Bloggfærslur mánaðarins, desember 2010

Skollanum erfiðara að hafa stjórn á lellanum ...................

............................ þegar tilboðin ganga upp að þeim vinstri hægri í öllum löndum.  Ekki að ég sé nú að mæla því bót að menn nái sér í vændiskonur eða yfir annað kvenfólk en eiginkonuna, en mikið andskoti þurfa þeir að vera staðfastir til að standast öllu tilboðin og framboðið af fögrum meyjum. Þetta er einn stór markaður þetta líf og allir að reyna að selja sitt og það er ekkert smá spennandi í augum sumra kvenna að sofa hjá sem frægustum mönnum og þegar kvenfólk með það að markmiði hefur huggulega fræga karlmenn í sigtinu þá endar það oftar en ekki á einn veg  

GLEÐILEGT ÁR


mbl.is Beckham í málaferlum við vændiskonu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem maður gat dansað við tónlistina sem þau sungu.

En svo er spurning hversu miklir tónlistarmenn þau voru, skipti ekki miklu í denn, málið var bara að dansa og skemmta sér. 

Fyrsta og eina platan sem ég eignaðist með þeim.


mbl.is Söngvari Boney M látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enda er Davíð drengur góður !!!

Það er spurning hvort nýja árið færi okkar sannar fréttir af því hverjir stjórna landinu á bakvið tjöldin.  Ég er ekki að ýja að því að það sé Davíð en það eru einhverjir sem gera það aðrir en þeir sem sitja í frontinum, það er allavega mín skoðun.  Davíð talar tæpitungulaust eins og alltaf en það er ekki þar með sagt að allt sem hann segir sé heilagur sannleikur, hann er breyskur eins og við öll.  Við megum ekki láta stjórnast af þrýstingi og mynda okkur skoðanir án gagnrýni. Margt sem Davíð hefur gert í gegnum árin er gott og svona fljótt á litið var hann mun betri landsfaðir, heldur en Jóhanna, Steingrímur og allir hinir til samans, svo megið þið hafa skoðun á hans persónu alveg eins og hver og einn vill, en Davíð gerði margt gott. Veit reyndar ekkert af hverju ég fór að skrifa þessa grein, sumt bara dettur upp úr manni.  Ég held ég láti þetta verða loka blogg greinina mína á þessu ári, nema eitthvað mega gott detti inn sem ég verð að skrifa um.  Óska ykkur gleðilegs árs.


mbl.is Davíð: Ekki starfhæf ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin spurning um að menn hafa teygt sig eins langt og hægt er.

Það er ekki forsvaranlegt að þjónustu á landsbyggðinni skuli fara svona aftur.  Við verðum að spyrna við fótum og vera minnug þess hvaðan auður okkar og menning kemur.  Ef væri ekki fyrir dreifbýlið þá væri höfuðborgin ekki svona menningarleg og fjölbreytt. Það er fólkið sem flust hefur þangað í gegnum árin sem hefur hvað mest auðgað mannlífið. Það er aldrei of oft kveðin sú vísa, að við eigum fyrst og fremst að hugsa vel um grunnþjónustuna því annars eigum við ekki heilbrigt samfélag.  Ég vona að nýja árið færi okkur ekki meiri niðurskurð eða hreinlega aftökur því það er bara ekkert meira að skera niður.  Ég ætla að líta björtum augum til framtíðar um þessi áramót og halda ótrauð áfram að arka veginn með samferðafólki mínu og leggja mitt af mörkum til að stappa í okkur stálinu.

Svo legg ég til að ríkisstjórnin segi af sér.


mbl.is „Komin að endimörkum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er ég stolt af mínu fólki.

Þetta er aldeilis góð frétt og best finnst mér að fólki sem býr á Sólheimum fái að vita að búsetu þeirra verður ekki raskað, það er svo erfitt að hanga í lausu lofti og vita ekki hvað verður um þig.  Ég óska Ástu og bæjarstjórn Árborgar innilega til hamingju með að hafa landað þessu samkomulagi og ég óska öllum íbúum á Sólheimum gleðilegs nýs árs og að þau megi njóta lífsins á þessum fallega stað. 

Þessi maður er snillingur, mér finnst að það ætti að endursýna þáttinn með honum um daginn, það var afskaplega gefandi að hlusta og horfa á hann.


mbl.is Rekstur Sólheima tryggður út janúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er nú verulega lítið eftir af árinu 2010...............

.................... sem er bara í góðu lagi, því fyrst ég er hér og get talið dagana, þá er ég líka svo heppin að vera á lífi og innanum þá sem ég elska mest í lífinu.  Árið hefur verið okkur gott og enn nýt ég þeirrar hamingju að hafa annað foreldri mitt á lífi hjá mér.  Ég þakka ykkur samfylgdina hér í bloggheimum og bið öllum árs og friðar.


Sigla himinfley.

 

 

Heims um ból 
(Sveinbjörn Egilsson/Franz Gruber) 


Heims um ból, helg eru jól, 
signuð mær son Guðs ól, 
frelsun mannanna, frelsisins lind, 
frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind 
:/: meinvill í myrkrunum lá :/: 

Heimi í hátíð er ný, 
himneskt ljós lýsir ský, 
liggur í jötunni lávarður heims, 
lifandi brunnur hins andlega seims, 
:/: konungur lífs vors og ljóss :/: 

Heyra má himnum í frá 
englasöng: Allelújá. 
Friður á jörðu því faðirinn er 
fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér 
:/: samastað syninum hjá :/:

 


mbl.is Siglir til Þorlákshafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heppin ég að fara ekki til pabba í dag.

Ef það er eitthvað sem fer í taugarnar á mér við jólasiðina, þá er það skötulykt. Ég held mig langt frá öllum stöðum sem framleiða þann "viðbjóð" í dag.  Er bara heima með kertaljós og ilm af hangikjöti og góðum kökum.  Hverjum datt í hug að fara í þessa "piss" keppni með það hver getur borðað sterkustu skötuna? er það kannski tilkomið að því að einhver maður sagði fyrir mörgum árum að skatan væri kynörvandi því svo mörg börn fæddust í október á vestfjörðum ? ef það tengist skötunni þá held ég frekar að það megi tengja það því að fólk varð að hafa húsakynni sín opin til að hleypa lyktinni út og svaf því þéttar og þannig jukust barneignir. Jæja, hver er ég svosem til að "drulla" yfir siði annarra, sjálfsagt er hægt að setja eitthvað út á mig og mitt tilstand, sem reyndar er nú alltaf með minnsta móti og í alla staði mjög hófstillt.  Njótið þorláksmessunnar, ég verð heima Tounge

SickSick

SickSick

SickSick


mbl.is Elda 300 kíló af skötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óska ykkur gleði og friðar um jólahátíðina.

8 ára

Ég lítil með stóru systrum mínum um jól.

Svona var lífið, ljúft og yndislegt, friður, rólegheit og kærleikur.

Njótið frídaganna kæru vinir og verið góð við hvert annað, lífið er ljúft ef við viljum.


Skúra, skrúbba og bóna...........

................ vel og vandlega í dag og svo ætla ég að bjóða tveim litlum frænkum á bæjarrúnt og kaupa eitthvað fallegt handa þeim, ekkert eins skemmtilegt og að gleðja litlu börnin, þau eiga hamingjuna og gleðina skuldlausa.  Njótið jólanna elsku vinir og munið að taka þessu með ró, það á enginn að ganga fram af sér, þetta hefst allt með hægðinni og friðnum. 


mbl.is Jólaösin að ná hámarki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband