Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
31.12.2008 | 22:01
2009 GLEÐILEGT NÝTT ÁR 2009
Lífstíll | Breytt 1.1.2009 kl. 00:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
31.12.2008 | 21:55
Mér fannst hann góður og hlakka til að fara á landsfund þar sem ég segi NEI við ESB.
Ég hlustaði af athygli á Geir og var ánægð með hann, það er bara mín skoðun og öllum frjálst að hafa skoðun á því.
Fréttaannáll stöðvar tvö var góður að vanda og passlega langur. Nú er ágætt að rölta smá um áður en skaupið byrjar, geri mér væntingar um fjör og grín, kemur í ljós.
Með mótmælin í dag, þá varð ég fyrir vonbrigðum, en tel að þarna hafi eins og áður fámennur hópur öfgafólks eyðilagt mótmæli sem hefðu getað orðið góð í lok árs. Við verðum að vanda okkur betur, sá Katrínu og Hólmdísi í mynd hjá stjórnarráðinu. Þær standa sig með mætinguna stelpurnar.
Farið vel með ykkur í kvöld og engann sprengju glannaskap. Lofa, lofa. 
|
Brýnt að herða reglur um hegðan á fjármálamarkaði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
31.12.2008 | 11:17
Stóð ég út í tunglsljósi, stóð ég út í skóg....
Andartakið og Eilífðin
Eitt andartak sem ungum var þér búið
mun óma alla tíð í vitund þinni.
Og því verður ekki um eilifð undan flúið,
því aldrei mun það líða þér úr minni.
Það vitjar þín og verndar þótt þú farir
sem vökul minning liðins ástarfundar,
því andartakið er eilífð meðan það varir
og eilífðin er bergmál þeirrar stundar.
Höf: Sölvi Björn Sigurðarson
Þá er komið að því, enn eitt árið að líða og nýtt gengur í garð, uppfullt af vonum og væntingum. Árið 2008 hefur einkennst af þeirri nýju tilfinningu að eiga ekki móðir á lífi, það hefur tekið mig allt árið að átta mig á þeirri staðreynd. Í nær 52 ár var ég svo heppin að hafa mömmu innan seilingar og njóta kærleiks hennar og umhyggju endalaust. Það er það sem gerði mig svo sterka. Eftir að hún lést hef ég notið fjarsambands við hana og finnst hún alltaf vera nálægt mér en ennþá líður ekki sá dagur að ég ætli ekki að taka upp símann og heyra í henni. Pabba hef ég enn hjá mér og finnst mér það ómetanleg gæði að hafa notið slíks kærleiks og heppni að eiga hann að allt mitt líf. Nú er að koma að því að hann fari á elliheimili og er hann mjög ánægður með það, hann tekur alltaf hverjum kafla í lífi sínu sem nýjum möguleika, miða við aðstæður. Samband mitt við vini og fjölskyldu hefur verið yndislegt og höfum við hjónin átt ótal góðar stundir í góðra vina hópi, ótrúlega margar miða við hvað ég hef verið upptekin af rúminu mínu, eftir þessar þrjár aðgerðir sem ég er búin að fara í þetta árið. Börn og barnabörn og tengdabörn hafa veitt okkur meiri gleði en hægt er að fara fram á, en í þeim efnum hugsa ég að maður uppskeri eins og maður sáir, en þó hefur hvert barn sitt sjálfstæði svo þetta er líka bara einskær heppni.
Jarðskjálftinn í maí, setti nú smá strik í reikninginn hjá mér, ég var lengi hrædd við hávaða og skelli en held ég sé að verða nokkuð góð, vonast til að þurfa ekki að upplifa þetta aftur, en það fer sem fer. HEKLA blessunin er róleg ennþá, þó svo ég hafi verið tilbúin með myndavélina hér við gluggan í fleiri mánuði, ég er alveg hætt að reyna að spá fyrir um hvenær hún spýtir úr sér. Við fórum í eina utanlandsferð og hittum góða vina og ættingja, það var óskaplega gaman, við höfðum ekki farið út í 7 ár.
Ekkert var ferðast um Ísland og sakna ég þess, við ætlum að bæta okkur það upp á nýju ári. Það er fullt af yndislegum bloggvinum út um allt land sem gaman væri að hitta.
Fullt af litlum börnum er á leið í heiminn í fjölskyldunni, systir mín á von á tveim barnabörnum, hennar sjöunda og áttunda og við eigum von á tveim líka því fimmta og sjötta, mikil tilhlökkun í gangi.
Ég vil þakka ykkur kæru bloggvinir fyrir yndislegt ár og allan stuðning og hressleika sem þið hafið sent mér þegar ég hef þurft á því að halda, það er gaman að vera góður bloggari og eiga góða vini. Njótið lífsins á nýju ári og megi hamingjan hampa ykkur sem aldrei fyrr. Guð blessar okkur öll.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
30.12.2008 | 14:30
Þá er einboðið að segja upp öryrkjum sem þurfa á þessari starfsemi að halda, ef hægt er að leggja niður þjónustuna má þá ekki leggja niður sjúkdóminn??
Nei, segi bara svona. Hefði einmitt haldið að nú þegar harðnar á dalnum þurfi einmitt að auka þessa þjónustu svo fólki sé hjálpað áður en það lendir í pyttinum djúpa sem þunglyndi og aðrir fylgifiskar tengdir því leggja fólk af velli. Annars er svo ótalmargt sem mér finnst beyglað og bogið í heilbriglðiskerfinu þessa dagana. Ég er reyndar ekki að tala um gagnvart sjálfri mér, hef verið heppin með lækna þó svo þeir geti ekki læknað mig, þeir eru að reyna, held ég, en ekki gengur sem skildi, sjálfsagt er það mér sjálfri að kenna, veit ekki. Allavega, endurtek ég fyrri ummæli mín um það að fyrst á að skera niður 50% í utanríkisþjónustu áður en skorið verður niður í heilbrigðisgeiranum.
|
Uppsagnir á geðdeild FSA |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
29.12.2008 | 16:57
Sjáið myndina hér.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
29.12.2008 | 12:53
Er þá ekki málið að taka á honum stóra sínum og tu tu í lófana??
Sé ekki aðra leið í stöðunni. Ósköp verð ég nú samt að teljast heppin manneskja. Er svona meðaljóna sem var ekki með neina áhættu í gangi, nema íbúðalánasjóðinn, en ég hef aldrei hugsað svo langt að ég geti borgað þau lán upp, ef ég næ að borga af skuldum mínum þá er ég sátt. Við erum svo heppin að börnin okkar eru í góðum málum, kannski smá erfitt einhversstaðar en þá erum við líka til taks að hjálpa ef þarf. Þegar maður er orðinn fimmtugur og hefur upplifað sorgir og gleði og situr í dag eins og blóm í eggi, elskuð upp fyrir bæði eyru af eiginmanni og börnum, þá er ekkert nema gleði í hjarta mínu. Ég finn samt óskaplega til með öllum þeim fjölda sem hefur það skítt og ef heilsa leyfir ætla ég að leggja mitt af mörkum í hjálparstarfi á næstu árum.
Nú er árið að renna út og það styttist í að börnin mín fari til útlanda aftur, kannski getum við heimsótt þau á næsta ári, það væri gaman, en allavega geta þau komið til okkar. Það styttist í að pabbi gamli komist á elliheimilið og verður það óskaplega gott fyrir hann, hann er búinn að vera þvílíkt duglegur að vera einn heima og ég dáist að honum, tekur hverjum kafla í lífi sínu af æðruleysi.
Ein jólagjöfin okkar var risastór, ég var búin að segja ykkur að það er von á barnabarni í febrúar og svo fengum við að vita að það er von á því sjötta í júlí/ágúst, segi ekki alveg strax hver er bomms en þetta er svoooo gaman.
Annars er þetta bara allt í gúddí, eina sem ég er frekar döpur yfir að eftir 4 aðgerðir á rúmu ári þá er ég enn með þann upprunalega verk í bakinu sem er það sem startaði öllum þessum aðgerðum, ég held ég verði að sækja um í Hveragerði eftir áramót og reyna að leyta allra leiða til að koma mér út úr þessu, það er eiginlega ekki hægt að lifa með þessu, var að panta mér þvottakonu aftur til að sjá um heimilið, vonandi reddast það, en það er alls staðar samdráttur. Hafið það sem best og njótið síðustu daga ársins, það ætla ég að gera í barnahópi. 
|
Ár efnahagshamfara |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
28.12.2008 | 16:11
Alltaf hefur mér þótt þetta frekar leiðinlegur tími.
Sérstaklega þegar mið sonurinn var á sprengju aldrinum og við bjuggum í Hafnarfirði. Ég hef aldrei vitað neina eins sprengjuglaða og Hafnfirðinga og þá er ég ekki að tala um á áramótunum, heldur bara alla dagana frá því opnað var fyrir sölu og fram á þrettándann. Það var aldrei stundlegur friður fyrir hvellum og öðrum ótætis leiðindum fannst mér. Ég vil hins vegar að ef fólk á annaðborð kaupir rakettur og annað slíkt dótarí þá sé það gert hjá björgunarsveitunum og sprengt á réttum degi. Ég verð nú að segja að mér finnst ekki fallegt af Jóni að hvetja fólk til að spara núna, einhversstaðar verða sveitirnar að fá fjármagn sitt og þetta er allt til góðra verka, svo eru þeir líka með ákveðinn lager sem ekki má liggja milli ára.
Annars er bara allt gott að frétta af mér og mínum. Ég nýt þess að vera með börnin í seilingarfjarlægð og við höfum það óskaplega gott saman öll fjölskyldan. Kær kveðja til ykkar vinir mínir nær og fjær.
Annars verð ég ekkert mikið á bloggferð, er svo upptekin af letinni og samverustundum við fólkið mitt.
|
Flugeldasalan hafin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 16:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
24.12.2008 | 12:43
GLEÐILEG JÓL !!
Kæru bloggvinir nær og fjær. Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og megið þið eiga ljúfa hátíðisdaga framundan. Kærar þakkir fyrir ljúf og góð samskipti á árinu. Njótið lífsins og lifið í núinu, ballið byrjar svo í janúar og þá er um að gera að vera sterk og styðja við hvert annað. Guð gefi ykkur frið og ró.
|
„Gengið vonum framar“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
23.12.2008 | 23:52
Ég er mín megin við Heiðu. !!
Þannig að þetta er bara í lagi. Sonurinn frá Köben kom í fyrradag og dóttirin frá London í dag, þannig að það er fullheimt. Nú vona ég bara að annar í jólum verði okkur hagstæður því við ætlum í bæinn til pabba og elda og borða með honum. Hér er rok og rigning en allt í gúddí, hver og einn og á réttum stað og allir geta sofið rólegir til morguns. Hangikjötið soðið, grauturinn klár, hreint á rúmum og jólatréið tilbúið. Laufabrauð og smákökur í eldhúsinu og ástin á réttum stöðum. Kallin hér og ég líka og hver vill meira?? það væri bara frekja, kíki á ykkur á morgun og bíð með jólakveðjur.
|
Hálka á Hellisheiði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
23.12.2008 | 15:48
Þetta er bráðeitraður andskoti í mínum huga.
Ég hef lært það í gegnum tíðina að forðast opinbera staði þar sem er möguleiki á að skata hafi verið elduð þennan dag. Fátt finnst mér jafn andstyggilegt og fílan af þessum viðbjóðs fisk. Ég man fyrir ca. 4 árum að ég brá mér í Húsamiðjuna hér á Selfossi að kvöldi Þorláksmessu, ég mátti frá hverfa því þar hafði verið elduð skata í hádeginu. Hér í blokkinni minni er ég svo heppin að hafa sérinngang, því annars væri ábyggilega ekki líft. Ég borðaði reyndar oft skötu sem barn, en það var ekki þessi hryllings lykt eins og í dag, held að þetta sé orðinn bölvaður ósiður frekar en hitt. Skil vel þá sem ólust upp við þetta, en að nútímamaðurinn sé að leggja sér þetta til munns, "til að vera með" það skil ég bara ekki. En ég skil nú heldur ekki allt sem betur fer. Held ég eldi mér kjúkling í kvöld eða fái mér laufabrauð með hangikjöti 
|
Dagur kæstu skötunnar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn