þau ekki. Ég sé ekki eftir að hafa gert það því þá fékk ég að sjá frænda í síðasta sinn. Smátt og smátt í gegnum árin hefur fjölgað “á himnum” og þangað er nú frændi kominn, ég veit að honum hefur verið vel fagnað.  Sum okkar fóru allt of snemma og skörðin eru orðin nokkuð mörg og upp í þau verður ekki fyllt, þess þarf heldur ekki, því fyrir mér eru þetta ekki skörð heldur móða og ég sé fólkið okkar í huganum á bakvið móðuna.  Hver og einn á sinn sess í hjarta mínu og minningarnar eru ótal margar og dýrmætar. Það var ekkert til siðs að ræða svo mikið um tilfinningar sínar í gamla daga, en við, barnabörn afa og ömmu á Bjargi, lærðum kærleik og ást af því hvernig komið var fram við okkur, við erum því ótrúlega tengd þrátt fyrir færri og færri samverustundir eftir því sem árin hafa liðið en öll áttum við það sameiginlegt að elska Hauk frænda og höfum sjálfsagt haldið bestum tengslum við hann, það segir í raun allt sem segja þarf.   Nú er komin kveðjustund og við yljum okkur við góðar minningar.  Elsku frændi, ég spjalla svo við þig í huganum í framtíðinni, takk fyrir það sem þú varst mér og mínum.            Hafðu þakkir fyrir allt þín Ásdís Sig.     

Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm,

er verður að hlíta þeim lögum

að beygja sig undir þann allsherjar dóm

sem ævina telur í dögum

við áttum hér saman svo indæla stund

sem aldrei mér hverfur úr minni,

en nú ertu genginn á guðanna fund

það geislar af minningu þinni.

                                                                                (höf.Friðrik Steingrímsson frá Grímsstöðum)              

Haukur Har.        

 


Erfiðir dagar framundan, en ég bít á jaxlinn og kem aftur.

Rúni heitinn segir þetta svo vel.

Liðin tíð er mér hugleikin þessa dagana, þetta er yndislegt myndband.


Áfram Everton !!

Ekkert smá flott hjá þeim, ég gleðst alltaf þegar MU tapar og líka þegar KR tapar, veit ekki afhverju ég er svona vitlaus, það ætti kannski að rannsaka mig LoL annars er þetta bara flottur dagur hér á Selfossi, sól og hlýtt. Njótið lífsins kæru landsmenn og farið varlega.


mbl.is Everton skoraði tvö mörk í uppbótartíma - 3:3 jafntefli á Goodison
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandamálið er bara orðið það, að við vitum ALDREI hver segir satt og hver lýgur..........

.................. og ef að allir eiga að biðjast afsökunar á öllu þá væri það til að æra óstöðugan.  Á þá ekki Jón Gnarr rétt á alþjóðlegri afsökunarbeiðni frá blaðamanninum franska? það finnst mér. Við vitum að stjórnmálamenn véla á bak við tjöldin og plotta vinstri hægri, skiptir þá einu hvar í flokkum þeir sitja.  Vandamálið er bara það að hér er engum hægt að treysta lengur, hvorki stjórnmálamönnum eða hinum opinberu kirkjunnar mönnum, svona hefur þetta því miður alltaf verið og mun víst alltaf verða, sama hvað við skiptum oft um forystu og fólk.  Sorglegt en satt.

Ég mæli með því að þið hlustið á þetta og njótið textans.


mbl.is Segist ekki hafa beitt þrýstingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með sól að morgni.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband