Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009
31.12.2009 | 21:20
Nú árið er (senn) liðið í aldanna skaut................
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.12.2009 | 14:57
Ég er ótrúlega ánægð með ykkur kæru Íslendingar.
Þið eruð að versla hjá Björgunarsveitunum og það var það sem ég óskaði heitast. Farið varlega í kvöld og slasið hvorki ykkur né aðra. Gleðilegt ár.
|
Sala á flugeldum gengur vel |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.12.2009 | 13:18
Mínir strákar alltaf flottastir.
Innilega til hamingju STATUS QUO you rock.
|
Rokkarar í Status Quo og Button sæmdir orðum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.12.2009 | 22:08
Mínir menn klára árið með stæl.
Til hamingju Arsenallar. Það er ekki langt síðan einhverjir íþróttafréttaritarar sögðu að þið væruð ekki með í toppslagnum, þið hafið nú sannað annað. Takið þetta hægt og bítandi. Óskar ykkur og öllum nöllum gleðilegs nýs árs og megi okkur ganga allt í haginn.
|
Stórir sigrar hjá United og Arsenal |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.12.2009 | 20:20
Fokkings fokk, alltaf sama bullið á þessu Alþingi.
30.12.2009 | 10:28
Þá minni ég enn og aftur á björgunarsveitirnar.
Held mig við sama heygarðshornið, vil minna ykkur sem ætlið að kaupa flugelda á, að versla eingöngu við björgunarsveitirnar. Þeir skila öllu og rúmlega það til samfélagsins og eru oft okkar eina von þegar óveður geysa eða fólk lendur í ófærum á hálendinu. Munum líka eftir því að misnota ekki krafta þeirra og skipuleggja allar okkar ferðir af forsjá.
|
Spáð góðu flugeldaveðri |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.12.2009 | 11:31
Ég hvet landsmenn til að versla flugelda eingöngu af björgunarsveitunum.
Það eru þeir sem bjarga okkur þegar eitthvað kemur uppá, þetta eru þeirra fjáröflunardagar, að mínu mati ættu einstaklingar að skammast sín fyrir að teygja sig inn á þennan markað, það er bara græðgi og ekkert annað.
28.12.2009 | 16:09
Hvernig væri að hætta að drekka bjór?
Bjór inniheldur kvenhormóna !
Vísindamenn Wits University og UJ birtu niðurstöður sameiginlegs rannsóknarverkefnis, núna skömmu fyrir mánaðamótin. Þar var hulunni svipt af því, að kvenhormón virtust langt yfir skynsamlegum mörkum í venjulegum bjór.
Hér eftir, ættu karlmenn að íhuga afleiðingar bjórdrykkju sinnar.
Þar sem humlar innihalda phytoestrogen, er kenningin sú að drekki karlar bjór í nægilegu magni, breytist þeir í kvenmenn.
Látið var reyna á kenninguna með tilraun sem fólst í því að 100 karlmenn drukku 8 stóra bjóra hver, á innan við einni klukkustund.
Í ljós kom að 100% þeirra sem þátt tóku í tilrauninni :
1) Þrefuðu út af engu.
2) Gáfu sig ekki, þótt þeir hefðu augljóslega rangt fyrir sér.
3) Líkamsþyngd jókst.
4) Töluðu og töluðu - en sögðu ekkert að viti.
5) Tilfinningarnar báru þá ofurliði
6) Gátu ekki ekið bíl.
7) Tókst ekki að hugsa rökrétt.
8) Urðu að setjast til að kasta af sér vatni.
Ekki var talin þörf á frekari prófunum.
|
Nýársheit dæmd til að misheppnast |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
27.12.2009 | 14:30
Jólahátíðin að baki.
Þá eru börnin mín flogin til sinna heimkynna. Mikið áttum við yndisleg jól. Rólegheit og yndisleg samvera eins og alltaf. Heimsóttum pabba í gær á Hrafnistu og vitjuðum leiða foreldra og tengdaforeldra. Fallegur dagur og lífið er gott. Vona að flest ykkar hafið notið hátíðarinnar, hugur minn er hjá þeim sem erfitt eiga í dag vegna missis ástvina. Njótið dagsins.
|
Flug gengur vel |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.12.2009 | 21:58
Hugur minn er fullur af gömlum minningum um mikið fannfergi.
Verð bara að viðurkenna að ég öfunda norðlendinga af snjónum, það er svo notalegt þegar allt er á kafi í snjó, allavega þangað til að maður þarf nauðsynlega að komast eitthvert. Ég vona bara að allt gangi vel þrátt fyrir fannfergið og ég treysti engum betur en norðlendingum til að takas á við þetta.
Húsið okkur við Túngötu 5 kringum 1965.
|
Mikið fannfergi á Akureyri |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn