Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Ég þori að fullyrða að það eru fáir sem vilja hann aftur hingað.

Selfosskirkja Mér finnst að við, söfnuðurinn, eigum að fá að ráða hvaða prest við höfum.  Þó svo að ekki hafi sannast á séra Gunnar kynferðisbrot, þá er það ljóst að hann særði blygðunarsemi margra og víðar en hér á Selfossi ef satt er það sem við höfum heyrt að vestan.  Mér finnst því alveg ljóst að maðurinn á ekki afturkvæmt.

 


mbl.is Prestastefna ályktar um Selfoss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta bann ekki til að vernda hvalaskoðunina?

Mér þykir þetta hið besta mál.  Vil svo gjarnan að hvalirnir geti synt óáreittir um Skjálfandaflóa og að túristar geti siglt og notið þess að sjá þá. Ég hef lengi ætlað mér að fara í hvalasiglingu en hef ekki enn látið verða að því, kannski sumarið í sumar sé sumarið þegar ég sigli á flóanum mínum.

 

husavik hvalir


mbl.is Bannar hvalveiðar á tveimur svæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, algjör fásinna. Ég starfaði með þessu fólki og þetta er tómt bull.

Óli Hafsteinn Enn og aftur verð ég að tjá mig um þetta mál.  Mér finnst sorglegt að við, sjálfstæðismenn hér í Árborg séum borin slíkum áskökunum.  Það hefur alltaf verið okkar mottó að starfa af heilindum fyrir þá frambjóðendur sem eru hverju sinni. Þegar prófkjöri er lokið þá tökum við höndum saman og gerum okkar besta.  Hvernig ætti það að vera hagstætt fyrir okkur að láta strika Árna út frekar en einhverja aðra. ?  spyr sá sem ekki skilur svona ásakanir.  Ólafur Hafsteinn Jónsson er einn sá heiðarlegasti maður sem ég hef kynnst um ævina og hefur hann ávallt verið hreinn og beinn í sinni vinnu og hægt að treysta honum 200%.  Sjálfstæðismenn eiga ekki að vera að höggva í hvorn annan, nóg er hoggið utanfrá.


mbl.is Fásinna að útstrikanir hafi verið skipulagðar í Árborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég á allar vinjetturnar hans Ármanns. Held hann hafi skrifað sig frá þessu. Tær snilld.

Hann segist vorkenna þeim, jú kannski gerum við það, en þó meira fjölskyldum þeirra fjárglæframanna sem hér fóru um sem eldur í sinu og skildu okkur eftir á sviðinni jörð.  Á að draga þessa menn til saka? já auðvitað og merkilegur andskoti að ekkert skuli enn hafa verið gert.  Hversvegna spyr maður sig?  fyrri ríkisstjórn var sökuð um að ganga ekki nógu hratt til verks, nú hefur ný ríkisstjórn setið um tíma og hefur heldur ekkert gert. Hversvegna geta menn ekki látið orð standa og drifið í því sem gera þarf þegar þeir eru komnir í stólana, ég treysti og trúði því að eitthvað meira yrði gert gagnvart þeim sem ábyrgir eru fyrir hruninu.  Kannski að núverandi ríkisstjórn hafi áttað sig á því að það er erfitt um vik.  Hvað er þá til ráða. Má ekki hreinlega knésetja og dæma þessa menn eins og Ármann á sínum tíma?  hvað er það sem kemur í veg fyrir það?  var þetta kannski allt meira og minna löglegt en siðlaust?  hvar eru peningarnir????  er grunnurinn salan á bönkunum á sínum tíma þegar góðvinir flokksherra fengu bankana á silfurfati?  spyr sú sem ekki veit en vill vita og vill dæma og vill sakfella þá sem fyrir þessu stóðu.

Eigið góðan dag.

Árni Matt


mbl.is Þung ábyrgð að bera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var að tala við London stelpuna mína, þetta er ekki svona mikið BIG ISSUE þar.

Erum við ekki bara að missa okkur í hysteríu??  Ég er búin að lesa ýmislegt á netinu í dag og mér finnst eftir þann lestur að þetta sé nú full langt gengið að vera að spá í fimmta stigs hættuástand. Ég er kannski ekki rétta manneskjan til að dæma það, en hvað er það við þessa flensu sem gerir hana svona miklu hættulegri en aðrar slæmar flensur??  Ef þetta væri íbóla þá væri ég hrædd en það eru jú til lyf og hægt að lækna fólk, allavega flesta. Flensufaraldrar hafa það í för með sér að hinir viðkvæmu deyja oft.  Ég vil ekki vera grimm og segja að það sé náttúran sem kemur þessu af stað, en er það ekki samt einmitt þannig?  Hvað vitum við litla misvitra fólk??  EKKERT um hið stóra endalausa samspil náttúru og himingeims, bara alls ekkert.  Verum samt varkár en umfram allt glöð. hospital-bed


mbl.is Texas lýsir yfir neyðarástandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var ekki við öðru að búast.

En að leyfa 20 börnum að troða sér á svona litlar svalir, það er hættulegt.  Kannski var þetta tómur óvitaskapur, geri ráð fyrir því, en aldrei er of varlega farið. Gott að allir sluppu heilir.


mbl.is Svalirnar voru orðnar fúnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég var að vinna í þessum kosningum eins og fleiri.

Verð nú bara að segja að þetta var ekki inni í umræðunni. Kannski hjá einhverjum örfáum en ekki barst það mér til eyrna frá flokksfólki mínu heldur heyrði ég þetta út í bæ frá fólki sem alls ekki kýs D.   Þetta var alls ekki skipulagt af sjálfstæðisfélögum í Árborg.  Kjördæmið er stórt og mér finnst ekki mega hengja okkur hér fyrir þetta. 

Vil samt ekki skapa leiðindi með þessu svari mínu en samþykki þetta ekki sem skipulagða herferð frá okkur hér í Árborg.

STOP  LOVE

Verum góð.

V'ISA-Í-SVAR-KJARTANS.


mbl.is Árni Johnsen segir skipulega unnið gegn sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á ég að gera með mín lélegu öndunarfæri???

Best að ná sér í grímu næst þegar ég fer í apótekið og spritt líka.  Er reyndar bara skíthrædd við þetta með mín lélegu lungu.  Hvað ætlið þið að gera?  verður maður ekki að minnka samneyti við fólk og hætta alveg að kyssa þá sem hafa verið á ferðinni útí heimi eða innan um marga hér á landi? Hef þó mestar áhyggjur af stelpunni minni stóru sem ferðast með neðanjarðarlestum í London alla daga og er viðkvæmt vegna ofnæmis.  En það er með þetta eins og fj. jarðskjálftann sem varð í nótt, maður getur ekki beðið eftir að þetta gerist, taka einn dag í einu, það er það besta. 

MÉR FINNST ÞETTA GEÐVEIKT FLOTT LAG.


mbl.is Kaupa rykgrímur og spritt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjósendur um land allt greinilega með á nótunum.

Úrslit kosninga sýna svo ekki er um villst, að kjósendur voru að standa vaktina.  Kusu það sem þeir vilja helst og strikuðu út þá aðila sem þeir töldu að ættu það skilið.  Mér finnst þetta hið besta mál og frábært að geta þannig komið skilaboðum sínum á framfæri þó ekki sé undir nafni.  Þess vegna stefnir nú í vinstri stjórn og er það vel.  Hvort við sækjum svo um aðild að ESB kemur bara í ljós en auðvitað verður að láta á það reyna hver vilji þjóðarinnar er.  Við verðum aldrei sammála hér á landi um kosti og galla, hversu ítarlega sem það verður lagt á borð fyrir okkur, það er ekki eðli mannskepnunnar að vera sammála um allt, við erum of ólík til þess. 

GÖNGUM NÚ HREINT TIL VERKS ÍSLENDINGAR og látum verkin tala, gerum okkar best úr því sem komið er og stöndum saman fyrst og fremst, það kemur okkur alla leið.

 

SJS


mbl.is Guðlaugur Þór niður um sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veröldin er falleg, ljótleikinn býr í mönnunum.

kanína


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband