Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Enn ein ástæðan til að halda sér grönnum. Hreyfing er örugglega besta meðalið við flestu.

Allavegana finnst mér að núna síðustu 8. mán. sem ég hef átt svo erfitt með að hreyfa mig reglulega, þá hefur heilsu minni hrakað. Ég vildi að ég gæti labbað úti klukkutíma á dag, en kannski þetta komi smátt og smátt, mig langar ekki að leggjast í kör strax.
mbl.is Líkur á krabbameini aukast með þyngd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru ekki einhver "skoðanaferli" sem sett eru af stað þegar verið að senda leikföng á markað?

Þetta hlýtur að flokkast undir græðgi.  Ef menn eru vísvitandi að setja hættuleg leikföng í verslanir. Er þetta kannski þannig að hægt er að framleiða vöruna á ódýrari hátt með þessum hættulegu efnum. Forvitnilegt að fá að vita það.

Toy%20Store


mbl.is 440.000 kínversk leikföng innkölluð í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framhald af mosku umræðum á bloggi Höllu ! Þarf að leyfa allt á Íslandi ?

Ég er búin að eyða hálftíma í það að lesa kommentin á síðunni hjá  HÖLLU   bloggvinkonu minni.  Þar skortir ekki skoðanir á trúmálum.  Ég sá að mín skoðun kæmist aldrei til skila nema ég byrjaði nýja færslu og mig langar að mín skoðun komist á blað.  Ég er umburðarlynd semsagt ekki fordómafull og ég er ekki rasisti, en mér finnst ekki að allt þurfi að vera til á Islandi.  Ef að fólki finnst að við þurfum algjörlega að opna litla landið okkar fyrir öllu og leyfa allt sem ekki  hefur þekkst áður t.d í trúarmálum og öðrum siðum og venjum annarra þjóða, þá fer ég hér með fram á það sem íslensk kona með trú á minn GUÐ að landinu verði skipt i austur/vestur með háum múr og við sem viljum halda okkur fjarri moskum, múslinum, búddatrú og hofum, svo eitthvað sé nefnt, getum bara farið austuryfir með okkar siði og venjur. Það þýðir ekkert fyrir ykkur að segja að sé haldin fordómum því ég er það ekki, þetta er skoðun mín sem mér er frjálst að hafa. Ísland fyrir Íslendinga og þá sem vilja gerast Íslendingar, ekki gera okkur að hverfi í stórborg í landi fólks sem dauðsér eftir því í dag að hafa opnað lönd sín upp á gátt og látið flæða inn, þeir öfunda okkur í dag, en mér sýnist stefna hraðbyr í að við náum þeim löndum sem sitja nú mörg hver í sárum, því hér þarf að leyfa allt. Er ekki einhver ástæða fyrir því að við röðumst misjafnt niður í heiminum ? er ekki verið að byggja upp ólíka menningu ? mannkynið verður aldrei eitt, við erum margvísleg og það finnst mér gott. Við tökum á móti gestum, sumum likar ekki aðbúnaðurinn svo þeir fara heim aftur, en öðrum líkar svo vel að þeir vilja setjast að og taka upp siði og venjur og lög þess lands sem þau eru komin til. Hætt í bili.

Ég er GEIMVERA !!!

 

 Hér er listinn góði   3690 hafa skráð sig núna  ÝTIÐ,HÉR

      Hrútur: Þú hefur leitað að afsökun til að kanna innra heim annara, og nú er færi. Farðu í hrekkavökubúning og lifðu þig inn í hlutverkið. Uppástunga: geimvera.

aliens


Hálfvitalegur árafjöldi, 40.000 ár !! Er ekki hægt að samræma hluti betur. ?

Hversvegna geta dómar aldrei verið skynsamlegir að mati almennings?  á Íslandi tíðkast að mínu mati, of stuttir dómar almennt séð og svo er undir hælin lagt hversu góð framfylgnin er. Á Spáni hafa þeir svo núna dæmt fólkið í 40.000 ár en síðar í greininni kemur svo fram að enginn muni þó sitja lengur en í 40 ár þar sem það sé leyfileg hámarksrefsing.  Afhverju þarf þetta að vera svona bjánalegt. Afhverju ekki að dæma menn þá í þessi 40 ár og láta þá sitja það af sér? og afhverju ekki að dæma Íslendinga fyrir ÖLL brot, ekki eltast við smáhluti eins og læri og álíka bjánalega hluti. EKki þar með sagt að mér finnist fólk eiga að sleppa fyrir smáglæpi, mér finnst bara að það eigi að vera samræmi í dómum.  EItt lambalæri er einskis virði á við, fíkniefnasmygl og nauðganir eða tilraunir til misnotkunar á börnum.  Þetta er mín skoðun.
mbl.is Hryðjuverkamenn í Madrid dæmdir í 40 þúsund ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn hrikalega góður á dönsku, karlmenn verða að varast að særa konu, því hefnd konu getur verið ein sú grimmasta í heimi.

Var að koma heim úr þriggja tíma ondúleringu með hárið mitt, úff hvað það getur verið erfitt að vera svona mikil skvísa.  Allavegana skelli hér inn einum mega góðum brandara. Hann er á dönsku og ég nenni ekki að þýða hann, ætla að leggja mig, en þið eruð nú svo klár öll sem kíkið við hjá mér að þið eruð örugglega snillingar í dönsku eins og öllu öðru. 

  

Til mændene: Pas på hvad I gør!

>Han havde efter mange år fundet en ny og yngre kæreste og havde meddelt
>hende at hun måtte flytte.
>
>Hun tilbragte den første dag med at pakke alt ned i kasser.
>
>Den anden dag kom flyttefirmaet og hentede det hele.
>
>Den tredje dag satte hun sig for sidste gang ned ved det skønne
>spisebord, tændte et par levende lys, satte noget god musik på og
>spiste en stor portion friske rejer, lidt russisk kaviar og drak en flaske Chardonnay.
>
>Da hun havde spist, gik hun rundt i hvert eneste rum og stoppede
>rejerester ind i enderne på alle gardinstængerne !
>
>Så gjorde hun køkkenet rent og forlod huset.
>
>Da manden kom tilbage til huset med sin nye kæreste, var de første dage
>præget af lutter lykke og glæde. Så begyndte huset så småt at lugte. De
>prøvede alt - støvsugede, vaskede, luftede ud.
>
>Ventilationskanalerne blev tjekket for at finde eventuelle døde mus og
>rotter, tæpperne blev renset, og duftblokke og luftfriskere blev hængt
>op overalt.
>
>Skadedyrsbekæmpere blev hidkaldt og iværksatte gasbekæmpning af lugten,
>og det betød at det lykkelige par måtte flytte ud i nogle dage. Til
>sidst blev de gamle stråtapeter revet ned og erstattet med papirtapet.
>
>Intet hjalp.
>
>Vennerne holdt op med at komme på besøg.
>Håndværkere og andre arbejdere gjorde alt for ikke at komme til at
>arbejde i huset.
>Hushjælpen sagde sit job op.
>
>På det tidspunkt kunne de heller ikke selv holde stanken ud mere, så de
>besluttede sig for at flytte. En måned senere havde de endnu ikke fået
>solgt huset, selv om prisen nu var halveret.
>
>Rygterne gik, og ejendomsmægleren holdt op med at svare på deres
>opringninger. Til sidst var de nødt til at optage et stort banklån for
>at betale for et nyt hus.
>
>Eks-konen ringede til manden og spurgte hvordan det gik.
>
>Han fortalte hende hele historien om det rådnende hus.
>
>Hun lyttede medfølende og sagde, at hun savnede sit gamle hjem
>forfærdelig meget og at hun godt kunne tænke sig at købe huset tilbage.
>Manden var sikker på, at eks-konen ikke vidste hvor galt det stod til,
>så han gik med til at sælge huset til hende for en tiendedel af
>markedsprisen på betingelse af, at hun skrev under på kontrakten samme
>dag. Det sagde hun ja til.
>
En uge senere stod manden og hans kæreste i huset for sidste gang - de
lo lykkeligt. De var lettede da flyttefirmaet kom og hentede alle deres
ting for at køre dem til det nye hus.

...inklusiv gardinstængerne


 


Flokkast þetta undir bítlaæði?? allavega kalla ég þetta bilun !

0_21_101806_paul_heather

Ég fékk þessa frétt að láni hjá vísi, mér finnst þetta bilun. Hvernig verður afmælin þegar fer að standa á tug og hvernig verður brúðkaup barnsins? Ég las einhversstaðar í gær að öll veislan hafi kostað 12 millur.

Nágranakona Mills segir að flugeldasýning sem bítlaeiginkonan fyrrverandi hélt hafi drepið hundinn sinn.

Glow, fimm ára Weimaranertík Söndru Rowbury, dó morguninn eftir risavaxna flugeldasýninguna úr þarmabólgu sem nágrannakonan segir að sé afleiðing mikillar skelfingar sem hundurinn varð fyrir.

Flugeldasýningin, sem kostaði tæpa eina og hálfa milljón, var haldin í tilefni af fjögurra ára afmæli Beatrice, dóttur Mills og Paul McCartney. Tuttugu mínútur af sprengingum og ljósadýrð olli mikilli skelfingu í nágrenninu. Rowbury segir að fimmtán hestar sínir hafi einnig tryllst af hræðslu meðan Mills og vinir supu kampavín og nutu sýningarinnar.

The Sun hefur það eftir vinum Mills að hún og systir hennar hafi báðar verið með hunda sína í boðinu og þeim hafi ekki orðið meint af. ,,Ef hundurinn dó út af sýningunni yrði Heather í rusli. Hún er mikill dýravinur" sagði vinurinn.


Hugrakkasta hljómsveit ever var hljómsveitin á TITANIC.

Mér finnst það ekki vera spurning að hljómsvveitin á TITANIC var hugrakkasta hljómsveit allra tíma.
mbl.is Hugrakkasta hljómsveit í heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá uppfærsla á stöðu undirskriftarlistans.

      UNDIRSKRIFTIR

Áfram heldur listinn. Ég hef verið að kíkja á undirskriftir og rekist á ýmislegt kjánalegt, en sumir þurfa að fá útrás fyrir heimsku sína.  T.d. var í einni nafna línunni ábending um að "ekki væru nú allir öryrkjar" og að fólk ætti að "byrja á því að taka til heima hjá sér" hverjum sem það hefur verið ætlað, þá vona ég að við séum öll að verða svo sjóuð og sterk að láta það ekki brjóta okkur niður. Síðan ég lærði að ég get ekki sannfært sumt fólk um heilsuleysi mitt, þá einfaldlega hætti ég því. Ég á þetta við mig sjálfa, læknana og GUÐ og hann er sá eini sem sér inn í hjarta mitt. Reynið að tileinka ykkur þetta líka, það léttir manni að takast á við hvern dag.  Stundum hér áður fannst mér það mótlæti sem ég upplifði hvern dag vegna heilsu minnar, hjóm eitt í samanburði við það mótlæti sem sumir í þjóðfélaginu sýndu mér. En þetta er liðin tíð og vonandi get ég hjálpað ykkur hinum sem ekki hafa náð þessu stigi.  Í þessari viku verður tekin ákvörðun um framhald á þessu upphlaupi okkar Heiðu, það er ýmislegt í pípunum, en ég get ekki sagt frá því opinberlega strax, en um leið og það má, þá læt ég ykkur vita.

Eins og ég sagði í gær/fyrradag þá eru 2 af barnabörnum okkar í heimsókn, ég var að taka myndir og ætla að skella hér inn.  Þau eru bara dúllur. Svo um næstu helgi ætlum við að reyna að vera eina nótt með yngri peyjana 3 og 4ra ára, foreldrar þeirra eru að skreppa til London. 

 

k 003 Brynjar Steinn 8 ára í afa holu

k 002 Kristjana Freydís 6 ára í ömmu holu

 Þau eru yndisleg og gleðja afa og ömmu mikið.


NEGRASTRÁKARNIR SELJAST EINS OG HEITAR LUMMUR !!

bilde

 

þETTA FÓR SEMSAGT EINS OG ÉG SAGÐI VÍÐA Í KOMMENTAKERFINU  BÓKIN ROKSELST OG ÖRUGGLEGA Í NOKKRUM UPPLÖGUM. ÞAÐ BORGAÐI SIG KANNSKI EKKERT FYRIR ÞÁ SEM ERU Á MÓTI BÓKINNI AÐ HAFA SIG SVONA MIKIÐ Í FRAMMI.

Ekki þar með sagt að þetta gleðji mig, en ég óttaðist að svona færi.

          Í framhaldi af þessu langar mig að benda á bækur sem komu út hér á landi fyrir nokkrum árum og eru þær myndskreytt ævintýri H.C.Andersen. Ég keypti þær í gegnum netið til að handa barnaörnunum mínum. Ég fékk nett sjokk þegar ég sá þessar bækur. Þetta var : Litla stúlkan með eldspíturnar, Nýju fötun keisarans og Eldfærin. Myndirnar í bókunum eru það alljótasta sem ég hef séð og gekk svo fram af mér að ég hringdi í útgefandann og kvartaði, ekki þótti mönnum ég hafa mikið til máls míns og sögðu að "enginn annarr" hefði kvartað, skemmst er frá að segja að ég henti bókunum og frábið mér að nokkurt minna barnabarna fái þessar sögur lesnar fyrir sig í leikskóla. Hér er síðan ef þið viljið sjá hvað ég meina. http://www.totil.com/?q=image/tid/29

 

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar: FENGIÐ AÐ LÁNI Á VISIR.IS

Barnabókin Tíu litlir negrastrákar hefur selst gríðarlega vel en útgáfa bókarinnar hefur ollið nokkru fjaðrafoki. Bryndís Loftsdóttir, sölustjóri íslenskra bóka hjá Eymundsson segir að bókin hafi selst feykilega vel um helgina og að svo virðist sem sumir standi í þeirri trú að til standi að banna bókina og ætli sér því að tryggja sér eintak í tíma.

Svo mun þó ekki vera en sumum hefur gramist endurútgáfan á þessari klassísku barnabók sem listmálarinn Muggur myndskreytti á sínum tíma.  Sem stendur er bókin í sjöunda sæti á metsölulista Eymundsson en nýr listi verður gefinn út á miðvikudaginn.

Þá kemur í ljós hvort negrastrákarnir hafi náð að klifra upp listann.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband