Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009
30.11.2009 | 12:48
Þetta er líka alveg fáránlega asnaleg framkvæmd.
Þegar bílar eru á leið inn í bæinn og koma úr hringtorginu hjá Toyota þá svo til allt í einu á að snarbeygja til hægri og breyta um akrein. Þessi framkvæmd virðist eingöngu vera gerð til þess að bílar komist inn að tönkum Atlandsolíu. Ég hef ekkert á móti bensínstöðinni og kaup þar reglulega bensín en þetta er dæmigerð framkvæmd þar sem framkvæmt var fyrst og hugsað svo, mér finnst að það eigi að breyta þessu aftur og gera ráðstafanir með að færa bensínstöðina, þetta er mjög asnalegt og illa gert.
|
Umferðareyja fyrir ökumönnum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.11.2009 | 16:58
Í guðs bænum ekki öryrkjavæða fleira fólk.
Það er alltaf hætta á því að ef atvinnuleysisbæturnar lækka mikið að þá lendi fleiri á örorku. Þó hef ég aldrei skilið hvernig hægt er að komast á þær bætur án þess að vera mikið veikur. Ég er búin að vera öryrki í 18 ár og það var ekkert hlaupið þar inn og á hverju ári var ég endurmetin og reyndi að komast aftur út á vinnumarkaðinn, fyrir nokkrum árum var síðan hætt að meta mig, enda engin von til þess að mér mundi batna á ný, síðan þá er ég búin að fara í 5 aðgerðir. Ég held að það hljóti að vera mjög mikið af fólki sem er veikt á sinninu vegna ömurlegra aðstæðna í lífi þeirra, sem er á örorku. En eitt get ég sagt, að það ríður enginn feitum hesti sem veikist, en það er samt smá möguleiki að lifa á þessu því eins og í mínu tilviki, þá get ég bara alls ekki gert það sem kostar mikið, eins og t.d. djamm og ferðalög og svo drekk ég ekki og reyki ekki því ég get það ekki heilsunnar vegna. Nú er kallinn hruninn eina ferðina enn í bakinu og ég hugsa að það endi með því að hann verði skorinn á næsta ári, þeir hafa viljað bíða með það eins lengi og hægt er því það er 50/50 hvort hann lamast eða ekki. Nú dúllum við okkur bara saman hérna heima og það er notalegt þó svo hann geti ekki gengið, en þetta hefur alltaf skánað á milli, börnin koma svo heim í nokkra daga um jólin og samvistir við fjölskyldu er það sem skiptir okkur mestu máli, þess vegna er ég bara glöð. Þessi færsla byrjaði nú bara sem stutt athugasemd, en endar svo bara eins og smá pistill, gott stundum að skrifa hér. Hafið það gott og farið vel með ykkur.
|
Spara 1,5 milljarða í bótum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
29.11.2009 | 13:20
Kallinn hruninn í bakinu og þá er eina ráðið að vera hress.
Nú snjóar sem aldrei fyrr og sér vart milli húsa. Ég er fegin að það var ekki í gær, því þá hrundi kallinn minn þar sem hann var staddur upp í sveit og systir hans og mágur fóru að ná í hann til að koma honum heim, nú eru það verkjalyf og vöðvaslakandi þar til hann fer að geta gengið aftur, spurning hvað þetta tekur langan tíma í þetta skiptið, vona hans vegna að hann verði orðinn rólfær fyrir jól, hann reynir að staulast á hækjum í það helsta, eins og klósettferðir, en svo bara hjálpa ég honum með annað. Doksi sagði í ágúst að nú mætti Bjarni í raun ráða hvenær hann færi í aðgerðina, en þetta er svo fj. mikil áhætta að hann er kvíðinn, en svo er líka spurning hvað er hægt að vera svona mikið lengur orðin býsna mörg ár og ekki venst þetta. Ég verð á mínum Nightingale slopp og hlúi að honum eins og venjulega og kíki hér inn til að hressa mig við, kveðja út í hríðina.
28.11.2009 | 14:28
Boða til mótmæla á jólatónleikum Fíladelfíu
Frétt fengin að láni á visir.is
Hópur samkynhneigðra hefur boðað til mótmæla á jólatónleikum Fíladelfíusafnaðarins. Ástæðan er sú tónlistamanni er meinað að syngja þar vegna kynhneigðar sinnar.
Mótmælendur hafa hóað sig saman á samskiptasíðunni Facabook. Þar eru hommar og lesbíur hvött til að mæta og fara í sleik þegar dagskrá jólatónleika hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu hefst. Fyrir hádegi höfðu meira en 100 manns skráð sig á síðuna.
Ástæðan fyrir mótmælunum er frétt sem birtist í Séð og Heyrt fyrr í vikunni. Þar var rætt við tónlistarmanninn Friðrik Ómar Hjörleifsson sem sagði að samkynhneigt fólk fengi ekki að syngja með kórnum.
Þá hafa verið stofnaðir hópar sem hvetja Ríkissjónvarpið til að sýna ekki frá tónleikunum heldur líta til annarra frambærilegra kóra.
Er þetta nú ekki full langt gengið, mega þessir sértrúarsöfnuðir ekki ráða í sínum húsum? aldrei færi ég ótilneydd á samkomu hjá þeim.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
27.11.2009 | 15:33
Háttvirtir loddarar og lýðskrumarar.
Ég hef verið að hlusta á Alþingi í dag eins og stundum áður og ég verð bara að segja að mér fallast hendur. Leikhús Geira Smart er farið til andskotans, ég treysti engum lengur og spyr sjálfa mig "til hvers eru þessir menn að bjóða sig fram"? það virðist ekki vera heil brú í nokkrum sem þarna starfar og samstaðan er fyrir löngu farin til fjandans, ég treysti engum fyrir fjöreggi þjóðarinnar, ef þessu heldur áfram eigum við okkur enga von því miður. Held ég endi þessa færslu með því að slá á létta strengi. Hafið það gott um helgina.
Gamall maður á 9ræðis aldri sat í afmælisboði innanum fullt af fólki, skyndilega finnur hann fyrir sviða í öðru eyranu og þegar hann fer að klóra sér í eyranu finnur hann fyrir einhverju, jú og viti menn hann dregur eitthvað út úr því og þegar hann skoðar hvað þetta er þá sér hann að þetta er stíll ( keilulaga pilla til að lækka hita hjá fólki ) . Fólkið í boðinu starir furðu lostið á aðfarirnar ... Eftir smá umhugsun snýr sá gamli sér að fólkinu og segir :
Jæja .... þá veit ég hvar heyrnatækið er .
|
Réttlæti tryggt með samræmi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
27.11.2009 | 10:39
Finnst ykkur í lagi að kalla þetta "mellulegan" brúðarkjól ?
Veit ekki hvað mér finnst, en hann er að sjálfsögðu frekar "opinn", konan er sjálfsagt stolt af djásnum sínum og skartar þeim ófeimin.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.11.2009 | 21:25
Aumingja kennararnir, ef meirihluti nemenda hugsar og talar eins og hér að neðan má sjá, þá verður varla nokkur kjaftur á þessu landi sem talar íslensku eftir 100 ár.
Subject: FW: Vinsamlegar ráðleggingar nemanda til kennara
Eftirfarandi bréf barst stjórnendum á dögunum frá nemanda sem vill koma á
nýtískulegum kennsluháttum í skólanum:
Mörgum nemendum finnst kennarar þeirra vera ótrúlega leim og voða mikið bara
að kenna eitthvað júsless stöff. Allar bækurnar sem eru lesnar í íslensku
eru t.d. most boring bækur ever sem enginn les nema einhverjir proffar! Án
djóks! Svo tala þeir einhvað fokking fornmál og maður bara VÓ!
og skilur ekki rass og svo hrauna þeir bara yfir mann ef maður spyr kannski
aftur hvað hafi skeð fyrir einhvern í einhverri sögu!
Kannski ættu kennarar að pæla í því að gleyma gömlu kennsluaðferðunum sem
eru nú ekkert til að hlaupa húrra fyrir og þeir eru búnir að nota síðan í
örlý seventís og fara að öpdeita sig aðeins.
Þeir gætu t.d. komið sér upp kennslusíðum á feisinu og gætu þá addað
nemendum og þá nottla bara þeim sem hafa áhuga. Þá gætu kennararnir líka
tjattað við nemendur og búið til allskonar quiz og test sem nemendum þætti
gaman af í staðinn fyrir að vera alltaf að bögga nemendur með sjúklega
leiðinlegum prófum.
Svo er gegt góð hugmynd að nemendur gætu þá líka alltaf kommentað á t.d
heimanámið því það er ógeðslega fúlt að hafa of mikið að gera eða verið með
reitings á kennsluna og kannski gætu kennarar sem skora hátt fengið hærri
laun eða eikkað.
Kennarar gætu líka verið með til dæmis groups um kjörbókarritgerð og þá gætu
þeir bara joinað sem ætluðu að lesa heila bók eða sollis og fá þannig 10% .
Kennaranir gætu líka sett inn events þegar væri að koma próf og sent
nemendum bara invitation þá myndu allir pottþétt vita það. Ekki eins og núna
þegar stundum er ekki einu sinni sagt manni að það sé próf næsta dag!
Kommon!
Svo ef kennarinn sé veikur þá er næs að hann geti bara sett það í statusinn
og nemendur sjá það og bara hjúkket! Frí! Sjitt hvað það væri osom!
Svo gætu allir sett inn myndir - bara svona normal myndir - ekkert djúsí sem
kennarinn má ekki sjá ;) og þá er hægt að tagga aðra nemendur á myndunum og
þá væri miklu meira easy skiluru fyrir kennarann að muna hvað allir heita
sko.
Kennarar gætu líka kennt bara online og allir fengu mætingu ef þeir væru
loggaðir inn. Það væri svít. Þá gætu nemendur bara tjillað heima kannski og
dánlódað bara öllu draslinu í tölvurnar eða ipodana sína!
Allavega er aðal issjúið að kennarar átti sig á því að núna eru þeir í tómu
tjóni og það sé möst að þeir geri huge breytingar á kennslunni sko! Sorrý en
þeir verða að spá í að þeir eru líka í keppni við allt hitt stöffið sem
nemendur geta skemmt sér við í tölvunum. Það er audda miklu skemmtilegra að
spila tölvuleik eða að horfa á eitthvað á Youtube heldren að hlustá einhvern
kennara tala. En whatever...eikkað er greinilega að og því er skorað á
kennara: Reynið að láta nemendunum hlakka til að mæta í tíma til ykkar og
þið rúlið!
26.11.2009 | 12:05
Korter í downs.!!
Ég velti þessu einmitt fyrir mér þegar ég heyrði þetta og var að hugsa um hvað aðstandendum þroskaheftra fyndist um þetta mál, vildi gjarnan heyra skoðanir foreldra þroskaheftra barna um hvað þeim finnst. Mér fannst drengurinn sem Jóhannes Haukur lék, mjög ótrúverðugur og ekki líkur neinu sem ég hef séð, hef reyndar ekki mikla reynslu í þessum málum, en mér fannst að með þessum klæðnaði og framkomu væri þroskaheftum sýnd óvirðing. Lét þetta reyndar ekkert pirra mig en eins og ég segi þá hefði ég viljað heyra skoðanir þeirra sem til þekkja, ég veit hins vegar að mörgum fötluðum finnst í góðu lagi að láta gera grín að sér. Hvað finnst ykkur?
|
Óvirðing við þroskahefta |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn