Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008
Hefði þá ekki verið bakkað með þetta ef íbúar í Norðurþingi hefðu bara byrjað eins og gert var í Helguvík. Ég held ég hafi aðeins misskilið fréttina fyrst í dag, svona er að lesa sér ekki nógu vel til. Þetta þýðir skilst mér að allt frestast og jafnvel að þetta verði algjörlega slegið af, hrædd er ég um að margur missi móðinn sem hefur beðið eftir að þetta hæfist. Atvinna er undirstaða búsetu þarna eins og annarsstaðar á landinu og öfunda ég ekki heimamenn.
Set hér að gamni inn myndir sem ég komst yfir á vef á Húsavík sem heitir www.640.is man svo vel eftir þessu (árið 1968) þegar höfrungarnir lokuðust inni í ísnum í lítilli vök sem alltaf fraus á og syntu alltaf hring eftir hring til að halda vökinni opinni. Ákveðið var að drepa þær, þar sem ekki var vitað hversu lengi ísinn yrði á flóanum og útséð að þær mundu ekki lifa af, talið var að nokkur dýr væru í vökinni. Þegar drápin hættu og ísinn fór af flóanum var búið að drepa um 70 dýr að mig minnir. Þetta var mikið blóðbað og var spennandi að fá að ganga langt út á ísinn í fylgd pabba og verða vitni að þessu.
|
Undirbúningur skemmra kominn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
31.7.2008 | 17:36
Ég tel þetta hið besta mál.
Nú er þetta ákveðið. Mér finnst að það verði að skoða allt málið í heild sinni, öðruvísi er ekkert vit í að halda áfram. Þetta er allavega mín skoðun. Allt þarf að vera klárt.
|
Framkvæmdir metnar heildstætt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
31.7.2008 | 12:15
Auknar tekjur fyrir viðkomandi sveitarfélag. Auglýsi eftir ríku fólki sem vill gefa mér bíl !!
Hlustandi á hvað fólk borgar í skatt af fjármagnstekjum og öðru, gefur mér þá hugmynd enn og aftur að auglýsa eftir ríkisbubbum sem væru til í að taka mig í fóstur. Ég hef áhuga á að fá t.d. 300.000 í mánaðarlaun, þá yrði ég svo aflögufær að ég gæti styrkt t.d. Hjálpræðisherinn í að hjálp götufólki í Reykjavík, Birna Dís vinnur þar sjálfboðavinnu og ég heimsótti hana í síðustu viku, ég vil koma á koppinn hópferð út í Eyjaslóð og láta alla ráðamenn og almenning sjá hvað þarna er í gangi.
Svo vil ég reisa STRAX húsin sem borgin ætlar að setja upp fyrir götufólk og ráða þangað starfsfólk á góðum launum. Kannski hringi ég bara í Ólaf F í dag.
Allt þetta gæti ég gert ef ég hefði 300 þús á mánuði í stað 100 þús.
ÞIÐ SEM GETIÐ LAGT EITTHVAÐ AF MÖRKUM TIL HANDA HERNUM OG STARFINU Á EYJASLÓÐ, ENDILEGA HAFIÐ SAMBAND VIÐ MIG EÐA BIRNU DÍS, ALLT ER VEL ÞEGIÐ, ÉG KEYPTI T.D. NÝ NÆRFÖT OG SOKKA OG FÓR MEÐ, ÞAÐ HEFUR NÚ ÞEGAR GLATT NOKKRA, HUGSIÐ YKKUR EF ÞIÐ ÞYRFTUÐ AÐ KLÆÐA YKKUR Í NOTAÐAR BRÆKUR OG SOKKA??
ekki alveg það sem nokkur langar til hversu langt niðri sem viðkomandi er.
Eigið ljúfan dag og kæru borgarbúar, ég vona að borgarstjórinn fari ekki í fleiri viðtöl í lengd og bráð.
VERUM VINIR
|
Eiga lögheimili í sveit |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
30.7.2008 | 20:59
Því að fara Þrengslin ef að Heiðin er greið??
Er að hlusta á nýja Buff lagið sem heitir #Í gær" setti það í spilarann hér á síðunni, bara þrælskemmtilegt. Er að þreifa mig áfram í sumarsmellunum, Bahama steinliggur hjá mér af því mér finnst svo gaman að syngja með og svo "Kósí kvöld" með Baggalút, það er voða svona þægilegt. Í tónlistarleit minni í dag fann ég og eignaðist loksins lag sem ég heyrði í útvarpi í fyrsta sinn fyrir þremur árum, það er um Fílahirðinn frá Súrín, Magga Stína syngur, frábært lag að mínu mati og eitthvað svo tilfinningaríkt finnst mér, það er líka í spilaranum. Þegar ég var að hlusta á Bylgjuna í dag heyrði ég í fyrsta skiptið í ungri söngkonu sem mig minnir að heiti Lára, allavega heitir hljómsveitin Lifun, lagið er "Hörku djöfuls fanta ást" fíla það líka.
Nú er farið að skyggja á kvöldin og mér finnst það voða kósý, gaman að kveikja á kertum og dúllast. Margir skrýtnir skuggar sem geta myndast.
Fólk ferðast yfir lönd og strönd á mismiklum hraða, en það er eins með stærð og hraða, skiptir ekki alltaf öllu máli, aðallega að kunna að nota tæknina.
Hér eru svo nokkrar sterkar þýðingar, orð geta þýtt svo margt og gaman að klóra sig í gegnum nútíma orðabækur. Njótið.
Að þykkna upp Verða ólétt.
Að fá í skrúfuna Gera einhverja ólétta
Að vera fokheldur Heimskur
Afhenda Höggva af hönd
Afturvirkni Samkynhneigð karla
Almanak Nektarnýlenda
Ábekingur Hommi
Bak-tería Hommabar
Búðingur Verslunarmaður
Dráttarkúla Eista
Dráttarvél Titrari
Eigi má sköpum renna Fær ekki drátt
Flygill Flugmaður
Ferðaskrifstofa Skjalataska
Glasabarn Barn getið í ölæði
Handrið Sjálfsfróun
Hangikjöt Getnaðarlimur í afslöppun
Hleypa brúnum Hafa hægðir
Iðrun-Iðrast Fá niðurgang
Kóngsvörn Forhúð
Kúlu-legur Feitur
Kviðlingur Fóstur
Lík-hús Raðhús
Lóðarí Lyftingar
Maki Sminkari
Margrét Sí-grenjandi
Meinloka Plástur
Milliriðill Sá í miðið af 3 eiginmönnum
Nábýli Kirkjugarður
Næturhólf kvennmannsskaut
Pottormar Spagettí
Riðvörn Skírlífsbelti
Sambúð Kaupfélag
Samdráttur Hópsex
Samþykkja Saman í fýlu
Skautahlaupari Fjöllyndur maður
Skautbúningur Kvennærbuxur
Sukkbremsa Eiginkona
Tíðarskarð Skaut konu
Undandráttur Ótímabært sáðlát
Undaneldi Brunarústir
Uppskafningur Veghefilsstjóri
Upptökuheimili Stúdíó
Upptakari Upptökumaður í stúdíói
Úrhellir Kanna
Úrslit Bilun í úri
Veiðivatn Rakspíri
Vera í samfloti Gera það í vatnsrúmi
Verkefni Höfuðverkjatafla
Viskustykki Heili
Vökustaur Hlandsprengur að morgni
Og svona með hlandspreng í huga lýk ég færslunni með þessari mynd
|
Segir hitamet slegið í Hveragerði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.7.2008 | 16:28
ÉG ER ÍSLENSKARI EN FJALLAGRÖSIN.
Sólarlandaferðir hafa aldrei verið mínar ær og kýr og ástæðan er sú að þar er einfaldlega of heitt. Það kemur einmitt best í ljós hjá mér á degi eins og þessum að hitinn er ekki eitthvað sem maður vill vera í dögum saman. Mér finnst þetta góða veður MIKLU BETRA EN GÓÐA VEÐRIÐ Í ÚTLÖNDUM, það er bara þannig, þetta er eitthvað svo séríslenskt, þó svo að kuldi sé meira okkar þema. Í dag er ég bara kát og ligg eins og vera ber á bakinu, eins gott að ég á lappa ekki borðtölvu, þá yrði ég að syngja "Nú liggur þungt á mér" Í dag er stjörnuspáin mín bara nokkuð brosleg, ætla að deila henni með ykkur:
Hrútur: Ef þú hefur undanfarið átt erfitt með að sjá fyrir þér þína björtu framtíð, þá birtir núna til. Láttu þig dreyma! Ekki þykjast vita hvað fólk er að hugsa í kvöld.
Svo nappaði ég þessum frábæru frösum hjá bloggvinkonu
Sumt fólk er einungis á lífi þar sem það er ólöglegt að drepa það.
Vertu alltaf einlægur, jafnvel þótt þú meinir það ekki.
Sá sem síðast hlær .... hugsar hægast.
Tími er það sem sér til þess að allt gerist ekki í einu.
Það er aldrei tími til þess að gera það rétt, en það er alltaf tími til að gera það aftur.
Við börðumst ekki alla leið á topp fæðukeðjunnar, til að verða grænmetisætur.
Aldrei kalla mann heimskan...láttu hann frekar lána þér pening.
Það er ekki ofsóknarbrjálæði ef þeir eru raunverulega á eftir þér.
Það er vonlaust að koma bjartsýnum skemmtilega á óvart.
Nostalgía er ekki það sem hún var hér áður fyrr.
63% af allri tölfræði er marklaus.
Allar fullyrðingar eru rangar.
Að drepa tímann ... eyðileggur það eilífðina?
Ef að æfing stuðlar að fullkomnun og engin er fullkominn .. afhverju þá að æfa?
Dagur án sólarljóss er eins og ... nótt.
Rauntími \"mínútu\" fer eftir því hvoru megin við baðherbergisdyrnar þú stendur.
Hrein samviska er yfirleitt afrakstur minnisleysi.
Það táknar óheppni að vera hjátrúarfullur.
Ef Nói hefði virkilega verið vitur, þá hefði hann drepið þessar tvær flugur.
Skák - viljandi eyðsla á gáfum.
Ekki giftast til fjár - þú getur fengið lánað á betri kjörum.
Leti er ekkert annað en vaninn að hvíla sig áður en þú verður þreyttur.
Lesblindir guðleysingjar trúa ekki á ðug.
Sérhver maður er virkilega hamingjusamur tvisvar yfir ævina; rétt eftir að hann hefur hitt fyrstu ástina sína, og rétt eftir að hann hefur yfirgefið þá síðustu.
Guð er dauður. - Nietzche
Nietzsche er dauður. - Guð
Að gera ekki neitt gerir þig þreyttan, þar sem þú getur ekki tekið þér pásu.
Allt er mögulegt, svo lengi sem þú veist ekkert um hvað þú ert að tala.
MINNI Á SKOÐANAKÖNNUN OG FULLT AF GÓÐUM NÝJUM LÖGUM Í SPILARA
|
Besta sumar frá 1944 |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.7.2008 | 15:35
Er þetta ekki jákvætt fyrir efnahagslíf þjóðarinnar??
Pínu mont, þessi fallegi ungi maður er systursonur minn.
Erlendir ferðamenn hafa aldrei verslað jafn mikið og í júlímánuði síðastliðnum.
Endurgreiðslur Iceland Refund til erlendra ferðamanna jukust um 55 prósent frá sama mánuði í fyrra. Það jafngildir því að erlendir ferðamenn hafi verslað fyrir um 100 milljónum króna meira í júlí á þessu ári en í júlí í fyrra.
Jónas Hagan, framkvæmdstjóri Iceland Refund, segist ekki hafa séð viðlíka aukningu í verslun ferðamanna áður.
Hann telur að skýringuna sé að finna í veiku gengi krónunnar.
"Krónan gerir það að verkum að matur og gisting er orðin ódýrari. Og ferðamenn hafa því meira aflögu til þess að versla," segir Jónas.
30.7.2008 | 12:21
Við Kata Zeta þurfum sko engar lýtaaðgerðir.
Þetta er eins hjá mér, þarf ekki í lýtaaðger. Þessi brjóstamynd segir ekkert, ég var nú þannig að ég var eins að framan og aftan en með aldrinum uxu þessar dúllur upp í vel ásættanlega stærð, fór úr 70a upp í 85c, svo við skulum ekki dæma stelpuna. Meðan hún hefur þessar fallegu varir en ekki lúður varir þá er hún flott. Hún er sko ekkert að skrökva.
Leikkonan Catherine Zeta Jones er stödd á Frönsku Ríveríunni ásamt 63 ára eiginmanni sínum, Michael Douglas, og tveimur börnum þeirra. Eins og myndirnar sýna hugar leikkonan mjög vel að útlitinu með því að forðast geisla sólarinnar.
Catherine hefur oftar en einu sinni tekið það fram að ekkert er hæft í orðrómi um að hún þjáist af lystarstoli eða hafi gengist undir lýtaaðgerðir þó að myndirnar sýni annað þegar barmur hennar er annars vegar.
Leikkonan hefur löngum verið þekkt fyrir afar kvenlegan vöxt og andstöðu við megrunarmaníu ungstyrnanna í Hollywood.
Catherine sagði í samtali við People tímaritið að hún hafi einfaldlega breytt um matarræði.
Áður fyrr hafi hún borðað brauð í öll mál, en þeir dagar séu liðnir. Nú borði hún skynsamlega og hreyfi sig.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
30.7.2008 | 10:48
Eitthvað svo íslenskt og saving Iceland legt.
Alveg dæmigert fyrir landverndarsinna í 101 og útlöndum. Þegar á að gera eitthvað í náttúrinni þá rjúka menn upp til handa og fóta og vilja stoppa, ekkert að spá í vilja heimamanna. Hvar voru mótmælendur í fyrra þegar verið var að virkja og byggja á Hellisheiði ?? ég sá þetta í hvert sinn sem ég keyrði í bæinn, duldist engum hvað var í gangi. Nú er verið að mótmæla en bara allt of seint, það er búið að byggja og virkja svo ég segi bara að það er of seint í rassinn gripið, eða eins og maður segir þá á ensku, too late in the ass grabbed 
Ég neita því alfarið að það sé "stóra planið" að við fæðumst hér á jörð og lifum án nokkurra ummerkja og hverfum svo til moldar á ný og hvað svo?? Okkur var gefið vit til að velja og hafna og frelsi til að framkvæma, læra og gera góða hluti. Ég treysti íslenskri þjóð til að taka eigin ákvarðanir.
ER EINHVER SEM GETUR SAGT MÉR HVAÐ ER SVONA FYNDIÐ VIÐ ÞESSA MYND??
|
Fossinn sem gleymdist |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
29.7.2008 | 22:26
ALVÖRU ÁSKORUN Á SIGGA STORM !!
Ég vil hér með skora á Sigga Storm að mæta í sjónvarpið annað kvöld í sumardressi og skilja jakkafötin eftir heima. Best væri ef hann mætti í bermuda skyrtu. Mikið assgoti held ég að strákurinn yrði flottur.
Þið kæru bloggvinir mínir, eruð þið ekki til að koma þessari áskorun áfram? Mig langar svo að sjá smá breytingu í þessu yndislega veðri.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Hlustið á lagið og dæmið svo Textinn er hér líka.
Þjóðhátíð '93.
Þar var ég – og líka þú.
Ölir menn í leit að illa girtum meyjum.
Planið að sverfa burt sveindóminn
á þjóðhátíð í Eyjum.
Sleitulaus hátíðahöld.
Hælalaus, ámigin tjöld.
Dalverpið alsett gallspúandi greyjum.
Planið að álpast á ástina
á þjóðhátíð í Eyjum.
Kófdrukkið kvennaval
kaffærir Herjólfsdal – þrjádagá ári.
Slíkt ber að nýta sér.
Því skaltu flýta þér
og reyna að góma mey
meðan þær geta ekki hlaupist burt úr Heimaey.
Yfirfullt unglingastóð
með ólyfjan og hverskyns viðbjóð
eigrar um dansgólfið í dauðateygjum.
Planið að skemmta sér þokkalega
á þjóðhátíð í Eyjum.
Í brekkunni ég brölti til þín
og ég bauð þér pent að skríðí tjaldið til mín.
Við enduðum í erótískum svefnpokaslag
á meðan Árni Johnsen jarmaði svona lag.
Að lokum rann víman úr mér
en hvorki fann símanúmer
né þig í hrúgaf úldnum sportsokkum og -treyjum.
Ég get ekki munað hver setti í hvern
á þjóðhátíð í Eyjum.
Kengdrukknar kellingar
kaffæra Herjólfdal – þrjá daga á ári.
Slíkt ber að nýta sér.
Því skaltu flýta þér
og reyna að góma eitt grey
meðan þær geta ekki synt á brott úr Heimaey.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn