Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009
31.7.2009 | 19:27
Er heimskulegum hugmyndum mannskepnunnar engin takmörk sett? henda börnum ofan af þökum.
Sumt er einfaldlega of vitlaust til að ég geti skilið það, þvílík meðferð á saklausum börnum.
31.7.2009 | 19:03
Man ekki aðra eins umferð hér síðan ég flutti hingað árið 2000.
Þetta er stanslaust og slitnar ekki í sundur keðjan undir Ingólfsfjalli, brúin alltaf sneisa full og bíll við bíl, við hjólhýsi við húsbíl, við tjaldvagn. Allt hefur þó gengið vel sem betur fer og vona ég svo sannarlega að allir nái heilum vagni heim að aka eftiir helgina. Skelli hér með einum stuðara, hafið það gott og njótið helgarinnar innanhúss sem utan, heima eða að heiman.
Stemmari úr eyjum.
|
Vel undirbúin fyrir hátíðina |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.7.2009 | 14:04
Ég rakst á þetta svar á bloggi Ólínu Þorvarðar....
....... vona að ég fái ekki skömm í hattinn fyrir að birta þetta hjá mér, finnst þetta forvitnilegt og merkilagt svar sem ég vildi svo gjarnan vita meira um og hvort það geti verið að hér sé stóri sannleikur á ferð.
4 
Friðrik Hansen Guðmundsson, 31.7.2009 kl. 13
Er þetta mögulega ástæðan??
|
Stjórnvöld halda í vonina |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Eflaust er þetta ákaflega slæmt fyrir okkur og greinilegt að ef við gerum ekki það sem okkur er sagt þá fáum við ekki það sem okkur hefur verið lofað, við þurfum þá líklegast ekki atkvæðagreiðslur um eitt né neitt, bara segja já og AMEN og snúa rassinum í umheiminn og lofa þeim að gera það sem þeir vilja, það er á hreinu að ég fer og kaupi mér lopapeysu eftir helgi og ætli sé svo ekki best að fara að byrgja sig upp af núðlum og dósamat. Æ, þetta er ekki til að grínast með, ég veit og ég hef raunverulegar áhyggjur það er alveg pottþétt. Njótum samt helgarinnar, heima eða að heiman en umfram allt förum varlega hvað sem við tökum okkur fyrir hendur.
EKKI MISSA TRÚNA
|
Afgreiðslu AGS frestað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.7.2009 | 11:26
Afsakið meðan ég æli
Ef ég deili á 169.6 með vinnuárum mínum, þá fæ ég út rúmar 4.millur, aldrei hef ég haft árstekjur í líkingu við það, þetta er óhollt að eiga svona mikinn aur, en illur fengur illa forgengur.
Öfund? já fyrir hönd okkar sem veltum hverri krónu og svo tel ég hreinlega að enginn sé það mikils virði að hann eigi skilið að hafa þvílíkar tekjur. Mín skoðun einungis.
|
Þorsteinn Már greiðir mest |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Það er nú ekki eins og stjórnmálamönnum eða öðrum hafi þótt ástæða til að ræða þetta við þjóðina eða að upplýsa okkar af einhverju viti, hvað það hefur í för með sér að ganga í ESB, menn ljúga út og suður og segja einungis það sem hentar í umræðunni, aldrei hefur verið logið eins mikið að þjóðinni eins og undanfarin ár. Allt sem gert hefur verið í fjármálum og stjórnarmálum hér, hefur verið markað græðgi og virðingarleysi við íbúa þessa lands, sem eru þó eina fólki sem hægt er að treysta á þegar þarf að byggja upp að nýju. Ætlum við að láta bjóða okkur þetta lengur? ætlum við að láta ljúga meira að okkur? burt með ríkisstjórnina og alþingismenn, ráðum hingað færa stjórnendur sem geta hjálpað okkur, mér dettur strax í hug einn sem gæti hjálpað okkur að skipa góða stjórnendur og það er Ólafur Jóhann Ólafsson, held að þar fari heiðvirður maður. Ég er komin með upp í kok og rúmlega það af lygum og óþverraskap, það er bara gott að Alþingi tók sér frí í nokkra daga, maður þarf þá ekki að heyra fréttir af bullinu í þeim. Eigið annars góðan dag.
|
Vilja meiri samhug Íslendinga |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
29.7.2009 | 18:48
Söguleg stund hjá mér, ég er komin með pung.
Nú sit ég í strætó á leiðinni frá Rek til Seloss og er í beinu tölvusambandi gegnum pung, getur kona farið fram á meira?? ég er alsæl og vafra hér um eins og tík á lóðaríi. Ég er svo heilluð af þessari tækni, bara stinga litlu gismo í eitt gat og svo bara next, next og finish og mín bara aldrei oftar týnd neinsstaðar. Ég veit að við hjónin erum tækjadellufólk og höfum gaman af öllu rafstengdu, en eitt er það sem mig vantar og það er þráðlaust TV og græjur? + kaffivél og lampar og allt slíkt og þvílíkt sem þarf snúrur við, ég nenni ekki snúrum. Anyways, varð bara að deila þessu með ykkur, ég er svoooo montin. Nú get ég verið í stöðugu sambandi við að bögga mann og annan þegar ég fer norður í næstu viku. Semsagt, pungur er málið.
29.7.2009 | 11:03
Sunnlendingar þurfa ekki að fara langt til að skemmta sér um verslunarmannahelgina og spara fullt af pening í leiðinni.
Føroyskur dansur og musikk á Stokkseyri
Dagana 30. júlí til 3. ágúst verður haldin færeysk hátíð á Stokkseyri hvar boðið verður upp á skemmtun með fjölbreyttri færeyskri tónlist, færeyskum dönsum, landsleik án landsliðsmanna og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Um 20 listamenn frá Færeyjum koma fram en þar í hópi verða meðal annarra Kristian Blank, Angelika Nielsen, Jógvan Hansen, sem margir þekkja úr íslenska Idolinu, og Simme en sá gerði Rasmuslagið ódauðlegt.
|
Verðbólgan mælist 11,3% |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
28.7.2009 | 21:32
Coke eða pepsi?
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
....... en ekki að þeir leggist í skotgrafir og kjósi þvert gegn sannfæringu sinni bara til að vera á móti þeim sem sitja í ríkisstjórn. Ég hef reyndar verið á móti Icesave samkomulaginu og er skíthrædd við það, en ég er líka hrædd hvernig fer ef ekki semst. Ég trú D og B til að vera á móti bara til að vera á móti, það er jú starf stjórnarandstöðunnar að vera á móti, en í þessum málum er bara meira í húfi en svo að menn geti leyft sér slíkt. Hef samt ekki mikla trú á heiðarleika manna í þessum málum. Það er bara mín skoðun.
|
Bagalegt ef fyrirtaka AGS tefst |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn
Ekkert fé er til í bönkunum í dag til að greiða Íslenskum fjármagnseigendum það fé sem þeir eiga þar inni. Samþykki Alþingi hins vegar Icesave þá vita þeir að Íslenska þjóðin verður skattlögð út í eitt til að þeir endurheimti sitt fé.
Hafni Alþingi hinsvegar Icesave samningnum þá skapast hjá þessum aðilum mikil óvissa. Verði samið um Icesave upp á nýtt og ríkið ábyrgist bara þessar 20.887 evrur þá mun það sama væntanlega yfir Íslenskar og erlendar kennitölur ganga. Margir Íslenskir aðilar sem telja sig eiga mikið fé inni í bönkunum, þeir munu þá tapa miklu fé.
Þess vegna eru það svo margir hér heima sem vildu keyra Icesave nánast umræðulaust í gegnum þingið og að þingmenn fengju sem minnst af gögnum um málið. Þetta átti bara að samþykkja.
Icesave samningurinn gengur nefnilega ekki bara út að gera upp við Breta og Hollendinga. Hann gengur út á að Alþingi staðfesti loforð Geirs Haarde frá því í haust að allar innistæður hér heima væru að fullu tryggðar af ríkinu, óháð fjárhæð. Þar lofaði Geir upp í ermina á sér með ekkert umboð frá Alþingi og tóma banka á bak við sig.
Margir þeirra sem nú berjast sem harðast fyrir því að þjóðin samþykki Icesave eiga tugi ef ekki hundruð milljóna frysta inni í bönkunum. Hvernig var t.d. með ráðuneytisstjórann fyrrverandi í fjármálaráðuneytinu? Seldi hann ekki hlutabréf sín í Landsbankanum tveim dögum fyrir hrun fyrir 130 milljónir? Hvar ætli það fé sé geymt? Á bankabók? Ef Alþingi staðfestir ekki Icesave og þar með loforð Geirs þá getur ráðuneytisstjórinn átt von á því að tapa því öllu nema sem svarar 20.887 evrum sem gera um 3,5 milljón.
Eiga menn eins og Indriði H Þorláksson og Svavar Gestsson háar fjárhæðir frosnar inni í bönkunum? Hvað með "sérfræðingana" í Seðlabankanum sem eru einu aðilarnir á Íslandi sem fullyrða að þjóðin geti borgað Icesvase og gefa sér ótrúlegar forsendur eins og að það fáist 75% upp í eignir Landsbankans, eiga þeir háar fjárhæðir bundnar þarna inni?