Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010

Upplagt að hætta þessu sulli bara.

Ég var svo sniðug í fyrra að ákveða að taka mér ársfrí frá áfengi.  Fannst það svona upplagt sem innlegg í leit mína að betri heilsu.  Vægast sagt hefur þetta ásamt daglegum gönguferðum skilað mér mun betri heilsu og hraustari líkama. Hélt að þetta væri ekki hægt en ég er t.d. búin að leggja einu hjartalyfinu mínu og er ekkert smá glöð.  Þegar maður er kominn á vissan aldur þá er eiginlega mál að hætta þessu, fátt er eins halló og fólk á mínum aldri og eldra, útúrfullt á trúnó, vælandi yfir hinu og þessu og svo er aldrei hægt að ræða neitt við sama fólk ef það er edrú. Nei þá er nú bara betra að tala alltaf mikið og sleppa svo víninu áður en það fer að fara illa með líkama sem er að eldast.  Mæli eindregið með þessari heilsubót.  Þið hin sem ætlið að fá ykkur í glas, farið bara varlega.


mbl.is Búast við 45 þúsund manns í ríkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel búið kátt og fallegt fólk á leið til Eyja.

Ég óska öllum góðrar skemmtunar um helgina og góðrar heimkomu að henni lokinni.  Ég vel að vera heima eins og oftast áður, finnst alltaf eitthvað notalegt við rólegheitin sem myndast þegar svona margir fara á flakk. Reyndar eru Færeyskir dagar á Stokkseyri þannig að ég get brugðið mér bæjarleið og séð og heyrt eitthvað skemmtilegt.  Njótið lífsins og farið varlega kæru vinir.


mbl.is Fer að sofa á þriðjudaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver verður valinn??

Það er nú stóra spurningin.  Mjög skiptar skoðanir eru hér í bæ um þessa fimm sem hæfastir teljast.  Sérstaklega hefur fólk skoðanir á Gunnari, Ingu Jónu og Ástu.  Gunnar er sannarlega neðstur á listanum og engan hef ég hitt sem vill fá hann hingað.  Margir eru á móti Ingu Jónu vegna þess hver maðurinn hennar er og finnst hún líka of gömul en hún er klár, það hefur maður heyrt.  Ásta er sú sem flestir vilja af þeim sem ég hef talað við. Hún er heimamanneskja, býr á staðnum, vinnur hjá bænum og þekkir starfið vel.  Nú erum við að ráða framkvæmdarstjóra ekki bæjarstjóra, þannig að væntanlega ætla bæjarfulltrúar að "fronta" á uppákomum, sá eða sú sem verður ráðinn þarf einungis að vinna á skrifstofunni en ekki að sinna öðrum verkefnum út á við.  Ég vona að meirihlutinn beri gæfu til að velja vel og þannig að friður verði um starfið og að fólk geti farið að vinna vinnuna sína.


mbl.is Fimm talin hæfust í Árborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggbann í blíðunni.

Það er mökka ský yfir jöklinum og ekki gott að greina strók en ég trúi þeim alveg.  Hér er 20 stiga hiti og sól, alveg ótrúlegt veður. Ætla að eyða deginum á rölti í bænum. Njótið lífsins.


mbl.is Gufustrók leggur frá Eyjafjallajökli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hitamet voru ekki slegin á Mærudögum þó svo við eigum líka okkar Rauða Torg...

............. en það voru samt ýmis met slegin tel ég.  Fjöldinn var meiri en nokkru sinni áður og ég fullyrði að kærleikurinn í fólkinu var sterkari og  meiri en áður.  Þvílík hlýja og hamingja sem leið um bæinn minn gamla.  Allir voru glaðir og ekki var það frétt að mínu mati að fólk hefði verið drukkið, það er norm á svona hátíðum, það sem var hins vegar fréttnæmt var, var hversu vel vínið fór í fólk og hversu rólegt og hamingjusamt það var.  Við vorum úti öll kvöld fram yfir miðnætti og sáum aldrei neitt sem miður gat talist.  Skemmtiatriði og uppákomur í bænum voru fyrsta flokks og tónlistar atriði heimamönnum til mikils sóma.  Ekkert var aðflutt, allt heimagert. Skreytingarnar í bænum voru til fyrirmyndar og bænum skipt í þrjú litahverfi. Ég er afskaplega stolt og ánægð eftir þessa ferð og þakklát fyrir að tilheyra þessu bæjarfélagi.  Takk fyrir mig elsku heimamenn, þetta var frábært, ég þarf ekki fleiri skemmtanir þetta árið, lifi á þessu lengi. 

Set hérna inn einn stuðara "Mærulagið"


mbl.is Hitamet féll í Moskvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég fer í fríið, ég fer í fríið, ég fer í fríið.


mbl.is Strandveiðibátar í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farinn að kenna systir sinni um.

Þá fer þetta fyrst að verða slæmt þegar fjölskyldan er komin í hár saman.  Sá á að vægja sem vitið hefur meira. Ekki öfunda ég ykkur af þessu lífi.


mbl.is Systkinin ósammála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlilega........

............ enda vel menntuð þjóð í landi þar sem flest er falt og aðgengi okkar að tækninni er mikið.  Þurfum víst ekki að kvarta yfir því.  Hvað fólk er svo að gera á feisinu er spurning, ég þvælist þarna um til að kíka á vini og svo set ég inn myndir ofl.  engum grúppum tengist ég og er ekki "aðdáandi" að neinu og ekki tek ég hópstatusa copy/paste og set inn hjá mér, bara nenni því ekki.  Hér er 18 stiga hiti í dag og passlega mikil sól.  Hafið það gott og njótið blíðunnar.


mbl.is 60% þjóðarinnar á Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þú þarft að kunna að skrúfa fyrir annan krana því er ver"

... greyið Jón, greyið Jón, greyið Jón.

Svona var einn af textunum á fyrstu hljómplötunni sem foreldrar mínir keyptu þegar ég var lítil.  Margar stundir á ég í minningunni, þar sem ég spilaði þessa plötu aftur og aftur og söng alla textana, hoppaði og skoppaði um stofuna heima og skemmti mér konunglega.  Ómar er í minningunni skemmtikraftur no.1 á Íslandi.  Ég var ekki gömul þegar hann kom norður á 17.júní með Hauki Heiðar undirleikara sínum og söng á þakinu á einu útgerðarhúsinu heima. Þá var búið að taka til á planinu og svart plast var klætt yfir síldartunnur og allt gert sem flottast fyrir þessa miklu hátíð.  Pabbi var í undirbúningsnefnd, þannig að þegar Ómar kom fékk ég að heilsa honum og var það fyrir mig svipað þá, eins og ef ég fengi að taka í höndina á Robin Williams í dag.  Kæri Ómar, þú ert einn af okkar almestu snillingum í skemmtibransa og í því að kynna náttúru lands okkar fyrir okkur öllum.  Stiklu þættirnir þínir eru sígildir og mikill arfur fyrir komandi kynslóðir. Hafðu þökk fyrir.


mbl.is „Orðlaus, hrærður og þakklátur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Passar allt saman, ég fer norður í næstu viku.

Þá tek ég hlýindin með mér í nokkra daga, svo kem ég suður með blíðuna aftur.  Um daginn þegar ég fór til London var hitabylgja, heitustu dagar þar í 4 ár svo mikill er máttur minn. Lifið heil.

Dagur 4 (23)


mbl.is Áframhaldandi blíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband