Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Auðvitað eigandinn sjálfur, athyglissjúkur, eða bara hress og kátur.

Mér dettur ekkert annað í hug en að eigandinn hafi gert þetta sjálfur. Hress náungi sem langaði til að hressa upp á tilveruna.  Takk fyrir skemmtunina.
mbl.is Djarfur hrekkjalómur á Djúpavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingjaleg afstaða??

Í því ástandi sem nú ríkir í landinu okkar, þá tel ég nær að allir sem starfa á þingi, reyni að vinna saman, en ekki tala niður það sem gert er.  Það má hafa ýmsar skoðanir, en það er ekki svo margt í stöðunni.  Við erum í vondum málum og það má segja að í góðærinu hefðu menn, sem hafa þokkalegt vit, átt að geta séð fram í tímann og það hefði átt að bregðast mun fyrr við því sem kom. Munið þið eftir öllu sem ekki var hægt að gera þrátt fyrir bullandi góðæri og skuldlausan ríkissjóð? öll þau velferðar mál sem eftir sem áður sátu á hakanum vegna dekur verkefna sem menn vildu frekar fara í?. ég held að við ættum að taka höndum saman og reyna að kljúfa þetta skuldafjall sem framundan er, við höfum áður lent í erfiðleikum, minni t.d. á árið 1967, og við höfum náð góðum tímum eftir það.  Það þýðir ekkert að væla meira, þetta er komið til að vera í einhver ár, ríkisstjórnin verður að skera niður og okkur verður því miður að blæða. Kjarkur og von er það sem verður að blása í okkur núna og að hugsa uppá við.  Eigið góða helgi og munið að jákvæð hugsun getur gert kraftaverk.

Og bara Ooga chakka á það með Hoffanum, þetta er sko stuð.

Algjörlega óborganlegt video.


mbl.is Aumingjaleg afstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú varst öðruvísi en frábær á margan hátt. R.I.P.

Eitt af mínum uppáhalds. Takk fyrir mig.


mbl.is Michael Jackson er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóra vanilludropamálið !!

Þetta er bara svakalegt eða þannig, jaðrar við glæpi útrásarvíkinganna, það verður að dæma svona harkaleg, miklu verra en nokkuð annað sem ég hef heyrt um lengi W00t

"Kona á fertugsaldri hefur verið ákærð fyrir að stela 109 glösum af vanilludropum í tólf ránsferðum. Konan er ákærð fyrir alls sextán þjófnaðarbrot. Mál á hendur konunni var þingfest í héraðsdómi Reykjaness í dag.

Í þeim tilfellum stal hún auk vanilludropanna eintökum af tímaritunum Vogue og Elle en einnig stal hún tveimur bókum. Þá greip hún með sér sítrónu- og kardimommudropa í nokkrum ránsferðanna. Hún er einnig ákærð fyrir fjársvik.

Brotin áttu sér stað á sex mánaða tímabili. Ákæruvaldið fer fram á að konan verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá fer Hagkaup fram á skaðabætur upp á 810 kr."


Parísarhjólið stóra verður áfram á ferðinni.

Þetta fer allt í hringi í lífinu. Tískan, fólkið, jörðin ofl. ofl. ofl.  lærum við af síðustu mistökum ? það er aldeilis óvíst. Nýtt fólk verður komið til að gera sömu vitleysurnar og hinir sem komu okkur í þá stöðu sem við erum í, í dag.  Best að halda sig vel til hlés og láta vinda geysa, ég get hvort eð er ekkert gert.  Eigið góða vinnuviku, þið sem eruð að vinna, þið hin njótið frídaganna.  Ég vinn aldrei, á þar af leiðandi aldrei frí svo lífið mitt gengur bara í hringi, einn dagur í senn, lítið frábrugðinn þeim næsta, en ég er samt ekkert döpur, en finnst lífið stundum svolítið litlaust, það venst, smá :) Hætt að væla í bili, ætla út að ganga í hringi.

100-hula-hoops


mbl.is Bankar einkavæddir innan 5 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við eigum engan pening, hvernig eigum við að geta borgað Icesafe eða aðrar skulidr, þegar við gátum ekki einu sinni borgað Breiðuvíkurstrákunum sómasamlegar bætur.

Heyrði þetta í gær einhversstaðar og finnst ágætis samlíking.  Þjóð sem ekki getur borgað þessum mönnum bætur fyrir allan þann hrylling sem þeir gengu í gegnum og þjóð sem gat ekki hugsað vel um eldri borgara mitt í öllu góðærinu, getur ekki neitt í dag eða næstu ár. Þetta er allt í skít og skömm og á enn eftir að versna, allskyns ljót mál eru að líta dagsins ljós, leyndarmál koma uppá yfirborðið og margan á eftir að svíða, enda skal þeim sjálfum svíða sem undir sig míga.

srákur að pissa


mbl.is Rætt við matsfyrirtækin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá þér Gunnar.

Nú fara þeir í að greina málið og sannleikurinn kemur í ljós, vonandi,  og þá getur þú byrjað aftur, eða ekki. Ótrúlegar sögur af þessu öllu, eru þetta ofsóknir á Gunnar eða hvað?
mbl.is Gunnar fer í leyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta sami farsinn eins og var í kringum Davíð?

Maður spyr sig ? þetta er allt með ólíkindum. Ásakanir og kærur vinstri hægri og hver segir satt? hver lýgur?  það hefur reyndar alltaf verið pínlega ljóst, hvað minnihlutinn hatar meirihlutann mikið, sérstaklega þó persónuleg ýmugust Guðríðar á Gunnari, það skín í gegnum öllu viðtöl við hana, ósköp held ég að það sé vont að líða svona illa.  Við sjáum hvernig þetta endar.

Gunnar Birgis


mbl.is Munnlegt samkomulag við FME
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki skjálfandi en með skjálfta í hendi og hrikalega falleg. !!

ég í dag

Var að taká sjálfsmyndir í dag og er bara þokkalega ánægð, sem þýðir að ég er annaðhvort sjónlaus eða gömul, hvað finnst ykkur??


mbl.is Reykjanes skelfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í dag eru liðin 14 ár síðan við hjónin giftum okkur.

Það má segja að við höfum gift okkur í kyrrþey, aðeins 7 manns fyrir utan okkur í kirkjunni. Þar sem þetta var annað brúðkaup okkar beggja, fannst okkur það viðeigandi.  Við giftum okkur í Víðistaðakirkju í Hafnarfrði og veðrið var hreint út sagt yndislegt.  Um kvöldð fórum við svo á Skólabrú og borðuðum með nánustu vinum, svo var bara farið heim og glaðst.  Sem betur fer höfum við verið svo heppin að ástin hefur haldið áfram að dafna og aukast og við erum óskaplega ánægð með lífð og tliveruna.

HJÓNIN

Þarna komum vð labband út úr kirkjunni.

GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ


mbl.is 50 þúsund manns í miðbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband