Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Grand "Skaufi" !!!

Í dag var formleg opnunarhátið á SKJÁLFTA bjórnum sem er framleiddur hér í Flóanum.  Það var reglulega gaman að skoða verksmiðjuna og þiggja léttar veitingar.  Ég fékk mér reyndar engan bjór bara meðlæti.  Er ekki í rétta gírnum.  Hér skín sólin og veðrið er gott.  Feðgar eru á leið í búð svo eitthvað sé nú til að bíta og brenna, annars gæti mér ekki verið meira sama.  Ég er eins og sombie, veit ekki hvenær ég snappa út úr þessu, en það hlýtur að koma.  Ætla bara að fara snemma að sofa í kvöld og reyna að vera hress á morgun.   Vona að þið hafið öll átt ljúfan dag og njótið góða veðrsins og hvort annars.  Love you guys og við verðum í bandi. 

Gleymdi að útskýra fyrirsögnina.  Það voru haldnar skemmtilegar ræður á opnuninni í dag og þar kom einn ræðumaður með þá tillögu að nú þyrfti að fara að framleiða íslensk viský og fannst honum að nafnið "grand skaufi" væri góð tillaga, því þarna upp í sveit er hæð sem kölluð er skaufinn.

I5302332

Skápahilla sem lagðist nærri á hlið, ég fæ mér bara nýja.


mbl.is Meginskjálftinn var 6,3 stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í dag er það svo skjálfti í fljótandi formi.!!

Góðan og blessaðan daginn.  Ég svaf eins og grjót í alla nótt, fann enga kippi eftir miðnætti og það er enginn kominn síðan ég vaknaði.  Búin að kíkja á allar fréttir og heyra í pabba og systir. Þau voru í bústað í Grímsnesinu í nótt og höfðu það gott, þar var ekki mikið skemmt, bara brotið gler og hlutir höfðu færst úr stað.  Óskar danski var hérna hjá okkur, hin börnin fórum heimt til sín.  Óskar hafði aldrei fundið jarðskjálfta áður svo honum brá nú dáldið þarna um 11 leytið í gærkvöldi þegar komu nokkrir með stuttu millibili. 

Eftir hádegið í dag verður formleg opnun á bjórverksmiðjunni í Ölvisholti og ætlum við að fara þangað.  Veit nú samt ekki hvort ég fær mér nokkuð, en það verður gaman að hitta hresst fólk og spjalla, skemmdur voru nær engar það uppfrá, það munar svo um hverja 100 metra í fjarlægð frá upptökum.

Ég sá í fréttum að einhver læti hafi verið hér í bæ í nótt, við skulum ekki dæma fólkið, það er skrítnar tilfinningar sem grípa um sig í svona ástandi. 

Takk enn og aftur fyrir allan stuðninginn og falleg skrif til mín og minna.   Njótið dagsins.

453581A


mbl.is Þjónustumiðstöðvar opnaðar í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er orðið alveg nóg !!

Ég var komin í rúmið áðan og þá kom einn góður svo ég fór á fætur og kíkti í tölvuna, týndi niður eitthvað brothætt og fór upp í aftur, var búin að liggja í 5. mín og kom þá ekki annar yfir 5.  Held ég verði að vera á fótum í nótt, er samt aðframkomin af þreytu, ætla að reyna einu sinni enn.

Verð að deila þessari dásamlegu stjörnuspá dagsins í dag, með ykkur.

HrúturHrútur: Líðan þín er of tengd líkamanum. Það er krúttlegt hvernig hárið eða kílóafjöldinn getur alveg sett þig út af laginu. Slakaðu á. Þú ert mannlegur.

004_kotiki

              VONA AÐ ÉG GETI SOFIÐ SVONA VÆRT Í NÓTT.


mbl.is Tveir eftirskjálftar um 4 að stærð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum komin heim í íbúðina okkar. MÖGNUÐ VIÐBÓT OG GÓÐ !!

ÞEGAR ÍRIS VAR KOMIN OG BYRJUÐ Á FULLU AÐ ÞRÍFA, ÞÁ BIRTIST HELGI FANNAR OG BYRJAÐI LÍKA SVO HRINGDI DYRASÍMINN OG VIÐ OPNUÐUM OG BIRTIST ÞÁ EKKI DANSKI SONURINN Í DYRUNUM, LÁ VIÐ AÐ ÞAÐ LIÐI YFIR OKKUR GÖMLU, ÓSKÖP VAR LJÚFT AÐ SJÁ HANN, NÚ ERU ÞAU ÞRJÚ AÐ GERA ÍBÚÐARHÆFT FYRIR NÓTTINA OG ÓSKAR VERÐUR HJÁ OKKUR, SÓLVEIG SYSTIR HANS Í LONDON OG HANN ÁKVÁÐU AÐ ANNAÐ ÞEIRRA YRÐI AРKOMA HEIM OG HANN FÉKK FLUG TIL AKUREYRAR Í MORGUN OG SVO SUÐUR OG VAR SÓTTUR Í BÆINN AF VINUM SÍNUM, NÚ ER ÉG AÐ VERÐA ALVEG RÓLEG, EN ÉG Á ERFITT MEÐ AÐ TALA, VEIT EKKI AFHVERJU, EN AFÞVÍ AÐ FJÖLSKYLDAN ER ALLTAF SVO GAMANSÖM, ÞÁ FINNST ÞEIM ÞETTA BARA ALLT Í LAGI   Get Well Soon Get Well Soon 

 

Hér sitjum við algjörlega dofin, rosalega líður okkur einkennilega, horfum á skemmdirnar og getum ekkert gert.  Erum auðvitað bæði að drepast í bakinu og getum þessvegna ekki beygt okkur.  Dætur Bjarna eru á leiðinni austur að hjálpa okkur.  Ég býst við að við sofum hér í nótt.  Blokkin virðist vera vel byggð, ekki ein einasta sprunga sjáanleg.  Við erum búin að fá vatn til drykkjar það var gefins út í þjónustustöð og fengum kaffi og brauð.  Ég á voða erfitt með að tala, hlýtur að vera eitthvað sjokk.  Sá í dag að ég er smá meidd á handlegg, hef lamist utaní þegar við hlupum út.  Takk fyrir allar yndislegu kveðjurnar og símtölin í gær sem lentu inn á talholfinu, gat ekki hlustað á þau fyrr en í morgun. 

Hér er ein mynd úr tölvuherberginu,  við eigum að mynda allt og safna saman því sem er brotið.

Heyrumst og eigið góða helgi. 

I5302339


mbl.is Ætlar ekki að gista innanhúss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fann þetta á netinu, man varla eftir þessu, var í panik.

Óli Tynes skrifar:

„Ég hélt að húsið myndi hrynja og að við myndum öll deyja," sagði Ásdís Sigurðardóttir, sem býr í fjölbýlishúsi að Fossvegi 2 á Selfossi, í samtali við Vísi.

-Það er allt ónýtt í minni íbúð og það er sama að segja um aðrar íbúðir í húsinu. Við erum svo hrædd. Við erum öll hérna úti og þorum ekki að fara inn aftur. Heldurðu að það sé óhætt að fara inn aftur ?

-Það koma sjálfsagt einhverjir eftirskjálftar, en Ásdís, hvernig er utandyra, einhverjar skemmdir ?

-Ég hef ekki séð það ennþá. Ég veit bara að toppurinn á Ingólfsfjalli bara hvarf. Það var rosalegt brúnt moldarský sem stóð upp af honum.

-Við eigum húsdýr inni, þau eru áreiðanlega hrædd. Heldurðu að það sé óhætt að fara og sækja þau ?

-Já, já það er held ég engin hætta á að húsin hrynji.

-Þá ætla ég að fara inn. Hugsiði um okkur. Ekki láta okkur vera ein.

-Nei, nei Ásdís mín. Þið eruð ekki ein. Það eru björgunarsveitir á leiðinni og við fylgjumst með ykkur.

-Æ þakka þér fyrir, við ætlum þá að fara inn.

 


Eg er heil á húfi en skíthrædd í borginni

Ég sit hér í lánstölvu hja dottir minni í Reykjavíkurborg Rosalega líður mér illa.  Búin að sofa smá en dreymir tóma dellu.  Langar heim að athuga ástandið.  Verð í bandi aftur, veit varla hvað er upp eða niður á mér. 

mbl.is 28 slösuðust í skjálftanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er óslösuð og á lífi.

Hæ elskurnar. Sit hér í lánstölvu hjá vinafólki úti í garði á Selfossi.  Þetta er hreint út sagt hryllilegt ástand. Vorum upp í íbúð þegar skjálftinn reið yfir. Þvílíkt og annað eins hef ég aldrei upplifað.  Sjónvarpsmyndir hvað???? þetta var verra en allt. Við þustum niður fjórar hæðir og út í bíl þar sem fólk safnaðist saman og beið eftir fréttum.  Hér eru þyrlur á ferð og fullt af eftirskjálftum.  Þegar ég leit upp í Ingólfsfjall 5 mín eftir ksjálftann þá var það alveg mökkað í moldryki.  Þegar 15 mín voru liðnar frá skjáftanum drösluðumst við upp á fjórðu og náðum í kisu greyið. Hún var þar í losti innan um brotna hluti og annað.  Íbúðin okkar er vægast sagt í rúst.  Skrítið hvað ég er samt alveg rólegt yfir því, mér finnst bara svo gott að við komumst út slysalaust.  Þetta var ein n  nú var skjálfit   hræðilegt

ok. verð í bandi seinna.  


mbl.is Skelfingarástand á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Suðurlandssjkálfti

Fréttaritarinn hér frá London...

Hjónin og kisi eru heil á húfi. Sitja úti í garði hjá vinafólki þar sem enginn má vera innandyra á Selfossi. Fallega íbúðin þeirra er í algeru smalli, glerbrot útum allt og húsgögnin búin að skoppa milli veggja.Frown

Ömurlegt að vera stödd í London og geta ekkert gert Frown. Var að tala við brósa í Kaupmannahöfn og hann langaði nú helst bara að taka næsta flug heim til að vera með hjónunum. Sjáum hvernig málin þróast.

Það var annars ágætt hljóðið í frúnni miðað við atburði.  Hún kíkir örugglega hér inn þegar róast og hún sest við tölvu. Ég vildi bara setja inn stutt "fréttainnskot" hér þangað til.

kv. Solla 


Best að drífa sig í opinbera heimsókn. !!

Ég átti lögheimili í Hafnarfirði í 20 ár svo kannski maður ætti að drífa sig í heimsókn.  Mér fannst rosalega gott að búa þar og leið vel með börnunum mínum, sérstaklega á meðan þau voru í Engidalsskóla, það var einhvernvegin allt öðruvísi eftir að þau fluttust í Víðistaðaskóla, það var mikið stærri skóli og þar þekktu þau ekki alla eins og í gamla skólanum, en þetta voru reglurnar þá, flytja sig yfir árið sem þau fermdust.  Það var á margan hátt líkt og að búa í litlu bæjarfélagi að vera í Hafnarfirði.  Ég kynntist fullt af skemmtilegu fólki og átti góða vini.  Árið 2000 fluttum við svo hingað austur og er ég mikið ánægð með það. Í dag finnst mér Hafnarfj. vera orðinn allt of stór og úr sér vaxinn. 

ÉG ÓSKA HAFNFIRÐINGUM INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN.   Happy Birthday  Happy Birthday Happy Birthday 


mbl.is 100 ára Hafnarfjörður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eina góða við örorkuna þ.e.a.s. ef maður er ævifélagin, þá er ekki hægt að segja manni upp. !!

Svona mitt í öllum þessum andskota þá er mín eina huggun að ég er orðin ævifélagi hjá Trst. og þeir geta ekki sagt mér upp svo ég mun fá þessar 50.000 krónur þar til ég verð ellismellur.  Lífeyrissjóðirnir virðast vera sjálfstæðari og geta gert það sem þeim sýnist held ég.  Ég ætla að vera í tövlunni í dag svo það verður bloggað með látum.  Veðrið er reyndar skruggu gott en þar sem ég get ekki setið og sólað mig verð ég útafliggjandi í tölvunni.  Ætla að fylgjast með jarðarförinni.
mbl.is 28 sagt upp hjá JB Byggingafélagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband