Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Það er komið að fegurð næturinnar og einn léttur brandari með !!

                                                     Picture25

Ég heyrði sögu um daginn þar sem starfskona í stóru fyrirtæki kvartaði við
yfirmann sinn undan kynferðislegri áreitni sem hún yrði fyrir í vinnunni.
Yfirmaðurinn spurði hvað hefði gerst og hún sagðist alltaf fá athugasemdir
frá sama starfsmanninum um að það væri svo góð lykt af hárinu á henni.
Hann segði þetta í hvert sinn og hann gengi framhjá henni á göngunum og hefði
gert þetta lengi.  Yfirmaðurinn spurði hvort það gæti ekki verið að hann væri bara að reyna að vera almennilegur við hana.
Nei, hún taldi það ekki geta verið.

 "Nú?" sagði yfirmaðurinn.
 "Hann er dvergur" sagði hún þá.


Ég ELSKA veturinn og ófærðina !

450840A Ég er svo yfir mig kát í vetrarveðrinu.  Skrapp út áðan og það er svoooo  kalt burrrr.  Snjór um allan bæ og ruðningar og lítil snjófjöll hér og þar.  Yfirleitt er allt rennislétt hér í bæ, fyrir utan fjallið eina sem er heimatilbúið.  Ég fóra að kaupa ormalyf handa kisu litlu, hún þarf víst að fá það þó svo að hún fari aldrei út, við gætum borið eitthvað inn til hennar bara með skónum okkar.  Hún er víst voða seinþroska greyið, ætti að vera byrjuð að breima en hún mjálmar varla er svo stillt og prúð, enda vel upp alin og kemur frá góðu heimili.  Við kíktum í Bónus og versluðum þar til að eiga eitthvað í matinn fram yfir helgi, gáfulegt að fara þegar lítið er að gera.  Við seldum gamla bílinn okkar í dag, þennan sem var svo bilaður og húsbandið lagaði svo nú þurfum við ekki að hafa meiri áhyggjur af honum. Nú á bara að knúsast og kúra í kvöld með karl krúttinu mínu, ætla að halda áfram að lesa bloggin ykkar, þið eruð svo skemmtileg. 

 


mbl.is Slæmt veður víða um land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef ykkur finnst þetta dónaskapur þá er það bara "state of mind"


Nokkur augnablik í lífi dýranna.

Þið eruð eiginlega allt of yndisleg.  Takk fyrir að senda þessar fallegu kveðjur til okkar í dag. Góðar hugsanir ykkar auka kærleikann.  Dagurinn með pabba var svo frábær, við systur vorum mættar þrjár og tengdasynirnir tveir. Nokkur barnabörn hringdu í afa sinn þar sem þau eru erlendis. Pabbi var bara glaður og við líka.  Það var skrítið að hafa enga mömmu en hún er bara eitthvað svo mikill hluti af okkur að það er eins og hún sé á staðnum.  Ég er alveg búin á því eftir þessa bæjarferð og er á leið í rúmið.  Ætla að kíkja á bloggin ykkar á morgun, fyrirsagnirnar lofa góðu og ég er forvitin um innihald margra blogga. Hér koma nokkur augnablik. 

Picture7

Picture8

Picture9

 


Afmælisbarn dagsins er karlmaður sem ég hef elskað allt mitt líf.

Húsavík og nágrenni 007

Það er þessi hægra megin og er pabbi minn.  Ég elska reyndar líka þennan vinstra megin, en það eru bara komin 15 ár í það safn, bætist við jafnt og þétt.

Pabbi er semsagt 82 ára í dag og er flottur karl finnst mér.  Við erum að leggja af stað í bæinn til að vera með honum í dag.   Eigið góðan dag kæru vinir og verið góð við alla.


Tími andartaksins er kominn !!

Picture4

Picture5

Picture6

 

FALLEG AUGNBLIK  HAFIÐ ÞAÐ GOTT. 


Getið þið þá ímyndað ykkur hversu hættuleg heiðin er á svona degi??

Það verður einfaldlega að hraða þessum verkefnum verulega svo ásættanlegt verði, hvert mannslíf verður aldrei til fjár metið.   Flýtið ykkur að tvöfalda allt sem hægt er og má. Ekki fleiri stórslys.

!cid_003701c861f0$014036d0$4001a8c0@D485CR1J


mbl.is Slæmt ástand á Reykjanesbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SÆMILEGT er ekki nógu gott til að menn geti borað, eða hvað??

Einhvern vegin finnst mér sæmilegt ekki gott.  Held að það komi þá til allt of mikill aukakostnaður við þéttingar og annað slíkt.  Vona bara svo innilega að menn hafi allan varann á. Ég þarf sjálfsagt aldrei að treysta á þessi göng en ef þau koma þá verða þau örugglega mikið notuð, svo ég segi bara hafið vaðið fyrir neðan ykkur.   Teymið ekki saklausa vegfarendur oní tvísýn jarðgöng.

Picture21

Vakið yfir vegfarendum eins og þessi hunduð yfir litlu ungunum sínum.


mbl.is Sæmilegar aðstæður fyrir göng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er bara að ýta þessu áfram og klára málið.

Ekkert tel ég eins slæmt fyrir þjóðina eins og verkföll.  Sem betur fer hafa þau ekki verið mörg síðustu misseri.  Ég skil  svo vel marga hópa sem eru að berjast fyrir betri launum.  Það er ekki einleikið hversu léleg laun leikskólakennarar ofl. kennslu og umönnunarstéttir hafa.  Nú liggur fyrir frumvarp til laga um breytingu á námi leikskólakennara og er tillaga um að lengja námið um 2 ár. Með slíkri lengingu mundi fást veruleg launahækkun en það þarf að gera þetta mun meira aðlaðandi starf bæði vinnulega og launalega séð.  Alveg það sama gildir um kennaramenntun. Hærri laun draga að fleiri og betri kennara og þá karlkyns kennara og tel ég mikla þörf á því. Ekki að kven kennarar séu eitthvað slæmt, heldur tel ég að blandaðaur hópur eigi að koma að kennslunni.

 

frosch

 Reynum að bjarga þessu. 


mbl.is Skriður á kjaraviðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er spurning um að vera á réttum stað á réttum tíma og grípa augnablikið.

 Ég er með safn af nokkrum myndum þar sem ljósmyndarar hafa fangað sérstök augnablik. Langar að deila þeim með ykkur. 

Picture1

Picture2

Picture3

Læt þetta duga í kvöld Góða nótt og dreymi ykkur vel.  The Dream 


mbl.is Sólin sást loks í Sólgötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband