Velferðarsvið mun leggja til þrjár milljónir króna til sameiginlegs rekstrar á árinu, auk þess að leggja fram fagmenntaðan starfsmann til að vinna að uppbyggingu iðju á dagsetrinu, en engin iðja fer nú fram þar þó að húsnæðið bjóði upp á mikla möguleika í því sambandi.
Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
Og sem betur vorar á ný og þá verður kosið. Hvað út úr þeim kosningum kemur veit enginn og "vandi er um slíkt að spá" en það er þó öruggt að sólin hækkar á lofti og eitthvað gott hlýtur að koma út úr þessu. Óska ykkur góðrar helgar og njótið veðurblíðunnar þið sem það getið. Ég er í dæmalaustu letikasti og ætla bara að vera það fram yfir helgi. Góða nótt gullin mín 
"STÓRASTI"FRAMSÓKNARMAÐURINN Í HEIMI.
|
Framsókn ver nýja stjórn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
31.1.2009 | 00:44
En algjörlega besti janúar "so far" hjá mér.!!!
Ég er svo lukkuleg og kát. Janúar alveg að verða búinn og pabbi minn varð 83 ára í gær 30.jan. Besti pabbi í heimi fyrir mig, líka fyrir systur mínar. Besti tengdó, eiginmaður, afi og langafi. Mér finnst ég svo heppin að eiga ennþá pabba, sem er svona gamall en samt svo virkur og yndislegur kall. Verð bara að segja að þegar ég kom heim í kvöld, þá fannst mér ég heppnasta kona í heimi. Yndislegur dagur með fjölskyldunni, við systur slógum upp veislu hjá pabba og Hrafnistu og þar eyddum við lunganum úr deginum, glöddumst saman og afi fékk fjögur símtöl frá útlöndum, frá barnabörnum sem búsett eru í London, Köben, Drammen og Lux., ríkur karl hann pabbi minn og ríkar við stelpurnar hans.
það er svo fallegt veðrið hérna núna, logn og frost og föl yfiir öllu ég ég á leið í kojs, set eina huggulega mynd frá deginum í dag hér inn, finnst ykkur ekki annars Ísland besta land í heimi???
|
Versti janúar á Wall Street |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
29.1.2009 | 18:20
Framsóknar kara mellan er alltaf söm við sig.
|
Ekki óskaríkisstjórn Sigmundar Davíðs |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
29.1.2009 | 10:58
Það er allavega fallegt á suð-vestur horninu í dag.
Ég tók þessar myndir áðan og er að hugsa um að skreppa út með myndavélina á eftir, yndislegt póstkortaveður og kannski næ ég nokkrum góðum. Hafið það sem allra best í dag mín kæru.
|
Útboð að hefjast á ný hjá Vegagerðinni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
28.1.2009 | 17:47
Rosalega líst mér vel á þá menn sem nefndir eru til í þessari frétt.
Það er von að hér verði stjórnað af skörungsskap, það verð ég að segja eftir að hafa lesið nöfn þeirra manna sem til eru nefndir til aðstoðar nýrri ríkisstjórn. Það gefur auga leið að hörmung er að taka við og veitir ekki af hverri þeirri aðstoð sem hægt er að fá. Best væri sjálfsagt ef ríkisstjórnir samanstæðu alltaf af stjórnmálamönnum og fagmönnum sem hefðu engra hagsmuna að gæta.
Vonandi verður komin stjórn um helgina svo hjólin geti haldið áfram að rúlla fram að kosningum. Gengið er örlítið skárra og markaðir í Asíu uppá við svo það er von.
Ár uxans er nú gengið í garð í Kína og það er árið 4707. Tvær sjöur í ártalinu lofa góðu því sjö er frábær tala. Uxinn leggur grunninn að framtíðinni og gott að eyða þessu ári í uppbyggingu.
Enn er verið að henda mér útaf blogglistum, sjálfsagt eingöngu vegna skoðanna minna því aldrei geri ég nokkrum manni neitt, enda er þetta fólk lengst til vinstri sem svo gerir
gott að vita hvað drífur fólk áfram, ekki er það manngæska heldur eitthvað allt annað. "Hafðu mína skoðun eða farðu til fjandans" hef svosem heyrt það af og til gegnum árin og alltaf frá þeim sem lengst til vinstri standa, þeir geta aldrei rætt málin heldur fara bara í fílu. Þetta er allavega mín skoðun á þeim mörgum hverjum.
|
Nær Evrópu með Vinstri grænum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
28.1.2009 | 14:15
Loksins frétt sem ég beið eftir "Borgin gengur til samstarfs við Hjálpræðisherinn" stórum áfanga náð.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2009 | 20:14
Á meðan fólk nennir að heimsækja okkur þá er þetta í lagi. Ekki satt???
Ég er búin að gera mig hálfbrjálaða á fréttahlustun síðustu tvo sólarhringa og held ég verði að hvíla mig, nú er ég að hlusta um Steinunni, Árna þór og Ragnheiður og það er augljóst að poppúlismi (það ljóta orð) er kominn á fullt og finnst mér það leiðinlegt en svona er þetta bara fyrir kosninga. Get ég forðast fréttir ? nei, ætla ég að standa mig eitthvað í framboðsmálum ? já, hvað er til ráða? vera stillt og taka ekki mark á öllu sem ég heyrim en vinna samkvæmt minni sannfæringu og vanda mig
Set hér inn skemmtilega myndaseríu sem bræðir ykkur vonandi og kemur ykkur inn í draumalandið í kvöld. Sofið vel og hvílist vel, það er fyrir öllu.
|
Óvenju mikið um erlenda ferðamenn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
27.1.2009 | 17:15
Sameiginlegt markmið allra var að koma D frá völdum og láta öll önnur mál liggja milli hluta.
Er það ekki heila málið? sætti mig fullkomlega við það, vil lofa þessu fólki að spreyta sig og sjá hvort er hægt að gera eitthvað annað í stöðunni, þess virði að láta reyna á það.
Óska því fólki sem við tekur, velfarnaðar. Mun fylgjast vel með héðan í frá eins og hingað til.
|
Sigmundur Davíð kemur á fund |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.1.2009 | 17:01
Óvíst hvort forsætisráðherra er heimilt að reka Seðlabankastjóra - er það kannski tilfellið.??y
Frétt fengin að lán hjá visir.is
Óvíst er hvort forsætisráðherra hafi lagalega heimild til þess að víkja bankastjórum Seðlabankans úr sætum sínum komi ekki til skipulagsbreytingar í bankanum. Margrét Vala Kristjánsdóttir, lektor við lagadeild í Háskólanum í Reykjavík, segir að grunnspurningin sé sú hvort starfsmannalög eigi við í tilfelli Seðlabankastjóra. Samkvæmt þeim sé hægt að víkja embættismönnum úr starfi á tveimur forsendum. Sé um að ræða ávirðingar á embættismanninn þurfi að veita honum áminningu áður en að til brottvikningar úr starfi kemur.
Hins vegar þurfi ekki að veita áminningu ef brottvikning er af öðrum ástæðum, svo sem vegna skipulagsbreytinga. Margrét segir að ef embættismönnum er vikið úr starfi án þess að fyrrgreindum skilyrðum sé fullnægt geti viðkomandi embættismaður látið á það reyna fyrir dómsstólum hvort starfsmannalög hafi átt við og þau verið brotin.
Geir Haarde starfandi forsætisráðherra hefur sagt í fjölmiðlum að til greina hafi komið að breyta lögum um Seðlabankann og sameina Seðlabanka og Fjármálaeftirlitið. Með því hefði hugsanlega skapast skilyrði til þess að víkja bankastjórunum úr starfi.
Kjaramál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2009 | 16:51
Mér verður alltaf pínu óglatt þega ég hlusta á Jón Baldvin.
Núna er Þorgeir í Reykjavík síðdegis að tala við JBH eins og stundum áður þegar eitthvað er að gerast í pólitík landsins. Mér verður alltaf pínu bumbult að hlusta á hann. Afdankaðann stjórnmálamann sem vann landi og þjóð aldrei neitt gott en talar eins og GUÐ sjálfur og þykist vita allt og hafa lausn á öllu. Hvernig væri nú að tala eingöngu við sérsfræðinga um tíma og sleppa pólutíkusunum, þeir eru hvort eð er allir að stefna leynt og ljóst í framboð og mikil hætta á að þeir gaspri meira af löngun eftir mjúku sæti, frekar en velferð þjóðarinnar. Vona svo sannarlega að JBH komi ekki aftur inn á þing, hann vill ganga í ESB, það vil ég ekki, og ég ber þá von í brjósti að þeim fari fækkandi, Íslendingunum, sem trúa á það sem töfralausn.
|
Munu leita eftir endurskoðun á IMF-samningi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn