Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
31.10.2008 | 20:25
Er einhver munur á konum og körlum ??
Jú sem betur fer erum við öll ólík. Ég var að koma úr borginni, mikið verð ég alltaf þreytt, svo nú á bara að hvíla sig í kvöld. Það er búið að bjóða mér á námsstefnu á Eyrarbakka á morgun með FKA (félag kvenna í atvinnurekstri) og hlakka ég mikið til svo nú er um að gera að fara snemma að sofa og vera vel hvíld í fyrramálið þegar stóra systir kemur að ná í mig fyrir kl.9. Hafið það gott um helgina og njótið lífsins.
Svona fara konur að ! Farðu úr fötunum og raðaðu þeim í flokkaðar "óhreinataus-körfur". Ein fyrir ljósan þvott, ein fyrir dökkan, ein fyrir hvítan, og ein fyrir sérstaklega viðkvæm efni. Gakktu í átt að baðherberginu í síðum slopp. Ef að húsbóndinn sér til þín á leiðinni, mundu þá að hylja allt nakið hold og flýta þér inná baðherbergið. Horfðu á sjálfan þig í speglinum, ýttu maganum fram og kvartaðu í smástund við sjálfa þig yfir því hvað þú ert að verða feit. Stígðu inn í sturtuna. Athugaðu hvort að eftirfarandi sé ekki örugglega við hendina: andlits-þvottapokinn, handarkrika-þvottapokinn, fyrir-neðan-mitti-þvottapokinn, grófi nudd-þvottapokinn og siðast en ekki síst... appelsínu-húðar-nudd-steinninn ! Þvoðu hárið einu sinni með agúrku og ginseng sjampóinu... þessu sem inniheldur 83 nauðsynleg vítamín fyrir hárið. Þvoðu hárið aftur með agúrku og ginseng sjampóinu... þessu sem inniheldur 83 nauðsynleg vítamín fyrir hárið. Notaðu agúrku/ginseng næringuna... þessa með viðbættu burkna-olíunni og láttu standa í hárinu í 15 mínútur. Þvoðu þér í framan með aprikósu-skröbbinu í tíu mínútur eða sirka þangað til þig fer að svíða verulega. Þvoðu restina af líkamanum með ginger/jaffa-cake líkams-sápunni. Skolaðu næringuna úr hárinu í um það bil 15 mínútur svo að örugglega öll afgangsnæring hreinsist í burtu. Ef að húsbóndinn sturtar niður, sem leiðir til þess að vatnið hjá þér hitnar í smástund, skaltu öskra brjálæðislega og kalla hann öllum illum nöfnum. Skrúfaðu fyrir sturtuna. Þurrkaðu upp alla bleytu í sturtunni. Notaðu Ajax sturtuúða til að ná upp háglans á flísarnar. Ekki gleyma að athuga gólfið fyrir framan sturtuna og þurrka upp hvern einasta dropa. Farðu úr sturtunni. Þurrkaðu þig með handklæði sem er á stærð við lítið Afríkuríki. Pakkaðu hárinu inn í annað, extra rakadrægt, handklæði. Skoðaðu allan líkamann í leit að minnsta blett eða hári. Notaðu neglur eða flísatöng til að gera útaf við það sem þú finnur. Gakktu í átt að svefnherberginu í síðum slopp með handklæðið ennþá á höfðinu. Mundu að hylja allt nakið hold ef að húsbóndinn er nálægt... og flýttu þér í átt að svefnherberginu. Ekki eyða undir hálftíma í að klæða þig.
Að fara í sturtu eins og karlmaður ! Farðu úr fötunum, sitjandi á rúminu, og skildu þau eftir í hrúgu fyrir framan rúmið. Gakktu nakinn í átt að baðherberginu. Ef að konan sér þig á leiðinni, hristu þá "vininn" í áttina að henni og segðu "Vúúííí". Skoðaðu karlmannlegt vaxtarlag þitt í speglinum og dragðu djúpt inn andann til að athuga hvort þú sért með "sixpakk" (sem þú ert ekki með.) Horfðu með aðdáun á stærðina á "félaganum", gríptu um hann og segðu "Jú vonna pís of ðis beibí". Farðu í sturtuna. Ekki hafa fyrir því að leita að þvottapoka ? Ekki nota hann ef þú rekst á hann. Þvoðu þér í framan, undir höndum og "vöðvann". Hlæðu kjánalega yfir því hvað það heyrist hátt þegar þú rekur við í sturtu. Notaðu sjampó í hárið en ekki nota næringu. Búið til móíkana-kamp með sjampóið í hárinu. Dragðu aðeins frá sturtuhengið til að sjá sjálfan þig í speglinum (tihihihii). Pissaðu (í sturtunni að sjálfsögðu). Skolaðu þig og farðu úr sturtunni. Ekki taka eftir vatninu á gólfinu (sem kom til af því að þú hafðir hengið fyrir utan sturtubotninn). Þurrkaðu þér lauslega. Horfðu á sjálfan þig í speglinum. Taktu nokkrar "pósur" og horfðu með aðdáun á stærðina á "jókernum" (aftur). Ekki draga fyrir sturtuna, og skildu eftir blautt gólf. Ekki slökkva inná baði. Gakktu í átt að svefnherberginu með handklæðið um mittið. Ef að þú rekst á konuna, dragðu þá handklæðið frá, gríptu um "gosann", taktu eina Elvis-sveiflu og segðu "Sssjabúmm". Athugaðu hvort að nærbuxurnar séu blettóttar, ef ekki, farðu þá í þær. Taktu sundur sokkaparið á gólfinu. Brjóttu aðeins úr þeim, og farðu í þá. Farðu í nýjan bol, en vertu annars í sömu fötum og þú notaðir í gær.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 20:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
30.10.2008 | 11:28
95% af vergri kærleiksframleiðslu hjá mér, fer til annarra og ég er stolt af því.
Nú er ég að brenna í bæinn með eiginmanni og syni. Ætlum að koma óvænt til pabba með afastrákinn. Mér finnst svo gaman af svona surprice hitting. Ég ætla svo að verða eftir hjá gamla og gista. Hafið það gott skottin mín og njótið dagsins.
Stjörnuspá
Hrútur: Einbeittu þér að grunnþáttunum: vinnu og ást. Ef þig skortir hvorugt vantar þig bara þakklæti í hjarta til að vera hamingjusöm. Ef ekki - er lífið fullkomið !!!
|
85% af vergri landsframleiðslu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
29.10.2008 | 22:08
Þá fáum við öryrkjarnir hækkun að sama skapi geri ég ráð fyrir.
29.10.2008 | 10:58
Á einn á heimleið með Express, eins gott að þeir verði ekki gjaldþrota yfir Færeyjum.
Nú falla þau hvert af öðru, fyrirtækin sem menn seldu sín á milli til að skara eld að eigin köku. Megi tertan hrökkva ofaní þá sem illa hafa hagað sér.
Ég hef verið að hlusta á Bylgjuna síðan um 7 í morgun og ég get svarið að það er bara ekki hollt sálinni að heyra í mönnum. Í morgun var t.d. verið að ræða inngöngu í Evrópusambandið. Lítið fannst mér koma vitrænt frá Andrési Evrópusinna og spurði Heimir hann ítrekað um kosti og galla en fátt varð um svör. Sigurður Kári var svo andstæður og fannst mér hann skömminni skárri þó svo að sá ungi maður heilli mig sjaldan með sínum pólitísku skoðunum.
Stjörnuspá
Hrútur: Væntingar hrútsins hafa kröftug áhrif á sambönd þessa dagana. Besta niðurstaðan fæst með gleði og þeirri von að allt muni fara vel á endanum.
|
Engin áhrif á Iceland Express |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
28.10.2008 | 22:25
Gjöra svo vel að láta son minn í friði, annars er mér að mæta.
Annars er hann að koma heim á morgun í örstutt stopp, ætlar rétt að kíkja á gamla settið, fara út að borða með okkur og segja okkur hvað hann elskar okkur mikið. Fátt betra en góð börn. Er farin að sofa í rokinu, vona að veðrið verði gott á morgun svo við komumst til KEF og heim aftur óhindrað.
Hugsið um jákvæða hluti og ekki leyfa huga ykkar að skálda upp erfiðar aðstæður sem svo kannski koma aldrei, bara að hugsa um núið og hversu vel við getum nýtt það.
FRIÐUR SÉ MEÐ YÐUR
|
Átök í Kaupmannahöfn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.10.2008 | 14:59
Akkúrat núna hef ég mestar áhyggjur af útigangsfólkinu í Reykjavík. !!
Þau gleymast yfirleitt strax þegar harðnar á dalnum, þau sem útundan eru í þjóðfélaginu okkar. Ég vil því taka upp þráðinn á ný og minna á þá sem ráfa eignalausir um götur borgarinnar. Ég er að tala um fólkið sem sótt hefur og sækir aðstoð til Hjálpræðishersins. Eitt get ég þó huggað mig við og það er að Herinn gleymir ekki þessu fólki, kærleikur þeirra mun halda áfram og þau munu áfram fá mat, föt og annað sem þeim býðst í dagsetrinu á Granda. Norski Hjálpræðisherinn mun áfram senda peninga til landsins svo þessi rekstur leggist ekki af. Við sem hér á landi búum getum samt haldið áfram að gefa til starfsins, í formi fatnaðar og hluta sem við viljum ekki henda en viljum losna við. Ég veit að það er fullt til af dóti víða sem fólk hefur sankað að sér og svo eru ekkert allir illa staddir peningalega þó svo hér hafi verið kaldur og vindasamur október. Ég t.d. hef enn orku og vilja til að safna fötum og öðru og ætla að auglýsa móttöku á slíku hér á Selfossi í nóvember. Þið sem lesið þetta og búið á höfuðborgarsvæðinu, endilega farið með það sem þið getið gefið í verslunina sem Herinn er með úti á Granda, sama hún og Seglagerðin Ægir. Hjörtu okkar verða að halda áfram að slá með þeim sem virkilega þurfa á aðstoð okkar að halda, nú sem aldrei fyrr, gildir að gleyma ekki sínum minnsta bróður. Reykjavíkurborg hefur ekki enn opnað gistihúsin fyrir útigangsfólkið, ekki svo ég viti allavega, endilega leiðréttið mig ef þið vitið betur.
Eigið góðan dag og dælið kærleik út í andrúmsloftið.
|
Frostkaldur andardráttur IMF |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
27.10.2008 | 19:42
"Já en Gummi frændi stal fleiri flöskum en ég"
|
Björgólfur segist standa við ummæli sín |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
27.10.2008 | 16:33
Ég verð að blogga eins og hinir. Heija NORGE.
Dagurinn í dag er svona tölvudagur. Ákvað að gera fullt af hlutum sem ég hef ætlað að gera lengi. Athuga með stöðuna á lánunum mínum og svo videre. Er bara þokkalega sátt og svo klippti ég kreditkort sem við áttum, engin skuld á því og voða gaman. Nú hlusta ég bara á góða tónlist og þakka GUÐI fyrir hvað ég er ótrúlega vel sett. Börnin öll frísk og barnabörn og tengdabörn líka, samtals 15 stykki ekki lítið það. Svo finnst mér nú ekki slæmt að heyra ef Norðmenn verða okkar aðal bakhjarlar, hef sko ekkert upp á þá þjóð að klaga frekar en aðrar Norðurlandaþjóðirnar, eina sem angrar mig með Fareyja og Finnland er sú staðreynd að ég á enn eftir að heimsækja þau lönd, en ef við tökum upp norska krónu þá er bara að hendast austur á land og skella sér í Norrænu og sigla yfir hafið eins og Ingólfur forðum.
Her har vi sá den Norske song i Eurovision og jeg vil heller ikke bli ensam og det er jeg selvfölgelig ikke. Ha det bra.
|
Ísland leitar til Norðurlanda |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
27.10.2008 | 14:27
Ég vona svo sannarlega að höfnin sé vel tryggð.
Þetta eru rosalegar fréttir núna í dýrtíðinni. Lítið sveitarfélag má ekki við svona náttúruhamförum. Þessi stóri grjótgarður sem byggður var utan við gamla garðinn átti að standast öll veður enda engin smá grjót sem fóru í uppbygginguna, en hafið lætur ekki að sér hæða og þarna fór saman flóð og brjálað rok. Vonandi kemur þetta ekki í veg fyrir skipakomur og annað og ég vona svo sannarlega að bærinn fari ekki illa út úr þessu fjárhagslega, nógu er nú samt erfitt að þrauka og bíða eftir álverinu á Bakka þó svo ekki bætist við tugmilljónatjón á bryggjumannvirkjum. Sendi kærar kveðjur á víkina mína.
Að mínu mati er þetta fallegasta innsiglingin á landinu.
|
Hamfarir í Húsavíkurhöfn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn