Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010
28.2.2010 | 15:20
Það er nú bara sama stærð og skjálftinn hér á Selfossi 2008.
Aumingjans fólkið að vera statt í þessum hörmungum. Ég hef verið að velta fyrir mér hvort jörðin sé að búa sig undir einhverjar meiriháttar breytingar, það hefur verið svo mikið af allskyns hamförum undanfarin ár, get ég t.d. reiknað með því að lifa alla ævina án stór hamfara á hnettinum okkar? veit ekki. Ég vona svo sannarlega að ég sleppi við stríð. Hugsa oft um það hversu gott við höfum það hér á Íslandi, þrátt fyrir allt og allt, eiginlega engar áhyggjur í gangi. Ég hef svosem ekki alltaf verið laus við áhyggjur, né lífið verið dans á rósum, en þannig er það heldur ekki, þetta eru öldudalir og þannig þroskast maður áfram í lífinu. Ég er alsæl með lífið og tilveruna og mig vantar ekkert.

|
Kröftugur eftirskjálfti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.2.2010 | 14:49
Ég var bara alveg búin að gleyma Agnesi, vitið þið eitthvað um sannleiksgildi þessarar fréttar?
Sveinn Andri spyr um ferðir Agnesar á „heilsuhæli“ í boði auðmanna
Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður, spyr hvort Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, sé til þess bær að fjalla um bankahrunið og útrásina með trúverðugum hætti. Hann vill vita hversu oft hún þáði boð um dvöl á „heilsuhælum" erlendis frá íslenskum viðskiptajöfrum.
„Allir þátttakendurnir í hruninu sem og þeir aðilar sem gera upp hrunið með einum eða öðrum hætti eru og verða undir stöðugri smásjá; bæði annarra stofnana og eftirlitsaðila sem og fjölmiðla. En hvað með fjölmiðlana sjálfa? Hvað með blaðamennina sem þjónkuðust við útrásarvíkingana eða þáðu frá þeim dúsur?" segir Sveinn Andri í pistli á Pressunni í dag.
Hann segir að dagblöðin séu enn í eigu stórfyrirtækja sem geri þau út til að gæta hagsmuna sinna og ekkert uppgjör virðist hafi farið fram á störfum blaðamanna á tímum útrásarinnar. Hann tekur sem dæmi skrif Agnesar í Sunnudagsmogganum um Sjóvá og Milestone.
Því næst spyr Sveinn Andri hvort Agnes sé til þess bær að fjalla um bankahrunið og útrásina með trúverðugum hætti. „Hefur hún gert upp tengsl sín við hina svokölluðu útrásarvíkinga og þær gjafir og fjárstyrki sem hún hlaut frá þeim þegar allt lék í lyndi?" Hann segir að Agnes þurfi að upplýsa lesendur Morgunblaðsins um eftirfarandi:
„Hversu margar boðsferðir til útlanda þáði Agnes frá íslenskum viðskiptajöfrum? Hversu mörg boð um dvöl á „heilsuhælum" erlendis þáði Agnes frá íslenskum viðskiptajöfrum? Hverjir voru það sem greiddu kostnaðinn í hvert og eitt skipti? Hver var kostnaður við hverja og eina ferð og dvalarkostnaður?" segir Sveinn Andri og bætir við að áður en Agnes heldur áfram í þeim leiðangri að dæma gerendur í bankahruninu verði hún að gera lesendum Morgunblaðsins grein fyrir þessu og draga ekkert undan. „Ella geta þeir ekki treyst því að hún fjalli um hrunið með hlutlausum og málefnalegum hætti." Pistilinn er hægt að lesa hér. http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Svein_Andra/uppgjor-agnensar
Þegar skjálftinn reið yfir Haiti fór allt á hvolf, eðlilega. Hjálparsveitir þustu til landsins og mikil neyð varð strax, núna finnast mér litlar fréttir og ekkert um að verið sé að grafa fólk úr rústum, nær engar fréttamyndir og tala látinna, sem betur fer, mjög lág, samt var þetta miklu harðari skjálfti. Hver er ástæðan? er Chile betur undirbúið undir skjálftann eða gengur illa að komast á staðina sem verst urðu úti? ég skil þetta ekki alveg, en vona svo sannarlega að þetta hafi ekki verið eins hræðilegt og á Haiti. Þetta kemur sjálfsagt allt í ljós fljótlega, gott að heyra af Íslendingum sem eru heilir á húfi.

|
Ekki talin hætta á flóðbylgjum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
27.2.2010 | 22:07
Ég þakka kærlega fyrir Edduna, ég áttaði mig í innganginum að það værum við, þjóðin, sem mundum vinna.
Bjarnfreðarson kvikmynd ársins
Bjarnfreðarson í leikstjórn Ragnars Bragasonar hlaut verðlaun sem kvikmynd ársins á Edduverðlaunahátíðinni fór fram í kvöld. Ragnar hlaut einnig verðlaun sem leiksstjóri ársins fyrir Bjarnfreðarson og Fangavaktina.
Leikkona ársins er Kristbjörg Kjeld fyrir leik sinni í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Mamma Gógó. Þá fékk Jón Gnarr verðlaun sem leikari ársins fyrir leik sinni í Fangavaktinni og kvikmyndinni Bjarnfreðarson.
Leikið sjónvarpsefni ársins er Fangvaktinn.
Fengið að láni á visir.is
27.2.2010 | 19:40
Hverjir eru núna hræddir? ekki Íslendingar.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 19:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.2.2010 | 17:11
Skynsemin alltaf söm við sig hjá mér.
Ég þurfti að gera helling í dag, t.d. að fara á Hvolsvöll, en ákvað að gera bara allt í gær, datt í hug að veður yrðu válynd í dag. Góð ákvörðun, nú sit ég hér inni í hlýjunni og horfi á hríðina fyrir utan gluggann. Hafið það gott í kvöld kæru vinir og vonandi getið þið bara verið heima eins og ég.
Fátt léttir lund mína eins og þetta lag.
|
Varað við slæmu veðurútliti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
27.2.2010 | 15:19
Hvað getur flóðbylja borist langt? og hversu langur tími líður þar til hún deyr út?
Forvitnis spurningar hjá mér, ég geri mér ekki grein fyrir hvað þetta gerist á löngum tíma, skjálftinn er skelfilegur og ég vona svo sannarlega að þetta verði ekki jafn skelfilegar tölur og á Haiti. Þetta hefur bara verið smáskjálfti hér á Selfossi og nágrenni miða við þessa tvo síðustu á Haiti og Chile. Hræðilegar hörmungar og man enn hversu skelfilega hrædd ég varð 29.maí 2008.
|
Flóðaviðvörun í 53 löndum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
27.2.2010 | 14:03
Til hamingju með afmælið elsku dóttir.
Fyrir bráðum 17 árum kynntist ég þessari fallegu stjúpdóttur minni, hún var þá nýorðin 5 ára og eru þessar myndir teknar þegar hún kom fyrst í heimsókn til mín með pabba sínum, þarna er hún að steikja vöfflur. Innilega til hamingju elsku dóttir, þú hefur bætt líf mitt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.2.2010 | 12:39
Fádæma blíða og logn í skaplyndi okkar Selfossbúa í dag.
Njótið dagsins kæru Íslendingar og svona ein spurning, vitið þið hvað "Harmur englanna" þýir í raun.?
|
Þæfingur og þungfært víða |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.2.2010 | 09:32
Auðvitað "þarf" ég þá endilega að bregða mér af bæ!!!
Ég ætla nú samt ekki að ferðast fáfarnar slóðir og ég ætla ekki að láta björgunarsveitirnar hjálpa mér. Ég óska öllum sem er á ferðinni í dag góðrar ferðar og farið varlega oft er betur heima setið en af stað farið.
Þessi mynd er síðan 1957, þarna er ég á leið í landsgönguna með móður minni.
Váá hvað ég er orðin fullorðin 
|
Kolófært í Vík |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn