Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
30.9.2008 | 14:59
OG?????????????
Það er bara ekkert sem maður getur gert, nema þá helst að hætta að lesa fréttirnar og fljóta með lokuð augu að feigðarósi. Ætla að bíða slök eftir einhverju úrræði, ég get ekki leyst þetta mál og veit eiginlega ekki hver getur það. Heimskreppa er staðreynd og maður verður bara að reyna að halda sjó eins og einhver sagði. Borga sínar skuldir, kaupa ódýran mat og hætta að gera nokkuð annað en vera góður við sína nánustu og rækta kærleikann.
Þessi kall þykist reyndar hafa ráð undir rifi hverju og tröllríður nú öllum fréttatímum. Hversvegna er hann spurður orðið ráða um allt? og hvar var hann árin sem hann sat með D í ríkisstjórn? maður spyr sig bara. Farin út að labba nenni þessu ekki í bili.
|
Gengi krónunnar lækkar um 4,11% |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Held við getum verið sammála um að Bjarni Ármanns sé sá maður sem flestir hugsa illa til í dag. Glitnis ævintýrið á enda og margir tapa miklu. Bjarni sjálfur flúinn til Noregs og búin að kaupa sér höll og fleira sem fólk dreymir um. Skildi hann ekkert skammast sín??
Er annars enn í bænum en varð bara að segja þetta.
|
Bandaríkjaþing sagði nei |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
|
Stoðir óska eftir greiðslustöðvun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
27.9.2008 | 14:58
Scooter vs Status Quo - Jump That Roc
ÞETTA ER ALGJÖRLEGA MAGNAÐ STUÐ, VERÐIÐ BARA AÐ HLUSTA.
26.9.2008 | 19:58
Hefur strákurinn ekki gert allt sitt besta á konu???
26.9.2008 | 14:56
Tóti var einn í tölvulandi, alveg takkaóður fjandi, í tölvuspilin óður var, hann var alveg spinnegal.
Annars er ég bara ágæt, aðeins að koma til baka í blogglestur. Kemst ekki út að labba vegna roks og rigningar svo ég ætla að gleðja mig á lestri í tölvunni. Hafið það gott um helgina skottin mín, ég ætla að vera latari en löt og borða fullt af góðum mat. 
Btw á ekki að horfa á Silfrið um helgina??
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
25.9.2008 | 10:41
Það sem er of gott til að vera satt er lygi.
Ég kann ráð við þessu. Aldrei svara einhverjum boðum sem poppa upp. Aldrei sestja nafnið þitt inn á neinar síður, aldrei svara e-mail sem er með einhverju sem er of gott til að vera satt, því það er ekki satt. Í sambandi við börn sem ánetjast einhverrri vitleysu á netinu svo sem að bera sig ofl. ofl. ef foreldrar halda ekki utan um þessa hluti, er þá ekki hægt að hafa sérstaka tíma t.d. í lífsleikni sem sýnir þeim svart á hvítu hvaða afleiðingar þetta hefur í för með sér.
Ég ætla að skella mér vestur yfir heiðina og kíkja á gamla minn, vona að hálkan sé ekki til staðar lengur, aldeilis að hann kólnaði snöggt. Hafið það gott í dag dúllurassarnir mínir.
Við hringjum svo bara í Árna ef við erum í einhverjum peningavandræðum, er þaggi ???
|
Svindl á Netinu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
24.9.2008 | 20:43
Til hamingju með þrítugsafmælið strákur. !!
Flott hjá stráknum, til lukku Eiður minn. Vonandi fer hann að vera meira með svo hann geti látið ljós sitt skína strákurinn, bara flottur.
Var í gönguferð í dag og það var virkilega notalegt, hlýtt miða við árstíma og allt það, minnir mig á Noreg fyrir 34 árum, þar var svona hlýtt og notalegt á þessum tíma og verið að þreskja kornið, svo kom ég heim í byrjun okt. og þá var ekta íslenskt haust/vetrar veður hér, nú hefur hlýnað svo í heiminum að við erum eins og norðurlönd voru.
Skemmtilegur fundur hjá mér í leikskólanefnd og yndislegt samstarfsfólk, svo hressandi allt saman, held bara að ég fari að verða duglegri að blogga, verð þó að passa fj. skrokkinn, það haustar fyrr í honum heldur en gróðrinum.
Hafið það gott skonsurnar mínar og mundið I LOVE YOU 
Má svo ekki bara setja Steingrím J. í löggumálin á Suðurnesjum ??hann hefur ríka réttlætiskennd kallinn.
|
Eiður tryggði Barcelona sigur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
24.9.2008 | 13:41
Sko, er þá ekki spurning hver á barnið með henni??
Það hefur nú stundum verið sagt að litlu sundkapparnir sem kallast sæði, geti lifað í vatni og ef konur eru ekki vel varðar á neðri hæðum þá getur vitlaus kall synt inn, sel þetta reyndar ekki dýrara en ég keypti það, en ef allir hafa verið í baði með öllum þá getur þetta flokkast undir ringulreið, eða hvað finnst ykkur.?? Ég er farin út að labba í blíðunni, fundur í leikskólanefnd kl. 17 og ég er svona að komast í gírinn, þökk sé ykkur og ykkar yndislegu hvatningum kæru bloggvinir. 
|
Kidman þakkar sundferðum í óbyggðum Ástralíu frjósemi sína |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
23.9.2008 | 20:09
Ömmulingar gleðja hjarta mitt þessa dagana.
BREKI þÓR 5 ára
BRYNJAR STEINN 8 ára
ÉG MEÐ ELSTU DÆTRUM OG BARNABÖRNUM
AFI MEÐ SAMA HÓP ALLTAF SVO GAMAN
TÁRIN.
Dýpsta sæla og sorgin þunga
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga,
tárin eru beggja orð.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn