Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
31.8.2007 | 23:45
Er farin að sofa, en set hér inn smá grín sem þið getið hlegið að í nótt eða á morgun ! fer eftir því hvort þið vakið á næturna eða daginn!
Ég fór í Byko í dag, vantar svo ljósakrónu i stofuna, eina sem ég fann sem getur komið til móts við þarfir mínar er svo hrikalega dýr að ég verð bara að láta mér nægja að eiga mynd af henni.
Fyrst ég var nú komin á staðinn þá kíkti ég á blöndunartæki, er að hugsa um að skipta á baðinu.
Og þar sem þessi færsla er öll neðanmittis, enda að koma miðnætti, þá er hérna ein góð skrítla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
31.8.2007 | 21:59
ARMAGEDDON: Loftsteinn gæti lent á jörðinni árið 2036 !!!!
Loftsteinn gæti lent á jörðinni innan tíðar, eða árið 2036, gangi spár sumra vísindamanna eftir. Verið er að vinna að áætlunum til þess að koma í veg fyrir að steinninn, Apophis skelli á jörðinni og eru há verðlaun í boði fyrir bestu hugmyndina. Samtökin „The planetary society" segja að þörf sé á því að fylgjast með steininum með nákvæmari hætti en nú er mögulegt og því eru vísindamenn beðnir um að koma með hugmyndir um hvernig best sé að koma fyrir staðsetningartæki á grjótinu sem er 300 metrar í þvermál.
Fáum Bruce Willis og félaga í málið !!
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.8.2007 | 20:21
Ég bara verð að linka ykkur inn á tvo góða bloggvini mína !!
Þau eru sko algjörlega að toppa í brandaradeildinni. Það er svo gott að hlægja hátt og innilega.
HALLA BRANDARAR
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
31.8.2007 | 19:28
Allt að milljarður króna í íþróttamannvirki á Selfossi !!!
Brúarhlaupið er á morgun 1.sept.
Þann stutta tíma sem Sjálfst.menn voru í meirihluta í bæjarstjórn Árborgar á síðasta ári þá voru akkúrat þessar hugmyndir í gangi hjá okkur, munurinn er að við værum byrjuð á þessu ef framsókn hefði ekki skriðið út úr samstarfinu og tekið upp gamla sambandið við samfylkinguna.
Sveitarfélagið Árborg ætlar að verja allt að milljarði króna í endurnýjun og uppbyggingu íþróttamannavirkja á Selfossi á næstu árum. Framundan er undirbúningur fyrir landsmót árið 2012.
Framundan eru þrjú meginverkefni við uppbyggingu og endurnýjun íþróttamannvirkja á Selfossi. Ætlunin er að fara í stórfelldar endurbætur á sundlaug og áform eru um þær hefjist á næsta ári. Jafnframt er gert ráð fyrir að hafist verði handa við endurnýjun á knattspyrnuvellinum auk þess sem aðstaða til frjálsra íþrótta verður gerð eins og best er hérlendis. Ætlunin er að knattspyrnuvöllurinn verði tilbúinn næsta sumar. Þá á að byggja fjölnota íþróttahús á Selfossi.
Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri Árborgar segir að ekki sé endanlega fastsett hversu mikið fé fari í þennan málaflokk en ljóst sé að hér sé um gríðarlegt átak að ræða. Að öllum líkindum verði ráðstafað hálfum til einum milljarði króna til íþróttamannvirkja fram til ársins 2012.
Minnihlutinn í bæjarstjórn Árborgar lagði fram tillögu í vikunni þess efnis að þegar yrði hafist handa við byggingu fjölnotahússins en sú tillaga var felld af meirihlutanum. Ragnheiður segir að meiri tíma þurfi til að vinna að undirbúningi málsins áður en tekin verður ákvörðun um stærð hússins og framkvæmd við byggingu þess.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.8.2007 | 19:20
HALLÓ, EINHVER ÞARNA ÚTI SEM ÞEKKIR FINN ???Finnur græddi 400 milljónir á Icelandair
VILJIÐIÐ ÞIÐ PLÍS SEGJA HONUM AÐ MIG VANTI NÝJAN BÍL OG YRÐI SVAKALEGA GLÖÐ EF HANN MUNDI STYRKJA MIG. T.D. KIA ÁRGERÐ 2006 EÐA SVIPAÐ, ÉG NÆ ALDREI AÐ LIFA ÞAÐ LENGI AÐ ÉG GETI UNNIÐ MÉR FYRIR BROT AF ÞESSARI UPPHÆÐ SEM HANN FÉKK Í HAGNAÐ.
Finnur Ingólfsson græddi 400 milljónir þegar hann seldi öll sín hlutabréf í Icelandair Group í verulega flóknum viðskiptum í dag. Finnur, sem hefur verið stjórnarformaður Icelandair Group, segir í samtali við Vísi að hann gangi svakalega sáttur frá borði. Hann ætlar að einbeita sér að öðrumLífstíll | Breytt s.d. kl. 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.8.2007 | 15:47
Sjáið þið fyrir ykkur að hann mundi segja "eingöngu pólitík sem ræður því að Þóru Kristínu var sagt upp"
|
Steingrímur: Ekki pólitísk ástæða fyrir uppsögn Þóru Kristínar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.8.2007 | 12:57
Bíðið nú hæg ! brennur bústaður svona upp úr þurru?
|
Sumarbústaður í Grímsnesinu brann til grunna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
31.8.2007 | 12:24
Að lenda í ógöngum í símnúmeraleit !!
Alveg er þetta með ólíkindum, geta þeir ekki haft þetta eins ár efti ár. Ósjaldan hefur maður lent í ógöngum síðustu árin við að leita að símnúmeri þeirra, held þeir verði bara að skrá sig með eitthvað stutt bráðanúmer svo hægt sé að hringja í það eins og 112, það er ófært að þurfa að hringja í 118 til að finna númerið.
Landspítali Háskólasjúkrahús og fleiri nöfn sem ég man eiginlega ekki og svo þetta bölvaða rugl með gamla Lansann og Borgó, fólk hefur aldeilis feilað sig og jafnvel orðið of seint að dánrbeði ástvinar vegna ruglingsins.
Kallinn hér á myndinni er á leiðinni með matinn upp á Borgó, er ekki annars bara eitt eldhús? eða á þetta að fara á Landakot.??
HÆTTIÐ AÐ RUGLA OKKUR Í RIMINI
|
Landspítalinn háskólasjúkrahús verður Landspítali |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.8.2007 | 09:03
Alveg sama tilfinning og hjá okkur hjónum í morgun þegar við skakklöppuðumst framúr !!
Reyndar minnti kynþokki okkar kannski meira á kynþokka úlfalda í eyðimörk, en ástin er blind og mér finnst hann alltaf langflottastur. Mikið er maður annars heppinn að elska og vera elskaður "right back at you". Í dag ætla ég að hugsa um hvað ég er heppin kona. Á yndislegan mann. Hann elskar mig og börnin mín og ég elska hann og börnin hans og börnin okkar elska okkur og hvert annað. Varla þarf maður meira. Dætur okkar 5 eru allar í námi og synirnir 2 í góðum vinnum. Barnabörnin frísk 2 í skóla og 2 í leikskóla. Mömmu líður betur og pabbi er ótrúlega hress. Veðrið er gott og það er útborgað í dag. Ég er bara jákvæð. EN ÞIÐ????
|
Kynþokkinn streymir frá Pitt og Jolie |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
30.8.2007 | 21:45
Ekki slæmt, einstaklega falleg teppin í Pakistan !! Og svo er ég búin að bæta við einum brandara fyrir nóttina !!
Hefði örugglega verið verra að vera kallaður á teppið t.d. á Jan Mayen, þeir eru víst bara með IKEA mottur.
Einn léttur fyrir nóttina. Maður nokkur kom askvaðandi inn í Nóatún og rauk beint að kjötborðinu. Hann talaði við afgreiðslumanninn og spurði hvers lags kjötlæri hann hefði eiginlega fengið deginum áður, hann hafði verið með gesti, en þegar átti að taka helv. lærið út og borða það, þá var það svo skroppið saman að dugði varla handa einumþ Aumingja afgreiðslumaðurinn reyndi að róa kallinn niður og bauð honum bætur ofl. kallinn sagði að það dygði nú skammt þar sem veislan væri yfirstaðin. Kúnninn segir svo við afgr. manninn, " ég er nýbúinn að kaupa mér lopapeysu" þegar ég þvoði hana og setti í þurrkarann þá varð hún á stærð við dúkkupeysu, "heldurðu að það geti verið að þetta sé af sömu kindinni?? haha
Ég mæi með að maður fái sér bara kjúkling:
|
Svíar kallaðir á teppið í Pakistan vegna skopmynda af Múhameð spámanni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn