Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Hörkunagli þarna á ferð. !!

Ég er að berjast við mun minni vindmyllur en þetta. Fékk góða skoðun hjá doksa í dag, hann veit ekkert frekar en áður hvað er raunverulega að, en hann sendi mig í röntgen og sneiðmynd, einu sinni enn og ætlar að leggjast yfir þær fram á fimmtud. og tala þá við mig, hann vildi drífa í þessu þar sem hann er að fara í sumarfrí. Ég plataði hann til að kíkja á öxlina á húsbandinu í leiðinni, hún lyftist ekki nema til hálfs, svo hann fór í röntgen og sónar og kom út með þær fréttir að hann væri óléttur og gengi með þríbura LoL afgreiðslustúlkna hló mikið af þessum hjónavitleysingum. Annars fáum við líka að vita með öxlina á fimmtud.

ÉG ER TÖLVULAUS FRAM Á FIMMTUDAG, fór með mína í bæinn og það verður ekki ferð heim fyrr en á fimmtud. smá framleiðslu galli sem var lagaður.  Reyni að samt að vera í smá bandi gegnum Bjarna tölvu en hann vill helst að ég hvíli mig, kannski geri ég það bara.  Verið góð, ég er góð.

 


mbl.is „Barðist við vindinn í 10 tíma"
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Sami halli á mér eins og venjulega. !!

Góðar fréttir, ekki satt??  Ég held að það megi hætta að flytja inn bíla, það er sko miklu meira en nóg til af þeim og þá hlýtur þetta að jafna sig mjög fljótt. 

Ég er með veikindahalla í dag, er á leið til Gauta Laxdal í tékk, vona svo sannarlega að hann geti gert eitthvað fyrir mig. 

elephant-8-days-old

Hér er svo krútt vikunnar að mínu mati.


mbl.is Dregur úr vöruskiptahalla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margt bar á góma þegar vinkona mín var hjá okkur !!!

Mikið óskaplega hafði ég gaman af heimsókn vinkonu minnar frá Sviss. Yndislegt hvernig kærleikur og vinátta nær langt út fyrir öll landamæri. Landamærum hefur reyndar fækkað verulega síðan við vorum saman að vinna í Noregi.  Þessir dagar sem við áttum hér saman voru ein samfelld hamingja, við sungum saman og rifjuðum upp gamla hluti frá því sumarið 1974. Bjarna mínum fannst óskaplega gaman að hlusta á okkur og mér fannst yndislegt að geta rifjað upp allt sem ég vildi án þess að þurfa að hafa áhyggjur af afbrýðisömum eiginmanni, hann þekkir mig betur en nokkur annar og á þessum árum var maður bara að njóta lífsins.  Við Brigitte fundum fullt af gömlum góðum lögum á Youtube sem við hlustuðum á þetta sumar, en eitt var það lag sem við gátum bara alls ekki fundið, Bjarni var reyndar búin að stinga upp á því að lagið hefði annað nafn og bað okkur að hlusta á önnur lög, en við vorum svo vissar um að við hefðum rétt fyrir okkur, að lagið týndist þar til daginn eftir.  Þá kom í ljós að lagið sem við sögðum að héti "Marie marry me" var auðvitað "Distand drumbs" svo við vorum ósköp ánægðar þegar við hlustuðum á það í gærmorgun. Nú er mín kæra vinkona flogin heim og ég vona svo sannarlega að við getum heimsótt hana næsta sumar. Hver veit?????

Hér er svo þetta fallega lag, endilega hlustið og njótið.


ÉG á klárlega stóran þátt í sigri Spánverja. !!

Málið er að ég var skíthrædd við að Þjóðverjar myndu hafa þetta, svo ég stillti upp þýska fánanum hér fyrir framan sjónvarpið og tók nokkrar öfugar setningar og reyndi þannig að snúa við því ferli að Þjóðverjar tækju þetta. Þetta hafðist hjá mér og hér ríkir mikil hamingja hjá okkur hjónum með sigurinn.

            471256A


mbl.is Spánn Evrópumeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður heldur ekki á sólinni í hendi sér.........

........... en það má láta sig dreyma.

sun1

sun4

sun6

Þetta var merkilegt þegar loftbrúin var á sínum tíma, er þó ekki svo gömul að ég muni eftir því en mikið ósköp held ég að mörgum þúsundum manna hafi verið létt.  Minnumst fórnarlamba stríðsins og sendum kærleikshugsun út í alheiminn. 


mbl.is Loftbrúarinnar minnst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víðar væntingar en í Vín. !!

Ég hlakka rosalega til kvöldsins. Búin að kaupa góðan mat sem ég ætla að elda handa okkur hjónum og svo verður sest yfir leikinn.  Ég spái Þjóðverjum sigri, en vona samt innst inni að Spánverjar vinni.  Besta að taka smá vúdú á þetta og sjá hvort það gengur upp.

Njótið dagsins í kulda og trekki, eða bara hverju sem landið okkar yndislega býður uppá.

IMG_0184

            MUNUM AÐ SÆLLA ER AÐ GEFA EN ÞIGGJA.


mbl.is Væntingar í Vín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hr. Erill er nú oftast á ferð þegar vakað er lengi frameftir, sérstaklega ef margir eru saman.

Það hefur verið líf og fjör í borginni eins og við var að búast.  Verst hvað það var kalt og blés á tónleikagesti. Þetta hefur samt verið gaman heyrist mér á fréttum og það er nú mikið gott. Eitt slys hér hjá okkur og það er slæmt. Nú verðum við bara að vona að það hlýni á ný, þetta gengur ekki lengur, frost og kuldi á miðju sumri.  Hvernig getur norðurpóllinn verið að bráðna á mega hraða á meðan hér eru 2-10 gráður ?  Gluggaveður í endaðan júní er nú frekar sjaldgæft, skaflar á Öxnadalsheiði á þessum tíma ætti að vera bannað. 

Eigið samt ljúfan dag öll og við verðum bara að vera inni og huga að hvort öðru, vera uppbyggileg í umræðunni og spila á spil, hlusta á tónlist og njóta lífsins.

Það örlar fyrir erli í Reykjavikurbæ

kona kysst að kveldi langt út við sæ.

Kuldinn blæs og bítur og nefin verða rauð

nú eru flestir heima og strætin orðin auð.

IMG_0334

Myndin hlýjar og hjarta mitt er fullt af kærleik.


mbl.is Mikill erill hjá lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örugglega skemmtilegt fyrir þá sem vilja hlusta á þessa tónlistarmenn !!

Ég er ótrúlega mikið öðrvísi með tónlistarsmekk heldur en aðrir. Ég hef gert heiðarlegar tilraunir til að hlusta á þessa listamenn og gefa þeim séns með að þetta sé góð tónlist.  Að mínu mati er þetta það ekki, en ég er bara ein af hundruðum þúsunda sem hrífast.  Gaman að það skuli vera útitónleikar í Reykjavík í svona góðu veðri og ég er viss um að þetta fer allt vel fram, enda náttúrusinnar rólindisfólk eins og ég sem elska náttúru Íslands.  Í mínum huga væri meira spennandi að komast á tónleika með t.d. Pálma Gunnars, enda syngur hann mitt uppáhalds Íslands lag. Vonandi koma sem fæstir á bílum til að menga ekki mikið og labba síðan eða taka strætó í frið og spekt.  Til hamingju með þessa tónleika Íslendingar. 

Falleg mynd af landinu okkar

IMG_0311


mbl.is Fjölmenni í Laugardalnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinskapur, væntumþykja, velferð, varanlegt, virðing og vandvirkni.

Það er margt gott sem byrjar á V.  Vinskapur er mér ofarlega í huga í dag.  Yndislegir dagar að líða þar sem ég hef haft gömlu vinkonu mína mér við hlið. Við unnum saman í Norge fyrir 34 árum og við heimsóttum hana 1995.  Ég hef breyst þessa daga, hressa káta stelpan sem arkaði um blómkálsakra í Noregi er mætt á svæðið. Við erum sammála um að það er eins og hafi opnast skúffa í heila okkar þar sem við gátum dregið upp minningar og tilfinningar sem við upplifðum saman fyrir öllum þessum árum.  Ég er léttar í skapi og yndislegar tilfinningar streyma í gegnum mig. Ég á eftir að lifa á þessari heimsókn lengi.  Við vorum með smá tónleikakvöld í gærkvöldi, íslensk tónlist var í hávegum höfð og við skoðuðum líka gamlar myndir, þvílík snilld að eiga svona kvöld.  Hér er svo mynd af okkur stelpunum

IMG_0399

Vil bara árétta að þegar ég fæ starfið hans Bill Gates þá verðið þið vinir efstir á blaði hjá mér og Doddi Brangelina parið verður á staðnum, lofa  Angelina  Jolie


mbl.is Í mál við J-Lo vegna hundsbits
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég sótti um starfið, fæ svar eftir helgi !!!

Þá erum við vinkonurnar komnar heim eftir yndislegan dag á ströndinni.  Það gerðist margt skemmtilegt og við sáum margt.  Best var þó þegar ég festi bílinn í sandi við veitingastaðinn "Hafið Bláa"

Þvílíkt stuð, ég hljóp smá spotta upp í veitingahúsið og bað um aðstoð. Stúlkan hringdi í björgunarsveitina á Eyrarbakka og ég skokkaði aftur niður að bíl, prófaði smá aftur og þá var náttl. skrattans bíllinn laus og ég keyrði eins og brjálæðingur upp á kaffihúsinu og afpantaði hjálpina.

Núna erum við að fara að borða á Menam, skelli inn mynd af okkur í kvöld.

Knús á línuna og þegar ég verð búin að fá starfið hans  Bill Gates, þá býð ég ykkur öllum í ferð umhverfis jörðína.

 


mbl.is Breyttir tímar framundan hjá Gates
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband