Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

2008 2008 2008 2008

Hér sprengja menn sem aldrei fyrr og hægt og rólega tifar 2007 sinn veg inn í fortíðina.  Hjartað er milt og mjúkt og hugurinn reikar víða.  Kisa sefur vært við hliðina á mér og kippir sér ekki upp við mannanna læti og ljósagang.  Vona að friðurinn hennar sé fyrirboði um frið í mínu lífi og gott ár 2008

 

2007

         2007

                2007

                             2007 

                                  2008

                                     2008

                              2008

                             2008

                               2008

                       2008

 

           2008

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

            

           


Smá blaut tuska í andlitið eða hvað??? nett áminning um hvernig á EKKI að haga sér. !!

Þá er skaupið búið og eitt ár í það næsta.  Hvað finnst mér svo ? jú, ég hef oft helgið meira. En þetta voru góðir sketsar. Reyndar finnst mér Lost dæmið "lost" en það fuku þarna ágætir brandarar með t.d. "er þetta Eyrarbakkki"? Árni minn gefst aldrei upp. Auðmenn, rónar og aðrir Íslendingar fengu sitt, meira að segja við bloggarar, annars var það nú doldið krúttlegt. Held bara að ég verði að blogga um þetta  Whistling  annars er bara allt í góðun hjá mér.  Veðrið til fyrirmyndar og smá fragettu gangur núna, það verða nú sjálfsagt einverjir fúlir yfir veðurspánni.  Ég sá að Húsvíkingar brenndu sína brennu, sjálfsagt bara spurt einhvern af gömlu köllunum á Dvalarheimilinu hvort veðrið yrði ekki gott.   Anyways, ætla ekki að blogga meira í bili, Puttumst saman á nýju árin farin að horfa á sprengjur.

                    


ÁRAMÓTASKAUPIÐ - Gott kvöld góðir landsmenn og aðrir landsmenn. !!!

Hverslags flokkun er nú þetta.??  Trúlega á þetta að vera fyndið, allavega er örugglega mjög sexý fyrir karlmenn og aðra sem heillast af Ellý sem kynveru, að sjá og heyra hana segja þetta.

                2007

 

                                           2007

                                        2007

                                                                  2007

                                                2007

                    2007

 

                                              Nú árið er liðið í aldanna 

 

 

                      Skaut og......


GLEÐILEGT NÝTT ÁR KÆRU VINIR NÆR OG FJÆR!!!!!

fireworks_1_bg_070404

Mér gengur bara ekki nógu vel að fara hringinn. Síminn og allt að tefja frúna, ætla því að slá restina af flugunum í einu höggi og óska ykkur míni kæru vinir alls hins besta

                                                    

GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG HAFIÐ HJARTANS ÞAKKIR FYRIR SKEMMTILEG OG

  FRÆÐANDI SAMSKIPTI Á ÁRINU SEM ER AÐ HVERFA Í ALDANNA SKAUT.

    HALDIÐ ÁFRAM Á SAMA RÓLI, ÞAÐ ER GOTT AÐ ÞEKKJA YKKUR.

 

                                       Happy New Year  Countdown 

 

                                               

 

 

 


ER Á BULLANDI BLOGGRENNERÍI, BÓTHILDUR BAÐ MIG AÐ SETJA ÞETTA INN EF EINHVERJUM SKILDI LEIÐAST !!


KRYDDSÍLDIN byrjuð og ég á vakt. Fréttastofa TASS endurvakin. ! Nýjasta uppfærsla frá TASS!!

Þeir eru að byrja og Steingrímur strax búinn að henda fyrstu spengjunni.  Þetta  verður spennandi.

MBL0082494

Nú er Guðni að skjóta Ingibjörgu í kaf til hægri og mér sýnist að "þessir ágætu herramenn" munu segja margt spennandi í þessum þætt. Ég er alveg fram á brún í Leisí boy af spenningi.

Ég vona nú að sem flest ykkar hafi notið Kryddsíldarinnar.  Ekkert mjög ávænt í boði að mínu mati. Menn kíta varlega en er mjög pirraðir undir niðri. Guðni er drýldinn að vanda og telur sig guðföður og bókin hans eigi eftir að bjarga flokknum.  Steingrímur gat ekki setið á sér þegar hann var spurður um skoðun á Manni ársins, varð auðvitað að nefna aðra sem hefðu líka átt þetta skilið, hann getur bara aldrei verið sammála. Svo er það auminga Addi Kidda Gau, hann er eitthvað svo rosalega útundan og gleymist næstum því.  Sætasta stelpan er flott í tauinu enda áramót og hún á afmæli "Til hamingju Ingibjörg Sólrún" Hún og Geir eru svona eins og fullorðna fólkið í barnaafmæli, pen og prúð og góðir vinir og reyna að skikka börnin soldið til.  Sigmundur Ernir er eins og fíll í glerbúð og skítur hressilegum spurningum, vinstir/hægri.   Ég er bara þokkaleg sátt með þáttinn, en er búin að horfa á Silfrið tvisvar og hef ýmsar skoðanir á því, ætla ekki inn á þá braut núna, sjá til hvað bloggarar segja um það.  Nú ætla ég að klára bloggvinarúntinn áður en ég er að elda.  Verið stillt.


Lata stelpan risin úr rekkju. Hún svaf hjá Emmu öfugsnúnu í nótt, útkoman er.....

..... merkileg samblanda af gríni og trega.  Gleðin mun þó hafa yfirhöndina í dag, alveg ljóst.

Synd væri líka að segja að það sé ekki eitthvað sem gleður svona strax í byrjun dags. Dúa mín dásamlega farin að blogga upp á nýtt, örugglega af því að henni hefur fundist nýja síðan mín svo flott og nú ætlar hún örrgla að toppa það.   Annars ætla ég, trú öfugsnúna geninu mínu, að senda ykkur skrilljón kossa núna og fara svo blogghringinn. Kem svo með eitthvað gáfulegt þegar líður á daginn.  Love you to peaces.                 3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses

3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses3 More Kisses


Loftárásir á Selfossi - og sjónvarpið svo leiðinlegt að húsbandið er að horfa á Omega.

448263A

 

Loftinu liggur svo á að þegar það fer sem hraðast yfir minn litla bæ eru þetta hreinar og klára loftárásir. 

Húsbandið er að reyna að finna einhverja stöð sem hægt er að horfa á en ég held að við förum bara að spila, annað hvort við hvort annað eða með hvort annað.

Nei svona grínlaust þá gengur hér á með þvílíkum hryðjum að mér stendur varla á sama.  Kattar ræfillinn minn kúrir hér við hliðina á mér og þorir varla að loka augunum. Gott að eitt herbergið hér er gluggalaust, fer þangað inn í nótt ef þessu heldur áfram.

Í dag sá ég á hundabloggi Heiðu vinkonu minnar í Húrígúrí, svo sætar myndir af litlu tíkinni hennar, tíkin heitir Hekla.  Ég færði henn tætingsgjöf um daginn og sú stutta byrjaði nú á að míga á dregilinn en skv. myndinni sem ég stal og set hér með, er hún búin að taka ástfóstri við duluna. Hef samt ekki frétt af því hvort hún mígur af og til á hana, til að merkja hana.  En allavegana yndislegur lítill hundur á góðu heimili.   Hér er mynd af Heklu með gjöfina.

20071230121737_5

 

Sorry Heiða varð að stela myndinni af henni hún er svo sæt.

 

Smá leiðrétting þetta með Omega, hann kíkti inná í 2 min. og varð fyrir áfalli, þetta fólk er margt alveg stórfurðulegt.


mbl.is Erfiðar aðstæður á Austurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ég HROSS eða KLÁR ---- ég er búin að myndajafna.

Sjáið nýja útlitið mitt.  Þvílíkur snillingur sem ég er. Fór í skólaþema og gerði smá breytingar og útkoman er þessi líka mega flotta síða, allavegana í bili, ég skipti jú stundum um útlit eins og þið vitið  LoL  ég ætla að hald áfram að lesa gáfuleg innlegg hjá öðrum bloggurum umleið og ég horfi á Die Hard, klappa kettinum, ræð krossgátu og prjóna trefil.  Segið svo að maður sé ekki multi task woman.  

 

Við nánari skoðun stóðst þessi mynd ekki siðgæðisprófið, það sást í eitthvað sem ég hafði ekki séð og er eiginlega ekki við hæfi á svona flottri nýrri síðu. Kem því með eina fallega sem ég fékk senda frá bloggvini mínum.  Erum við ekki öll vinir??

 

                   !cid_image001_gif@01C84A58


Er aðeins að rugla í þemapökkum, langar svo í toppmynd.

Svo er aldrei að vita nema það auki umferðina hjá mér LoL  allavegana þá mun síðan verða skrítin næsta hálftímann.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband