Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Jibbí kæ jei mo............... mínir menn í stuði !!

Flottir strákar, koma svo, meira af þessu, reyna að spila betur næstu leiki svo þið komist á toppinn, það liggur sko allt uppávið héðan í frá,  til lukku allir Arsenallar á Íslandi.

arsenal


mbl.is Arsenal sigraði á Stamford Bridge
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var semsagt á þeim tíma sem óheiðarleikinn var "inn" hvort eð er.

Mér finnst þetta fara versnandi með hverjum degi, maður fræðist meir og meir um spillinguna.  Mér finnst bara hreint ekki lengur að stjórnvöld landsins beri eins mikla ábyrgð og margir vilja meina.  Þeir voru hreinlega blekktir í bak og fyrir. Þannig sé ég þetta allavega.  Mér fannst svolítið sérstakt að heyr í Katrínu Oddsdóttur hjá Agli áðan, hún segist hafa talað í öfgum til að vekja athygli á málinu hversu alvarlegt það væri að þjóðin fengi ekki að kjósa og sagði að hún vildi bara heyra það núna að það yrði kosið, á hvern hefur hún verið að hlusta?  það eru flestir sem tala fyrir kosningum á næsta ári, bara ekki núna, það þarf meiri tíma.  Annars er ég góð og enn á einari.  Lífið er gott.

sokkar


mbl.is FME tilkynnt um eignarhlut Glitnis í Stími
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GÓÐA NÓTT.

tunglið  

 

 

 

Hugsanir þær sem ég hlýjastar á

þær hvarfla til þeirra sem langt eru frá

og heim til þín veginn þær velja.

Þær þurfa ekki fylgd eða fargjald til þín

þær finna hvar sólin heitast skín

og hvar hlýtt er og helst er að dvelja.

Höf.ókunnur.

Býð ykkur öllum góða nótt, er farin uppí til að láta mér batna betur.


Mér finnst bara ótækt að menn eins og Ástþór séu í forsvari fyrir nýju stjórnmálaafli.

Mér finnst þessi blessaði maður svo mikill kjáni að ég mundi aldrei treysta neinum sem færi í samstarf við hann. Ég vil sjá annað fólk í framvarðasveit, t.d. Ásgerði hún er fín. En einhvernvegin er í mínum huga, allt dauðadæmt sem Ástþór kemur nálægt.


mbl.is Lýðræðishreyfingin fundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru árásarmennirnir breskir? og Sigmund í lit.

Heyrði það í morgun og líka að fórnarlömbin hafi verið bretar og aðrir vestrænir gestir.  Getur þetta verið??  Breskt fólk getur auðvitað verið af ýmsum uppruna svo maður spyr sig, hvers var verið að hefna. ?

 

sigmund

Sigmund hefur sko húmorinn í lagi, sendi fyrrum samstarfsmönnum sínum kveðju, og auðvitað í lit !!


mbl.is Umsátrinu lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rosalega finnst mér mikið um gaspur í mönnum. Ábyrgðarlaust hjal.

Mér finnst ekkert gott að hlusta á allar þær yfirlýsingar sem ganga vinstri hægri frá svokölluðum framámönnum í þjóðlífinu, ég held að allt sem þeir segja sé eitthvað sem þeir telja að gagnist sér í sínum embættum til að ná meiri frama og fá hærri laun. Ég trúi bara engum lengur og tel þessa afstöðu Gylfa, fullkomlega ábyrgðarlausa. 

Ég ætla að halda mig við það að trúa bara á GUÐ, það hefur dugað mér best hingað til.


mbl.is Frumvarpið vottur um uppgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, en afhverju þurfið þið að skera fyrst niður á landsbyggðinni ??

Ég er hrikalega ósammála því að skorið sé niður í svæðisútvörpum, því þarf alltaf að ráðast á landsbyggðina, þar stendur vagga menningar okkar, það hef ég alltaf sagt.  Skammist til að minnka hér á suðvestur horninu og haldið uppi metnaðarfullri dagskrá úti á landi. 

Komið er kvöld,

ég kíki á skjá,

fréttir af kreppu og fleira.

Mig langar í völd,

ég vil ekkert smá,

græðgi og frekju skal eyða.

Góða nótt skottin mín, ég er lögst uppí með hækjunum mínum.

skjaldbaka

Svona er ég nú róleg.


mbl.is Einsleitari dagskrá með færra fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Piparkökusöngurinn um gasið !!

Í tilefni nýrra notkunamöguleika á pipar: (piparkökusöngurinn smellpassar)

Þegar piparúðinn notast
lítill löggumaður tekur:
Fyrst af öllu piparúðann
og hann ýtir fast á staut.
Þá má heyra ýmsa æpa,
aðrir hvítna eins og næpa.
Sumir nudda æstir augun,
æða grátandi á braut.

Þegar öllu þessu er lokið
lítill löggumaður segir:
Þetta er ansi góður úði,
allt er hyskið farið brott.
Inni í klefa á ég bjána,
einn með gulan bónusfána
Og með svona piparúða
gengur police-vinnan flott.

HÖLDUM VIÐ ÞÁ EKKI SKJÁNUM  ???


mbl.is RÚV af auglýsingamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá Muppets grín í boði dóttur minnar í London.

Ég fann þetta skemmtilega myndband á síðu stelpunnar minnar sem var að vinna hjá Landsbankanum í London.  Nú er komið í ljós að eignir feðganna þar duga ekki fyrir Icesafe, datt það svo sem í hug fyrir löngu,  en þá er bara að halda áfram og reyna að redda sér fyrir horn með smá húmor.  Eigið ljúft kvöld, ég verð á hækjunum í 3 vikur í viðbót minnsta kosti svo ég verð eitthvað í bloggheimum, allavega nóg til að halda geðheilsu

æfingar

Mér var svo að detta í hug að fá Tínu og Hrönn í svona æfingaprógramm með mér í vor. LoL

 

                           GAGGANDI SNILLD.


mbl.is Eignir Landsbanka duga ekki fyrir Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fékk senda þessa skemmtilegu mynd í morgun frá vinkonu minni á Akureyri. Be careful what you wish for.

mikki

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband