Maður bloggar ekki í blíðunni.
17.5.2009 | 20:53
Ég er búin að sitja úti í alla dag og prjóna. Þvílíka blíðan, fór mest upp í 22 stig í forsælu hjá mér. Hvað er hægt að biðja um meira. Annað sæti í eurovision og allt í góðu. Óska ykkur góðrar viku. Á morgun á frumburðurinn minn afmæli, Sólveig Ósk verður 31 árs, elska þessa stelpu í tætlur.
SÓLIN MÍN
|
Evróvisjón á Austurvelli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Spaugilegt | Facebook









Athugasemdir
Til hamingju með skottið þitt Ásdís mín. Ég kalla alltaf mína skott en hún er nú fædd ´77 svo þær eru næstum jafn gamlar. Var að pæla í því hvort þær hefðu verið saman í London. Mín var þar í átta ár. Vann hjá Iceland Air og er ný komin aftur til þeirra á Íslandi. Nei bara datt þetta svona í hug.
Ía Jóhannsdóttir, 17.5.2009 kl. 21:17
Já elsku Ásdís mín...það er svo sannarlega bongoblíða og ljúft að vera úti og sóla sig.....við erum sæl og kát og skemmtum okkur vel fjölskyldan í sundi og í gönguferðum..... og dekrum okkur með góðum ís
og elskan mín til hamingju með elsku fallegu ljúfuna þína og farðu vel með þig....
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 17.5.2009 kl. 21:29
Ómar Ingi Friðleifsson , 17.5.2009 kl. 21:51
Hún er bara nokkuð lík þér.
Húnbogi Valsson, 18.5.2009 kl. 02:07
Jónína Dúadóttir, 18.5.2009 kl. 06:42
Til hamingju með fallegu dömuna þína
Dísa Dóra, 18.5.2009 kl. 12:21
Til hamingju mæðgur.Er að fara út að njóta veðursins .Ummmmmmmm unaðslegt
Birna Dis Vilbertsdóttir, 19.5.2009 kl. 10:57
Til hamingju med dóttlu Ásdís mín.
KNús kvedjur frá Jyderup
Gudrún Hauksdótttir, 19.5.2009 kl. 17:35
Sæl og blessuð
Til hamingju með dóttir þína sem átti afmæli í gær.
Já þið eruð lánsöm núna, sólarmegin í lífinu. Hér er búið að vera þoka og ískalt síðan fyrir helgi og nú er búið að rigna í tvo daga en er loksins að þorna. Vona að ég geti farið að skríða meðfarm blómabeðunum. Fyrir helgi þurfti ég að klæða mig í úlpu og vera með ennisband til að verjast kuldanum.
Guð veri með þér og þínum
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 19.5.2009 kl. 17:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.