Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

Don't You Lie To Me sama gamla tuggan allir ljúga

Það er eiginlega ekki orðum eyðandi á þá vitleysu sem nú er í gangi hjá stjórnmálamönnum, hvernig verður umhverfið þegar við vöknum í fyrramálið?


mbl.is Ríkisstjórnarfundur hafinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oooooooooooooog ? eruð þið klárir í bátana??

Verst hvað ég er lítið bjartsýn um betri tíð þó svo þessi stjórn falli, hvað kunna D og F núna sem þeir gátu ekki verið búnir að gera?  ja, ég spyr bara.

oknytt


mbl.is Birtingarmynd vandræðanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Selfoss, svo bara massa það !!! Þið eruð flottir.

gummi ben

FLOTT,  ÉG ER MJÖG SÁTT. TAKA ÞAÐ SVO MEÐ STÆL STRÁKAR.


mbl.is Guðmundur verður næsti þjálfari Selfyssinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Jóhanna: Afsögn Ögmundar kom á óvart" trúði hún því ekki sem hann sagði um afstöðu sína eða hvað? hræsni.

Frétt af visir.is

mynd
Jóhanna Sigurðardóttir.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að afsögn Ögmundar Jónassonar hafi komið sér á óvart. Hún segir að Ögmundur hafi beðið um fyndinn í morgun. Jóhanna segir að ekki sé búið að velja eftirmann Ögmunds, fyrst verði hún að ræða við Steingrím J. Sigfússon formann VG en fundur þeirra hófst klukkan tvö.

Jóhanna sagðist þó vera ánægð með að Ögmundur ætli sér að styðja ríkisstjórnina. Að sögn Jóhönnu þarf að leiða Icesave málið til lykta sem allra fyrst og að tillögur í þá átt eru væntanlegar.

Jóhanna sagðist hinsvegar ekki geta fullyrt að ríkisstjórnin hafi tryggan meirihluta fyrir lausn málsins á Alþingi.


Þar fauk hann.

Eina vonin mín um að ríkisstjórnin muni afneita nauðasamningunum um Icesave, hvað er nú til ráða?? mér líst ekki á blikuna.
mbl.is Ögmundur segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömma óþekka fórnað fyrir Icesave.??

Reynið þið svo að halda því fram að VG noti ekki sömu vinnubrögð og aðrir stjórnmálaflokkar þegar þeim hentar.  LoL
mbl.is Ögmundur á fund Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Cabaret


mbl.is Tinna áfram Þjóðleikhússtjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

7% 7% 7%


Helgur maður var í viðræðum við Guð og sagði:
Guð, mig langar að vita hver munurinn er á himni og helvíti.

Við svo búið fór Guð með manninn að tvennum dyrum.

Hann opnaði aðra þeirra og hinn helgi maður leit inn.

Í miðju herbergisins var stórt hringlaga borð.

Á miðju borðsins var stór pottur með pottrétti sem ilmaði svo vel að
hinn helgi maður fékk vatn í munninn.

Fólkið sem sat við borðið var horað og veiklulegt.

Það leit út fyrir að vera að svelta í hel.

Fólkið hélt á skeiðum með löngu handfangi og hendur þeirra voru
bundnar við stólana en þó gátu þau veitt matinn upp úr pottinum með
skeiðinni.

En þar sem handföngin á skeiðunum voru lengri en hendur þeirra þá gátu
þau ekki komið matnum úr skeiðinni upp í sig.

Hinn helgi maður varð undrandi á þeirri eymd og þjáningu sem við honum
blasti.

Guð sagði, 'Þú hefur nú séð inn í helvíti.'

Síðan fóru þeir að næstu hurð og opnuðu hana.

Við blasti sama sjón og í fyrra herberginu.

Stórt hringlaga borð með stórum potti fullum af pottrétti sem einnig
varð til þess að hinn heilagi maður fékk vatn í munninn.

Fólkið hafði sama búnað, þ.e. skeiðar með löngu handfangi.. Munurinn
var hins vegar sá að þetta fólk var vel haldið, kátt,hresst og talaði
saman.

Þetta sagðist hinn helgi maður ekki skilja.

Þetta er einfalt, sagði Guð.

En þetta krefst eins hæfileika.

Eins og þú sérð þá hefur þetta fólk lært að mata hvert annað á meðan
að hinir gráðugu hugsa eingöngu um sjálfan sig.

Það er talið líklegt að 93% muni ekki deila þessum pósti. 
Ef að þú ert á meðal hinna 7% sem munu birta þennan póst þá
birtu hann undir nafninu "7%"

Ég er í 7% hlutanum.

Mundu að ég mun alltaf deila skeið minni með þér.
 

spoon


mbl.is Greiðslubyrði allra lána lækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert þarna sem kemur sérlega á óvart.

Þegar ég las þessa frétt datt mér í hug önnur frétt, sjá hér fyrir neðan.

Í framhaldi af því hélt ég skyndifund með húsbandinu og við erum klár með nýja tillögu að lögum sem heimila öryrkjum sem hafa minna en 40.þúsund í ráðstöfunartekjur á mánuði, að fá niðurfellingu af lánum sem nemur 50% af höfuðstól, ef ekki er hægt að borga lánin í 12. mánuði.  Hvernig líst ykkur á þá hugmynd?  mér finnst hún ágæt.

Ung vinstri græn vilja heimila hústökur

 Ung vinstri græn hvetja Alþingi til að mynda lagalega umgjörð til að heimila hústökur. Þau vilja að ákveðnum skilyrðum uppfylltum verði löglegt að taka yfir hús hafi það staðið autt í 12 mánuði og ljóst þyki að eigandi þess ætli ekki að nota það í nánustu framtíð. Þetta er meðal þeirra ályktana sem samþykktar voru á landsfundi hreyfingarinnar um síðustu helgi.



mbl.is 12 fyrirtæki í þrot í ágúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég eyddi fyrstu 35 árunum mínum í að þyngjast, það tókst.

Nú er ég búin að ná því marki og þá er að létta sig.  Reyndar hef ég lést um 9 kíló frá jólum og er að nálgast mína kjörþyngd, ég er nefnilega svo skrítin að ákveðin þyngd passar mér og allt þar of eða van hefur áhrif á heilsuna til verri vegar í hvora áttina sem ég fer.  Ég er nú reyndar ekkert undrandi á þessum niðurstöðum, maður þarf ekki annað en að líta í kringum sig út í búð þegar verið er að versla og þar blasa við hamborgara rassar og pizzu mjaðmir út um allt og innkaupakarfan er ekki með góðum eða hollum mat í.  Við erum það sem við étum, það eru gömul sannindi sem verða ávallt sönn.  Ég er reyndar búin að finna upp frábæran megrunarkúr sem ég er á sjálf,  ég tek 6 lýsistöflur á dag, borða minna og hollara og hreyfi mig meira, ódýrt en svínvirkar.

fat


mbl.is Pundið þyngist í Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband