30.7.2008 | 10:48
Eitthvað svo íslenskt og saving Iceland legt.
Alveg dæmigert fyrir landverndarsinna í 101 og útlöndum. Þegar á að gera eitthvað í náttúrinni þá rjúka menn upp til handa og fóta og vilja stoppa, ekkert að spá í vilja heimamanna. Hvar voru mótmælendur í fyrra þegar verið var að virkja og byggja á Hellisheiði ?? ég sá þetta í hvert sinn sem ég keyrði í bæinn, duldist engum hvað var í gangi. Nú er verið að mótmæla en bara allt of seint, það er búið að byggja og virkja svo ég segi bara að það er of seint í rassinn gripið, eða eins og maður segir þá á ensku, too late in the ass grabbed 
Ég neita því alfarið að það sé "stóra planið" að við fæðumst hér á jörð og lifum án nokkurra ummerkja og hverfum svo til moldar á ný og hvað svo?? Okkur var gefið vit til að velja og hafna og frelsi til að framkvæma, læra og gera góða hluti. Ég treysti íslenskri þjóð til að taka eigin ákvarðanir.
ER EINHVER SEM GETUR SAGT MÉR HVAÐ ER SVONA FYNDIÐ VIÐ ÞESSA MYND??
|
Fossinn sem gleymdist |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:49 | Facebook









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn
Athugasemdir
Myndin er af kvensjúkdómalæknum þefa hver af öðrum...spurning hversu fyndið?
Hólmdís Hjartardóttir, 30.7.2008 kl. 11:11
Alveg fyndið
Ómar Ingi, 30.7.2008 kl. 11:14
Finnst þessi brandari alveg afskaplega ófyndinn.
Helga Magnúsdóttir, 30.7.2008 kl. 11:15
Rosalega er ég treg, fattaði þetta bara ekki. Fannst þetta með eindæmum ófyndin mynd.
Ásdís Sigurðardóttir, 30.7.2008 kl. 11:16
Þetta er ráðstefna hjá kvensjúkdómalæknum og ég myndi halda að skrautið á borðinu væri húmorinn. Það er jú eins og þú sérð eins og "skapabrúskur" he he he
Linda litla, 30.7.2008 kl. 11:20
Þetta er ráðstefna hjá kvensjúkdómalæknum og húmorinn er sá að þeir eru að þefa af fingrum hvers annars, þeim fingrum sem þeir nota til að skoða kynfæri okkar kvenna að innan. En það sem gerir þessa mynd frekar ófyndna er sú staðreynd að kvensjúkdómalæknar nota náttúrulega hanska og þar af leiðandi kemur engin "píkulykt" á fingurna á þeim!
Knús á þig
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir, 30.7.2008 kl. 12:20
"Alveg dæmigert fyrir landverndarsinna í 101 og útlöndum. Þegar á að gera eitthvað í náttúrinni þá rjúka menn upp til handa og fóta og vilja stoppa, ekkert að spá í vilja heimamanna."
Við erum öll Íslendingar og eigum landið saman, hvort sem við búum í 101 eða annars staðar. Oft er það líka svo, að fólk sem býr eða hefur búið erlendis kann betur að meta náttúru Íslands þegar það áttar sig á því hve einstök hún er. Rétt eins og þú mátt alveg hafa skoðun á hlutum sem eru að gerast í Reykjavík, hvort sem það varðar borgarstjórann, skipulag í miðborginni, staðsetningu flugvallarins eða hvað sem er, megum við Reykvíkingar hafa skoðun á því hvernig farið er með náttúruna okkar, nýtingu hennar og framtíð komandi kynslóða.
Hvað vilja heimamanna í Flóahreppi varðar vil ég benda þér og öðrum á þetta. Það fer ekki á milli mála að meirihluti heimamanna er andvígur þessum framkvæmdum.
Bæði einstaklingar og félagasamtök reyndu að sporna gegn Hellisheiðarvirkjun, umfangi hennar, stærð, staðsetningu og fleiru. Það komu mótmæli, athugasemdir og miklar umræður. Þetta virðist hafa farið fram hjá þér en ég er viss um að ef þú hefur áhuga geturðu nálgast bæði fréttir og gögn til að kynna þér málið.
Virkjunin var engu að síður reist og hefur breitt úr sér meira en nokkurn grunaði. Enn er verið að fylgjast grannt með framkvæmdum og leggja mat á hve langt OR hefur farið út fyrir þann ramma sem þeim var upphaflega settur.
Nú trónir Hellisheiðarvirkjun þarna eins og svöðusár í landslaginu og spúir eiturefninu brennisteinsvetni yfir Reykjavík og langt suður á Reykjanesið.
Það er alltaf sárgrætilegt að sjá þegar fólk setur alla undir sama hatt. Ég hef verið að skrifa um og tala fyrir náttúruvernd og reyna að benda á skaðsemi óþarfra virkjana og hvað býr að baki þeim, ef eitthvað, og afleiðingarnar til framtíðar. En ég á ekkert skylt við unga fólkið í Saving Iceland sem kýs að mótmæla á þennan hátt.
Auðvitað má fólk mótmæla hverju sem það vill með þeim aðferðum sem það kýs - á meðan það veldur ekki skaða. Hver hefur sinn háttinn á og þau velja þennan, gott og vel. Það geri ég ekki.
Þú segist treysta íslenskri þjóð til að taka eigin ákvarðanir. Viltu þá ekki líta um öxl - bara nokkrar vikur - og rifja upp nýlegar skoðanakannanir þar sem fram kom að meirihluti þjóðarinnar er andvígur fleiri virkjunum og stóriðju. Á tímum Netsins og upplýsingamiðlunar er mjög auðvelt að vera upplýstur um svona mál og rifja upp það sem fram hefur komið.
Það er langur vegur á milli þess að örfáir, misvitrir og misspilltir stjórnmálamenn taki ákvarðanir og þess að meirihluti íslensku þjóðarinnar taki eigin ákvarðanir.
Lára Hanna Einarsdóttir, 30.7.2008 kl. 14:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.