Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Gargandi snilld þessi aðgerð á Láru Ómars.

Þetta er rosalega flott og gaman að sjá þessa aðgerð. Þvílíkir snillingar læknarnir okkar. Mæli með áhorfi á þetta, alls ekkert ógeðslegt.

AÐGERÐIN-Á-LÁRU

 


Karlmenn verða tregir í námunda við fallegar konur - Geta bara hugsað um eitt í einu

NÚ SKIL ÉG ALLT SVO MIKLU BETUR 

Það er ekkert nýtt að karlmenn verða eins og lallandi hálfvitar þegar fagrar konur eru annars vegar. Nú er það hins vegar vísindalega sannað.

Stutt samtal við aðlaðandi konu veldur minnistapi hjá körlum.

Hollenski vísindamaðurinn Johan Karremans segir við Sex News Europe að það sé ekki áreynslulaust að ganga í augun á konum. Rannsóknarhópur við Radboud háskólann i Nijmegen í Hollandi hafi gert minnispróf á 40 körlum í skólanum. Þeir hafi svo verið látnir spjalla við annað hvort karlmann eða konu í sjö mínútur áður en minnisprófið var endurtekið.

Þeir karlar sem töluðu við konu fengu lakari niðurstöðu úr prófinu en hinir sem höfðu talað við annan karl. Raunar varð minni þeirra síðra í takt við hvað þeim fannst konan aðlaðandi.

Hollensku fræðimennirnir drógu þá ályktun af rannsókn sinni að heili karla sé ekki fær um að leysa önnur verkefni á meðan hann er upptekinn af því að heilla konu. Heilinn sé upptekinn og víki öðru til hliðar.
Þú getur ekki hegðað þér hvernig sem er þegar þú reynir að ganga í augun á konu. Þú verður að huga að framkomu þinni, hvað þú segir, hvernig það hittir í mark – og svo laga hegðun þína að ríkjandi aðstæðum. Þetta er þreytandi vitsmunalegt ferli, að minnsta kosti nógu slítandi til að standa sig verr í minnisprófi.
Konur bregðast ekki við á sama hátt. Minnispróf þeirra hvorki versnaði ná skánaði á milli tilrauna og skipti engu hvort þær töluðu við karlmann eða aðra konu.
Það breytir að minnsta kosti ekki miklu þótt þær tali við myndarlegan karlmann.
Johan Karremans heldur að skýringin geti verið af tvennum toga. Annað hvort séu ungir karlar uppteknari en konur af því hvaða álit hitt kynið hefur á þeim - eða að konan hugsi um það eitt hvernig hún sjálf tekur sig út, alltaf, allan tímann, óháð aðstæðum.

Þessi grein er fengin að láni á pressunni

Hvernig finnst ykkur þessi nýja útgáfa af Heru? svimming ...........

....................... like a fish !!!!!!!!!!!!

 

                                             HERA


Já sæll..............sénsinn.

Þessu neita ég að trúa, líkaminn nærist af því sem við borðum og drekkum, hann hlýtur bara að vera geimvera maðurinn.

Hvað haldið þið???


mbl.is Hvorki borðað né drukkið í 70 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðilegt, hverjir eru sökudólgarnir??

Þeir sem rændu þetta fólk með því að ljúga að því um mögulegan gróða.  Ég kaupi ekki þá skýringu að fólkið hafi átt að vita betur, það er nú þannig að maður trúir forsvarsmönnum í bönkum, en kannski má segja að ef það er of gott til að vera satt, að maður geti grætt svo og svo mikið þá sé það ekki í rétt, en samt sem áður, mér finnst að það eigi að draga forsvarsmenn þessara stofnana til ábyrgðar og fella niður kröfur á heimilin í Eyjafirði sem standa frammi fyrir þessu gríðarlega tapi, reyndar finnst mér að bankastofnanir eigi alfarið að bera ábyrgð á þessum skandal sem varð hér fyrir hrun, þeir lugu vinstri hægri og voru með starfsfólk á prósentum sem þeir fengu til að ljúga fyrir sig með því að lofa þeim góðum bónusum, blessað bankastarfsfólkið vissi margt ekki betur, en stjórarnir, þeir vissu hvað þeir voru að gera og komu sínu fé fyrir haganlega og þurfa aldrei að díva hendi í kalt vatn.  Fuss og svei.Devil


mbl.is Skuldum vafin heimili í Eyjafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úttí krúttí púttí !!!!!!!!!!


mbl.is Minnsti hestur í heimi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir segja að maí verði kaldur, vonandi kemur örninn upp hreiðri.

Fuglalíf getur glatt mann mikið, ég var ekki há í loftinu þegar pabbi fór með mig í langar gönguferðir, ýmist í fjörunni heima eða í kringum bæinn.  Alltaf var hann að kenna mér og vildi að ég þekkti fugla á hljóðinu, það gekk svona allavegana, en alla helstu fugla þekkti ég þó og útlitið enn betur. Ég minnist þess ekki að hafa séð haförn. Fyrir nokkrum árum þegar ég heimsótti Húsavík sá ég jaðrakan, fallegur fugl sem gaman var að fylgjast með, ekki voru þeir á þessum slóðum í æsku minni. Veðurklúbburinn á Dalvík spáir kulda á næstu vikum, vonum bara að blessaðir fuglarnir hafi það af og nái að koma upp ungum í sumar, þegar erfiðleikar steðja að í fjármálum og öðru eins og hér á landi þá er ekkert sem léttir eins lundina eins og að fara í góðan göngutúr og hlusta á fuglasöng og önnur náttúruhljóð, prófið að loka augunum og ímynda ykkur gras sem bærist í golu Joyful yndislegt. Eigið góðan dag gullin mín og verið góð við hvort annað og munið að þið eruð öll, eitt og sérhvert, einstök.

Lóan

Lóan klikkar aldrei.


mbl.is Haförn á flugi í Ólafsfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju getur þetta fólk aldrei svarað spurningum án þess að benda á að annar sé verri???

Þetta er endalaus sandkassaleikur, "ég gerði þetta bara því allir hinir gerðu það og sjálfstæðismenn miklu meira en ég "   sá formaður, þingmaður eða ráðherra sem svarar næst svona spurningu og ber ekki fyrir sig að hinir hafi gert annaðhvort það sama eða jafnvel meira fær mitt atkvæði í næstu þingkosningum.  Andskotans plebbaháttur alltaf í gangi.

Jóhan na


mbl.is Óþægilegt fyrir Samfylkinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TIl hamingju með sigurinn í gær Valsmenn og til hamingju með nýja þjálfarann.

Þeir eru báðir flottir Óskar og Júlli, þannig að þið eruð bara í góðum málum, bíð spennt eftir næstu leikjum. Gaman að leiknum í gær og nú er bara að valta yfir Haukana.  Reyndar sem gömul Haukamanneskja er ég svolítið á báðum áttum, en stend með ykkur í ár.  Koma svo.


mbl.is Júlíus ráðinn þjálfari Vals
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með gylltan kjöl og flauelskápu !!!

Innihaldið er harla lítið og ekki neitt, eða hvað haldið þið???  auðvitað getur vel ritfær aðstoðarmaður skrifað þetta fyrir hann, en haldið þið að hann birti eitthvað hush hush leyndó þarna? örugglega ekki nema það sem má.  Ævisögur, smævisögur, nenni aldrei að lesa þessháttar bókmenntir. 

 

 


mbl.is Bush sendir frá sér endurminningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband