Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Þá heldur bloggpásan áfram.


Skemmtilegur landsfundur.

Þá er ég komin heim.  Fundurinn að baki og það var sko gaman.  Fróðlegt og gaman.  Bjarni fékk formannsdjobbið, þeir hefðu verið frábærir hvor usig, en þetta var niðurstaða í dag.  Þorgerður heldur áfram og það er vel.  Nú er kosningabaráttan fram undan og hef ég grun um að harti verði bitist um kjósendur.  Ég ætla að treysta sjálstæðismönnum fyrir mínum málum og ganga hreint til verks með þeim vvið að koma landiu okkar áfram til betri tíma.   Eigið ljúfa vinnuviku.

ég er í settiu

Þarna sjáið þið mig í settinu í dag, var fundarritari.


mbl.is Nýrri kynslóð treyst til verks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mistök má alltaf bæta fyrir allavega oftast.

batman-animated-flash06

Hér er líf og fjör. Mikið rætt og spjallað og hlutir samþykktir. Nú eru nefndarstörf framundan og fleira skemmtilegt. Þessi fundur/samkoma, svíkur ekki frekar en fyrri daginn. Mikið er gott að vera sjálfstæðismaður.


mbl.is Mistökin Sjálfstæðisflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...og flokkurinn vex með okkur og GUÐ er örugglega hægri maður.

Þá er ég komi á landsfund, klár í slaginn og kát og hress.  Veðrið er svo frábært og það segir mér að GUÐ er sjálfstæðismaður og hann vill að allir komist fund, heilu og höldnu.   Þetta verða góðir dagar og hlakka ég mikið til að hlusta og tala við fólk alls staðar af að landinu.  Verð á netinu og leyfi ykkur að fylgjast með í beinni.  Verið góð.


mbl.is Skórnir vaxa með börnunum
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Á morgun fer ég á landsfund og kýs mér nýjan formann.

api litli

Hvort hann verður jafn krúttlegur og þessi api er óvíst, en ég geri mér væntingar um góðan foringja. Ég hlakka mikið til að vera á fundunum og fræðast og viðra skoðanir mínar, geri mitt besta fyrir land og þjóð, allavega allt sem ég get. Hafið það gott og hér er einn léttur sem ég fékk sendan í dag.

 

Ég horfði gagnrýnum augum á konuna, sem ég hef verið giftur í 30 ár og sagði:

Heyrðu elskan - fyrir 30 árum áttum við ódýra íbúð, ódýran bíl, við sváfum


á sófanum í stofunni, horfðum á 10 tommu svart/hvítt sjónvarp og á hverju


kvöldi iðkaði ég bólfarir með viljugri 25 ára stelpu.




Núna á ég 80 milljóna hús, 15 milljóna bíl, rúm á stærð við skeiðvöll og


50 tommu flatskjá - en þarf að sætta mig við það á hverju kvöldi, að fara í bólið


með þreyttri 55 ára konu.  Ég fæ ekki séð að þú hafir haldið í við þróunina hér !




Ég verð að játa að ég á skynsama konu :  Hún leit snöggvast á mig og sagði um leið:  


Ekki vandamálið :  Drífðu þig bara út og finndu þér 25 ára viljuga stelpu !


Ég sé um að þú fáir hitt aftur: Ódýra íbúð, bíldruslu og ódýrt svart/hvítt sjónvarp !


-  eftir þessi 30 ár, veistu að ég meina það sem ég segi.  




Er konan mín ekki frábær - Grái fiðringurinn hvarf á einu andartaki !!!

 

 


mbl.is Geir kveður og X heilsar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elli frændi var laglega heppinn að slasa sig ekki meira í þessu stökki.

STUNDUM VERÐUR MAÐUR HREINLEGA AÐ BLOGGA ÞAÐ ER HÚMOR Í ÞESSUM GUTTUM SEM TÓKU UPP MYNDBANDIÐ.  Elías er sonur yngstu systur mannsins míns, hress strákur og eins og þið sjáið ekki lofthræddur, en það verða ansi margar vikurnar á hækjum, hann fór í aðgerð á sunnudagskvöldið og var skrúfaður saman. Honum heilsast þokkalega.


mbl.is Lærbrotnaði í mótorhjólastökki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er kominn tími til að draga sig í hlé.

Nú ætla ég að draga mig í hlé hér í bloggheimum.  Það er að vora og ég ætla að springa út eins og blómin, fara á flakk um landið mitt, vera eins mikið úti og ég get og lifa öðruvísi en undanfarið ár.  Það er oft gott að breyta um lífsstíl og nú finnst mér góður tími.  Það hefur verið gaman að vera hér inni og eignast fullt af yndislegum vinum, vonandi hitti ég einhver ykkar síðar meir.  Kannski kem ég aftur inn með haustinu, aldrei að vita, en nú er stefnt á betri líðan og betri heilsu andlega sem líkamlega.  Hafið það sem allra best kæru vinur og gangið á guðs vegum með vonina að leiðarljósi.

 

Við Botnsvatn

Alltaf vorar í sálinni á mér

Þessa mynd tók Már Höskuldsson Húsvíkigur.

Það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast Hákoni.

Ég var unglingur á Húsavík þegar ég kynntist Hákoni fyrst. Það var ljóst frá fyrstu stundu að þarna fór höfðingi.  Ég var að vinna á sýsluskrifstofunni og lögreglan leit oft inn hjá okkur, starfs þeirra vegna.  Ég ætlaði meira að segja að ganga í lögguna og tók vaktir með Hákoni og fleirum, fór í útköll og hvaðeina og var það mikil og góð reynsla, þó svo ég yrði að hætta við löggudraumana.  Ég var líka svo heppin að heimsækja hann þegar hann var skógarbóndi og fékk að sjá heimili hans og þá aðstöðu sem hann hafði búið ferðamönnum.  Eftir Hákon liggja ótal vísur og heilir ljóðabálkar og margar eru sögurnar sem ég hef endalaust gaman af.  Blessuð sé minning þín kæri vinur, far þú í friði, þú munt aldrei gleymast.

Hákon


mbl.is Hákon Aðalsteinsson látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég tek undir með Svandísi.

Til hamingju Svandís með kjörið.  Ég er sammála henni um að vinstri stjórn sé nauðsyn. Tel bara ekkert að því að Sjálfstæðisflokkurinn fái hvíld.  Það er öllum hollt að vera í stjórnarandstöðu og við verðum bara að láta reyna betur á vinstri stjórn.  Nýtt fólk og nýir siðir, er ábyggilega eitthvað sem við höfum öll gott af og vonandi verður það farsælt fyrir land og þjóð.  Ég heyrði í fréttum að einhver spákona sagði að D og B  mundi mynda meirihluta stjórn eftir kosningar, ég held reyndar að hún sé dálítið höll undir Sjálfstæðisflokkinn eins og ég hef verið svo hún er kannski ekki alveg marktæk.

 

Nú er ég að byrja næst síðustu vikuna mína á hælinu og hlakka mikið til þegar þessu líkur.  Ekki þar með sagt að mér hafi ekki liðið vel, heldur finnst mér bara best að vera heima með mínum ektamaka. Dvölin hefur gert mér mjög gott og þetta er topp heilsuhæli ef maður notar sér allt vel og er jákvæður, neikvætt fólk þarf ekki að koma þarna.  Óska ykkar góðrar vinnuviku og alls hins best.

Hér er svo mynd af mömmu minni, hún var einu sinni fjallkona á Húsavík á 17.júní.

Mamma á 17.júní.

Falleg kona hún móðir mín.


mbl.is Vinstristjórn lífsnauðsyn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talandi hundur "I love you"

 

Nokkrar gamlar myndir fyrir fjölskylduna mína og ykkur hin ef þið hafið gaman af.

Mamma og ég í Köben 1968

Við mamma í Köben 1968.

Ég um jól.

Ég um jólin 1967.

Við sys.

Í heimaprjónuðum peysum.

afar og ömmur í báðar ættir.

Afar mínir og ömmur.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband