Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Dettur einhverjum virkilega í hug að GUÐ nenni að skipta sér af pólitík ?

Það hefur svosem tíðkast í gegnum aldirnar að kenna Guði um hitt og þetta eða þakka.  Persónulega tel ég a almættið hafi allt örðuvísi áhuga á hegðun okkar mannanna, heldur en við ímyndum okkur. Spáið í það? ef við erum nú bara öll í raun dýr á stærstu tilraunastofu í heimi so far allavega.  Hvernig væri annars ef svo væri. ?  Yfir okkur ríkir einhver snillingur eða snillingar sem gerðu þessa kúlu sem við köllum JÖRÐ þannig úr hendi að við áttum möguleika á að lifa hér.  Síðan var heilinn á okkur fylltur af alls konar boðefnum sem eiga að stjórna gjörðum okkar.  Efnin nýtast okkur misvel. Sumir fá góða heilablöndu en aðrir verri, allavega er blandan mismunandi.  Öll ættum við þó að geta mótast af umhverfi og atlæti en boðefnin spila mjög stóra rullu í þessu öllu. Kannski hafa svo ný efni bæst við í aldanna rás og önnur kannski verið tekin út.  Rosalega held ég að starfsmennirnir á tilraunastofunni séu oft óánægðir með störf sín.  Svo hafa verið sendir til okkar menn sem eru að reyna að leiða okkur á réttar brautir, þeir hafa því miður ekki allir haft erindi sem erfiði, sumir fengu hóp af áhangendum öðrum var ekki vel tekið.  Sumir urðu fyrst frægir eftir dauða sinn og um þær hafa verið skrifaðar bækur sem eru að hluta eins og ævintýri, þó svo að sannleikurinn sé saman við.  Við sem svo hugsanlega erum að lesa þessar bækur öldum seinna þurfum að vanda okkur til að finna sannleikann og það er með það eins og annað, tilraunadýrin skilja þetta á sinn hátt þannig að það eru margar mismunandi skoðanir í gangi.  "Vísindamennirnir" sem fylgjast með meta svo hvernig verkefnið þeirra þróast áfram og líklegt er að nú sé væntanlegur "maður" á þeirra vegum sem er ætlað að gefa okkur smá innspýtingu af viti, en þá er alltaf þessi spurning, hvernig vinnum við úr fræðslunni?  hvernig förum við með fræðsluna sem okkur berst? Ég tel mig vera komna á góða hillu með mitt líf og trú á aðstoð frá æðri föður, sem leiðir mig og hjálpar ef ég reyni að hlusta á þau hugboð sem ég fæ. En maður getur alltaf á sig blómum bætt og nú er bara að nota tímann vel til að þroska sig vel og hugsa um fleiri en sjálfan sig. Svo verður spennandi að vita hvort við fáum að sjá árangurinn þegar við skiljumst við þessar umbúðir og förum á næsta stig.  Hvað býður okkar þar?  Það kemur í ljós já eða ekki eins og sumir halda.

Jæja, nóg af þessu í bili.   Vona að allir hafi það sem best sem hingað líta inn.  Snædís er fjörug á við 1 árs barn og hleypur og skottast um allt. Vakti mig ekki fyrr en rúml. 9 í morgun svo það var nú gott að sofa vel.  Nú liggur litla lambið mitt eins og klessa við hliðina á mér og steinsefur. 

                           ÆTLI ALLIR EIGI SÉR TVÆR HLIÐAR ?

Tvöfeldni

p.s. Ég held að stjörnuspáin á mbl.is sé skrifuð með mig í huga, er einhver að stríða mér?

Stjörnuspá

HrúturHrútur: Þú getur gert eitthvað til að hjálpa samfélaginu þínu. Börn, gamalmenni og útigangsfólk þarfnast alltaf hjálpar. Þú munt breyta lífi fólks.

mbl.is Segir Gústav sönnun þess að Guð sé til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýsi hér með eftir samstarfsaðilum til að standa að viðlíka söfnun fyrir útigangsfólk á Íslandi.

Frábær söfnun sem gekk vel og gaman að því.  Hamingjuóskir til allra sem að stóðu.

Ég fór af stað með fata og nytjavöru söfnun fyrir     HJÁLPRÆÐISHERINN     fyrir stuttu síðan og það er ekki annað hægt að segja en að undirtektir voru frábærar.  Mikið var gefið af góðum fatnaði og hlutum sem hægt er að selja í verslunum Hersins, bæði á Eyjaslóð og í Garðastræti.  Það er gaman að finna þann samhug sem kemur upp þegar svona fer af stað. Enn er verið að hringja og bjóða okkur meira og verður farin ferð í bæinn í næstu viku.  Það er ótrúlega mikil neyð á Íslandi og er það samfélagsleg skilda okkar allra að hjálpa hinum bágstöddu.  Það er líka þörf á peningum því matur er keyptur og það þarf að borga leigu fyrir húsnæðið þar sem tekið er á móti götufólkinu. Í dag er það Norski Hjálpræðisherinn sem rekur þessa starfsemi, ekki íslensk yfirvöld eða velferðarsvið borgarinnar. Tvær ungar stúlkur voru í dag að ljúka vikudvöl á götunni með þessu ógæfufólki og geta nú talað af reynslu, reynslu sem öllum er hollt að heyra af. Það er ótrúleg þögn í kringum þetta mikla starf sem Herinn vinnur með götufólki Íslands. Hversvegna skildi það vera??  skammast einhverjir sig fyrir það að standa sig ekki nógu vel?  Herinn stærir sig aldrei af neinu sem hann gerir, en ég get ekki sleppt því að tala um þetta fyrst ég hef nú komist að hvað þarna er verið að gera. Hvar er velferðarsvið borgarinnar ? er þetta ekki málaflokkur sem þeir eiga að sjá um?  Borgin hefur ekki einu sinni viljað styrkja þetta þarfa verkefni að neinu viti.  Er ekki skelfilegt að vita til þess að það sé fullt af fólki sem deyr aleitt og heldur að öllum sé sama um það.  Nú veit ég að ýmis önnur samtök hafa líka verið að vinna vel fyrir þá sem minna mega sín og alls ekki halda að ég sé að gera lítið úr því öllu, svo er ekki, ég hef bara fengið áhuga á þessu máli og vil leggja mitt af mörkum.

Hugmynd mín er sú að við fáum fyrirtæki til að gefa í og styrkja svona söfnun og síðan yrði haldinn markaður, svipaður og sá sem er í Perlunni og mundi allur ágóði renna til Hersins.  Allir sem kæmu nálægt þessu yrðu að vinna þetta í sjálfboðavinnu. Róm var ekki byggð á einum degi, né heldur rifin á hverjum degi eins og einn seinheppinn snillingur orðaði svo vel. Svona átak kemst ekki í framkvæmd einn, tveir og bingó, að þessu verður að vinna vel og skipuleggja vel. Þetta er verkefni sem engan enda tekur í raun því alltaf mun verða neyð hér á landi því miður.

Ef einhverjir ofurhugar þarna úti eru til í að ræða þessa hugmynd við mig, þá væri það gaman.

Í dag fór ég í bæinn og kíkti á sýningu í Ráðhúsinu, þar voru fimm frábærar listakonur að opna samsýningu, algjörlega þess virði að kíkja við.  Hér eru nokkrar myndir. 

Ég og Dúa

Hér erum við Dúa vinkona hressar að vanda og allt í góðu  LoL

Flísar Þórdísar

                        Flísarnar hennar Zordisar.

Katrín Snæhólm

                Katrín Snæhólm, Elín Björk og maður Katrínar

Svava Strandberg

                 Guðný Svava Strandberg.

Þórdís og Anna Guðný

                    Zordis listakona og Guðný Anna


mbl.is Skólinn er í höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

30.08.2008. Borgarferð á morgun. !

Þá er maður komin heim með bóndann og litla barnið. Sú stutta var voða skemmtileg í veislunni í kvöld, lék við hvern sinn fingur og var svo stillt og góð á milli. Núna er hún sofnuð nætursvefninum hérna við hliðina á mér í sófanum. Fröken Bóthildur skoðar hana vel og lyktar af henni meðan hún sefur, finnst hún full ærslamikil vakandi.  Á morgun er það svo listasýningin. Rosalega hlakka ég til. Bæði að sjá falleg listaverk og fallegt mannfólk. " Beauty is in hte eye of the beholder "

Einn laufléttur frá vinkonu minni.

Ég þjáist stundum af sjúkdómi sem ég er loksins búin að fá greiningu á:

Þetta er svo geggjuð lýsing á nákvæmlega því sem amar að mér ! Vissi að ég væri með sjúkdóm!!!

----------------------------------------

Eftirfarandi er lýsing á dæmigerðum degi þegar einkennin blossa upp :

Ég ákvað einn daginn að þvo bílinn og hélt áleiðis að bílskúrnum, en tók þá eftir að bréf höfðu borist inn um lúguna. Ég tók bréfin og ákvað að fara í gegnum póstinn áður en ég færi að þvo bílinn. Sorteraði póstinn og ákvað að henda ruslpóstinum en tók þá eftir að ruslafatan var orðin full og lagði því reikningana sem höfðu borist, frá mér á eldhúsborðið og ætlaði út með ruslið, en ákvað þá að fara og borga þessa reikninga, fyrst ég yrði við bílinn hvort eð er. Fór inn í herbergi til þess að ná í veskið og bíllyklana en sá þá ný e-mail í tölvunni og ákvað að svara þeim strax svo ég gleymdi því ekki. Ákvað að ná mér í kaffibolla fyrst. Á leið inn í eldhús tók ég eftir því að blómið í borðstofunni var orðið heldur þurrt.

Hellti nýlöguðu kaffi í bolla og ákvað að vökva blómið áður en lengra væri haldið. Náði í blómakönnuna og ætlaði að fylla hana með vatni þegar ég tók eftir því að fjarstýringin af sjónvarpinu lá á eldhúsborðinu.

 

Ákvað að fara með hana á sinn stað í sjónvarpsherberginu fyrst, svo ég fyndi hana örugglega um kvöldið þegar ég settist fyrir framan sjónvarpið að horfa á uppáhaldsþáttinn "Sex in the City". Á leið í sjónvarpsholið rakst ég á handklæði sem ég ætlaði að setja í þvottavélina sem beið full af þvotti.  Fór þangað og setti í vélina en fann þá gleraugun sem ég hafði verið að leita að fyrr um morguninn. Lagði fjarstýringuna frá mér í þvottahúsinu og fór með gleraugun inn í svefnherbergi þar sem ég ætlaði örugglega að finna þau þegar ég færi í rúmið að lesa uppáhaldsbókina mína......ef ég finn hana.

Stoppaði í svefnherberginu þar sem dagurinn hófst og mundi ekki lengur hvað ég ætlaði upphaflega að fara að gera !!! Í lok dags hafði ég því hvorki þvegið bílinn né borgað reikningana, ekki vökvað blómin eða þvegið þvottinn, ekki farið út með ruslið, heldur ekki svarað e-mailunum og var auk þess búinn að týna fjarstýringunni, bíllyklunum og veskinu og kaffið beið kalt á eldhúsborðinu.

 

Ég skildi ekkert í þessu því ég hafði verið á fullu allan daginn í ýmsum snúningum. Ég hef nú uppgötvað að þetta er alvarlegt vandamál sem ég ætla að leita mér hjálpar við.

Þessi sjúkdómur kallast á fagmáli AAADD eða "Age Activated Attention Deficit Disorder", á íslensku "Aldurstengdur athyglisbrestur".

Krukkubarn

 


Svo falla krosstré sem önnur. Gamla öspin á lóðinni þar sem ég ólst upp brotnaði í nótt.

Fallega stóra öspin í baklóðinni á Túngötu 5 á Húsavík, brotnaði í nótt.  Pabbi setti tréð niður kringum fæðingu mína  hún var myndarleg svo mikið veit ég.  Það vill svo skemmtilega til að þegar pabbi og mamma seldu húsið 1997 þá keypti æskuvinkona mín og hennar maður sem var bekkjarbróðir minn í den, þetta heimili mitt. Pabbi byggði húsið sjálfur og hélt því alltaf rosalega vel við. Þarna var yndislegt að eiga heima.

 

Öspin heima

Bestu kveðjur norður til ykkar sem lesið þetta, Gunnsi minn og Rikka, ég vona að ykkur líði vel í Túngötu 5.  

Enn eitt kvöldið er ég of upptekin til að blogga, þetta er bara að verða eins og hjá alvöru fólki. Er boðin í grill út í sveit og svo á morgun er það borgarferð á morgun á listasýningu. Hlakka til að hitta þá sem þar mæta. Sendi kæra kveðju á ykkur öll kæru vinir, er búin að lesa slatta af bloggum en ekki kommenta neitt.  LOVE U GUYS   InLove


mbl.is Tré eyðilögðust í hvassviðri á Húsavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er erfitt að vera með ungabarn á heimilinu en það er svo gefandi !

Nú er litla Snædís sofnuð, dagurinn hefur verið yndislegur. Ég held ég hafi gleymt að segja ykkur hvaðan hún er, hún er frá bæ sem heitir Tjörn og er nálægt Höfn.  Fröken Bóthildur Glódís er hætt að kvæsa og lætur nú litla hnoðrann elta sig út um allt, þær verða örugglega farnar að kúra saman fljótlega.  Mér er svo fjandi ill í bakinu og hægri fæti, vona bara að það sé lægðin sem hefur þessi áhrif á mig, ekki að ég hafi verið of dugleg.  Langar að setja hér inn fallega dæmisögu. Vona að ég verði ekki eins þreytt á morgun.  Kærleikskveðja til ykkar allra.

 

Lítil börn (9)

 

Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun,en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?

Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér.Þessi engill mun sjá um þig.

En segðu mér,hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur?

Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig,hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.

En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?

Engillinn þinn segir falleg orð við þig,fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.

En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?

Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.

Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn.Hver getur varið mig?

Engillinn þinn mun verja þig,þó svo það kosti hann lífið.

En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?

Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín,en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.

Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:

Kæri Herra,þar sem ég er að fara segðu mér,hvað heitir engillinn minn?

Nafn hans skiptir ekki máli,þú kallar hana

bara ,,mömmu.

Lítil börn (8)

                                       GÓÐA  NÓTT.


Hvor er að segja satt þegar báðir skrökva pínu ??

Hvaðan sem hugmyndirnar koma, hlýtur hlið að hafa verið skilið eftir opið. Heilt herlið hugmynda marserar í gegnum huga þinn núna.

Þetta er spáin mín í dag og svona er þetta bara. Núna þegar verkirnir hafa minnkað svona mikið þá verð ég svo uppfull af hugmyndum og löngum til að gera eitthvað, verð samt að passa mig, en það er erfitt því eins og sagði í gær, þá dregur hugurinn mig yfirleitt alla leið.

Núna er verið að þrífa hjá mér og sólin farin að skína svo ég býst við að ég fari út að labba með Snædísi á eftir.  Í dag hefur fólk enn verið að hringja og bjóða okkur föt ofl. svo það er sjálfsagt ekkert langt í að við tökum meira með okkur í bæinn. 

Langar að birta hér eitt ljóð eftir Úlf Ragnarsson, man ekki hvort ég birt þetta áður en mér finnst þetta svo fallegt. Eigið ljúfan dag.

visaUlfsR

 

 

 

Blomasvefn

Svo er spurning hvað þetta kemur NATO við?  fannst bara viðeigandi að setja eitthvað friðsælt og fallegt með þessu herliðs tali, það bara hlýtur að stuðla að friði og hamingju þjóða á milli.


mbl.is NATO neitar vígbúnaðarfréttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er fjölgað á heimilinu.

Secretið mitt er fjórfætt og loðið.  Geltir stundum smá en sefur mest megnis, þó ekki endilega á sama tíma og ég, þannig að þetta er eins og að vera með ungabarn.  Litla skottið verður 12.vikna á laugardaginn og ber nafnið Snædís.  Hún er semsagt í aðlögin og vonandi gengur þetta það vel að hún geti búið hér til framtíðar.  Þetta er nú reyndar eins og að vera með barn en það er bara allt í lagi, kisa er svo sjálfstæð og svo lítið sem hún þarf á mér að halda, þannig, en þessi litla þarf mig eins og mömmu.  Ég þarf líka lítinn písk sem hvetur mig til að gera það sem ég er lötust við semsagt að fara út og vaka meira. Nú þegar heilsan er að lagast þá er svo mikilvægt að hafa næg verkefni og drífa sig út í stað þess að hanga inni og í tölvunni, heilsan kemur ekkert á þann hátt.  Snædís er voða lítil og auðvelt fyrir mig að halda á henni ef þarf.  Við erum ósköp glöð  nema kannski kisa, hún er ekki tilbúin í að leika við svona fjörugan tvistpoka. En ég held að það eigi eftir að lagast og vonandi verða þær góðar vinkonur, það er allavega ekkert stríð í gangi.  Núna er sú litla að leika sér hérna um gólfin með beinið sitt og ég er frekað syfjuð. Við vöknuðum líka kl. 4 í nótt, þá þurfti skvísan að pissa og sofnaði hún fljótt aftur. Hér eru svo nokkrar myndir.

Afmæli Gabríels Ómars (8)

Afi með barnabörnin og Snædísi.    Gabríel er á glennualdrinum. LoL

Afmæli Gabríels Ómars (13)

Íris elsta Bjarnadóttir með frumburðinn sinn Brynjar Stein og Snædísi. Íris er með lítinn kúlubúa svo það er von á barnabarni í febrúar. Okkur hlakkar öll mikið til.

Snædís 11 vikna (2)

Enn hefur því Dísunum fjölgað, nú erum við 6.  Ásdís, Freydís, Eydís, Aldís, B.Glódís og Snædís. Nú ætla ég að plata hnoðrann minn til að sofna smá.


Við gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar besta !!!!!!

SILFURHETJURNAR OKKAR ERU KOMNAR HEIM  TIL HAMINGJU STRÁKAR ÞIÐ ERUРHETJURNAR OKKAR

handbolti

VERÐ AÐ BIÐJA YKKUR AÐ FYRIRGEFA AÐ SÖKUM MIKILLA ANNA OG ÞREYTU Á FRÚ ÁSDÍSI, ÞÁ KEMUR SKÚBBIÐ EKKI FYRR EN Á MORGUN. HERINN ER AÐ SÆKJA DÓT TIL OKKAR Á EFTIR, FULLAN SENDIBÍL OG VERÐ ÉG AÐ VERA MEÐ Í ÞVÍ SVO ÆTLA ÉG AÐ SOFNA SNEMMA Í KVÖLD OG KOMA GALVÖSK INN MEÐ NÝJU TÍÐINDIN SNEMMA Í FYRRAMÁLIÐ. ÞETTA LEYNDARMÁL ER NEFNILEGA FREKAR ÁRRISULT, OG NÚ MEGIÐ ÞIÐ GETA YKKUR TIL, ÞIÐ SEM VITIÐ ALLAN SANNLEIKANN MEGIÐ EKKI SEGJA FRÁ.

þAÐ ER NEFNILEGA ÞANNIG MEÐ MIG AÐ HUGURINN DREGUR MIG ALDREI HÁLFA LEIÐ, HANN DREGUR MIG ALLTAF ALLA LEIÐ OG SVO LIGG ÉG FLÖT EFTIR.  KNÚS Á BLOGGHRINGINN OG ÞIÐ VITIÐ AÐ ÉG ELSKA YKKUR ÖLL Í BAK OG FYRIR.


mbl.is Landsliðið komið heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Teiknimyndasaga um vonir og væntingar.

djók djók djók djók djók djók djók djók djók djók djók

 

Og svo ekki orð um það meir.  Er enn að búa til færsluna um hið óvænta.


mbl.is Verðbólgan 14,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er sko algjörlega punkterað á mér !!

Fórum í bæinn eldsnemma í morgun og erum loksins komin heim.  Þetta var sko virkilega skemmtilegur dagur en ég er alveg búin á því.  Gott var þó að finna að heilsan hefur virkilega batnað og ég var mun úthaldsmeiri og hressari en fyrir mánuði síðan.  Var reyndar búin að gleyma því að ég gæti verið á ferli verkjalaus, þetta var bara eins og frelsun.  Allir ömmugormarnir hlupu í fangið á mér þegar ég kom í afmælisveisluna og föðmuðu mig, það var sko yndislegt.  ÉG gat líka veirð hjá pabba í nokkra klukkutíma og farið í búðir með honum og spjallað.  VIð byrjuðum þó á því að fara með slatta af dóti í herinn og heilsuðum upp á Birnu Dís.  Ég kíkti á Röggu mína á Álftanesi og við fengum kaffi og gott spjall.  Áður en við fórum heim kíktum við upp í kirkjugarð til tengdó, fæðingardagur tengdapabba á morgun og svo fundum við leiðið hans Hilmars, það er fallegt með þessum hvítu steinum.  Þegar við komum svo heim í kvöld vorum við búin að fá 8 poka með fötum í viðbót og 4 kassa, þar af var slatti frá dóttir okkar og svo frá Tínu vinkonu okkar hér á Selfossi.  Á morgun ætla ég að segja ykkur svolítið spennandi fréttir og setja líka inn myndir af barnabörnum. 

Einn léttur fyrir nóttina.

  A stranger was seated next to a little girl on the airplane when the stranger turned to her and said,
'Let's talk. I've heard that flights go quicker if you strike up a conversation with your fellow passenger.'
The little girl, who had just opened her book, closed it slowly and said to the stranger,
'What would you like to talk about?'
'Oh, I don't know,' said the stranger. 'How about nuclear power?' and he smiles.
'OK,' she said. 'That could be an interesting topic. But let me ask you a question first.
A horse, a cow, and a deer all ea t the same stuff - grass - .
Yet a deer excretes little pellets, while a cow turns out a flat patty, and a horse produces clumps of dried grass.
Why do you suppose that is?'
The stranger, visibly surprised by the little girl's intelligence, thinks about it and says,
'Hmmm, I have no idea.'
To which the little girl replies,

'Do you really feel qualified to discuss nuclear power when you don't know shit?

 
Það er sko mikill munur á stjórntækjum karla og kvenna.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband