Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009
31.8.2009 | 20:57
Útreiðarljóð forseta vors.
Um reiðtúrinn í Húnaþingi
Í síðdegisljómann var lagt af stað
langaði Óla að ríða
og hýr í bragði um hestinn bað
sem hentaði rassinum síða.
Með erfiðismunum var brölt á bak
og búið um tigna gestinn
Ólafur hafði á taumnum tak
og talaði blítt við hestinn.
Dorrit mósótta meri fékk
mæðulega og lúna
sem kunni betur við klakk og sekk
en kátu og málgefnu frúna.
Töltu þau yfir móa og mel
milli norðlenskra hlíða.
Ólafi líður alltaf vel
ef Ólafur fær að ríða.
Í Ólafi prjónaði lundin létt
lipra taktana sýndi
Dorrit var til í dálítinn sprett
og dauflegu merina brýndi.
Hrossin þá bæði hrukku við
hrasaði fákurinn spaki.
Ólafur hentist út á hlið
Ólafur datt svo af baki.
Örlaga boðskapur einn er sá
sem Ólafur þarf að hlýða
að bakinu tollir hann ekki á
og ætti að hætta að ríða.
Hvað sjáið þið út úr myndinni?
Ljóð | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.8.2009 | 15:06
Eigum við kannski að rifja upp hverjir eiga sök á þessu????
Ég fer alltaf í brjálað skap þegar ég hugsa um fíflin sem sáu til þess að það var hægt að koma okkur í þennan skít. Verð alveg sót vitlaus og ætla ekki að skrifa meira um það, gæti sagt eitthvað sem þætti óviðurkvæmilegt.
|
Segja Íslendinga beitta fjárkúgun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.8.2009 | 20:46
Fyrst svo fór, legg ég hér með inn beiðni um að vinna næst.
Meina þetta í alvöru, gæti notað smá aukapening, allt í lagi að deila því með fleirum en ein milljón mundi gera gæfumuninn. Eruð þið ekki sammála um að við hjónin vinnum næst. ? Langar svo bara að bæta við að okkur líður mega vel, hamingjan ríður ekki við einteyming á þessu heimili. Vorum boðin út að borða í gærkvöldi á Fiski markaðinn í Aðalstræti, (fiskimarkadurinn.is) þvílík veisla, mæli óhikað með staðnum, það var spilað á bragðlaukana í rúma 3 klt. Hafið það gott og njótið lífsins.
|
Lottó: Enginn með allar tölur réttar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Nú róast eitthvað í fréttum frá hinu háa Alþingi, þingmenn og ráðherrar komnir í langþráð sumar/haust frí og vona ég að þeir noti tímann vel til að efla andann og komi svo ferskir til starfa á ný 1.okt. svona rétt fyrir jólafrí
Icesave skrímslið kallast nú barn og er í bið hjá forseta vorum, ekki tel ég nokkrar líkur á því að hann samþykki þetta ekki, það eru jú vinstri menn sem vilja og hann er og verður alltaf meira hallur undir þá stefnu en þá hægri, alls ekki verri maður fyrir vikið.
Nú er mogginn líka orðinn bleikur, kannski er það bara í dag, en það lífgar upp á síðurnar. Það mætti breyta um liti hér í stjórnborðinu, setja kannski grænt eða rautt. Blessuð börnin eru byrjuð í skólunum og fréttamenn búnir að missa sig yfir miklum kostnaði við skólagagnainnkaup, sé enga ástæðu til, enda hefur alltaf verið erfitt að byrja, það hefur alltaf kostað peninga að kaupa stílabækur, ritföng ofl. en það er hægt að kaupa ódýrt og svo er heldur varla tjaldað til einnar nætur, þetta endist sumum börnum langt fram eftir vetri.
Saklaus lítil lömb fara að koma af fjalli og verða mörg hver leidd til slátrunar eins og venjulega og það er svo notalegt þegar innmaturinn fer að detta í búðirnar, það sækir alltaf að mér svona söfnunar tilfinning, eiga nóg og nýta allt vel. Vona að sem flestir finni fyrir þessari tilfinningu. Við erum búin að ná því að skera matarinnkaup niður um þá hækkun sem orðið hefur síðasta ár og veit ég um marga sem eru að gera slíkt hið sama.
Veðrið í dag er einstakt, 15 stiga hiti og sól og bara gaman að vera til. Hafið það sem allra best um helgina kæru bloggvinir og aðrir sem hér dettið inn. Elskið friðinn og kyssið á næsta kvið sem þið hittið.
Þetta er samt allt með fyrirvara
|
Bretar skoða fyrirvarana |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
28.8.2009 | 11:35
Til hamingju Ísland (not)
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2009 | 21:23
Lagarfljótsormurinn??
Þessi eða
Þessi??
Gott lag til að hlusta á meðan maður brýtur heilann.
|
Nessie á Google Earth? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
27.8.2009 | 12:17
Hvað mundi það skila þjóðarbúinu miklu ef ég mundi taka á mig 70% skerðingu á launum frá TRST??
Mér er ljúft og skylt að uppfræða ykkur um það, ég fengi 28.000 útborgað. Svona er nú munurinn á mér og þessum Jóni. Við hjónin fáum ekki einu sinni 5.milljónir samtals á ári. Þetta er geggjun og nú vona ég bara að þetta verði liðin tíð og að ENGINN fái þvílík laun, það er bara engin skynsemi á bakvið þetta og það á enginn slík laun, skilið, þó svo að hann sé góður starfsmaður.
Í framhaldinu vil ég svo biðjast afsökunar á því að hafa drukkið rauðvín í vor og að hafa talað of mikið í partýinu sem ég var í, ég fann samt ekkert á mér var bara svona glöð. 
Það var sagt mér............
Farin að sjóða rifsberjahlaup.
|
Laun framkvæmdastjóra Stoða lækka um 70% |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.8.2009 | 11:41
Heimahávaði af verstu gerð !!!!!!!!!!!!!!!!!!!
KEMST EKKI Á FUNDINN EN ÆTLA ÚT Í BÆ HÉR Á SELFOSSI OG VERA MEÐ LÆTI.
MJÁÁÁÁ
|
Lokaumræða um Icesave hafin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vita bara ekki rass í bala. Hvað halda þeir annars að íslenskur almenningur sé heimskur???
Það þarf ekki fleiri orð um þetta, þið vitið hvað ég meina.
Finnst ykkur þeir ekki annars álíka gáffulegir til augnanna Lýður og þessi??
|
Vissi ekki um lán til Al-Thani |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
26.8.2009 | 17:21
Skrokkurinn á mér þolir ekki þessa umræðu.
Ég ætla nú reyndar ekkert að leggjast hér í vælugang, langar bara að minna ykkur, heilbrigða fólkið, á það að þó svo að einhverjir svíki og pretti kerfið, þá er meirihluti okkar öryrkja, hreinlega of veikur til að vinna, suma daga eigum við meira að segja erfitt með að lifa af daginn. Hver mundi vilja ráða fimmtuga kellingu í vinnu upp á þau býtti að hún mætti kl. 13.00 og væri jafnvel farin 14.00 eða jafnvel að hún ynni til fjögur og gæti svo ekki mætt daginn eftir vegna eftirkasta, nei það vill enginn skipta við öryrkjann, hugsið dæmið til enda, hvernig líður ykkur eftir sumarfrí og jafnvel bara langt helgarfrí? ykkur dauðlangar að fara í vinnuna og hitta vinina og nýta krafta ykkar og snilli, öryrkinn á aldrei frí, það bíður aldrei neinn eftir okkur.
Svo er þessi mynd af mér sem Andy Warhol gerði hér um árið, til sölu á tvo milljarða, peningarnir leggist inn á einkareikning minn á Tortola, verð þar í vetur. þ.e.a.s. ef ég sel myndina.
|
Atvinnulaust fólk-ekki skrokkar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn