Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009
30.5.2009 | 19:52
Ég finna rosalega til með suðurnesjamönnum.
|
Grindvíkingar geri ráðstafanir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
29.5.2009 | 22:46
Var á rúntinum, því betur. Hefði ekki viljað finna hann.
Mér finnst alveg stórmerkilegt að þennan skjálfta skuli bera upp á sama dag og þann stóra í fyrra. Er almættið að stríða okkur, er þetta bara eitthvað ferli sem við erum í ???? veit ekki. Vona þó svo innilega að það verði ekki fleiri stórir á næstunni. Vil engum að upplifa það sem ég upplifði í fyrra.
|
Skjálftinn mældist 4,7 stig |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
29.5.2009 | 14:45
NÚ ÁRIÐ ER LIÐIÐ.... 15.45 að staðartíma reið hann yfir.
Tíminn líður, já, jafnvel flýgur stundum framhjá. Í dag staldra ég við og hugsa um stóra skjáftann fyrir ári síðan. Þetta var yndislegur dagur með sól og hita, áin var svo hljóð og fuglarnir þögðu aldrei þessu vant. Ég var nýkomin inn í íbúðina mína og var að tala við húsbandið þegar titringurinn byrjaði, þessar sekúndur sem skjálftinn varði voru eins og heil eilífð. Fyrst stóðum við kyrr, eins og frosin við gólfið en svo ákváðum við að hlaupa út áður en húsið hryndi, þetta magnaðist mikið upp og vont að vera á fjórðu hæð í blokk. Veggirnir gengu til og hlutir köstuðust á okkur, ég datt utan í vegg og meiddist á handlegg, en ekkert alvarlegt. Þegar við komum niður var Ingólfsfjall horfið í rykmekki, þvílík sýn og þvílík tilfinning sem helltist yfir okkur. Ég var sem lömuð að ótta en samt ofsalega ör innra með mér.
Dagarnir sem fylgdu voru erfiðir, ekki mátti bíll keyra framhjá án þess að ég hrykki við og fylltist af ónotum. Það má segja að það hjálparstarf sem unnið var hér á vegum Rauða krossins hafi algjörlega bjargað sálarheill minni. Ég fór í nokkur viðtöl hjá fagfólki og með tímanum tókst mér að komast í gegnum þetta. Núna er ég laus við kvíðann og finnst að ég gæti alveg höndlað annan skjálfta en vona þó svo sannarlega að hann komi ekki í lengd og bráð. Ég óska engum þess að þurfa að lenda í svona aðstæðum.
Óska ykkur öllum góðrar Hvítasunnuhelgar.
27.5.2009 | 19:47
Var að taka ROSALEGA stóra ákvörðun.
Datt í hug að ég gæti gengið erinda D og F í leiðinni og heimsótt þá háu herra í ESB hreppi, sagt þeim af eða á með aðild, jafnvel boðið þeim að gerast aðilar að íslenska efnahags undrinu !!!!
Anyways, stóra ákvörðunin sem ég tók er að fara til LONDON í júlí og heimsækja dóttur mína yndislegu sem er búin að búa þar síðan í sept. 2006 og ég ekki enn búin að heimsækja hana, hvernig er þetta hægt?? jú, veik móðir með litlar tekjur, komm on engin afsökun, maður tekur bara yfirdrátt, nei, nei, ég er svo fokk skynsöm.l Allavegana þá ætla ég út, eiginmannslaus til að spara og njóta dóttir minnar og samvista við hana til fulls, við getum þá talað non stop allan tímann hvor við aðra. Ég er svo glöð með þessa ákvörðun.
En þetta með okkur og ESB, er enn á móti, en hlusta á öll rök, verið góð við hvort annað í kvöld og b.t.w. Barcelona vinnur leikinn.
ALVEG AÐ LENDA.
|
Bjarni fær umboð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
26.5.2009 | 17:22
Þetta eru nú engin nýmæli, en kemur alltaf jafn mikið á óvart.
Pabbi minn sagði mér sögu í gær. Fyrir um 50 árum síðan fór hann með Ferðafélagi Húsavíkur og Ferðafélagi Akureyrar upp á hálendið frá Mývatni. Farið var upp frá Gautlöndum sem eru sunnan við Mývatn, þeir höfðu með sér járnkarla og sleggjur og brutu sér leið í gegnum hraunið því ekki höfðu bílar farið þessa leið áður. Það var í þeirri ferð sem Drekagil var skýrt, þetta var og er rosalegt gil sem ekki hafði verið nefnt eða kannað vel svo menn vissu til. Þeir komu svo að Herðubreið um kvöld og var gist í tjöldum og til stóð að ganga á fjallið daginn eftir. Um morguninn þegar menn vöknuðu var alhvít jörð og ekkert var gengið á Herðubreið þennan daginn. Þetta var um mitt sumar.
|
Þruma úr heiðskíru lofti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
26.5.2009 | 14:35
Mæli með að þið lesið þetta, það hressir allavega tímabundið.
Jónas 92 ára og Anna Júlía 89 ára búa á Grund og eru upp með sér að hafa
ákveðið að gifta sig Þau fara í smá gönguferð til að ræða brúðkaupið og
á leiðinni
fara þau fram hjá Apóteki Austurbæjar. Jónas stingur upp á því að þau
kíki þar inn, sem þau og gera.
Jónas heilsar manninum við afgreiðsluborðið og spyr hann hvort hann sé
eigandinn. Maðurinn segir svo vera.
Jónas: Við erum að fara að gifta okkur. Selurðu nokkuð hjartalyf?
Apótekari: Að sjálfsögðu
Jónas: Hvað með blóðrásarlyf?
Apótekari: Allar tegundir
Jónas: Hægðalosandi?
Apótekari: Auðvitað
Jónas: Þarmaflóruleiðréttandi?
Apótekari: allar gerðir
Jónas: Lyf gegn minnistapi, elliglöpum og Alzheimer?
Apótekari: Mesta úrvalið í bænum!
Jónas: Hvað með vítamín, svefntöflur, tannlím og lyf sem slá á Parkinsons?
Apótekari: Jú, vissulega, allt af þessu... þetta er nú apótek.
Jónas: Lyf við brjóstsviða, bakflæði, þvagleka og saurleka?
Apótekari: Jú, allt við þessu
Jónas: En hjólastóla, hækjur, stafi, göngugrindur og svoleiðis?
Apótekari: Jú, allar stærðir og kraftmestu tækin.
Jónas: Fullorðins bleyjur?
Apótekari: Jamm
Jónas: Heyrðu, þá ætlum við að vera með gjafalistann okkar hjá þér...
|
Íslendingar svartsýnir á horfur í efnahagsmálum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
25.5.2009 | 11:23
Mér varð það á í gær að tjá mig um hluti sem ég veit ekki nóg um. Takk fyrir að leiðrétta mig þið sem það gerðuð.
Í dag ætla ég því að fara varlega og segja sem minnst nema að vel athuguðu máli. Langar reyndar oft að tjá mig um Finn Ingólfs og hans mikla auð. Skil aldrei hverslags dekurdrengur hann var innan Framsóknar og hversvegna hann varð svona ríkur. Var það kannski gamla góða klíkan sem hampaði sínum fola þar.? Spyr sú sem ekki veit. Reyndar finnst mér að allir sem hafa yfir 10 milljónir í laun á ári séu ofaldir, jafnrétti og jafnræði í landinu okkar litla er ekkert og mun ekki batna að mínu mati. Meðalmennskan er best fjárhagslega og hversu mikið sem maður rembist við staurinn og vill fljúga lengra þá er okkur haldið niðri. Ætli sé laust pláss fyrir gám með næsta skipi til Noregs? nei annars, ég læt ekki flæma mig í burtu. Farin til Reykjavíkur, eigið góðan dag.
|
Umdeildur kaupréttarsamningur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
24.5.2009 | 19:25
Fuglinn flaug fjaðralaus/settist á veggin beinlaus/þá kom maðurinn handalaus og skaut fuglinn bogalaus.
Það eru ekki allir fæddir með silfurskeið í munni, né hendur til að bjarga sér með. Veit ekki alveg hva ég er að meina með þessari færslu e er alveg orðlaus yfir framferði Ólafs Ólafssonar, er ég kannski orðin rugluð í öllu þessu peninga/kreppu tali?
|
Rannsókn leiði í ljós sakleysi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.5.2009 | 17:06
Já, eða Björgólfur og frú í Cannes. Þvílíkt pakk ekki ætla þau að blæða fyrir Icesave.
Var að velta þessu fyrir mér þegar ég sá myndirnar af þeim hjónum í gær. Bíddu, kom ekki einhversstaðar fram að þetta fólk væri orðið auralaust, hefði tapað öllu í kreppunni?? var það kannski sýndartap eins og ég sagði við kallinn minn? auðvitað var þetta fólk búið að koma sínu fyrir og vel það, einhversstaðar erlendis. Hef ekki miklar áhyggjur af svona fólki, bara sækja það til saka og hana nú. Hvernig hefur maður eins og Bjórgólfur geð í sér að láta mynda sig með elítunni í Cannes þegar allt útlit er fyrir að íslenskur almúgi komi til með að blæða fyrir Icesafe? ég er brjáluð.
x skuldirnar vegna Icesave.
|
Veltir vöngum yfir Jóni Ásgeiri |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
24.5.2009 | 16:07
Flottir strákar þarna á ferð.
Innilega til hamingju, þið eruð flottir. Gaman að fylgjast með þessu.
|
„Við erum gríðarlega ánægðir“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn