Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009
28.2.2009 | 17:43
Litla stúlkan heitir Ellý Rún Ragúels.
Þá er búið að skíra prinsessuna okkar og fékk hún þetta fallega nafn í höfuðið á afa sínum í föðurætt. Set inn myndir þegar ég kem heim í kvöld.
Er semsagt komin heim og hér er mynd af okkur hjónum og foreldrum Ellýjar litlu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
28.2.2009 | 10:03
Þið sáuð í gegnum mig, það er gott, spaugið er þá ekki dáið. Engin upplýsingatregða hjá mér.
Í síðustu færslum hef ég verið með smá öfgar, bara gott í bland. Sum ykkar sáuð við mér, önnur pirruðust upp í hástert, en hvað um það. Öllu gamni fylgir samt nokkur alvara. Mestmegnis reyni ég þó að hafa gaman af hlutunum þessa dagana, það er svo miklu betra fyrir heilsuna og mér lífsnauðsyn, eins og er. Ég elska ykkur öll eins og þið eruð, hvort sem er til vinstri eða hægri eða á miðjunnu, mannfólkið er sem betur fer svo rosalega misjafnt en mestmegnis gott tel ég.
Ég má ekki nota helgarfríið til að sitja við tölvu svo það verður ekki meira blogg í dag, farið vel með ykkur, elskið hvort annað en fyrst og fremst ykkur sjálf, það er nauðsynlegt. Knús inn í daginn 
Þarna er ég lítil dama með dúkkur og bangsa, dúkkan hét Gútta.
Þarna erum við systur með mömmu á Aðaldalsflugvelli að láta okkur dreyma yfir hafið.
|
Tregða við upplýsingagjöf |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.2.2009 | 18:55
Vonandi verður Davíð á lausu þegar Ólafur hættir sem forseti.
Það væri ekki amalegt að kjósa Davíð Oddsson sem næsta forseta lýðveldisins, þar er sko flottur maður á ferð og mundi sóma sér vel sem forseti landsins okkar.
Kær kveðja til ykkar allra sem senduð mér kveðju í síðasta bloggi, þar sem ég fjallaði um framboð Davíðst, gott að vita af ykkur, var farin að sakna kommentanna ykkar. Skrítið samt hvað það hafið núll umburðarlyndi fyrir skoðunum mínum, en kannski er ég bara að misskilja ykkur, auðvitað dettur ekki nokkrum heilvita mótmælanda í hug að banna okkur í suðurkjördæmi að kjósa, þvílíkt spaug
.
Ég er komin í helgarfrí og það er bara yndislegt, borgarferð á morgun og blíða í kortunum, sendi ykkur bloggvinum mínum og öllum öðrum bestu óskir um góða helgi og njótið nú lífsins, það er svo gaman að vera til. Pólitíkin er meira til að hafa gaman af frekar en hitt, það eru góðir og vondir menn í öllum flokkum, það held ég allavegana. 
|
Tæpur þriðjungur ánægður með forsetann |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
27.2.2009 | 11:57
Þá verðum við komin með alvöru foringja. En því miður, þetta var bara góður draumur.
Gríðarlega spennandi fréttir finnst mér, vona svo sannarlega að hann láti undan þrýstingi okkar sem viljum fá hann í forustu. Bíð spennt eftir niðurstöðu.
Annars er ég á leið í helgarfrí. Hlakka mikið til að koma heim og knúsa húsbandið. Eigið góða helgi.
|
Davíð í framboð á Suðurlandi? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (37)
26.2.2009 | 17:09
Ég eignaðist lítinn frænda í fyrrinótt.
Ég er svo glöð, það hreinlega "rignir" börnum í fjölskyldunni minni. Litla ömmustelpan mín sem fæddist 2.feb. verður skírð á laugardaginn og ég get varla beðið eftir að heyra nafnið hennar.
Ömmuskottið sæta.
Svo fæddist drengur hjá systurdóttur minni í fyrrinótt. Hann var sko 17 og hálf mörk og 55.cm. mikilmenni þarna á ferð tel ég.
Hér er litli prinsinn með mömmu sinni og pabba. Elsku Ella, Ingi, Birta, Þórunn Anný og Karen Lena, innilega til hamingju með prinsinn, það verður ekki leiðinilegt að vera litli bróðir þriggja systra. Hjartanskveðja til ykkar og fjölskyldunnar allrar.







Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.2.2009 | 12:32
Þverskurður þjóðarinnar dvelur hér á HNLFÍ og það var klappað í gærkvöldi eftir viðtalið við Davíð.
Fyrir mér er þetta því einskonar skoðanakönnun sem segir mér að Davíð nýtur gríðarlegs trausts meðal íbúa landsins. Við hér á HNLFÍ erum jafn fjölbreyttur hópur og þeir sem hafa verið að mótmæla á Austurvelli og það sýndi sig vel, bæði hvað fólki líkar vel við Davíð sem persónu og einnig hversu vel hann svaraði og skýrði hlutina, og fólk var sannfærðara eftirá að hér voru glæpirnir ekki framdir í Seðlabankanum.
Ég komst ekki í tölvu í gærkvöldi til að skrifa um viðtalið, en mér skilst að bloggheimar hafi logað, verst að geta ekki fylgst aðeins með, og þó, það er svo gott að vera hérna og finna heilsuna leka í inn í skokkinn. Hættið nú að haga ykkur eins og smábörn, þið sem eruð að raska ró á heimili Davíðs, einelti er ljótur leikur alveg sama á hvaða aldri fólk er.
FARIN Í GÖNGUTÚR.
|
Engir óeðlilegir eignaflutningar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
24.2.2009 | 12:19
"Ekki kannski svo lyginn, en ónákvæmur í frásögn"
Datt þessi setning í huga við lestur fréttarinnar. Ég ætla að fylgjast náið með þessum manni og framsóknarflokknum næstu vikurnar, held að þarna sé annaðhvort algjör klaufi á ferð sem rekst illa í hópi, eða útsjónarsamur snillingur sem er að leggja grunninn að eigin frama í pólitík og sérstaklega að koma ár sinni vel fyrir borð fyrir kosningar í vor.
Ég ætla líka að fylgjast vel með sem flestum öðrum og reyna að lesa út hið mannlega eðli og sjá og skoða vel hvernig menn muni haga seglum til að ná sem mestum byr. Hvað verður satt og hvað verður logið? verður þetta ekki bæði "loðið og teygjanlegt" eins og prófessorinn orðaði það þegar hann var spurður um "hvað er kynlíf"?
Af mér er svo allt gott að frétta fékk baunasúpu og fisk í hádegismat, þvílíkt lostæti. Borðið ekki yfir ykkur í dag skottin mín.




|
Misskilningur skýrir fjarveruna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
23.2.2009 | 18:32
Ég held að þingmenn séu of uppteknir af komandi kosningum.
Þessvegna gera þeir helst ekkert, allavega eins lítið og þeir komast upp með, því allir vilja hljóta kosningu í vor. Ansi er ég hrædd um að það sé ekki hægt að treysta á framsóknar maddömmuna og ég held að sundrung sé ríkjandi í röðum þingmanna og ráðherra, því miður segi ég því við þurfum alls ekki á slíku að halda, kannski væri bara ráðlegast að fresta kosningum fram á haustið eða enn lengra.
Annars er allt gott að frétta hér frá "loft" stöðum, harmonikkuball annaðkvöld og alles. Ég dag var fyrirlestur um húmor og var hann virkilega gagnlegur og skemmtilegur. Sem dæmi þá er hér einn stuttur. Þjónn kom til manns sem sat við barinn, sá að hann var með tómt glas og sagði "ég sé að glasið er tómt, má ekki bjóða þér annað"?, nei sagði maðurinn, "hvað á ég að gera með tvö tóm glös?"
HAFIÐ ÞAÐ SVO MILJANDI GOTT.
|
Lausn ekki fundin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
HLEKKUR-Á-FRÉTTINA-HJÁ-VISIR.IS
Ótrúleg saga um hrakfarir Íslendinga í atvinnuleit í Danmörku.
Sonur minn danski hringdi í mig áðan og sagði mér ótrúlega sögu.
Þannig er mál með vexti að fyrir nokkrum dögum hafði vinkona hans samband við hann og félaga hans, sem reka saman verktakafyrirtækið AROZ í Kaupmannahöfn og spurði hvort þeir sæju einhverja færa leið til að hjálp Íslendingum sem væru í, vægast sagt, mjög vondum málum í Danmörku. Þar sem þeir drengir mega ekkert aumt sjá, brugðust þeir skjótt við og í morgun kl. 6 fór sonur minn á bíl þeirra og sendiráðsprestur á öðrum og náðu í þetta blessaða fólk, þar sem það var strandað, eignalaust og allslaust í um 150 km. fjarlægð frá Kaupmannahöfn og fólkinu komu þeir í flug heim í dag.
Þetta er sagan í stuttu máli:
Þetta blessaða fólk sá auglýsingu í Fréttablaðinu um að fólk vanti i vinnu í Danmörku við Íslandssetur/hótel, þau sækja um vinnuna og fá hana og selja þar með allar sínar eigur á Íslandi og drífa sig út í von um betra líf. Þetta var í allt 8 manns, börn og fullorðnir. Svo eftir að hafa flogið út borgað flug, leigu, tryggingar fyrir húsnæði, uppihald og allan annan kostnað meira að segja 3000 kr.danskar í akstur frá flugvelli og á dvalarstað,(átti að vera frítt), þá lét sá sem öllu fögru lofaði, sig hverfa og hirti alla þeirra peninga 50.000 þús.danskar Þau sitja eftir langt frá mannabyggð og peningalaus, matarlaus og allslaus 4 km frá næstu búð, föst í öðru landi. Þá var semsagt haft samband við Óskar Björn og hann beðinn um að hjálpa og hann hljóp í málið “med det samme” í samvinnu við íslenska ríkið sem borgaði flug heim fyrir þau. Og eru þau núna á heimleið til Íslands og hafa ekkert til að koma til. Ég er auðvitað mjög stolt af syni mínum og vini hans og ég veit að þeir (fyrirtækið þeirra vina) gaf 80% af kostnaði þeirra við þetta framtak og ég veit líka að þeir eru tilbúnir að hjálpa fleirum sem um sárt eiga að binda. Ég er líka mjög glöð að heyra hversu skjót viðbrögð sendiráðs og ríkis var í þessu máli, en ég veit líka að sonur minn er mjög sannfærandi og ákveðinn ef hann vill að eitthvað gangi upp og það strax.
Kæru samlandar, farið varlega og gulltryggið ykkur áður en farið er út, það virðast alls staðar vera skúrkar sem tilbúnir eru að svíkja gott fólk. Ég óska þessum Íslendingum sem eru nú á heimleið yfir hafið, alls hins besta og vona að íslenska ríkið taki vel á móti þeim.
Verð að sýna ykkur þessa góðu drengi, Óskar Björn til vinstri og Ari til hægri, þetta eru engir útrásarvíkingar heldur ekta Íslendingar og bera hag Íslendinga fyrir brjósti.
Hér er google mynd sem sýnir staðinn Reesnæs Strandvej.
þið sjáið stærri mynd ef klikkað er á myndina.
|
Hafa áður áreitt Íslendingana |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (43)
21.2.2009 | 12:35
Það er ekki ofsögum sagt um hversu ólík konur og menn eru.
Svo nokkrar gamlar myndir handa ykkur elsku börnin mín. Hérlendis sem erlendis.
Ég í ýmsum útgáfum.
Ég að selja vikuna 1966
Fimm ára skvísa með veski mömmu sinnar 1961
Aðeins farin að gellast 1971.
Við systur með pabba veturinn sem flóann fyllti af ís.
Það var oft mikill snjór á Húsavík í den. Þetta er Túngata 5.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn