Aumingja kennararnir, ef meirihluti nemenda hugsar og talar eins og hér að neðan má sjá, þá verður varla nokkur kjaftur á þessu landi sem talar íslensku eftir 100 ár.



 

Subject: FW: Vinsamlegar ráðleggingar nemanda til kennara


Eftirfarandi bréf barst stjórnendum á dögunum frá nemanda sem vill koma á
nýtískulegum kennsluháttum í skólanum:

Mörgum nemendum finnst kennarar þeirra vera ótrúlega leim og voða mikið bara
að kenna eitthvað júsless stöff. Allar bækurnar sem eru lesnar í íslensku
eru t.d. most boring bækur ever sem enginn les nema einhverjir proffar! Án
djóks! Svo tala þeir einhvað fokking fornmál og maður bara VÓ!
og skilur ekki rass og svo hrauna þeir bara yfir mann ef maður spyr kannski
aftur hvað hafi skeð fyrir einhvern í einhverri sögu!

Kannski ættu kennarar að pæla í því að gleyma gömlu kennsluaðferðunum sem
eru nú ekkert til að hlaupa húrra fyrir og þeir eru búnir að nota síðan í
örlý seventís og fara að öpdeita sig aðeins.

Þeir gætu t.d. komið sér upp kennslusíðum á feisinu og gætu þá addað
nemendum og þá nottla bara þeim sem hafa áhuga. Þá gætu kennararnir líka
tjattað við nemendur og búið til allskonar quiz og test sem nemendum þætti
gaman af í staðinn fyrir að vera alltaf að bögga nemendur með sjúklega
leiðinlegum prófum.

Svo er gegt góð hugmynd að nemendur gætu þá líka alltaf kommentað á t.d
heimanámið því það er ógeðslega fúlt að hafa of mikið að gera eða verið með
reitings á kennsluna og kannski gætu kennarar sem skora hátt fengið hærri
laun eða eikkað.

Kennarar gætu líka verið með til dæmis groups um kjörbókarritgerð og þá gætu
þeir bara joinað sem ætluðu að lesa heila bók eða sollis og fá þannig 10% .

Kennaranir gætu líka sett inn events þegar væri að koma próf og sent
nemendum bara invitation þá myndu allir pottþétt vita það. Ekki eins og núna
þegar stundum er ekki einu sinni sagt manni að það sé próf næsta dag!
Kommon!

Svo ef kennarinn sé veikur þá er næs að hann geti bara sett það í statusinn
og nemendur sjá það og bara hjúkket! Frí! Sjitt hvað það væri osom!

Svo gætu allir sett inn myndir - bara svona normal myndir - ekkert djúsí sem
kennarinn má ekki sjá ;) og þá er hægt að tagga aðra nemendur á myndunum og
þá væri miklu meira easy skiluru fyrir kennarann að muna hvað allir heita
sko.

Kennarar gætu líka kennt bara online og allir fengu mætingu ef þeir væru
loggaðir inn. Það væri svít. Þá gætu nemendur bara tjillað heima kannski og
dánlódað bara öllu draslinu í tölvurnar eða ipodana sína!

Allavega er aðal issjúið að kennarar átti sig á því að núna eru þeir í tómu
tjóni og það sé möst að þeir geri huge breytingar á kennslunni sko! Sorrý en
þeir verða að spá í að þeir eru líka í keppni við allt hitt stöffið sem
nemendur geta skemmt sér við í tölvunum. Það er audda miklu skemmtilegra að
spila tölvuleik eða að horfa á eitthvað á Youtube heldren að hlustá einhvern
kennara tala. En whatever...eikkað er greinilega að og því er skorað á
kennara: Reynið að láta nemendunum hlakka til að mæta í tíma til ykkar og
þið rúlið!

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

U r right ekki einn kjaftur hehehehhe

Ía Jóhannsdóttir, 26.11.2009 kl. 21:29

2 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það er nú bara nokkuð góður húmor í þessu - verð nú bara að segja það.....!

Ómar Bjarki Smárason, 26.11.2009 kl. 21:34

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Var að heyra í dag að kennsluaðferðir í dag við lestri væru að skapa lesblindu og námserfiðleika.  Slæmt ef satt er.  Ef til vill þarf að fara í endurskoðun á kennslu á fleiri en einn veg. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.11.2009 kl. 21:42

4 Smámynd: Offari

Þessi er greinilega að undirbúa sig fyrir komu Bretana.  Satt best að segja hef ég ekkert á mút því að íslenskan enskuvæðist. Margt hefur farið forgörðum td tók það marga áratugi að koma Vídeoinu út í staðin fyrir myndbandstækið. En loksins þegar menn vorfarnir að tala um myndbönd kom DVD spilarinn   sem ekki er enn búið að íslenska.

Það er margt í tölvumáli sem reynt hefur verið að íslenska en fáir skilja íslensku orðin.

Offari, 26.11.2009 kl. 22:46

5 identicon

Af því að ég þekki til málsins þá vil ég benda á að þetta "bréf" var búið til af íslenskukennara í menntaskóla á höfuðborgarsvæðinu sem verkefni/samkeppni á Degi íslenskrar tungu 16. nóvember síðastliðinn. Verkefnið fólst í því að "þýða" þetta bréf yfir á sem besta íslensku og voru góð verðlaun í boði. Hugmyndin var að vekja nemendur til umhugsunar um eigið málfar og stöðu íslenskunnar. Á viðbrögðum sem þetta "bréf" hefur fengið á Netinu virðist það hafa haft tilætluð áhrif langt út fyrir veggi skólans! :)

innmúraður (IP-tala skráð) 27.11.2009 kl. 00:28

6 Smámynd: Anna Guðný

Var að lesa þetta fyrir mínna 14. ára og henni fannst þetta meiriháttar. Er alveg til í svona event til að minna þau á próf.

Ætla að leyfa mér að prenta þetta út og senda hana með í skólann.

innmúraður: Takk fyrir upplýsingarnar.

Hafðu það gott Ásdís.

Anna Guðný , 27.11.2009 kl. 00:53

7 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Déveffdé er íslenska.

Páll Geir Bjarnason, 27.11.2009 kl. 04:19

8 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Dévaffdé, afsakið.

Páll Geir Bjarnason, 27.11.2009 kl. 04:20

9 identicon

Þá líst mér betur á íhaldssamt og staðlað málfar heldur en svona málblöndu sem skilst ekki nema innan einhverra hópa sem tala svona.

Ég skil til dæmis betur það sem stendur í fornbókmenntunum heldur en málið sem Megas og Páll Óskar tala.

Fólk getur svosem talað svona ef því er ekki umhugað um að nokkur skilji það.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 27.11.2009 kl. 05:01

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Það er alveg ástæða til að "hlaupa húrra" fyrir snillingnum sem samdi þetta... en "það var sagt mér" að að þetta væri bara grín

Jónína Dúadóttir, 27.11.2009 kl. 06:57

11 Smámynd: Birna Dis Vilbertsdóttir

það þarf eitthvað að breitast svo mikið er víst 

Birna Dis Vilbertsdóttir, 27.11.2009 kl. 10:16

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir skemmtileg viðbrögð ykkar, mér fannst þetta fyrst og fremst skemmtilegt en auðvitað um leið sterk ádeila á málfar unglinga. Ég ferðast stundum með strætó á milli Selfoss og Rek. þar heyri ég oft unglinga spjalla og þvílíkt málfar, verð svo þreytt að hlusta á málfarið hans Ólafs Ragnars úr munni svona margra í einu, það sem vaktar þættirnir hafa haft mikil áhrif á mál unglinga.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.11.2009 kl. 10:42

13 Smámynd: Stjörnupenni

Haha, þessi texti er reyndar ótrúlega vel skrifaður og greinilega góður og skemmtilegur penni sem kom honum á blað :D Húrra fyrir því

Stjörnupenni, 28.11.2009 kl. 11:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband