Bloggfærslur mánaðarins, september 2007
29.9.2007 | 19:28
VAKANDI SOFANDI? ER EKKI VISS !!!
Ótrúlega þreytandi að vera veikur :):) æ því er ég að þessu nöldri. Búin að vera í rúminu í mest allan dag en dauðlangaði auðvitað á bloggið, þetta lagast eftir helgi þegar ég fæ lappann aftur þá get ég leigð í rúminu og lesið færslurnar ykkar, er farin að sakna þess ótrúlega mikið að fylgjast með lífsspeki ykkar, sigri, sorgum og gleði. Fann þetta ljóð í Lesbók Moggans í dag, vona að ég verði ekki hýdd fyrir að birta það hér, set nafn höfundar fyrir neðan og allt, getur ekki verið lögbrot ![]()
VILTU GERA SVO VEL AÐ HAFA MIG AFSAKAÐAN
konulega stelpa
stelpulega kona
þú...fallega sjúskaða
leikkona andartaksins
leyfðu mér að hrærast um sinn
á kynferðissegulsviði þínu
maður verður að elska
í tætlur og eindir
þó ekki væri það
nema fyrir viskýröddina
slíka himnasendingu eins og þig
slíka norðurljósasdrottningu.
Árni Larsson
Skemmtileg lesning. Eigið mega góða helgi og bæ é vei þá vann ég ekki í lottóinu núna svo kannski það verði bara næst
28.9.2007 | 16:39
HVER Á BESTU BLOGGVINI Í HEIMI ?????
Hæ gullin min. Ég er komin heim !!!!!!!!!!jibbbííí. Húsbandið skrapp út í búð svo ég stalst í tölvuna að lesa kveðjurnar frá ykkur, þið eruð nú alveg lang yndislegust. :):):) Ég er nú bara ekki í bloggstandi og ég sem hélt ég gæti allt þegar heim kæmi. Reyndar er lappinn minn í viðgerð og ég fæ hana ekki fyrr en eftir helgi svo ég þarf að sitja við borðtölvuna, það gengur bara ekki. Mig langar samt bara að lofa ykkur að vita að ég er heima og að allar þessar fallegu kveðjur virkuðu vel og hressandi á mig á spítalanaum, Soll mín sá alveg um að updata mömmu sína með netið. Ég set hérna smá sætt með bara svona inn í helgina. Eigið öll sem bestasta helgi og við verðum í spotta::
Ég sendi þetta af því þetta virkaði svo asskoti vel fyrir mig.. og af því að í amstri hversdagsins þurfum við eitthvað til að viðhalda þessum innri frið. Með því að fylgja einföldu ráði sem ég las í Cosmo, hef ég loksins fundið innri frið.
Þetta stóð í greininni:
"Leiðin til að öðlast innri frið er að klára allt sem þú hefur byrjað á".
Ég horfði yfir íbúðina mína og sá allt það sem ég hafði byrjað á og ekki klárað....
Og áður en ég fór út í morgun kláraði ég flösku af rauðvíni, flösku af hvítvíni, eina hálffulla Bailey's, Kahlua og kalkúnasamloku, hálft bréf af Prozac, slatta af valium, hálfa ostaköku og box af súkkulaði. Þú getur ekki ímyndað þér hvað mér líður hreint andskoti vel, þessi innri friður er alveg að virka....
Ætla að fleygja mér inn í sófa áður en húsbandið kemur heim svo hann skammi mig ekki ![]()
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
28.9.2007 | 09:32
Heim í heiðardalinn
Hæ hó... fréttaritarinn frá London skrifar
.
Þá er mútta mín á leiðinni heim. Hún segir að góðar kveðjur og hlýjir straumar hafi greinilega virkað vel því henni líður nú bara nokkuð vel skvísunni. Læknunum líst vel á hana og verður henni hleypt heim seinnipartinn... heim að knúsa Bjarna og Bóthildi.
Hún sendi mér þessa mynd í GSM símann minn í gær og mér fannst hún nú bara líta svo vel út að ég fékk leyfi til að setja hana með hér, já og eins og allir gestir spítalans klæðist hún tískuvörufatnaði frá hönnuðinum "Eign þvottahúss spítalanna" 
Eins og ég sagði þá gekk þetta nú bara allt vel og ég held að mamma segi ykkur bara betur frá þessu sjálf. Skilst að hún ætli jafnvel að reyna að setjast við tölvuna á morgun, kíkja aðeins á Internetið og sjá hverju hún hefur verið að missa af. Þangað til bað hún bara fyrir góðar kveðjur og þakkir fyrir innlitin og umhyggjuna. 
Annars óska ég ykkur öllum bara góðrar helgar. Föstudagur í London eins og ég býst við að það sé líka heima á Íslandi. Hér er skýjað en bara nokkuð hlýtt og fátæki fyrrum námsmaðurinn ég skellti sér í búðir í gær að kaupa vetrarjakka og vinnuföt. Hef reyndar lofað sjálfri mér núna að fara ekki aftur inn í Top Shop á Oxford street fyrr en einhver dregur mig nauðuga þangað inn... þvílík orkusuga sem sú búð er, andlega og líkamlega. En fötin eru fín.
Yfir og út héðan frá... næsta blogg verður skrifað frá Íslandi af sjúklingnum sjálfum 
kv. Solla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
25.9.2007 | 11:13
Fréttir af sjúklingnum :-)
Hæ hæ. Solla hér, dóttir Ásdísar.
Ég heyrði í mömmu í gær eftir aðgerðina og aftur í morgun. Allt gekk bara nokkuð vel en auðvitað var þetta nú erfitt og litla lúsin er frekar slöpp og þreytt. Kvíði fyrir svona aðgerð er auðvitað alltaf til staðar og ég er ólýsanlega glöð að þessi kafli sé búinn og nú þurfi mamma mín bara að vera róleg og dugleg að fara eftir ráðum lækna næstu vikur svo að hún komist aftur á rétt ról. Mér heyrist nú á henni að hún sé að haga sér vel og fara eftir því sem læknarnir segja.
Ég kíkti hingað á bloggið áður en ég hringdi í hana í morgun og skilaði til hennar öllum kveðjunum sem þið höfðuð sett í færsluna hér á undan. Hún þakkaði kærlega fyrir þær. Allir góðir straumar og uppörvandi kveðjur verða örugglega vel þegin næstu daga og vikur.
Auðvitað varð ég að finna kisu mynd til að setja með þessari færslu... ég á góða vinkonu sem heitir Cilla og hún er alger kisu kelling en svei mér ef mamma er ekki meiri kisu kelling en hún Cilla mín. Ég held að jákvæðasti punkturinn við það þegar ég flutti úr foreldrahúsum tvítug var sú staðreynd að þá gat mamma loksins fengið sér kisu. Ég er nefninlega með kisu ofnæmi. Hún var sko ekki lengi að finna hana Bellu litlu til að bæta í fjölskylduhópinn eftir að ofnæmis sjúki frumburðurinn var floginn úr hreiðrinu.
Sem betur fer er ég þó ekki með mikið ofnæmi svo ég hef nú alltaf getað komið í heimsókn og jafnvel gist einhverjar nætur hjá mömmu og Bjarna þó svo að litlar kisur hafi búið á heimilinu. Það verður gaman að sjá Bóthildi þegar ég kem næst í heimsókn á "klakann".
Annars þá vildi ég bara þakka ykkur öllum fyrir hlýjar kveðjur til mömmu. Ég veit að Bjarni stendur með henni eins og klettur og á eftir að passa vel uppá hana. Við mamma erum soldið líkar að því leyti að við viljum helst trúa því að við getum gert allt sjálfar... en innst inni vill maður auðvitað hitta einhvern sem nær að sannfæra mann um að það er sumt sem maður getur ekki gert sjálfur og maður þarf væntumþykju, ást og einhvern til að hafa vit fyrir manni. Þess vegna er hún mamma mín svo ótrúlega heppin að kynnast honum Bjarna sínum.... mínum... okkar.
Bjarni, þú ert bestur. Mamma þú ert hetjan mín. Elska ykkur óendanlega mikið og hlakka til að sjá ykkur... sem allra allra fyrst!
Ég skelli nú inn færslu hér aftur fyrir múttu ef hún kemst ekki í netsamband fljótlega. Líklegast verður hún nú á spítalanum amk. fram að helgi.
Takk aftur fyrir að hugsa svona vel til mömmu minnar... þið eruð frábær.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
23.9.2007 | 13:16
ÁHEIT Á BLOGGVINI MÍNA!!!
Var að skríða á lappir og er á leið uppí aftur, nenni ekki að reyna að vera á fótum, ætla bara að sofa sem mest af mér verkina í dag. Var að lesa kommentin ykkar í færslunni á undan, þið eruð nú svo miklir gullmolar að þegar ég vinn í lottóinu þá heiti ég hér með 10% af vinningnum til ykkar eða líknarfélags að ykkar vali. Edda þetta er legnám með skurði mjöðm í mjöðm já Hrönn þetta er sko gamli ungmennafélagsandinn.
Kíki í kvöld.
|
Potturinn fjórfaldur næsta laugardag |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
22.9.2007 | 22:27
Fyrirsögnin léleg, en innihaldið gott !!
Enn eitt laugardagskvöldið runnið upp. Það átti að vera geggjað rok en það er nú bara nokkuð rólegt hér. Er svona bara í hugleiðingum og slökun, gera mig klára fyrir mánudaginn. Ég er búin að fá svo fullt af fallegum kveðjum á bloggunum mínum að ég fer bara nokkuð róleg í þetta. Ég er sannfærð um að góð hugsun gerir mikið gott.
"Það er umfram allt mikilvægast að vera góður vinur, vera
maður sjálfur koma þannig fram,Þá sýnir þú að þú ert
heiðarleg manneskja og fólk kynnist þér eins og þú ert.
Vertu skilningsrík / ur gefðu þér tíma til þess að skilja,
skilja náungann áður en þú metur hann, skilja vandamál
hjá vinum ef þau eru til staðar og umgangast hvern og
einn eftir aðstæðum, ef fólk þarf að vera í friði , hafa
skilning á því. Góðir vinir eru ekki á hverju strái, þeir
eru sjaldgæfir,einbeittu þér að því að vera góður vinur."
Mátti til með að breyta lúkkinu og vera soldið glaðleg.
22.9.2007 | 17:07
JÓN GNARR OG GNISTRAN TANNA !!
Stundum held ég að ég sé illa innréttuð og óþolinmóð gagnvar öðru fólki. Ástæðan er sú að ég ÞOLI ekki Jón Gnarr. Hvorki í auglýsingum eða leikþáttum. Ég er svo búin að gefa því sjens, en bara er alveg stopp. Hann er fyrir mér í öllum hlutverkum, einrænn, geðvöndur karlfaustkur, sem ég mundi taka á mig stóran sveig fram hjá til að þurfa ekki að mæta. Eina sem mér hefur fundist gott sem hefur komið fram hjá honum eru bakþankar á Fréttabl. enda get ég lesið það sjálf. Meira segja þegar eru viðtal við hann t.d. í Tv eða öðru, þá hef ég aldrei hugmynd um hvort að það er orð að marka sem hann segir, hann er fyrir mér sem algjör gáta. Nýjasta auglýsingin sem Prentmet notar hann í virkar svo illa á mig að ég fer aldrei oftar í Prentmet. HVAÐ ER EIGINLEGA MEÐ MIG??? á maður að vera svona? ég ætla að borða goðan mat og kíkja svo á netið í kvöld og vita hvort einhver getur gefið mér góð ráð og hjálpað mér, þetta er ekki eðlilegt að láta einhvern pirra sig svona mikið, eða hvað finnst ykur?
Jón Gnarr gaf gleraugun sín til góðgerðarmála
Jón Gnarr gaf gleraugun sín til uppboðs sem þátturinn Frá A til J á Rás 2 stendur fyrir. Jón var gestur þáttarins í gær. Gleraugun sem um ræðir notaði Jón í gamanleiknum Ég var einu sinni nörd og í Fóstbræðrum, sem sýndir voru á Stöð 2. Hér er því á ferðinni hið eiginlega vörumerki Jóns til margra ára.
Jón valdi hvert ágóðinn skyldi fara og mun hann renna óskiptur til endurhæfingasjóðs Þórðar Inga Guðmundssonar sem liggur meðvitundarlaus eftir slys í Sundlaug Kópavogs í vor. Tekið er á móti tilboðum á aj@ruv.is og hægt er að fylgjast með gangi mála á www.ruv.is/aj.
22.9.2007 | 16:42
Þetta er bara stundum eins og á Litla Manhattan !!
Óhljóðin í slökkvi,sjúkra, löggu bílum. Maður fær nú alltaf smá í magann af stressi. Þarna fór ekki mjög illa sem betur fer. Nóg hefur gerst hér í kring síðustu daga. Farið varlega um helgina.
|
Minniháttar meiðsl í hörðum árekstri í Þrengslunum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.9.2007 | 19:47
Umferðarmál í bænum voru í erfiðari kantinum í dag ! OG NÝJAR TÚTTUR.!
Þar sem verið var að malbika við Hótelið var ekki hægt að fara til hægri þegar maður kom af brúnni. Allri umferð var beint til vinstri og svo hringakstur til að komast vestur úr. Það jók á umferðina og hefur örugglega átt sinn þátt í slysinu. Mér finnst börn ekki vaða fyrir bíla hér, en tek undir að það er óvenju mikil tillitssemi hjá bílstjórum gagnvart hinum gangandi, alveg einstakt í þessu bæjarfélagi. Eg skrapp í Lyfju fyrir mömmu í dag og sá þá nýjasta nýtt í túttum, varð að sýna ykkur.
|
Barn hjólaði á bifreið á Selfossi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
20.9.2007 | 22:14
Skildi þetta vera of seint fyrir mig og mína kynslóð??
|
Nýjar leiðir til að berjast gegn öldrun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn