31.1.2009 | 00:44
En algjörlega besti janúar "so far" hjá mér.!!!
Ég er svo lukkuleg og kát. Janúar alveg að verða búinn og pabbi minn varð 83 ára í gær 30.jan. Besti pabbi í heimi fyrir mig, líka fyrir systur mínar. Besti tengdó, eiginmaður, afi og langafi. Mér finnst ég svo heppin að eiga ennþá pabba, sem er svona gamall en samt svo virkur og yndislegur kall. Verð bara að segja að þegar ég kom heim í kvöld, þá fannst mér ég heppnasta kona í heimi. Yndislegur dagur með fjölskyldunni, við systur slógum upp veislu hjá pabba og Hrafnistu og þar eyddum við lunganum úr deginum, glöddumst saman og afi fékk fjögur símtöl frá útlöndum, frá barnabörnum sem búsett eru í London, Köben, Drammen og Lux., ríkur karl hann pabbi minn og ríkar við stelpurnar hans.
það er svo fallegt veðrið hérna núna, logn og frost og föl yfiir öllu ég ég á leið í kojs, set eina huggulega mynd frá deginum í dag hér inn, finnst ykkur ekki annars Ísland besta land í heimi???
|
Versti janúar á Wall Street |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn
Athugasemdir
Til hammó með pabba þinn...já það er alltaf svo yndislegt þegar dagurinn heppnast svona vel.
Jú sammála þér að Ísland er besta land í heimi.
Hafðu það gott og góða nótt og ljúfa drauma.
kv Gunna.
Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 31.1.2009 kl. 01:25
Ía Jóhannsdóttir, 31.1.2009 kl. 05:49
Til hamingju með hann pabba þinn þú sýnir honum kannski myndirnar hjá mér.
það eru fleiri frá fyrri dögum.
Berðu honum kveðju frá Húsavík
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.1.2009 kl. 09:34
Til hamingju með pabba þinn Ásdís mín
Huld S. Ringsted, 31.1.2009 kl. 10:08
Skemmtilegt hjá þér, að sýna okkur mynd af vinnustaðnum mínum.
Þessi janúarmánuður er í slöku meðallagi hjá mér. Það held ég að sé góð frétt.
Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 31.1.2009 kl. 10:27
Til hamingju með hann pabba þinn, Ásdís mín.
Kær kveðja
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir, 31.1.2009 kl. 11:07
Ómar Ingi, 31.1.2009 kl. 12:06
Til hamingju með pabba þinn Ásdís mín. Svo satt að maður er lánsamur á meðan maður fær að njóta þess að hafa foreldra sína sem lengst.
Tiger, 31.1.2009 kl. 14:29
Jónína Dúadóttir, 31.1.2009 kl. 14:29
Til hamingju með pabba þinn, elsku Ásdís mín og bara til hamingju með lífið og ástina og hamingjuna líka. Það lánast ekki öllum að lifa í gleði og hamingju.
Ég er sammála, Ísland besta land í heimi!
knús...
SigrúnSveitó, 31.1.2009 kl. 17:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.