Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Er komin heim á Selfoss og þessi frétt heillar mig mest í kvöld ..

Ég er vís með að kíkja á þessa bók, eins ákveðin og ég er í því að lesa ALDREI bókina hans Þorgríms, alveg finnst mér yndisleg setningin "litlan heila" þvílíkt frábær málfræðiskekkja sem undirstrikar grínið.  Það var ekkert vont að fara austur í kvöld.  Ég verð að sofa í mínu rúmu fer bara suður (vestur) á morgun og eyði deginum hjá mömmu. Núna ætla ég að byrja bloggvina hringinn, sé hvað ég endist fram á kvöldið.  Annars bara góða nótt á ykkur öll.

MBL0140344


mbl.is Í samkeppni við Þorgrím Þráinsson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rifinn upp með rótum - hægt að útleggja það á margan hátt.!!

Skaust aðeins fram í biðstofuna, sá frétt um uppfokið tré á Húsavík, ég og mínir erum náttl. Húsvíkingar og erum einhvernvegin með lausar rætur þessa dagana. Erum hér og þar og alls staðar en samt eiginlega hvergi nema hjá mömmu.  Ég ætla mér austur í kvöld með 9 rútunni, kem bara aftur á morgun, svo gott að sofa heima, eiginlega nauðsynlegt til að halda heilsunni í sæmilegu formi.  Kveðja til ykkar.
mbl.is Tré rifnaði upp með rótum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég tók hálf tíu bílinn í bæinn, fórum Þrengslin.

Ótrúlegt veðrið í dag, en samt alveg eins og spáð var.  Ég tók hálftíu bílinn og við vorum komin í bæinn rétt um hálfellefu. Gekk ótrúlega vel.Það var reyndar rok og hálka og þegar við vorum að keyra upp Þrengslin kallaði bílstjórinn, "eru ekki allir með belti"?  og við alveg jú, jú.  Þegar við vorum svo komin á Sandskeiðið var bara hvasst.  Nú er ég komin á Landakot og allt er svipað. Held nú samt ekki að ég fari heim í kvöld, veðrið er það leiðinlegt og ég get bara gist hjá pabba. Vona að þið eigið góðan dag og enginn sé að þvælast út á land í vondu veðri. Verð bara að segja enn og aftur að ég sakna þess rosalega að geta ekki lesið bloggin ykkar.  Þið verðið bara að segja mér þegar ég dett inn aftur í lestur, ef ég hef misst af miklu.  Ég fékk sprautur í mjöðmina upp á Heilsugæslu heima í gærkvöldi og er núna dofin og get vonandi setið næstu daga. Djö. var sprautan löng 20 cm. og doksi sagði samt "vona að hún sé nógu löng" hann allavega grautaði henni þarna inni í mér og ég barði bara vegginn.  LoL

 

MBL0161958


mbl.is Hellisheiði lokuð vegna veðurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítið ! þetta hefði mig aldrei grunað. !


Þú ert vel steikt dramadrottning.


Ef dramadrottningar væru hamborgarar sem fengjust "rare", "medium rare", "medium" og "well done" værir þú "well done". Jafnvel svo vel steikt að erfitt væri að sjá muninn á þér og skósóla. En velsteikta dramadrottningin kærir sig ekki um óvæntar uppákomur eins og matareitrun. Hún vill að hlutirnir séu fyrirsjáanlegir og skipulagðir. Hún bleytir því einfaldlega upp í þurrum borgaranum með fullt af kokteilsósu.

Miklir leiðtogahæfileikar búa í vel steiktu dramadrottningunni. Hún er mjög yfirveguð og rökföst en einnig þrjósk.

Í raun verður nánast aldrei dramatískra eiginleika vart í fari vel steiktu dramadrottningarinnar. Ætli þeir hafi ekki drepist við steikingu. Það er þó tvennt sem getur komið hinni vel steiktu úr jafnvægi. Annars vegar hrár fiskur. Hins vegar þátturinn Frægir í form. Hún er enn að leita að fræga fólkinu í þættinum.

Hversu mikil dramadrottning ert þú?

Mikil sóma kona hún Jóhanna Sigurðardóttir.

Aðeins að stelast í tölvuna.  Í morgun fórum við nokkur saman að heimsækja Jóhönnu.  Við fengum alveg ljómandi móttökur.  Ég las þarna smá klausu sem ég setti saman og svo fékk hún bunkann með undirskriftunum.  Það var ánægjulegt að heyra það sem hún sagði um hvaða mál eru efst á baugi varðandi örorku- og ellilífeyrisþega. Hún hrósaði okkur líka fyrir að vera svona dugleg við að fjalla um mál, bæði öryrkjanna og líka ellilífeyrisþeganna og hvatti okkur til að halda áfram að viðhalda athygli á málunum.  Gaman verður að fylgjast með framgangi mála næsta ár þegar allur pakkinn verður komin í Félagsmálaráðuneytið.

Nýjasta héðan er eiginlega bara status quo, mömmu líður eins vel og hægt er, en meðvitund engin síðan á laugardagskvöld. Yndislegt samt í rauninni að fá að halda ennþá í heita hendina hennar.  Ég er sannfærð um að allar fallegu kveðjurnar ykkar gera það að verkum að á stofunni hjá henni er einstakur friður og fegurð yfir öllu og mér líður ótrúlega vel og það sem er best að þá líður pabba miklu betur en ég þorði að vona. Greinilegt að kærleikurinn er það afl í heiminum sem virkar best.

Hjartansþakkir til ykkar allra.  Hlakka til þegar ég get farið að lesa bloggin ykkar aftur. InLove

 

 


Verð heima í nótt. Er að safna smá orku fyrir morgundaginn. !

Ætla að hvíla mig vel því að á morgun marserum við fjöryrkjar saman til Jóhönnu í Félagsmálaráðuneytið.  Vonandi mæta einhverjir blaðamenn svo að málið fá smá auglýsingu. Það hefur dregist von úr viti að fá viðtalið í Sjónvarpinu vegna anna, en við erum hvergi hætt eða af baki dottinn.  Réttlætið sigrar að lokum.  Mig langar að setja inn mynd sem ég tók í gærkvöldi af lúnum höndum móður minnar. Mér finnst þetta svo falleg mynd.  Þessar hendur hafa leitt mig í 51 ár og aldrei brugðist.  Hafið það gott og hjartans þakkir fyrir öll innlitin, ég finn svo greinilega hversu mikil áhrif bænir ykkar og kveðjur hafa haft á mig og mína.   Góða nótt.

 


Enn sitjum við og bíðum.

Kom þú dauði þá þú vilt !! stendur einhversstaðar.  Hún mamma litla er seigari en allt.  Enn andar hún og lifir, þrátt fyrir verkjalyf, morfin ofl. Hún hefur seiglast áfram allt sitt líf og er enn í þeim gírnum.  Engin veit svosem hvenær endirinn kemur, en svona er lífið.   Ég þakka ykkur öllum vinum mínum kærlega fyrir góðar kveðjur.  Það er mér ómetanlegt.

Á morgun stendur til að hitta Jóhönnu Sigurðardóttir, ráðherra og færa henni undirskriftarlistana. Vonandi fáum við einhverja athygli.  Mál öryrkja og ellilífeyrisþega færast yfir í Félagsmálaráðuneytið um áramót og tel ég það góða þróun fyrir okkur.  Eigið góðan dag öllsömul og enn og aftur þökkum við góðar kveðjur.


Landakoti að morgni mánudags. Smá uppfærsla.

Enn sit ég hér á spítalanum hjá mömmu.  Hún hefur ekki vaknað síðan á laugardag. Ég var hér í nótt, því ég vil vera hjá henni þegar hún fer.  Hún er komin í djúpan svefn og fær morfín reglulega. Ótrúlegt hvað litli tikkarinn gengur og gengur.  Verð að viðurkenna að það er gott að geta enn kysst hana og haldið utan um hana.  Pabba á ósköp erfitt en miðsystirin var hjá honum í nótt og verður áfram.  Lífið rúllar rólega áfram og vindurinn blæs. Vonandi styttist stríðið hennar og hún svífur á braut til ástvina sinna sem bíða hennar.  Eigið góðan dag gullin mín.  Hjartans þakkir fyrir ljúfar kveðjur, þið eruð hreint út sagt yndisleg og svo gott að vita að þegar þetta allt er afstaðið get ég haldið áfram að bloggast á við ykkur og sækja mér styrk og svo vonandi að gefa líka til baka ef þarf.

 

Að taka síðasta skrefið.

 

Það hafa margir búið sér til mynd af leiðinni milli lífs og dauða.

Ein af þeim er myndin af skipi sem lætur úr höfn.

Gerðu þér í hugarlund, að þú standi við fjöruborðið á sumarkvöldi og sjáir fallega skútu sem undirbýr brottför. Seglin eru dregin upp. Þegar kvöldblærinn kemur fyllast seglin og skútan skríður út úr höfninni, út á hið opna haf.  Þú horfir  á eftir henni þar sem hún siglir mót sólarlaginu. Hún verður minni og minni, og að lokum hverfur hún eins og lítill punktur við sjóndeildarhring.  Þá heyrir þú, að einhver sem stendur við hlið þér segir."Nú er hún farin frá okkur". 

Farin frá okkur, eða hvað? Það, að hún verður minni og minni og að lokum hverfur alveg, það er bara það sem augað sér.  Í raun og veru er hún jú jafn stór og falleg og þegar hún lá hér við hafnarbakkann ! Einmitt á þessu andartaki þegar þú heyrir röddina, sem segir að hún sé farin frá okkur, þá er kannski einhver á annarri strönd sem sér hana birtast við sjóndeildarhringinn og nálgast stöðugt, einhver sem bíður eftir því að taka á móti einmitt henni, þegar hún kemur til sinnar nýju hafnar.

Takk fyrir fallegar kveðjur þær hjálpa mikið.


Í nótt ætla ég að sofa í Álverinu í Straumsvík, eða þannig.

Er hætt við að sofa hjá minni kæru systur heldur ætla ég að gista í glænýju hjónarúmi hjá dóttur okkar sem býr á Eskivöllum við álverið í Straumsvík. Hér eru nefnlega tvö af yndislegu barnabörnunum okkar og það verður gaman að vakna í fyrrmálið við að þau skríði uppí. Æ hvað lífið er í rauninni ljúft þó svo að allir dagar séu ekki jafn sléttir og felldir.  Fer til mömmu í fyrramálið, ef ekki verður hringt áður, vonandi kíki ég heim annaðkvöld svo kisa mín deyji ekki úr söknuði.  Verið góð og hér er fyrripartur á Gísla

Gísli vinur gefðu mér

góð stöku að kveða

komdu svo með seinnipart á þetta.


EINSTAKLEGA FYNDIN STJÖRNUSPÁ MIÐAÐ VIÐ KOMMENT NÆTURINNAR HJÁ MÉR.

Hrútur: Fyrirgefðu taugaveiklaða fólkinu. Það á það til að segja heimskulega og móðgandi hluti, en meinar ekki orð af því. Það eina sem þú getur gert er að taka því.

Í dag skín sólin og veðrið er hreint út sagt yndislegt.  Ég ætla að fara í bæinn með rútunni og eyða deginum hjá mömmu.  Ætla svo að gista hjá Bryndísi systir. Hún er með litlu tvíbura ömmustelpurnar sínar í heimsókn og það verður gaman að hitta þær, alveg yndislegar skottur sem voru að byrja í skóla í haust.  Húsbandið ætlar að vera heima og reyna að klára að koma bölvuðum Mussonum saman, ekki gaman þegar bílar fara í svona "game over".  Ég kemst örugglega í tölvu í kvöld og ætla þá að athuga hvort ég hef fengið eitthvað meira af "líflegum" kommentum. Eigið ljúfan dag og njótið blíðunnar og ef einhver les þetta sem er í vondu veðri, þá má líka njóta þess. 

PB010015

Þarna hvílir Kristur í Vífilfellinu.

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband