Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Hef lengi sagt og segi það enn, umbúðirnar eldast, ekki innri maður !!!

Yndislegir eldri borgarar að skemmta sér.  Ég er handahlaupum hér og þar.  Bjarni minn ætlar að hjálpa stóru systir að koma sér fyrir í nýrri íbúð, við gistum hjá henni. Hún á engan kall og kona getur bara ekki allt ein svo við ætlum að vera hjá henni og svo náttl. fylgist ég með elsku pabba og verð hjá honum líka.  Yndislegt veður í dag en rosalega er hvasst, það er þó allavegana ekki snjór.  Farið vel með ykkur og njótið frídagsins á morgun.  Kemst kannski í tölvu í kvöld.

Smá lesning, holl og góð:

 

Friends  are like balloons; once you let them go,
you might not   get  them back.
Sometimes we get so busy with our own lives and
problems that we may not even notice
that we've let them fly  away.
Sometimes we are so caught up in who's right
and who's wrong that we forget what's right and wrong.
Sometimes we just  don't realize what real
friendship means until it is too late.  
I don't want to let that happen so I'm gonna tie you to my 
heart so I never lose you. 
Tell this to all your friends including me
and see how many you get back.
Even tell it to  your balloons that you think
have flown away forever.
You may  be surprised to see it return.

!cid_F297E5A4BD564036A20572710DD74C49@LiljaPC


Varalitirnir að koma í hús !!

Hér sjáið þið fréttina um varalitina sem ég var að bjóða ykkur.  Ég heldu utan um pantanir ykkar og sendi ykkur póst þegar ég verð tilbúin að senda ykkur litina.  Ef það eru fleiri þarna úti sem vilja styrkja gott málefni þá endilega sendið mér mail á bella@simnet.is .  Ég er að  fara í bæinn aftur, kemst kannski í tölvu á fimmtud.  Hafið það sem allra best og njótið frídagsins á fimmtud.

Við kisa erum búnar að kúra svona saman, ég er dúkkan   Glitter Princess 

!cid_003e01c8a14c$11b28e00$0701a8c0@your9b3ec151ed

 

SEX mikilvægustu orðin eru:

Ég viðurkenni að ég gerði mistök.

FIMM mikilvægustu orðin eru:

Þú stóðst þig mjög vel.

FJÖGUR mikilvægustu orðin eru:

Hver er þín skoðun?

ÞRJÚ mikilvægustu orðin eru:

Vertu svo væn.

TVÖ mikilvægustu orðin eru:

Takk fyrir.

EITT mikilvægasta orðið er:

Við

Það  orð sem skiptir minnstu máli er  ÉG.

Lausl.þýtt af blaði sem ég fann með kökuuppskriftunum hennar mömmu.


mbl.is Varalitir seldir til styrktar Krabbameinsfélaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver gerði Hveragerði að Hvergigerði ?????

Mér svona datt þetta í huga seinnipartinn þegar ég keyrði framhjá Hveragerði á leiðinni heim. Skil bara ekki hvað þeir hafa að fela á þeim bæ.  Nú eru moldar manirnar orðnar það háar að maður sér ekki bæinn fyrr en komið er austur fyrir Eden.  Hver er ástæðan? er þeir að fela sig eða hvað?   Heiða fjöryrkja stelpa, kannaðu málið, annars er ég komin heim í bili, ætla að sofa eina nótt í rúminu mínu. Pabbi dúlla er enn lasinn en ekki verri bara svona eins, ég fer aftur til hans á miðvikudag.  Ég á voða góða systir sem býr rétt hjá honum en hún er í smá fríi erlendis og þá er hann eitthvað svo einn finnst mér ef ég er ekki nálægt. Þessi systir mín er 5 árum eldri en ég og hefur alltaf búið nálægt pabba og mömmu og hún hugsar alveg rosalega vel um pabba, það er gott að eiga svona góða systir, en hún þarf frí eins og aðrir. 

!cid_3837D06868954D53B5FDE977FE7368C9@LiljaPC ÉG er eiginlega í algjöru krúttkasti eftir að hafa lesið öll kommentin frá ykkur. Takk innilega fyrir, ég veit af reynslunni að góðar hugsanir frá ykkur hjálpa pabba, alveg eins og þið hafið hjálpað mér í vetur.  Ég kíkti aðeins í Kolaportið í gær með mágkonu minni, það tók mig 7 og hálfa mínútu að storma í gegn, þetta er sko ekki ég. Eina sem var áheyrilegt var Þorvaldur Halldórssona að syngja og spila í kaffistofunni og þar var fullt af fólki. Ég heyrði reyndar líka í honum á laugardagskvöldinu þegar hann var að skemmta í félagsheimili eldri borgara í Gullsmára þar sem pabbi býr. Það var svokallað "skvettuball" þar á bæ og ég sofnaði við opinn glugga og sveif inn í draumalandið við ljúfa tóna. Semsagt liðið í gömlu umbúðunum var að djamma en ég "selpan" farin í rúmið. Þegar ég er hjá pabba þá sofna ég bara á sama tíma og hann, lang einfaldast.  Ég kíkti líka aðeins í Kringluna og Smáralind og svo fórum við mágkona mín að leiði mömmu, það er að vora þar eins og annarsstaðar og bráðum getum við farið að setja sumarblóm, nú eru það bara rósir og ljós. Á leiðinni heim til pabba datt mér allt í einu í hug að kíkja í Pier í nýja turninum, þar fann ég sko búðina mína.  Ég missti mig algjörlega, þvílík krúttbúð, veinaði alveg uppyfir mig, ó mæ god, eins gott að húsbandið er ekki með !!! það var útsala á glösum 90 kr.stk. af geðveikt flottum glösum og svo fann ég fleiri fíla í safnið, ég á sko örugglega eftir að fara oftar í þessa búð. 

!cid_023701c89fcb$30eb3ec0$4001a8c0@D485CR1J

Allavegana þá er ég á leið í kojs með krúttinu mínu, veit að það verður gott að sofa heima í nótt.  Veit ekki hvort maður segir að glasið sé hálf tómt eða hálf fullt þegar maður notar svona könnu, eða hvort þetta sé ekki bara hreinlega að vera klofinn og geta ekki ákveðið sig hvað maður vill, eða þá að allir fái jafnan hlut.   Eigið ljúfan morgundag og reyndar vikuna alla, veit ekki hvenær ég blogga næst, but I love U guys all. 

 

Góða nótt og verið góð við ykkur sjálf og alla hina, og þið fyrirgefið mér hvað ég er lítið að kommenta þessa síðustu daga.

Svartar holur í geimnum og/eða hjartanu !!

 

bilde Hópur vísindamanna við háskólann í Boston hefur sent frá sér nýjar upplýsingar um svartar holur í geiminum. Þar kemur meðal annars fram að holur þessar senda frá sér straum af ögnum á næstum því ljóshraða. Áður hefur verið talið að holur þessar sogi að sér allt efni í nágrenni sínu og að ekkert sleppi í burtu. Vísindamennirnir segja að agnir þessar eigi sér uppruna í segulsviðinu sem umlykur holurnar.
Þrátt fyrir þá staðreynda að svört hola hefur hreiðrað um sig í miðju Vetrarbrautar okkar er lítið sem ekkert við um þær. Hinsvegar hefur vísindamenn lengi grunað að fyrrgreindur agnastraumur kæmi frá þeim á þessum mikla hraða. Það hefur nú verið staðfest en notast var við nokkra af öflugustu stjörnukíkjum heimsins við þessa rannsókn.

Stolin fræði hjá mér núna, þetta er eitt af því sem heillar mig og eins og lætin hafa verið undanfarið í fréttum, þá finnst mér slakandi að hugsa um vetrarbrautina og svartar holur.  Held að það sé betra að hafa svartar holur í geimnum, frekar en í hjartanu.

Langar að minna á að ef við þekkjum einhvern sem líður illa, reynum þá að hjálpa og fylla upp í tómarúm sem getur hafa myndast í hjarta viðkomandi.

Er að fara í Kópavog til pabba snemma í fyrramálið, hann er lasinn og ég verð hjá honum í nokkra daga, vona að allt urlist ekki á fréttavsíðum eða hér í bloggveröldinni á meðan, ætla að skilja tölvuna eftir heima. 

Hér er mynd af megakrútti  !cid_A7ADA980DFFF491BAE276F3F863975A4@LiljaPC tekin af vefnum


Hann verður kærður það er ekki spurning, en eiga ekki félagar hans að standa með honum.??

!cid_003c01c8a14c$11b28e00$0701a8c0@your9b3ec151ed

Við erum mis mikil krútt við fæðingu, öll eigum við þó sama rétt til að vera þátttakendur í lífinu. Ekki er samt öllum gefinn séns og alls ekki alltaf sami sénsinn.  Okkur langar til að vera rík, vinamörg og að vera elskuð.  !cid_000e01c89fde$bdadcfe0$0701a8c0@your9b3ec151ed   Stundum kemur eitthvað uppá og við erum eins og á varðbergi gagnvart öllu í kringum okkur.  Stöndum á tá og fylgjumst með og æsumst kannski svolítið upp í hita leiksins, erum eins og strengdur þráður.  Við missum okkur kannski í hita leiksins og gerum eitthvað sem við óskum síðan eftirá að við hefðum látið ógert.  Þá er gott að eiga vini sína að og vita að þeir styðja mann í vitleysunni.  Kannski vildi forsprakki bílstjóranna ekki hafa árásarmanninn með sér í liði, en þegar fólk tekur sig saman í hópum hvort sem það eru bílstjórar eða fjöryrkjar, þá sorterum við ekki  hverjir meiga vera með og hverjir ekki. 

!cid_001401c89fde$bdadcfe0$0701a8c0@your9b3ec151ed

Nú er Davíð enn að berjast við Golíat og margt hefur verið gert og sagt. Vonandi verður hægt að róa hlutina niður þannig að ekki verði meiri skaði. Ég er sammála því að bensínið er dýrt og olían hræðilega dýr en hvað verður gert? veit ekki, hef ekki trú á því að þetta verði lækkað að neinu gagni fyrr en olían lækkar á heimsmarkaði.  Það sem kemur sér best fyrir bílstjórana er að hvíldartíma þeirra verði breytt og passi betur við okkar séríslensku aðstæður.  Allavegana finnst mér þetta verið komið út í vitleysu eins og hlutirnir eru í dag.

ATT00010 Við skulum reyna að hrista þetta af okkur og svo verðum við að muna og viðurkenna að á meðan hlutirnir voru í lagi og nóg var af lánsfé, þá voru býsna margir sem tóku meiri lán, bíl á afborgunum og jafnvel fellihýsi eða ferðabíl, ferðuðumst til útlanda á kortunum og keyptum á raðgreiðslum, hækkuðum svo yfirdráttinn í takt við hækkandi greiðslukorta afborganir og svo núna þegar hlutirnir eru erfiðari þá kennum við hverjum um??? ríkisstjórninni.  Var okkur ekki kennt að í góðæri ætti maður að safna til mögru áranna? verðum við þá ekki að axla hluta af þessu öllu sjálf??   það er andskotakornið ekki alltaf hægt að kenna öðrum um. 

ATT00002 Hysjum nú upp um okkur buxurnar, herðum á ólinni og látum þetta ganga upp.  Okkur var gefið vit og val og nú er bara að nýta sér það.  Stígum í skóna og stöndum þetta af okkur, við höfum reyndar ekki öll sömu kosti en vilji og þrek kemur okkur af stað.

 

!cid_025301c89fcb$30edafc0$4001a8c0@D485CR1J

 

 

 

 

Allavegana er gott að byrja á því að setja nýjan botn í pappamálin og þá fara fleiri að brosa.

Eigið virkilega ljúfa helgi elskurnar mínar, sumarið er handan við hornið og lífið er gott þrátt fyrir allt og allt. Setjið ykkur það takmark að gera eitt góðverk í viku, gefa einhverjum sem á minna en þið eitthvað sem viðkomandi vantar, eða heimsækja einhvern sem er einmana.

!cid_004701c8a14c$11b28e00$0701a8c0@your9b3ec151ed


mbl.is Líklega ákærður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef vetur og sumar frjósa saman þá.... en ef menn berja sig inn í sumarið, verður þá stuð??

Bara svona með annan vinkil á þetta.  Ótrúlega margir búnir að blogga við þessa frétt.  Mér finnst nú varla hægt að afneita einum bílstjóra úr hópnum, ef hann hefur staðið með þeim og verið með þeim frá upphafi, en hvað veit ég svosem.  Er sem fyrr fylgjandi því sem bílstjórar hafa verið að gera en atburðurinn í gær fór yfir strikið að mínu mati. 

Annars hef ég bara ekkert farið út í dag, letihaugur algjör og drusludraugur, ætla að vera duglegri á morgun, maður verður að labba alla daga.  GLELÐILEGT SUMAR ENN OG AFTUR OG NJÓTIÐ ÞESS

Vísukorn eftir Þuru í Garði: 

Heyrðu mig góði guð því  gerir þú þennan ófögnuð

Að fylla heiminn með frosti og snæ í maí.         Svo er bara að vona að ekki snjói í maí. LoL

Eldri dama gengur inn í Gull og Silfur á Laugavegi og fer að skoða í kring um sig í rólegheitunum.
 
 Hún sér gríðarlega fallegt demantaarmband og gengur að sýningaborðinu til að skoða það nánar.
 
 Þegar hún svo beygir sig yfir borðið til að sjá betur, prumpar hún óvart.
Hún fer mjög hjá sér og lýtur vandræðaleg kringum sig til að athuga hvort nokkur hafi tekið eftir þessu litla slysi hennar og vonar jafnframt að það komi ekki einhver sölumaður akkúrat meðan lyktin svífur um hana.
 
Hún snýr sér varlega við og til að fullkomna martröðina, stendur ekki bara sölumaður beint fyrir aftan hana !?
 
 
Svellkaldur sölumaðurinn sýnir fullkomna fagmennsku þegar hann heilsar eldri dömunni og spyr hvort hann getir aðstoðað hana á einhvern hátt?
 
 
Mjög vandræðaleg, vonar sú gamla að sölumaðurinn hafi ekki staðið fyrir aftan hana einmitt á þessu viðkvæma augnabliki rétt áður, spyr hún, hvað kostar svo þetta fallega demantaarmband?
 
 
Hann svarar,
 
Kæra frú, ef að þú prumpaðir bara yfir því að lýta á það, áttu eftir að skíta upp á bak þegar þú heyrir verðið !! 
 


mbl.is Sturla: „Ekki á okkar ábyrgð"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sungið í bíl og ekkert stress !!!

Þessi fallega litla stúlka heitir Elena Dís og er að verða 7 ára.  Hún er dóttir vinkonu dóttur minnar, Elena lætur mótmæli ekki trufla sig og syngur af hjartans list.  Verð lítið í bloggheimum, er með gesti,  

vil nota tækifærið og þakka ykkur fyrir frábærlega skemmtilegan bloggvetur OG ÓSKA YKKUR ÖLLUM GLEÐILEGS SUMARS.

Þeir segja að það muni rigna, ætla að ná mér í einkaleyfi á þessa regnhlíf 

!cid_025101c89fcb$30edafc0$4001a8c0@D485CR1J


Þó svo ég hafi stutt bílstjóra hingað til þá er ég núna að efast !!

Þetta er of langt gengið, hættið að nota þessa aðferð, þetta er of langt seilst. Táragas og grjótkast er ekki viðeigandi í mótmælum. 

hellisheidi_2

Er satt að bílstjórar vilja ekki hvíldartímann því þá hafa þeir ekki eins góð laun ? en hvað höfum við að gera með dauðþreytta bílstjóra á vegum landsins ?  slysahættan er gríðarleg og svo er stór hópur þeirra í símanum, allavega á leiðinni Selfoss-Reykjavík ég tala af eigin reynslu


mbl.is Mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er nú of langt gengið???

Gott og vel, það er verið að mótmæla og pressa á stjórnvöld að lækka álögur á bílstjóra og breyta hvíldartíma ákvæðum ofl. Nú spyr ég??  er verið að mótmæla á réttum stöðum??  er ekki eitthvað annað sem hefur meiri og sterkari áhrif á stjórnmálamenn??  Segjum sem svo að mikið veik manneskja sé í sjúkrabíl á leið til borgarinnar og verði fyrir 5.mín töf við Rauðavatn vegna þessara mótmæla ?? hvað þá??  ég yrði ARFA vitlaus ef það tengdist mér, en þið??  jú, jú ég veit, það er alltaf eitthvað sem getur tafið, það getur sprungið á bílnum, það getur orðið slys á leiðinni sem hugsanlega tefur bílinn, en það eru ófyrirséðar stærðir, þetta er ákveðið.  Takið ykkur nú saman og lokið leiðum heim að heimilum stjórnmálamanna og vitið hvað gerist þá.  Mín tillaga, hvað segið þið hin. ????

                hellisheidi_2


mbl.is Suðurlandavegi lokað á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnaður söng- og eftirhermu fugl !!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband