Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Á fallegum degi í miklu frosti og stillum fæddist.............

...................... elsku pabbi minn hann Sigurður.  Foreldrar hans bjuggu þá á Bakka (þar sem álver verður kannski byggt) og þurfti afi Haraldur að labba inná Húsavík til að ná í ljósmóðurina, hann gekk á hjarni inneftir og veðrið var einstaklega fallegt, eins og í dag.   Til hamingju með daginn elsku pabbi.

Úr safni Sig. Har. (40)

Úr safni Sig. Har. (26)

Tekin úti á Bakka, pabbi var með nokkrar rollur áður en hann flutti suður.


Gummi megakrútt.

521288A

HVER ER SÆTASTUR ?

GUMMI?


mbl.is Guðmundur fæddur í Húsdýragarðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gerið þetta þá á einhvern vitrænan hátt !!

Ég hengi þá hér við greinina mína frá í gær eins og ég hótaði, hef engin svör fengið enn. Það þarf að ígrunda þessa aðstoð ekki bara henda einhverju fram og svo sitja þeir eftir með sárt ennið sem mest þurfa á hjálpinni að halda.

Ég er brjáluð.  Var að tala við bankann minn og komst þar að því að skammtímalán sem ég var með á iðnaðarhúsnæði sem við hjónin eigum, er komið sjálfkrafa í greiðsludreifingu og hefði ég ekki ætlað að borga inn á höfuðstólinn þá hefði ég ekkert vitað af þessu fyrr en eftir einhvern X tíma og þá hefði ég skuldað helling inn á þessum reikningi, nú ÞARF ÉG að segja þessu upp, mæta í bankann og kvitta undir og þá fer ferli af stað þar sem þetta verður stöðvar og mér er þá fyrirskipað  að greiða upp í topp það sem safnast hefur á þennan jöfnunarreikning sem er nú í dag komið í yfir 40.000 krónur.  ÁRNI PÁLL þú ert  að framkvænma tóma vitleysu að mínu mati, hvað eruð þið að skipta ykkur af privat lánum fólks ?? ég er 100 skilum og díla sjálf við minn banka um mín peningamál, ykkur kemur þetta ekki nokkurn hlut við og eigið að láta fólk í friði nema það biðji um aðstoð,  vilt þú senda mér 40.000 þúsund kall og borga þetta fyrir mig??  hversu mörgum ætlið þið að koma í þrot með þessu framferði ykkar eða binda fólk á skuldaklafa langt út yfir gröf og dauða????  ég mun birta þessu færslu daglega þar til ég fæ einhverjar skýringar frá ykkur, misvitur ráðamönnum.

Fólki var gefinn kostur á að segja sig frá dreifingu á íbúðalánasjóðslánum og þið sögðuð að það yrði bara breytt lánum á húsnæði þar sem fólk býr, ég bý ekki í iðnaðarhúsnæði mínu. Ég er að afla mér betri upplýsinga og muna birta þær hér.


mbl.is Fjölga úrræðum vegna skuldavanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég mun hengja þessa grein mína um Árna Pál við allar fréttir af bjargráðum næstu daga.

Ég er brjáluð.  Var að tala við bankann minn og komst þar að því að skammtímalán sem ég var með á iðnaðarhúsnæði sem við hjónin eigum, er komið sjálfkrafa í greiðsludreifingu og hefði ég ekki ætlað að borga inn á höfuðstólinn þá hefði ég ekkert vitað af þessu fyrr en eftir einhvern X tíma og þá hefði ég skuldað helling inn á þessum reikningi, nú ÞARF ÉG að segja þessu upp, mæta í bankann og kvitta undir og þá fer ferli af stað þar sem þetta verður stöðvað og mér er þá fyrirskipað  að greiða upp í topp það sem safnast hefur á þennan jöfnunarreikning sem er nú í dag komið í yfir 40.000 krónuri.  ÁRNI PÁLL þú ert  að framkvænma tóma vitleysu að mínu mati, hvað eruð þið að skipta ykkur af privat lánum fólks ?? ég er í 100% skilum og díla sjálf við minn banka um mín peningamál, ykkur kemur þetta ekki nokkurn hlut við og eigið að láta fólk í friði nema það biðji um aðstoð,  vilt þú senda mér 40.000 þúsund kall og borga þetta fyrir mig??  hversu mörgum ætlið þið að koma í þrot með þessu framferði ykkar eða binda fólk á skuldaklafa langt út yfir gröf og dauða????  ég mun birta þessa færslu daglega þar til ég fæ einhverjar skýringar frá ykkur, misvitru ráðamönnum.

Fólki var gefinn kostur á að segja sig frá dreifingu á íbúðalánasjóðslánum og þið sögðuð að það yrði bara breytt lánum á húsnæði þar sem fólk býr, ég bý ekki í iðnaðarhúsnæði mínu. Ég er að afla mér betri upplýsinga og muna birta þær hér.


mbl.is ASÍ: Yfir 80% ekki fengið fullnægjandi aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Möguleikar Íslendinga eru miklir.

Við (strákarnir) gerum okkar besta og þetta verður fruntaflottur leikur.  Áfram Ísland.


mbl.is EM: Möguleikar okkar eru alls ekki litlir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef einhverjir eiga að geta leyst sín mál án láta þá eru það prestar.

Það finnst mér allavega og hefur mér alltaf þótt til minnkunar þegar rifrildi og ósætti eru meðal kirkjunnar manna, eiga þeir ekki einmitt að vera friðarboðar og menn sátta og kærleiks?  það er allavega sagt svo.  Séra Kristinn er fínn náungi og ég hef heyrt að séra Óskar sé það líka en ég hef aldrei hitt hann síðan hann byrjaði hér sem afleysingarprestur, sýnið nú gott fordæmi kæru prestur og finnið góða sátt, þið eruð jú friðarins menn.

4f5ad14cf33df0f8d4735d844471b268_selfosskirkja-nymalad


mbl.is Fimm sækja um á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá munu skegg fjúka.

Þeir voru búnir að lofa því Tommi og Úlfar að raka sig ekki fyrr en stýrivextir færu niður fyrir 10 %, ég sá þá í viðtali í sjónvarpinu í gærkvöldi, ekkert smá loðnir orðnir kallarnir, nú verður mikið klippt og rakað í dag.

  bilde


mbl.is Stýrivextir lækka í 9,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Töffarar dauðans !!


mbl.is Filippseysku fangarnir slá aftur í gegn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er snöggur að hækka "bjartsýnisstuðullinn" þegar við hjónin lendum í könnun.

Við erum svo bjartsýn og jákvæð að "korter" væri nóg LoL  hér er rigning og skýjað og ég ætla út í blíðuna.  Eigið ljúfan dag dúllurnar mínar.  Gott tú love U to kless Tounge

uglur


mbl.is Dregur úr svartsýni neytenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir eru víða þessir vanhæfu.

Í okkar litla landi eru tengsl auðvitað meiri en annarsstaðar, þess vegna verða ýmsir vanhæfir við minnsta tilefni.  Af sömu ástæðu eru svo margir sem "græða" eða "tapa" við minnstu hreyfingar í bönkum eða öðru að hér má eiginlega segja að það sé "vanhæf" þjóð sem berst í bökkum, hvað getum við gert?  veit ekki.  Ég sjálf þekki fullt af fólki í góðum stöðum en hef aldrei notið fjárhagslegs ávinnings vegna þess, kannski vegna þess að ég ætlast ekki til að aðrir geri fyrir mig það sem ég mundi ekki gera fyrir þá, ef ég gæti. Best er að vera með sitt á hreinu og gera alltaf ráð fyrir að maður þurfi að standa ábyrgur fyrir eigin gjörðum, ekki að mann verði "reddað" fyrir horn. Annars er ég bara góð í dag, veðrið er þó fj. drungalegt enda janúar, en það vorar fljótt.  Einhverjir af íbúum bæjarins míns eru að rífast um prestinn, ég nenni ekki að taka þátt í því, séra Kristinn er ljómandi fínn kall og mundi ég hiklaust leita til hans ef ég þyrfti með, en svo eru reyndar margir sem vilja alltaf vera ósáttir.  Jæja, ætla ekki að tjá mig meira, er farin út að labba í grámyglunni.

Róslín

Þessa fallegu mynd tók Róslín vinkona mín á Höfn, hún er upprennandi snillingur, varð bara að sýna ykkur myndina, vona að þú sért sátt við það Róslín mín. ?


mbl.is Ákæra afturkölluð vegna tengsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband