Bloggfærslur mánaðarins, október 2009
31.10.2009 | 19:18
Ég held að ég verði að fá nýtt DNA, er komin með lungnabólgu.
Það er sjaldan ein báran stök í 10 vindstigum. Um kaffileytið í dag fór að hellast yfir mig hiti og önnur óværa og áður en ég vissi af er ég komin yfir 39 stig. og verri í öndun. Hringdi í doksa sem sagði mér að koma a.s.a.p. og þá er mín bara að næla sér í lungnabólgu, er komin á pensilín. Doksi telur að svínið sé farið, ég hafi bara fengið eitthvað annað, vírus eða bakteríur, hvað þetta nú heitir. Ég er semsagt komin í farbann þar til þessu slotar, mikið er þetta nú annars leiðinlegt. Ég er bólusett fyrir algengustu lungnabólgu sem kemur hér á landi en þetta er bara einhver önnur. Semsagt, ef þið vitið um heilbrigt DNA þá sendi mér smá, annars ætla ég bara að borða mikið af bönunum næstu daga, þeir segja að það sé svo hollt.
FARIN Í RÚMIÐ.
31.10.2009 | 16:38
Æ, svo krúttlegt......
.................. maður notar nú samt ekki svona frasa nema í frekar alvarlegum aðstæðum, enda voru þetta náttl. drep alvarlegir hlutir sem voru að koma í ljós.
Guð blessi kónginn sagði KÍKÍ, var það ekki annars?
|
Átti að vera vinaleg kveðja |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
31.10.2009 | 16:04
Hei Jude fyrir byrjendur.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.10.2009 | 14:43
Jibbí kæ jei m.fucker........
.................. við unnum. Tek á móti hamingjuóskum hér á síðunni NÚNA 
|
Arsenal vann öruggan sigur á Tottenham |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
31.10.2009 | 13:06
Hér virðist svínaflensan á undanhaldi.
Enda kominn dagur 20. Verst þykir mér þó að litla ömmustelpan mín hún Ellý Rún er svo lasin og eins Gabríel Ómar. Þetta leggst þungt á börnin. En með jákvæðnina að vopni eins og alltaf þá set ég hér inn krúttlegar myndir. Hafið það sem allra best í dag og gangið hægt um gleðinnar dyr.
Umm hvað þetta er gott kex.
Ó mæ god orðin allt of þung
Ok. skelli mér í spariskó og fer bara út og dansa þetta af mér.
|
Óhætt að nota Pandemrix |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
31.10.2009 | 12:54
Svo er bara að vinna þennan leik í dag.
Mér finnst það ekki spurning að þeir eiga að vinna þennan leik. Ég vil endilega að Arsenal menn taki sig á og fari að leika betur. Þeir geta miklu meira og eiga að vera í baráttunni um toppsætið alla leiktíðina, mínir menn geta vel unnið og eiga að spýta í lófana og sýna sitt besta. Áfram Arsenal.
|
Almunia aftur í mark Arsenal |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.10.2009 | 15:58
Nokkrar fyrirsætumyndir og "Hamingjan"
Hún ríður ekki við einteyming, hamingjan hjá mér í dag. Ég er svo ánægð með lífið og tilveruna þrátt fyrir allt og allt. Ég hef einsett mér að blogga jákvætt síðustu vikur og mér hefur fundist það gott. Oft á tíðum hefur mig þó langað að henda inn pirrings bloggi út af einhverju sem ég les, en ég stóðst freistinguna. Ég er þokkalega ánægð með þessar vikur, ég sjálf er á 19 degi í svínaflensu og er viss um að nú getur þetta ekki orðið verra, nú verð ég bara betri. Set hér nokkrar gamlar myndir sem ég á af sjálfri mér, mamma gat aðeins einu sinni farið með mig til ljósmyndara þegar ég var lítil, ég var alltaf með kúlur og skrámur, lá þessi lifandi býsn á að skoða heiminn, þetta er afraksturinn, allavega hluti. Eigið ljúfa helgi yndin mín og verið glöð, ef hægt er, það er best.
HVER ER ÞARNA?
ESS A SÚ?
Þegar ég var yngri hélt ég að ég hefði verið svona feit, en þetta voru víst litlir fætur sem aldrei voru kyrrir.
Fyrsti sparikjóllinn
Eitt af mínum eðal uppáhaldslögum
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.10.2009 | 14:48
Flottir strákar þessir Sniglar.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2009 | 21:54
Látið þá heyra það !! Húsavík var bær allsnægta þegar ég var að alast upp, ég vil sjá bæinn minn þannig aftur.
Þetta er eitthvert fallegasta bæjarstæði á öllu landinu og ég vil að þarna haldi uppbygging áfram. Þarna eru öll landsins gæði innan seilingar og mannlífið gott. Þegar ég var að alast upp og gekk í skóla á árunum 1963-1972 þá höfðum við allt til alls, í huga mínum í dag minnist ég bæjarins míns sem hins fullkomna samfélags. Þarna var frábær skóli, æðislegt íþróttahús, sundlaug, íþróttavellir, skíðaaðstaða í fjallinu, bíó, fjaran, höfnin, fjöllin, vötnin og ég get endalaust talið áfram. Ég elska þennan bæ æsku minnar og vil og vona að hann muni fá að vagga ungviðinu til manns áfram á komandi árum. Til þess þarf góða og örugga atvinnu og heimamenn vita manna best hvað hentar þeim.
ÁFRAM HÚSVÍKINGAR, ÉG ER STOLT AF YKKUR.
|
Fjölmenni á borgarafundi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
29.10.2009 | 19:38
Því var fréttin tekin út og sett inn aftur án blogg athugasemda? er verið að stjórna blogginu.
Nei, ég bara spyr svona? var búin að blogga við fréttina áðan svo hvarf hún og kom inn aftur án athugasemda bloggara. Er verið að stjórna blogginu? Hver veit.
Ok. sorry, smá breyting á texta, ég fljótfær.
|
„Ég er reið og ringluð“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 19:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn